Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 38

Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jakob Magnús-son fæddist í Melshúsum á Akra- nesi 18. apríl 1925. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 9. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Magnús Jakobsson bóndi og kennari og Sveins- ína Arnheiður Sig- urðardóttir hús- freyja. Jakob var elstur fimm systk- ina, hin eru Helgi, Sigurður, Kristín og Herdís og eru þau öll á lífi. Jakob kvæntist árið 1947 Þor- björgu Svövu Auðunsdóttur. Börn þeirra eru Magnús, f. 1947, Mar- grét Arnheiður, f. 1952, Sveinsína Erla, f. 1953, og Guðrún, f. 1961. Tveggja ára gam- all flutti Jakob með fjölskyldunni á Snældubeinsstaði í Reykholtsdal. Jakob og Svava bjuggu fé- lagsbúi þar með for- eldrum Jakobs og síðar bróður hans. Jakob og Svava byggðu nýbýlið Samtún í landi Snældubeinsstaða og bjuggu þar alla tíð. Jakob var bóndi allan sinn starfsferil, en sinnti jafnframt múrverki víða um land. Útför Jakobs fór fram frá Reykholtskirkju í kyrrþey 15. ágúst. Elsku pabbi, í minningunni ertu alltaf að hjálpa einhverjum. Þú hjálpaðir okkur við húsbygginguna og annað sem til féll. Aðrir nutu hjálpsemi þinnar við ótal tækifæri. Þú varst alltaf þar sem einhverjar framkvæmdir fóru fram og lifðir fyrir að taka þátt í þeim. En stund- um hringdir þú og þurftir að fá að- stoð frá okkur. Maðurinn minn sagði þá að nú hefðum við ekki farið alllengi í Reykholtsdalinn, það var og raunin, þú varst að kalla eftir heimsókn. Þér líkaði vel að hafa marga í kringum þig, sér í lagi í réttunum. Þú vildir að hlutirnir gengju rösklega fyrir sig. Þegar sonur okkar og nafni þinn hóf að byggja upp í Steinsholti lést þú þig ekki vanta og aðstoðaðir hann við framkvæmdirnar, þó svo þú værir orðinn veikur. Þú fylgdist alltaf með og spurðir hvernig gengi í sveitinni hjá okkur. Þegar þú dvaldist á sjúkrahúsinu á Akranesi, sem varð hlutskipti þitt nokkrum sinnum á síðustu mánuði, fórum við stundum í bíltúr. Þér þótti svo gott að fá ferskt loft, eins og þú sagðir. Alltaf valdir þú að fara í sveitina til Jak- obs, það var of langt að fara í Reyk- holtsdalinn. Það gladdi þig og stytti þér stundir, þegar þú varst hættur að geta fylgst með að öðru leyti, að aka um nágrannasveitirnar og fylgj- ast með gróandanum, hvernig sprettan var og hvernig heyskapur gengi. Síðasta eftirlitsferðin okkar um sveitina til að athuga hvernig heyfengur væri var í vikunni áður en þú kvaddir. Þú varst nokkuð sáttur við hann. Þakka þér fyrir allt. Við reynum að hugsa vel um mömmu og landið sem var þér svo kært. Við gætum þess að það verði ekki ofbitið. Þín dóttir, Margrét. En þú átt að muna alla tilveruna að þetta land á þig. Þessar ljóðlínur úr kvæði Guð- mundar Böðvarssonar komu mér í hug þegar ég frétti andlát Jakobs í Samtúni. Við sem fengum að eyða sumrum unglingsáranna í Reykholtsdalnum hjá því góða fólki Jakobi og Svövu teljum okkur hafa fengið reynslu og þroska sem við höfum notið góðs af alla tíð. Skelfing var maður fjærri allri mannvonsku og ljótum orðum þau ár. Í Borgarfirði var alltaf sól og gott veður. Þannig eru að minnsta kosti minningarnar. Við vorum látin vinna og það mik- ið en það gerðu allir í sveitinni. Sjálfur taldi Jakob ekki eftir sér að vaka eina og eina sumarnótt ef hann þurfti að slá eða vinna önnur þau verk sem byggðust á þurru veðri. Árla morguns þegar lokið var við að mjólka var ekið í veg fyrir mjólk- urbílinn. Heyskapur var upp á gamla mátann með öllum sínum sjarma og rómantík. Ungar stúlkur og drengir gáfu hvert öðru auga sitjandi á heyvögnunum. Rútan kom úr Reykjavík einu sinni í viku og öll sveitin vissi hverjir komu með rút- unni. Síminn í Samtúni var tvær langar og tvær stuttar. Vitanlega gat öll sveitin fylgst með því sem rætt var við fólkið í Samtúni. Mikil verðmæti eru fólgin í því að hafa kynnst þessum lifnaðarháttum sem eru órafjarri því sem þekkist í dag. Jakob var maður afar hægur og rólyndur. Hann var ekki margmáll en þegar sest var við eldhúsborðið í Samtúni og drukkið kvöldkaffið sat Jakob alltaf með okkur og ræddum við þá oft lengi saman áður en gengið var