Morgunblaðið - 21.08.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 224. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SÍ‹ASTI
DAGURINN!
Meistari
Murray
Viðtal við einn eftirsóttasta leikara
Hollywood um frægð og fordild 16
Tímaritið og Atvinna
Tímaritið | Sérhæfir sig í að sérhæfa sig ekki Huldumenn
Stuðmanna Í veiði með Pálma Gunnarssyni Hvers virði er
náttúran? Atvinna | Stútfullt blað af auglýsingum
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
FYLGISMENN stjórnarandstöðunnar í
Bangladesh takast á við liðsmenn lög-
reglunnar í Dhaka í gær en örygg-
issveitir stjórnvalda höfðu aukinn við-
búnað í höfuðborginni og öðrum helstu
borgum landsins vegna mótmælaað-
gerða, sem stjórnarandstaðan boðaði
til, gegn sprengjutilræðum víðs vegar
um landið sl. miðvikudag sem kostuðu
tvo lífið. Íslömskum öfgahópum er
kennt um árásirnar á miðvikudag en
Awami-bandalagið, sem fer fyrir stjórn-
arandstöðunni, sakar stjórnarflokkinn
um að bregðast ekki nógu hart við ísl-
ömskum öfgasamtökum, spillingu og
glæpum í landinu. Hafa forsvarsmenn
bandalagsins ýjað að því að íslamskir
flokkar, sem aðild eiga að stjórn lands-
ins, haldi hlífiskildi yfir ódæðismönn-
unum. AP
Mótmæla
hryðju-
verkum
ERFÐAEFNISSKRÁ lögreglu
verður brátt að veruleika hér á
landi, en rúm fjögur ár eru liðin frá
því að Alþingi samþykkti lög um að
skránni yrði komið á laggirnar. Nú
standa yfir viðræður við bandarísku
alríkislögregluna, FBI, um afnot af
hugbúnaði stofnunarinnar til að
byggja upp gagnagrunninn.
Hugbúnaður FBI, CODIS, er
m.a. nýttur til að tengja saman
gagnagrunna lögreglu víðs vegar
um Bandaríkin, en öll 50 ríki Banda-
ríkjanna hafa samþykkt lög sem
heimila töku lífsýna úr dæmdum
mönnum og að erfðaefnisupplýsing-
ar um þá séu færðar í gagnagrunn.
Hér á landi verður erfðaefnisskrá
lögreglu vistuð í einni tölvu í hús-
næði ríkislögreglustjóra og verður
hún ótengd öðrum tölvum, til að
tryggja öryggi upplýsinganna.
Árni Albertsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, segir að þótt styttist í
að erfðaefnisskrá lögreglu verði að
veruleika borgi sig ekki að nefna
neina dagsetningu í því sambandi,
enda sé samningum við FBI ekki
lokið og töluverðan tíma taki að
ljúka öllum tæknimálum.
Við rannsókn lífsýna í sakamálum
er leitað eftir erfðaefni, DNA, með
óskilgreint hlutverk. Niðurstöðurn-
ar eru eingöngu nýtanlegar til að
bera kennsl á menn, en ekki er hægt
að lesa neinar heilsufarsupplýsing-
ar úr þeim. Gert er ráð fyrir að lífs-
ýnunum verði eytt eftir að erfðaefn-
ið hefur verið greint. Þá sé ekki
hægt að nota þau síðar í öðrum til-
gangi en þeirra var aflað.
Erfðaefnisskrá lögreglu á Íslandi til rannsóknar sakamála að verða til
Nota búnað FBI í erfðagrunn
Glæpamennirnir | 12
Íslensk
rannsókn á
hugsanleg-
um tengslum
Merck hyggst áfrýja úr-
skurði kviðdóms í Texas
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ og nokkrir
hjartalæknar hafa í undirbúningi rannsókn á
því hvort fylgni kunni að vera milli notkunar
verkjalyfsins Vioxx, sem nú er mjög í frétt-
um, og svipaðra bólgueyðandi lyfja og auk-
innar tíðni hjartaáfalla
og kransæðasjúkdóma í
sjúklingum hér á Íslandi.
Kviðdómur í Texas
felldi á föstudag þann úr-
skurð að bandaríska
lyfjafyrirtækið Merck og
Co. væri bótaskylt vegna
dauða manns í maí 2001
sem notaði Vioxx. Var
Merck dæmt til að
greiða ekkju mannsins bætur upp á 253,4
milljónir Bandaríkjadala, eða sem samsvar-
ar um 16 milljörðum ísl. króna.
Merck hefur þegar tilkynnt að það hyggist
áfrýja úrskurðinum. Segir það engar vís-
indalegar forsendur fyrir dóminum í Texas.
Ljóst þykir hins vegar að holskefla frekari
málaferla muni skella á fyrirtækinu en m.a.
eru í undirbúningi mál á hendur því í Bret-
landi og Ástralíu.
Gagnaðist mjög giktarsjúklingum
Tilkomu Vioxx var á sínum tíma fagnað,
en það kom á markað 1999. Þótti það
gagnast giktarsjúklingum mjög vel, enda
hafði það ekki sömu aukaverkanir og önnur
lyf sem giktarsjúklingar höfðu áður tekið.
En lyfið var tekið af markaði fyrir um ári eft-
ir að rannsókn leiddi í ljós að hættan á
hjartaáfalli og kransæðasjúkdómum þótti
tvöfaldast ef sjúklingar tóku lyfið samfleytt í
átján mánuði. Hefur því verið haldið fram að
Vioxx kunni að hafa valdið 27.785 hjartaáföll-
um eða dauðsföllum á þeim tíma sem lyfið
var á markaði.
Hjartalæknar | 4
YFIR sjö þúsund manns tóku þátt í Reykjavík-
urmaraþoni í gær sem þýðir að þátttökumet
var slegið í öllum vegalengdum. Í gær höfðu
rúmlega fjögur þúsund manns skráð sig til
leiks, sem var einnig met, svo borgarstjóra var
gefið rásnúmerið 4.000 í skemmtiskokkinu.
Fyrstur í heilmaraþoninu varð sigurvegari
maraþonsins fyrra, Måns Höiom, (t.v.) en hann
kom í mark á tveimur klukkustundum og 29
mínútum. Hann fagnar hér með Colin Deasy
sem var í öðru sæti. Bryndís Ernstsdóttir sigr-
aði í kvennaflokki.
Morgunblaðið/Jim Smart
Metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni