Morgunblaðið - 21.08.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.08.2005, Qupperneq 44
Mímí og Máni Kalvin & Hobbes VILTU KOMA Í MÖMMU- LEIK KALVIN? ÉG KANN HANN EKKI SJÁÐU TIL, FYRST KEMUR ÞÚ HEIM ÚR VINNUNNI. SÍÐAN KEM ÉG HEIM ÚR VINNUNNI ÞEGAR ÞAÐ ER BÚIÐ ÞÁ TÖLUM VIÐ UM VINNU- DAGINN OG RÍFUMST UM ÞAÐ HVER Á AÐ ELDA ÖRBYLGJURÉTTINN Risaeðlugrín SVONA BYFLUGA, SESTU HÉR Á TRJÁBOLINN © DARGAUD NEI! EKKI Á ANDLITIÐ Á MÉR. ÉG SAGÐI Á TRJÁBOLINN!! Í HVAÐA LEIK ER HANN? HANN ER AÐ REYNA AÐ ÞJÁLFA BÝFLUGU TIL AÐ SETJAST Á TRJÁBOL EN ÉG HELD AÐ ... FLUGAN SÉ AÐ KENNA HONUM AÐ SLÁ SJÁLFAN SIG ÞEGAR HÚN VILL Dagbók Í dag er sunnudagur 21. ágúst, 233. dagur ársins 2005 Þegar þetta er ritaðer Víkverji í ein- staklega góðu skapi. Menningarnæt- urhelgin er eitthvað svo lífleg og skemmti- leg. En Víkverji er auðvitað þannig úr garði gerður að hann tuðar stöðugt. Fag- mennsku sinnar vegna ætlar hann því að leggja góða skapið til hliðar og röfla yfir ein- hverju sem hefur pirr- að hann undanfarið. Víkverji er einn af þeim sem borða frekar oft og lítið í einu. Ekki aðeins vegna þess að það er talið hollt heldur vegna þess að hann verður alltaf svo pirraður þegar hann er svangur. Vík- verji getur því pirrað sig óendanlega mikið á því hversu stórir skammtar eru á öllum veitingahúsum og skyndi- bitastöðum. Víkverji er nefnilega al- inn upp við að klára af disknum sín- um og verður því oft útþaninn þegar hann borðar á veitingastöðum. Vík- verja þætti ljómandi gott ef hann mætti borga aðeins minna og fá minni mat. Dagsdaglega er Víkverji hins veg- ar nógu skynsamur til að hafa með sér nesti hvert sem hann fer. Ekkert þykir Víkverja leið- inlegra en að þurfa að borða úti í sjoppu þar sem allt er bragðbætt með majónessósum. Víkverji borðar heldur ekki kjöt og getur því oft aðeins valið um eina gerð af samlokum. x x x Víkverji hefur aðeinseinu sinni tekið strætó eftir að nýja leiðakerfið tók gildi og var hinn ánægðasti með ferðina. Meiri áhyggjur hefur hann af því ef satt reynist að engin ókeypis salernisaðstaða sé á Hlemmi. Grunar Víkverja að það sé vegna þess að ákveðnir hópar fólks sem ekki gátu notað salerni annars staðar sóttu mikið í aðstöðuna á Hlemmi. Víkverji gerir sér grein fyrir að fólk sem þarf að pissa pissar á endanum. Hann býr sjálfur rétt hjá Hlemmi og getur ímyndað sér að garðurinn hans verði ákjósanlegur staður fyrir salern- isferðir þegar fram í sækir. Víkverja þykir sjálfsögð mannrétt- indi að fólk geti pissað í klósett sér að kostnaðarlausu. Hann skorar á þá sem með völdin fara að bæta úr þessu. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Tónleikar | Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar leikur í dag tríóið Drýas. Drýas er skipað Herdísi Önnu Jónasdóttur sópran, Þorbjörgu D. Hall selló- leikara og Laufeyju S. Haraldsdóttur píanóleikara en þær stunda allar nám við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Á efnisskránni eru íslensk verk eingöngu, eftir höfunda á borð við Atla Heimi Sveinsson, Jórunni Viðar og Hjálmar H. Ragnarsson. Einnig má nefna íslensk þjóðlög í nýjum útsetningum hins ísfirska Jónasar Tómas- sonar. Tónleikarnir hefjast kl. 16. Íslenskir tónar MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá, sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann velur. (Róm. 14, 22.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.