Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 47 DAGBÓK • Þekkt kaffihús í Reykjavík. Mjög góð staðsetning. • Gott iðnfyrirtæki fyrir trésmið sem vill breyta til. Ársvelta 150 mkr. • Matvælavinnsla með þekkt vörumerki. Hentar til flutnings og/eða sameiningar. • Rótgróið iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu. Ársvelta 70 mkr. Góð afkoma. • Stór heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði og góðan hagnað. • Vinsælt veitingahús í miðbæ Reykjavíkur. Mjög góð velta. • Lítil sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 mkr. • Rótgróin ferðaskrifstofa með innanlands- og utanlandsdeild. • Lítil heildverslun með byggingarvörur. Hentar vel til sameiningar. • Stór húsgagnaverslun með góð innkaupasambönd. • Þekkt heildverslun, sérverslun með húsgögn og gjafavörur. Ársvelta 70 mkr. Góður hagnaður. • Varmi, bílasprautun og réttingar. Þekkt nafn og stöðug velta. • Stór matvælavinnsla. Ársvelta 380 mkr. • Trésmíðafyrirtæki með eigin innflutning sem framleiðir heilsárshús. Góð verkefnastaða. • Heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 110 mkr. • Deildir úr heildverslunum með ýmsar vörur. Hentugar sem viðbót fyrir heildverslanir. • Stór heildverslun með hjólbarða. Vel tækjum búin. • Rótgróin bókabúð í miðbænum. Góður rekstur. • Lítið vínumboðsfyrirtæki með fjórar bjórtegundir í kjarna. Hentugt til sameiningar. • Þekkt fataverslun við Laugaveg. Ársvelta 30 mkr. • Meðalstórt verktakafyrirtæki í jarðvinnu. Góð verkefnastaða. • Rótgróin sérverslun með mikla vaxtarmöguleika. Ársvelta 37 mkr. DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR AUGLÝSIR EFTIR HRESSUM OG ÁHUGASÖMUM STRÁKUM Í KÓRINN · Drengjakórinn 8-12 ára · Undirbúningsdeild 6-7 ára · Eldri deild 15-20 ára Meðal verkefna í vetur: · Jólatónleikar í Salnum, Kópavogi · Jólatónleikar með Karlakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju · Vortónleikar í Hallgrímskirkju · Söngferð til Frakklands (Parísar) í byrjun júní 2006 Heimasíða kórsins er www.drengjakor.is Nánari uppl. í síma 896 4914 og 862 0065. Innritun og prufusöngur fer fram í Hallgrímskirkju mánudaginn 29. ágúst frá kl. 17.00-19.00 Til sölu BALDWIN SD 10 konsertflygill (2,70) Mjög vandað og vel með farið hljóðfæri Uppl. í símum 581 2725 og 897 9731 Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Berjaferð „út í bláinn“ fimmtu- daginn 25. ágúst. Brottför frá Gull- smára kl. 13.15 og Gjábakka kl. 13.30. Ekin Krísuvíkurleið í Selvog en þar mun vera gott berjaland. Kaffihlað- borð á „Hafinu bláa“. Ekin leiðin Al- viðra – Nesjavellir. Gefi ekki til berja verður farið í skemmtilega útsýnisferð „út í bláinn“. Skráningarlistar í fé- lagsmiðstöðvunum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 20. Klassík leikur fyrir dansi í Stangarhyl 4. Dags- ferð 30. ágúst Krýsuvík, Selvogur, Fló- inn. Komið við í Krýsuvík, Herdísarvík, Strandarkirkju og Þorlákshafnarkirkju, söfnin og kirkjan á Eyrarbakka skoðuð. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Félag kennara á eftirlaunum | Ferðin í Fjörður og Flateyjardal miðvikudaginn 24. ágúst kl. 9 frá Umferðarmiðstöð- inni á Akureyri. Skráning hjá KÍ í 595 1111. Félagsstarf Gerðubergs | Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar m.a. tréútskurður og almenn handavinna. Frá hádegi spilasalur opinn vist, brids, skák o.fl.Veitingar í hádegi og kaffi- tíma í Kaffi Berg. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið öllum opið. Púttvöllur alla daga. Gönguhópar fjórum sinnum í viku. Betri stofa og Listasmiðja virka daga. Dagblöðin liggja frammi. Morgunkaffi, hádeg- ismatur og síðdegiskaffi virka daga. Veitingar í Listigarðinum á góðviðr- isdögum. Hárgreiðslustofa 568 3139 og fótaaðgerðarstofa 897 9801. Norðurbrún 1, | Námskeið hefst aftur í leirvinnslu miðvikudaginn 31. ágúst kl. 9. Myndlist verður á mánudögum kl. 9–12 og postulínsmálning kl. 13–16.30. Á föstudögum verður myndlist kl. 9– 12, innritun er hafin í sima 568 6960. Vesturgata 7 | Námskeið í mynd- mennt, postulínsmálun, glerbræðslu, ensku, spænsku og bútasaum byrja í september, einnig er í boði leikfimi, sund, boccía, tréskurður, leshópur, kór og almenn handavinna. Skráning og nánari uppl. í síma 535 2740. Allir eru velkomnir óháð aldri. Vesturgata 7 | Hálfsdagsferð fimmtu- daginn 1. september kl. 13. Ekið um höfuðborgarsvæðið. Sögusafnið í Perl- unni skoðað (fyrir þá sem vilja). Kaffi- veitingar í Perlunni. Skráning í síma 535 2740. Allir eru velkomnir. Vitatorg, félagsmiðstöð | Nú stendur yfir skráning í námskeið vetrarinns, námskeiðin eru opin öllum óháð aldri og búsetu. Við erum með námskeið í bútasaum, perlu- og pennasaum, bók- bandi, glerskurði, glerbræðslu, bók- bandi og leirmótun. Allar uppl. í síma 411 9450. Kirkjustarf Háteigskirkja | Eldri borgarar í Há- teigssókn spila félagsvist alla mánu- daga klukkan 13.00. Kaffi klukkan 15.00. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Sam- koma sunnudaga kl. 20. Allir velkomn- ir. Bragð er að þá barnið finnur 4. ÁGÚST sl. hlustaði ég á „Ísland í bítið“ á Stöð 2. Þar sungu þeir eitt lag Bergþór Pálsson og Jóhann Friðgeir, með orgelleik Jónasar Þór- is. Yndislegt að hlýða á þessa lista- menn heima í eldhúsi hjá sér með morgunkaffinu. Það kom um leið upp í huga minn lítið atvik frá 17. júní sl. og af því að ég hef dálæti á góðum sögum um börn sem eru orðheppin þá langar mig að segja frá þessu. Við fórum í hátíðarmessu að Lágafelli og þar sem við hjónin sát- um með sonarson (nýlega orðinn 6 ára) á milli okkar, þá hóf Jóhann Friðgeir upp raust sína og Jónas Þórir lék á orgelið. Gamla timb- urkirkjan rétt titraði við þessa sterklegu tóna og drengurinn sat öf- ugur og starði upp á söngloftið, með gleðisvip. Að söngnum loknum stundi hann upp: „Þessi gæti alveg verið óperu- söngvari“! Bragð er að þá barnið finnur. Hvaðan hann kunni þetta orð veit ég ekki, en vissulega var auðvelt að vera honum sammála. Með þökk fyrir góðan söng. María S. Gísladóttir. Vistakstur og hraðahindranir ÞAR sem það er alltaf verið að hvetja fólk til vistaksturs langar mig á að benda á nokkur atriði. Það er ekki nokkur leið að stunda vistakst- ur á höfuðborgarsvæðinu vegna endalausra hraðahindrana úti um allt. Einnig er aragrúi umferðarljósa alls staðar og mörg þeirra þjóna ekki nokkrum einasta tilgangi eins og t.d. ljósin á horni Sundlaugavegar og Reykjavegar. Það er mengandi að þurfa alltaf að vera að stíga á bens- íngjöfina þegar komið er yfir hraða- hindrun. Einnig er það augljóst að Íslendingar eru komnir út fyrir öll skynsamleg mörk í gerð hraðahindr- ana, ég hef hvergi erlendis séð eins mikinn aragrúa af þeim alls staðar. Miklu frekar væri að láta lögguna vera á verði og mæla hraðann á bíl- um í þessum götum í stað þess að vera að planta niður þessum hraða- hindrunum sem bæði menga, skemma bíla og fara illa í skrokkinn á mörgu eldra fólki. Ökumaður. Skorradalsvatn Í MORGUNBLAÐINU 16. ágúst sl. var grein eftir Guðjón Jensson í Bréfum til blaðsins um Skorradals- vatn og vaxandi umferð vélknúinna farartækja á vötnum landsins. Ég vil vekja athygli á þessari grein, sérstaklega hjá þeim sem búa við vötn landsins að íhuga þessa til- lögu hans í greininni því það er með ólíkindum hvað þeir sem fara á hrað- bátum um vatnið virðast lítið sækj- ast eftir kyrrð og ró. Vil ég að eitthvað sé gert í þessum málum. Íbúi við Skorradalsvatn. Gleraugu týndust GLERAUGU í ljósbrúnni umgjörð týndust í Skipholti að kvöldi 4. ágúst sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 565 6090. Farsími týndist NOKIA 3210-farsími týndist við Skjaldbreið 6. ágúst sl. Eigandinn er níu ára og saknar hans mikið. Skilvís finnandi hafi samband í síma 849 7877. Gleraugu í óskilum FUNDIST hafa gleraugu á bíla- stæði við Gnitaheiði í Kópavogi fyrir um það bil tveimur vikum. Nánari upplýsingar í síma 564 1573 eða far- síma 824 6956. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hlutavelta | Þessir duglegu krakk- ar, Kristbjörg, Ingimundur og Ingi- björg Marie, héldu hlutaveltu nýlega og söfnuðu 2.480 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Morgunblaðið/Jim Smart Hlutavelta | Þessi duglegu krakk- ar, Hafþór Andri, Ásta Margrét, Hlín, Snæfríður Birta, Sindri Heið- ar, Kjartan og Svana Rós, héldu hlutaveltu nýlega og söfnuðu 2.667 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. OPIÐ hús verður í dag í Króki á Garðholti í Garðabæ. Þar er um að ræða lítinn bárujárnsklæddan burstabæ sem endurbyggður var úr torfbæ árið 1923. Þar eru varð- veitt gömul húsgögn og munir hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar sem bjuggu á bænum á sínum tíma. Í Króki er einnig vinnuaðstaða fyrir listamenn og er tekið við um- sóknum listamanna um tíma- bundna aðstöðu þar, í 1-3 mánuði í senn yfir vetrartímann. Aðstaðan hentar vel fræðimönnum en síður listamönnum sem þurfa mikið rými. Krókur hefur verið opinn á sunnudögum í sumar og verður í dag og næstu tvær helgar opinn frá kl. 13 til 17. Aðgangur er ókeypis. Krókur er á Garðaholti ská á móti samkomuhúsinu við Garðakirkju. Opið í Króki Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.