Morgunblaðið - 30.03.2005, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jónas Þórðarsonfæddist á Sviðu-
görðum í Árness-
sýslu 30. maí 1926.
Hann lést á heimili
sínu í Hafnarfirði að
morgni 17. mars síð-
astliðina. Jónas var
sonur Þórðar Kr.
Jónassonar bónda og
útgerðarmanns á
Stóru-Vatnsleysu og
Þórunnar Einars-
dóttur húsfreyju.
Systkini Jónasar eru
Guðríður, f. 1923,
Sigrún, f. 1924, Sæ-
mundur, f. 1927, Karl, f. 1933 og
Unnur, f. 1933, sem lifa bróður
sinn, en látin eru Lilja, Sigríður,
Eyþóra og Einar.
Jónas kvæntist 15. ágúst 1959,
Guðnýju Baldursdóttur, f. 18. des-
ember 1938. Foreldrar hennar
voru Baldur Guðmundsson og
Margrét Fanney Bjarnadóttir.
Jónas og Guðný eiga fjögur börn,
en þau eru: 1) Sigríður Auðbjörg,
f. 1960, gift Magnúsi Arthúrssyni,
f. 1954, börn hennar eru, Jenný
Lind, f. 1982, Rebekka, f. 1985, og
Jónas Henning, f. 1990. 2) Þórunn
Margét, f. 1961, gift
Óla Vigni Jónssyni,
f. 1960, synir hennar
eru Guðjón Frí-
mann, f. 1981, Bald-
ur Fannar, f. 1982,
og Magnús Franklín,
f. 1992, dóttir þeirra
er Lilja Dögg, f.
2000. 3) Sólveig
Jóna, f. 1962, gift
Jóni Ingvari Har-
aldssyni, f. 1953,
börn hennar eru
Birgir, f. 1980, Erna,
f. 1983, og Steinar, f.
1990. 4) Þórður
Kristinn, f. 1965, kvæntur Hjör-
dísi Pálmarsdóttur, f. 1966, dóttir
hans er Guðný Mikaela, f. 1990,
börn þeirra eru, Egill, f. 1991 og
Þórunn, f. 1997. Langafabörn
Jónasar og Guðnýjar eru Björn
Andri og Emilía Rós.
Jónas og Guðný bjuggu í Hafn-
arfirði flest sín hjúskaparár. Jón-
as var sjómaður til margra ára,
vörubílstjóri, vann í vélsmiðju og
ýmis önnur störf.
Útför Jónasar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Elskulegi pabbi minn. Ég kveð þig
með miklum söknuði.
Ég er svo þakklát í hjarta mínu að
hafa fengið tækifæri til að vera hjá
þér miðvikudaginn 16. mars og
reynt að gera fyrir þig allt það litla
sem ég gat, liggja í rúminu þínu og
bara að fá að halda í hendina þína og
tala við þig um allt og ekki neitt, þú
brostir bara. Elsku pabbi minn, ég á
svo margar góðar og ljúfar minn-
ingar um líf okkar saman, þú varst
alltaf mín stoð og stytta og studdir
mig í öllu. Í hvert sinn sem ég kom
heim til ykkar mömmu fagnaðir þú
mér alltaf með svo góðu faðmlagi og
kossi og sagðir; ertu komin, Jóna
mín, ljúfust elsku kellingin mín. Alla
tíð eftir að við börnin þín fluttum að
heiman og eignuðumst okkar heimili
og börn var alltaf opið hús hjá ykkur
mömmu fyrir okkur hvenær sem
var, ég var alltaf að flytja heim og að
heiman í mörg ár og alltaf studdir þú
mig. Ég held ég hafi aldrei getað
þakkað þér það nóg. Ótal ferðalög
fórum við í saman og áttum góða
daga, oftar en ekki var farið við eitt-
hvert vatnið svo hægt væri að bleyta
stöng. Stubburinn minn litli hann
Steinar alltaf vappandi í kringum
þig að læra af þér. Þegar ég bjó hjá
ykkur mömmu á Suðurgötunni með
börnin mín þrjú var alltaf miklu
betra að borða niðri hjá afa og
ömmu, ég tala nú ekki um ef það var
sviðasulta til í ísskápnum, þá hvarf
hún mjög fljótt í ykkur Steinar.
Þetta voru góð ár og krakkarnir
mínir muna þessi ár og tala mikið
um þau. Þú tókst vel á móti mínum
manni í fjölskylduna fyrir níu árum
síðan og náðuð þið vel saman. Hjálp-
aðir okkur að reisa okkur kofa í
sveitinni og varst alltaf boðinn og
búinn að koma og hjálpa ef eitthvað
var. Okkur Nonna fannst yndislegt
að fá ykkur mömmu í heimsókn til
okkar í sveitina. Ferðalagið okkar í
sumar sem leið þegar við fórum
hringinn, það var virkilega skemmti-
leg vika. Ég gæti haldið endalaust
áfram að rifja upp okkar ár, en það
er kominn tími til að kveðja, elsku
pabbi minn. Ég veit þér líður vel, ert
sáttur við þann stað sem þú ert lent-
ur á núna. Ég veit þú vakir yfir okk-
ur og hugar að fjölskyldu þinni, set-
ur fisk á öngulinn hjá okkur þegar
ekkert veiðist.
Hafðu hjartans þakkir fyrir allt og
allt.
Þín dóttir,
Jóna.
Hann talar við hjörtun sem blær við blóm.
Þei! Í fjarska er hringt. – Yfir fjöll, yfir dali
inn friðsælan kliðinn ber vindurinn svali
af himneskum kvöldklukkuhljóm:
„Þreytta sál,
sofðu rótt!
– Gefi þér
guð sinn frið!
Góða nótt!“
(Guðm. Guðm.)
Góða ferð, elsku pabbi minn.
Þórunn og fjölskylda.
Elsku besti afi.
Undanfarna daga hafa hrannast
upp í hugum okkar ótal minningar
og atburðir liðinna ára. Alltaf svo
ósköp ljúft og gott að koma til ykkar
ömmu og fundum við hvað við vorum
alltaf velkomin, umvafin ást og
hlýju. Þú heilsaðir okkur alltaf svo
vel, nei, nei ertu komin Erna mín,
krúttið mitt, og svo brostirðu breitt,
bauðst mér flatkökur og kókómjólk
því þú vissir að það var í miklu uppá-
haldi hjá mér og passaðir þú að það
yrði alltaf keypt þegar þú áttir von á
mér í heimsókn. Birgir fékk sömu-
leiðis knús og kossa þegar hann kom
í heimsók og blítt bros, sæll, elsku
kallinn. Góðar minningar eigum við
af Suðurgötunni. Við bjuggum þar
hjá ykkur ömmu í nokkur ár með
mömmu og Steinari, það voru ynd-
isleg ár, Birgir var oft að sýsla með
þér í bílskúrnum og hafðir þú mikla
þolinmæði með honum. Ég var ein-
göngu ömmustelpa til 6 ára aldurs
en sá þá að ég gæti líka verið afa-
stelpa og vorum við bestu mátar upp
frá því. Við minnumst allra ferðalag-
anna sem við fórum í og veiðiferð-
anna, við eigum skemmtilegar minn-
ingar frá þessum ferðum.
Elsku afi, við áttum svo margt eft-
ir að spjalla saman, við kveðjum þig
og þökkum þér fyrir allt sem þú
gafst okkur og kenndir.
Þín
Birgir og Erna.
Elsku hjartans afi minn.
Upp í huga minn koma ótal minn-
ingar þegar ég hugsa um þig núna
þegar þú hefur kvatt okkur. Minn-
ingar mínar um þig eru allar svo
yndislegar og góðar, minningar um
þær stundir sem við fórum bara
tveir saman, ég og þú, í veiðitúra á
rauða húsbílnum, það var flott. Ég
man að þegar ég var lítill þá bjó
mamma mín hjá ykkur ömmu á Suð-
urgötunni með mig, Birgi og Ernu,
við sátum við eldhúsborðið, ég og þú,
og ég spurði þig; afi, áttu ekki sviða-
sultu, þú kallaðir þá til ömmu sem
alltaf var að sýsla í eldhúsinu og
sagðir; eigum við sviðasultu handa
stubbnum? Ég man allar útilegurnar
sem við fórum í saman og oft fórum
viðeitthvert sem hægt var að veiða.
