Morgunblaðið - 21.08.2005, Page 8

Morgunblaðið - 21.08.2005, Page 8
8 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gæsaveiðitímabiliðhófst í gær ogstendur til 15. mars næstkomandi. Búist er við því að allt að 3.500 veiðimenn muni freista þess að skjóta gæs í ár. Veiðitímabilið í ár er nokkuð sérstakt að því leyti að veiðar á rjúpu hafa verið leyfðar á ný en eins og kunnugt er hafa þær verið bannaðar undanfarin tvö ár til að vernda rjúpn- astofninn. Þegar bann við rjúpna- veiðum tók gildi á sínum tíma töldu flestir að veiði- álag á gæsina myndi aukast til muna en ekki virðist hafa ræst úr því, að sögn Áka Ármanns Jóns- sonar, veiðistjóra, sem segir að gæsaveiðar hafi ekki aukist svo neinu nemi árið 2004, sé miðað við veiðitölur. Erfiðara sé hins vegar að segja til um veiðar árið 2003 sökum þess að hópur veiðimanna hafi ákveðið að skila inn röngum tölum fyrir það ár í mótmælaskyni við ákvörð- un stjórnvalda um að banna rjúpnaveiðar. Í fyrra voru alls veiddar um 48.500 gæsir, en þar af var mest veitt af grágæs, eða 33.000 fuglar. „Það er svipað og var áður en rjúpnaveiðibannið var sett á. Síð- ustu árin þar á undan var verið að veiða 30-35 þúsund grágæsir. Það er í efstu mörkum þess sem stofn- inn þolir en hins vegar virðist hann þola það eins og er,“ segir Áki og bætir við að gæsastofninn hér á landi sé í nokkuð góðu horfi og ekki standi til að draga úr veið- um. Gæsaveiðar krefjast veiðireynslu Aðspurður hvers vegna ásókn í gæsastofninn hafi ekki aukist meira í kjölfar rjúpnaveiðibanns- ins segir Áki hugsanlegt að fleiri hafi farið á gæsaveiðar þótt veiðin hafi ekki aukist. Gæsaveiðar krefjist nokkurrar veiðireynslu sem ekki allir hafi búið yfir og því hafi veiðin ekki orðið meiri en raun bar vitni. Veiðar á grágæs urðu mestar árið 1997 þegar um 41.000 fuglar voru veiddir en að sögn Áka hafa færri fuglar verið skotnir undan- farin ár. Gæsastofninn telur um 80 þúsund fugla og segir Áki stofninn þola að árlega séu veiddir um 35 þúsund fuglar. Ef veiði sé meiri geti það sett stofninn í hættu. Aðrir gæsastofnar sem veitt er úr hér á landi eru blesgæs, heiðagæs og helsingi en síðast- nefndi stofninn er friðaður í Aust- ur-Skaftafellssýslu til 25. septem- ber. Eins og áður sagði er búist við því að allt að 3.500 veiðimenn fari á gæsaveiðar í ár og er að sögn Áka mest veitt á Suður- og Norðausturlandi. Aðspurður segir Áki að veiði- tímabilið leggist vel í sig en hann hafi þó nokkrar áhyggjur af því hve varp byrjaði seint í vor. Dregur úr álagi á gæsina Ragnar Gunnlaugsson, stjórn- armaður í Skotveiðifélagi Íslands, segir að í kjölfar þess að rjúpna- veiðar voru leyfðar á ný megi bú- ast við því að eitthvað dragi úr álaginu á gæs. „Rjúpnaveiðar hafa dregið úr skotálaginu á gæs- ina á þeim tímapunkti þegar hún er hvað viðkvæmust fyrir veiðum, sem er í lok tímabilsins, þegar hún hópar sig saman áður en hún fer af landinu. Flestir hafa hætt gæsaveiðum þegar rjúpnaveiðar byrja þannig að það má gera ráð fyrir að það slaki aðeins á gæsa- veiðunum í kjölfarið og þetta dreifist jafnara yfir stofnana,“ segir Ragnar. Hann tekur í sama streng og Áki og segi gæsaveiði ekki hafa aukist mikið á meðan rjúpnaveiði- bannið stóð yfir, enda muni yfir- leitt mestu um magnveiðimenn- ina. Minna muni um þá sem veiði einungis nokkra fugla í hvert skipti. Ragnar segir Skotveiðifélagið