Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 25 Skráning og upplýsingar: Sími: 575 1512 & 897 7922 E-mail: aria@islandia.is Fákafeni 11 • www.poppskolinn.is • Sími 588 1111 María Björk Skólastjóri/Kennari Regína Ósk Yfirkennari/Kennari Birgitta Haukdal Söngkona/Kennari Hera Björk Söngkona/Kennari Jónsi Söngvari/Kennari Þóra Söngkona/Kennari Ragnheiður Söngkona/Kennari Friðrik Ómar Söngvari/Kennari Eivör Pálsdóttir Söngkona/Kennari Alma Rut Söngkona/Kennari Björgvin Franz Leikari/Kennari Yesmine Dansari/Kennari Gudrun Holck Skólinn mun á þessari önn auka samstarf sitt við sérhæfðan söngskóla erlendis. Boðið verður upp á námskeið sem byggir á þjálfun í söng og raddtækni fyrir atvinnusöngvara og þá sem eru lengra komnir í námi. Gudrun Holck, sem er með mastersgráðu frá þessum skóla mun koma og stýra námskeiðinu. SÖNGNÁMSKEIÐ HAUSTÖNNIN ER AÐ HEFJAST Á haustönn verður boðið uppá: 5 ára og eldri: Byrjenda- og framhaldsnámskeið Unglingar: Byrjenda- og framhaldsnámskeið Fullorðnir: Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Aldursskiptir hópar. Haldnir verða tónleikar á námskeiðinu og nemendur fá upptöku með söng sínum á geisladisk í lok námskeiðs. Nýtt: Námskeið fyrir lengra komna með Gudrun Holck. Einstakt tækifæri fyrir góða söngvara (ekki bara atvinnufólk) 13 ára og eldri. Markmið söngkennslunnar er að þjálfa nemendur í túlkun, raddbeitingu, sjálfstyrkingu og framkomu. Skólinn leitast við að veita nemendum sínum tækifæri á að koma fram opinberlega svo sem við hljóðritanir, framkomur í sjónvarpi og á öðrum vettvangi. Skólinn leitast við að hafa sérþjálfað starfslið sem eru atvinnumenn hver á sínu sviði. Við erum að velja börn og unglinga í nokkur verkefni sem unnið er að á þessu ári og á því næsta, þ.á.m. Geisladiska, myndbönd, sjónvarpsútsendingar ofl. SÖNGSKÓLINN ER Í LEIT AÐ HÆFILEIKAFÓLKI! MARÍU BJARKAR Stærsta lagasafnið yfir 2.000 lög til að velja úr Sólin var farin að halla sér örlítið í áttað suðurskautinu á þessu indælasumri þegar ég skreið yfir á sjö-unda áratuginn. Faðir minn elsku-legur sagði eitt sinn að ekki hefði verið hægt að velja sér betri fæðingardag en um miðjan júlí þegar íslenska sumarið, sem hann unni svo mjög, skartaði sínu fegursta. Að sjálfsögu var hann þar meiri áhrifavaldur heldur en litli sakleysinginn sem lenti sólar- megin í tilverunni rétt fyrir lok heimsstyrj- aldarinnar síðari. Samt var ég ekki há í loftinu þegar fram- tíðin fór að virðast nokkuð skuggaleg. Engin vöntun var á góðum fyrirmyndum en mér gekk illa að samasama mig þeim. 10 þumalfingur, sjón- skekkja og almennur skortur á kvenlegum dyggðum hlutu að koma í veg fyrir að ég gæti saumað glæsifatnað á heila fjölskyldu, soðið þvott niðri í dimmum kjöllurum eða smellt háum hælum í takt við vinkonur með hatt á höfði á leið niður Lauga- veg. Svo voru það konurnar sem ég sá úti í fiskbúð í bomsum, með slæður og töldu tíeyr- inga upp úr snjáðum buddum. Ég gat ekki heldur séð mig í sporum þeirra, hvað þá bændakvennanna sem ég dvaldist hjá í torf- bæjum á sumrin og reyndu eftir megni að koma einhverju verksviti inn í lítinn sveim- huga. Til allrar hamingju glaðnaði smám saman til því samfara bættum efnahag hópuðust stúlkur unnvörpum í framhaldsnám. Samt litu flestir á það sem undirstöðu að góðu hjónabandi. Þar vandaðist málið. Að vísu hafði margs konar tækni auðveldað heim- ilishald en allt sem að því laut varð sjálfkrafa á verksviði kvenna og barnaheimili fágætur munaður. Hlutskipti ógiftra kvenna þótti heldur dapurlegt og fáar völdu sér það af ráðnum hug. En svo breyttist heimurinn. Það þóttu mik- il tímamót þegar við þrömmuðum með stytt- una af Lýsiströtu niður Laugaveg undir vor- himni árið 1970 og stofnuðum síðan Rauðsokkahreyfinguna af ólgandi krafti. Markmiðið var umfram allt að hrista Þyrni- rósarsvefninn af okkur sjálfum og finna að við værum ekki einungis í heiminn bornar til að annast börn og bú þótt við vildum gjarnan lifa eðlilegu fjölskyldulífi. Og straumar frá þessari kjarnmiklu hreyfingu seytluðu um samfélagið, hnikuðu við gömlum gildum og ruddu braut fyrir önnur ný – sólarmegin. Allt þetta flaug í gegnum kollinn á mér á afmælisdaginn og niðurstaðan varð sú að ég hefði komið í heiminn á hárréttu andartaki. Það var sem árin mín sextíu hefðu flest verið skrifuð sólstöfum. HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Guðrúnu Egilson gudrun@verslo.is Sólar- megin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.