Fyrstu veiðistöngina mína bjóst þú
til handa mér, þá var ég smágutti og
þú bjóst til stöng úr rafmagnsröri og
settir á hana veiðihjól og lykkjur fyr-
ir línuna. Með þessa stöng stóð ég
stoltur við vötnin og kastaði eins og
ég ætti lífið að leysa. Ég var montinn
með þessa stöng. Ekki gleymi ég því
að einu sinni fyrir jól hjálpaðir þú
mér að smíða heljarinnar skúffu-
kassa handa Nonna pabba mínum,
ég og þú laumuðumst í bílskúrinn
þinn og svo kenndir þú mér hand-
tökin að smíða. Kassinn var flottur
og pabbi yfir sig ánægður að fá svo
góða gjöf. Ég kveð þig nú, elsku afi
minn, og hafðu ástarþakkir fyrir öll
þau yndislegu ár sem þú gafst mér.
Þinn
Steinar.
JÓNAS
ÞÓRÐARSON
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BIRNA BJÖRNSDÓTTIR
fv. bankafulltrúi,
Hvassaleiti 14,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 31. mars kl. 13.00.
Sigurður Pétur Harðarson,
Bjarki Harðarson, Þórdís Einarsdóttir,
Dögg Harðardóttir, Fjalar Freyr Einarsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN BORGHILDUR THORARENSEN,
Hrafnistu,
Laugarási,
áður til heimilis í Hvassaleiti 6,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi laugar-
daginn 5. mars.
Útförin fór fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. mars.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát hennar og
útför. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Reykjavík og á
deild B4 Landspítala Fossvogi.
Reynir Sigurðsson, Sólrún Garðarsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Sigurður M. Magnússon, Dröfn Guðmundsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞORMÓÐUR HAUKUR JÓNSSON,
Ugluhólum 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 31. mars kl. 11.00.
Laufey Svanbergsdóttir,
Eygló Hauksdóttir, Árni M. Sigurðsson,
Svanur Heiðar Hauksson, Hrefna Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir, amma og langamma,
KATRÍN VILHELMSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður Byggðarenda 4, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 31. mars kl. 13.00.
Karen Ólafsdóttir, Sævar Guðlaugsson,
Ólafur S. Ólafsson, Anton P. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
hlýhug og stuðning við andlát og útför
BJÖRNS ÓLAFSSONAR,
Krosseyrarvegi 9,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Jónsdóttir og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG SVEINBJÖRNSDÓTTIR
frá Möðruvöllum
í Kjós,
verður jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós
laugardaginn 2. apríl kl. 14.00.
Kári Jakobsson, Elín Sæunn Ingimundardóttir,
Eygló Þorgeirsdóttir, Reynir Pálmason,
Ólöf Þorgeirsdóttir, Sigurður Ásgeirsson,
Jón Þorgeirsson, Orapin Chaksukheuw,
Hugrún Þorgeirsdóttir, Einar Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
STEFÁNS VALDIMARS JÓHANNSSONAR
frá Hömrum,
Hrísalundi 18,
Akureyri.
Þórunn Ólafía Júlíusdóttir og fjölskyldur.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
GUÐNI HANSSON
tæknifræðingur,
Blönduhlíð 14,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut að
morgni páskadags.
Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn
1. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Guðrún Hansdóttir, Rúnar G. Sigmarsson,
Ragnheiður Hansdóttir, Bernharð Haraldsson,
Hermann Hansson, Heiðrún Þorsteinsdóttir,
Högni Hansson, Karin Loodberg,
Sigurður Örn Hansson, Helga Finnsdóttir,
Helga Hansdóttir,
Erlingur Hansson,
Vigdís Hansdóttir, Lars-Peter Sørensen
og fjölskyldur.