leggja áherslu á að menn sýni ákveðið hóf í veiðunum. „Þetta eru forréttindi sem við viljum geta gengið að um ókomna framtíð,“ segir hann. Aðspurður út í þær aðgerðir veiðimanna að senda frá sér villandi veiðitölur í mótmæla- skyni segist Ragnar vita til þess að einhverjir gerðu það. Það hafi hins vegar ekki verið frá Skotvís komið, enda hafi sambandið ávallt lagt áherslu á að veiðimenn sendi frá sér réttar veiðitölur. Sterkir grágæsa- og heiðagæsastofnar Arnór Þórir Sigfússon fugla- fræðingur segir að bæði grágæsa- og heiðagæsastofnar hér á landi séu nokkuð sterkir. Almennt sé talið að grágæsastofninn telji 80 þúsund en Arnór segir að rann- sóknir sem Náttúrufræðistofnun hafi látið vinna bendi til þess að það sé vanmat og að stofninn geti verið allt að 150 þúsund fuglar. Um 230 þúsund fuglar séu í heiða- gæsastofninum. Blesgæsastofninn standi hins vegar ekki jafnsterkum fótum hér á landi, sem helgist m.a. af því hve illa varp hjá blesgæsinni gangi. Arnór telur að veiðar á grágæs séu í það mesta hér á landi og seg- ist hafa ráðlagt mönnum að fara hóflega í veiðarnar. Fréttaskýring | Gæsaveiðitímabilið hafið Minna álag á gæsastofninn Gæsaveiðar jukust ekki að ráði þrátt fyrir rjúpnaveiðibann 2003 og 2004                                                      Alls veiddust um 48.500 gæsir í fyrra. Byrja veiðar of snemma?  Jóhann Óli Hilmarsson, for- maður Fuglaverndarfélagsins, segir að kaldur maímánuður í ár kunni að hafa haft áhrif á gæsa- varp eins og varp annarra fugla. Því sé óráðlegt að byrja veiðar svona snemma. „Maí var ansi kaldur og hafði áhrif á marga fugla,“ segir Jóhann en bætir því við að gæsaungar hafi nóg að éta núna og séu að taka við sér. Hins vegar hefði að mati félagsins verið eðlilegra að láta veiði- tímabilið byrja 10 dögum síðar. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Beint leiguflug* 26. febrúar í 9 nætur ÍS L E N S K A A U G L † S IN G A S T O F A N /S IA .I S U R V 2 9 2 6 3 0 8 /2 0 0 5 *Flogið til Eagle County í Colorado, millilent í Minneapolis vegna eldsneytistöku og vegabréfaskoðunar. Frægastu skíðastaðir í heimi! Aspen og Vail www.urvalutsyn.is Verð frá: 139.780 kr. á mann í tvíbýli m/morgunverði á Inn at Aspen. Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gising m/morgunverði í 9 nætur og íslensk fararstjórn. • Glæsileg hótel miðsvæðis í Aspen og Vail • Sértilboð á skíðapössum í Aspen – eingöngu fyrir viðskiptavini Úrvals-Útsýnar SKIPVERJAR á Þorleifi EA voru að landa um 10 tonnum af þorski í Grímsey í gær og var þetta síðasta veiðiferðin á þessu kvótaári. „Við vorum að klára kvótann og bíðum nú eftir nýju kvótaári,“ sagði Al- freð Garðarsson skipstjóri en Þor- leifur EA hefur stundað netaveiðar. „Það er bullandi fiskur um allan sjó,“ sagði Alfreð en aflinn fékkst á svokölluðum Leirhrygg. „Það voru einir 9 togarar norðan við okkur, á svokölluðum Groenshrygg, og þeir voru að fá 30-40 tonn á sólarhring.“ Alfreð sagði að árið hefði gengið mjög vel og að það sama ætti við um línubátana í eynni. „Það sem er óvenjulegt nú er hversu djúpt fisk- urinn liggur, eða á 150-200 faðma dýpi, og telja menn að fiskurinn sé þar að leita í kaldari sjó.“ Á myndinni er Konráð Gylfason að landa úr Þorleifi EA í höfninni í Grímsey. Morgunblaðið/Kristján Bullandi fiskur um allan sjó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.