Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR hafa eflaust beðið þessa dags með óþreyju og fyrstu gæsir þessa veiðitímabils eru sjálfsagt þeg- ar fallnar en frá miðnætti 20. ágúst hófst gæsaveiðatíminn. Frá og með 1. september bætast svo við þær 7 andategundir sem leyfilegt er að veiða auk annarra tegunda (svartfugl og skarfur) sem friðun er aflétt af tímabundið. Reyndar er full ástæða til að velta fyrir sér hvers vegna gæsaveiðin hefst tíu dögum fyrr en önnur skot- veiði og líklegasta skýringin sú að þetta sé arfur frá fyrri tíð sem fáir muna í dag hvernig á stendur. Þegar umræðan um friðun rjúpunnar stóð sem hæst í hitteðfyrra var t.a.m. bent á að dagsetningin 15. október var ein- ungis arfleifð frá þriðja áratug síð- ustu aldar er hvað mest var flutt út af rjúpu og erlendir kaupendur vildu ekki rjúpuna nema hún væri orðin hvít á fiðrið. Veiðimenn biðu því fram í miðjan október til að eiga hægara með að selja fuglinn. Nú þegar veiðar verða heimilaðar á ný er margt sem styður þá tillögu að hefja veiðarnar fyrr; í september er rjúpan enn brún á fiðrið og dylst betur á snjólausri jörð og fuglarnir eru lítið farnir að hópa sig svo magnveiðimenn þyrftu að hafa meira fyrir veiðunum. Rjúp- an yrði því erfiðari bráð og er það vel þar sem enginn er að veiða sér til lífs- viðurværis og því sjálfsagt að nokkuð þurfi á sig að leggja. Verður fróðlegt að sjá reglugerð umhverfisráðuneytisins um nýtt fyr- irkomulag rjúpnaveiða sem væntan- leg er í byrjun september. Vonandi verður þar dregin afdráttarlaus lína um sölubann á rjúpu en slíka reglu ætti einnig að setja um gæsaveiðar þar sem veiðimenn fara sumir hverjir offari í magnveiðum í von um end- urheimt veiðileyfa með sölu á bráð- inni. Þessi hugsun er löngu úrelt í stangveiði, engum dettur lengur í hug að veiða upp í kostnað við veiði- leyfi og það er hrein tímaskekkja að hugsa þannig um skotveiðar. Þetta eru sportveiðar sem áhugamenn eru tilbúnir að kosta talsverðu til en tekjur af skotveiðum með sölu bráð- arinnar munu sjálfsagt heyra sög- unni til áður en langt um líður. Sjálfbærar veiðar með markvissri stjórnun eru það sem koma skal og er skipulag hreindýraveiðanna gott dæmi um vel heppnaða stjórnun skotveiða. Reglugerð um rjúpnaveið- ar verður vonandi fyrsta stóra skref- ið í þá átt að gera veiðar á tiltekinni fuglategund sjálfbærar og hlýtur að mega gera ráð fyrir að sambærilegar reglur um gæsaveiðar verði fljótlega settar. Veiðiálag á grágæs er að mati allra er til þekkja í efri mörkum og má stofninn lítt við náttúrulegum áföllum til að veiðarnar hafi ekki af- gerandi áhrif. Heiðagæsastofninn er á hinn bóginn mjög sterkur og hafa veiðimenn verið hvattir til að sækja meira í þann stofn. Margir veiðimenn skipta veiðitímanum þannig að fyrri hluta hans sækja þeir í heiðagæsina upp á hálendið en þegar komið er fram yfir miðjan september og heiða- gæsin að hverfa af landi brott snúa þeir sér að grágæsinni á heimalönd- unum. Heiðagæsaveiðar á hálendinu Heiðagæsin er hálendisfugl og veiðar á henni eru nokkuð frábrugðn- ar grágæsaveiðum og gera annars konar kröfur og útheimta aðra þekk- ingu af veiðimönnunum. Veiðitækin eru