til náða. Eru þessar kvöldstundir mér afar minnisstæðar og ljúfar. Það var líka svo gaman að hlusta á hann tala því hann hafði svo sterkan bð og gð framburð sem unglingurinn ég hafði ekki kynnst fyrr. Jakob var örlátur á að lána okkur hestana sína og útreiðartúrar voru oft seint á kvöldin eftir að vinnu var lokið. Þegar við krakkarnir vorum að byrja að kíkja á sveitaböllin var Jakob aldrei langt undan. Tel ég hann hafi alltaf viljað fylgjast með okkur þótt aldrei hafi hann haft mörg orð um það. Jakob var jarðsettur 15. ágúst í kyrrþey í dalnum þar sem hann ól mestallan sinn aldur. Ég þakka ljúfum manni sam- fylgdina og óska honum góðrar heimkomu. Guðrún Erla Björgvinsdóttir. JAKOB MAGNÚSSON Kær vinkona, HALLDÓRA GUÐRÚN JÓELSDÓTTIR, Skúlagötu 40A, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 30. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd frændfólks og vina, Inga Jóelsdóttir, Björn Guðjónsson og fjölskylda. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR frá Hlíð, Siglufirði, Kópavogsbraut 1B, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Sólveig Helga Jónasdóttir, Einar Long Siguroddsson, Ásgeir Jónasson, Ásdís Hinriksdóttir, Margrét Einarsdóttir, Guðmundur Ragnarsson, Fanney Long Einarsdóttir, Eggert Gíslason, Jónas Ásgeir Ásgeirsson og barnabarnabörn. Kær vinkona, HALLDÓRA GUÐRÚN JÓELSDÓTTIR, Skúlagötu 40A, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 30. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd frændfólks og vina, Inga Jóelsdóttir, Björn Guðjónsson og fjölskylda. Sonur minn, bróðir, mágur og föðurbróðir, ÞORSTEINN GYLFASON prófessor, sem andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 16. ágúst, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. ágúst kl 16.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Samtök um byggingu tónlistarhúss. Guðrún Vilmundardóttir, Þorvaldur Gylfason og Anna Karitas Bjarnadóttir, Guðrún Vilmundardóttir og Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Baldur Hrafn Vilmundarson, Gylfi Þorsteinn og Eyja Sigríður Gunnlaugsbörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR SÆMUNDSSON vélvirkjameistari, til heimilis að Boðahlein 7, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garðakirkju þriðjudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Kristín María Hartmannsdóttir, María Guðbrandsdóttir, Sveinbjörn Dýrmundsson, Berglind Guðbrandsdóttir, Sigmundur Dýrfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN SKAFTI KRISTJÁNSSON vélstjóri, Heiðargerði 19, Akranesi, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 16. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Erna Gréta Ólafsdóttir, Kristján Jónsson, Lilja Hákonardóttir, Sigríður Jónsdóttir, Þórir Gunnarsson, Óli Þór Jónsson, Jóhanna B. Andrésdóttir og afabörn. Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og veittu okkur ómetanlegan styrk og aðstoð við andlát og útför okkar ástkæra sonar og bróður, MÁNA MAGNÚSSONAR. Guð veri með ykkur. Hjartans þakkir. Magnús, Bryndís, Sigmundur og Dísa Ragnheiður. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HELGASON málarameistari, Fensölum 6, lést á heimili sínu föstudaginn 19. ágúst. Jóhanna S. Markúsdóttir, Aldís Guðmundsdóttir, Bjarni Þormóðsson, Gerður Guðmundsdóttir, Óskar Þorbergsson, Már Guðmundsson, Björg Sigmundsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Sigurður Björnsson, afabörn og langafabörn. Hjartans þakkir til ykkar allra sem aðsýnduð okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs og tengdasonar, ÞORSTEINS ÓSKARS GUÐLAUGSSONAR bónda og bifreiðarstjóra, Ölvaldsstöðum 4, Borgarbyggð. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Fjeldsted, Ólína Björg Þorsteinsdóttir, Sigurður Ingi Þorsteinsson, Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson, Þórdís Fjeldsted Þorsteinsdóttir, Jóhanna Birna Þorsteinsdóttir, Guðlaugur B. Guðmundsson, Guðjón Guðlaugsson, Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir, Halldór Guðni Guðlaugsson, Guðrún Birgisdóttir, Þórdís Fjeldsted og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.