þó hin sömu, fatn- aður í felulitum, haglabyssa og gervi- gæsir, oftast svokallaðar flotgæsir og nægir yfirleitt að hafa 4–7, enda erfitt að burðast með margar slíkar um holt og móa að tjörnum, vötnum eða árbökkum þar sem sest er í fyrirsát. Er að sjálfsögðu gert ráð fyrir að veiðimenn virði reglur um bann við akstri vélknúinna ökutækja utan merktra slóða. Heiðagæsaveiðar eru aðallega stundaðar að kvöldlagi og koma veiðimenn sér fyrir við væn- legar tjarnir, árbakka eða lítil heiða- vötn á hálendinu þar sem sjá má um- merki, skít og fjaðrir, um næturstað fuglanna. Verða menn fljótt býsna glöggir að átta sig á því hvort skítur er nýlegur eða gamall en skítur frá nóttunni á undan er öruggasta vís- bendingin um að þær sömu gæsir muni leita aftur í sama náttstað hafi þær ekki orðið fyrir truflun. Tálfuglarnir eru síðan lagðir út, flotgæsir á vatn og skeljar á bakkann og veiðimenn koma sér fyrir í skjóli með vindinn í bakið og bíða átekta. Þegar byrjar að skyggja hefst flugið, gæsahóparnir taka sig upp af heiða- löndunum þar sem þær hafa dvalið daglangt við át á berjum og öðrum gróðri og leita sér að hentugum næt- urstað þar sem gnægð er vatns og sands til að melta fæðuna. Náttstað- urinn þarf sem sagt ekki að vera notalegur í augum okkar mannfólks- ins, oft eru þetta hálfgerðir drullu- pollar, þar sem fuglinn er ekki að sækjast eftir beitilandi heldur ein- ungis vatni að drekka og góðum sandi í fóarnið til að melta. Leirtjarn- ir eru lægstar á listanum þar sem leirinn hentar gæsinni alls ekki. Heiðagæsin er á ferðinni fram í myrkur og kallar mikið og leitar eftir félagsskap annarra gæsahópa; því getur skipt sköpum færni veiði- manna við að blása í gæsaflautur og vekja með því athygli gæsanna og fá þær til að láta blekkjast af gervifugl- unum og lækka flugið til að skoða betur hversu álitlegur náttstaðurinn er. Þegar gæsir hafa séð tálfuglana og tekið stefnuna til þeirra gildir mestu fyrir veiðimennina að vera kyrrir. Gæsin er mjög varkár og skoðar allt umhverfið vandlega um leið og hún nálgast. Minnsta truflun, Gæsaveiðin hafin! Morgunblaðið/Ingó Veiðar á heiðagæs eru aðallega stundaðar að kvöldlagi við tjarnir, vötn og ár á hálendinu. Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is SKOTVEIÐI | SJÁLFBÆRAR VEIÐAR MEÐ MARKVISSRI STJÓRNUN ÞAÐ SEM KOMA SKAL SÓLIN lyftir sér rólega yfir Sel- árdal í Vopnafirði og yljar mönnum og skepnum eftir kaldan norðan þræsing undanfarna daga. Ekki er laust við að það sé haustlykt í lofti og lóur eru að hópast saman á eyr- um árinnar. Norðanáttin hefur þó ekki komið niður á veiðinni, þvert á móti, daginn áður veiddust 45 laxar á stangirnar átta; vikan var að gefa 35 til 50 laxa á dag og veiðin í ánni að ná áður óþekktum hæðum. Franski veiðimaðurinn Marc- Adrien Marcellier er að ljúka fimm daga veiði í Selá og er mættur á svæði eitt, við brýrnar, um klukkan átta um morguninn. Hann hefur lokið umferðunum í gljúfrunum of- ar í þessari á, sem býr yfir miklum þokka og svo fjölbreytilegum veiði- stöðum að veiðimenn þurfa að hafa öll brögð og veiðitækni fluguveið- innar á sínu valdi til að ná góðum árangri. Og Marcellier er kapp- samur kunnáttumaður; í ferðinni hefur hann glímt við tæplega 100 laxa og landað um 40. Við ökum niður að gömlu brúnni og Marcellier tekur tvær stangir af bílnum, á annarri er hitstúpa, Col- lie Dog-áltúpa fyrir stripp á hinni. „Við höfum nógan tíma hérna,“ segir hann og veður útí efst á Brú- arbreiðu, löngum og afar fallegum fluguveiðistað, og byrjar að kasta gárutúpu. Hann veiðir strenginn rólega en samt af nákvæmni og laust fyrir hálfníu rennur flugan fyrir framan stórt grjót og lax skellir sér á hana. Marcellier tekur fast á honum og skömmu síðar er hann búinn að stranda silfurbjört- um smálaxi með halalús. Hann mælir fiskinn, losar úr honum flug- una, smellir kossi á trýnið á honum og nokkrum sekúndum síðar skýst laxinn aftur út í strauminn. „Þá er að ná fleirum,“ segir veiðimaðurinn brosandi og veður aftur útí. Nokkrum mínútum síðar bendir hann mér að koma, lax hefur verið að elta fluguna. Hann tekur í næsta kasti, með gusugangi og lát- um. Síðan leggst fiskurinn úti í strengnum, þetta er stór lax. Mar- cellier nær að lempa hann uppað landi en eftir nokkrar mínútur skýst flugan uppúr vatninu. Veiði- maðurinn er samt ánægður, hann fékk viðureignina og segir, „kannski tekur annar,“ um leið og hann kastar aftur. Ekkert gerist og Marcellier er búinn að hitsa nið- ur allan strenginn. „Gárutúpan er skemmtilegt veiðitæki,“ segir hann þegar hann kemur uppúr. „Þetta svæði hér heldur miklu af fiski. Einum land- að og aðrir taka, það er ekki slæmt.“ Hann færir sig aftur uppfyrir og strippar fluguna að þessu sinni. Og sólin hækkar á lofti. Marcellier er næstum búinn að strippa hratt yfir alla breiðuna þegar stór lax tekur, þungt og ákveðið. Þetta verður löng viðureign, enda strax ljóst að fiskurinn er vænn og ætlar ekki að gefa sig auðveldlega. Loks tekst þó að ná honum að landi og eftir tals- verða stund og nokkrar tilraunir hefur hann hendur á sporði sex kílóa hrygnu. Hann losar fluguna varlega úr fiskinum og dáist að STANGVEIÐI | VEITT MEÐ MARC-ADRIEN MARCELLIER Í SELÁ Í VOPNAFIRÐI Sterkustu laxar sem ég hef lent í Morgunblaðið/Einar Falur Gusugangur á Brúarbreiðu. Marc-Adrien Marcellier um það bil að sporðtaka tólf punda hrygnu í Selá. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Í DAG er veitt með einum þeirra fjöl- mörgu erlendu veiðimanna sem koma til Íslands á hverju sumri. Marc-Adrien Marcellier var við veiðar í Selá í Vopnafirði, þeirri rómuðu laxveiðiá þar sem veiðimenn upplifa metveiði- sumar. Marcellier er franskur fjár- málamaður, búsett- ur í París. Hann hef- ur veitt víða um heim, svo sem í Chile, Argentínu, Rússlandi, Skotlandi og Kanada, en þegar hann var í framhaldsnámi í San Francisco naut hann þess að veiða sjó- birting í Bresku Kólumbíu. Þar komst hann líka uppá lagið við að sleppa veiddum fiski, en það er skylda vestra. Marcellier hefur veitt á Íslandi frá árinu 1994, fyrir tilstuðlan Orra Vig- fússonar, er hann er stjórnarmaður í NASF, Verndarsjóði villtra laxastofna, sem Orri stýrir. Hann hefur veitt í nokkrum íslenskum ám, en einkum Laxá í Aðaldal og Selá. Hefur veitt víða um heim Marc-Adrien Marcellier
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.