Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
riðhelgi einkalífs er
meðal mikilvægustu
grundvallarmann-
réttinda. Einn þátt-
urinn í vernd þess-
ara réttinda er að
sett séu lög um
hvernig farið skal
með persónuupplýsingar. Hér á
landi gilda um það efni lög nr. 77/
2000 um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga, hér eftir nefnd
persónuupplýsingalögin. Stofnunin
Persónuvernd
hefur það hlut-
verk að fram-
fylgja þeim
lögum. Eins og
kveðið er á um
í lögunum (6.
tölul. 1. mgr.
37. gr.) gerir
hún það meðal
annars með því
að tjá sig, sam-
kvæmt beiðni
eða að eigin
frumkvæði, um álitaefni varðandi
meðferð persónuupplýsinga.
Hinn 4. júlí 2005 veitti hún, með
vísan til þessa ákvæðis, álit um
umfjöllun fjölmiðla um einkamál-
efni fólks. Segir í álitinu að tilefni
þess hafi verið erindi og fjölmarg-
ar fyrirspurnir sem henni hafi bor-
ist vegna umfjöllunar og myndbirt-
inga í íslenskum fjölmiðlum.
Kemur fram að hún telur sig sig
ekki geta tekið skrifleg erindi til
meðferðar sem úrskurðarmál,
enda hafi hún ekki það hlutverk að
skera úr um hvort í einstökum til-
vikum hafi verið brotið gegn
reglum um meðferð persónuupp-
lýsinga í fjölmiðlaumfjöllun. Þess í
stað hefur hún gefið út umrætt álit
sem veitir leiðbeiningu um hvaða
reglur gilda um meðferð fjölmiðla
á persónuupplýsingum. Þess ber
að geta að fátt er um nýmæli í
þessu áliti heldur er það saman-
tekt á fjórum blaðsíðum á þekkt-
um sjónarmiðum sem taka ber til-
lit til þegar metið er form og efni
frétta. Á flestum þessum sjónar-
miðum eru siðareglur Blaða-
mannafélags Íslands meðal annars
byggðar.
Sunnudaginn 24. júlí birtist
grein í Morgunblaðinu eftir dr.
Herdísi Þorgeirsdóttir þar sem
þetta álit er gagnrýnt. Um leið og
þetta framlag til málefnalegrar
umræðu um þessi mál er þakkað
er rétt að víkja nokkrum orðum að
umdeilanlegum staðhæfingum í
greininni.
Um meintan misskilning
við lagasetningu
Í grein Herdísar er fjallað um 9.
gr. persónuverndartilskipunar
Evrópubandalagsins, nr. 95/46/EB,
sem liggur hérlendum persónu-
upplýsingalögum til grundvallar. Í
þessu ákvæði er fjallað um und-
anþágur frá tilskipuninni í þágu
tjáningarfrelsis. Segir Herdís það
tekið fram í ákvæðinu að aðild-
arríki eigi að undanskilja fjölmiðla
frá gildissviði persónuupplýsinga-
laga en þó með vissum undantekn-
ingum, þ.e. sum ákvæði laganna
eigi engu að síður að gilda um
blaðamennsku. Telur hún ekki
hafa verið farið að þessu við inn-
leiðingu á ákvæði tilskipunarinnar
í íslensk lög, enda hafi það verið
misskilið.
Rétt er að geta þess að tilvísun
Herdísar í ákvæði tilskipunarinnar
samrýmist ekki orðalagi þess þar
sem segir: „Aðildarríkin skulu því
aðeins [leturbreytingar mínar]
kveða á um undanþágur eða frávik
[…] vegna vinnslu persónuupplýs-
inga sem fer einungis fram vegna
fréttamennsku eða bókmennta-
legrar eða listrænnar starfsemi, að
það sé nauðsynlegt til að samræma
réttinn til friðhelgi einkalífs og
reglur um tjáningarfrelsi.“ Í þessu
ákvæði er með öðrum orðum ekki
tekið fram að skylt sé að veita fjöl-
miðlum undanþágur heldur aðeins
að þegar slíkar undanþágur séu
veittar skuli það vera nauðsynlegt.
Hvað sem því líður er vandséð
hvers vegna Herdís telur útfærslu
þessa ákvæðis hér á landi athuga-
verða og á misskilningi byggða. Sú
leið, sem farin hefur verið hér á
landi við útfærslu ákvæðisins, er
enda í fullkomnu samræmi við
hugmyndir hennar. Í 5. gr. ís-
lensku persónuupplýsingalaganna
segir þannig ekki aðeins, eins og
nánast virðist gert ráð fyrir í grein
Herdísar, að víkja megi frá ákvæð-
um laganna í þágu fjölmiðlunar,
lista eða bókmennta að því marki
sem það sé nauðsynlegt til að sam-
ræma sjónarmið um rétt til einka-
lífs annars vegar og tjáningarfrels-
is hins vegar. Einnig er kveðið
mjög skýrt á um sams konar reglu
og Herdís telur 9. gr. tilskipunar-
innar hafa að geyma, þ.e. að séu
persónuupplýsingar einvörðungu
unnar í þágu fréttamennsku eða
bókmenntalegrar eða listrænnar
starfsemi skuli aðeins gilda nánar
tiltekin ákvæði laganna. Þessi
ákvæði eru fá og flestar mikilvæg-
ustu efnisreglur laganna gilda ekki
um þá vinnslu sem fellur undir
þessa víðtæku undanþágu. Þá hef-
ur Persónuvernd engar valdheim-
ildir þegar slík vinnsla er annars
vegar, t.d. til að mæla fyrir um
leiðréttingu rangra persónuupplýs-
inga eða beita dagsektum. Sam-
kvæmt þessu er ekki gengið langt í
íslenskri löggjöf í að takmarka
tjáningarfrelsið með vísan til frið-
helgi einkalífs.
Engin kæra?
Annað, sem gagnrýna verður í
grein Herdísar, er sú staðhæfing
að í áliti Persónuverndar sé tekið
fram að ekki liggi fyrir kæra
vegna umfjöllunar fjölmiðla um
einkamálefni fólks. Í álitinu segir
beinlínis að stofnuninni hafi borist
erindi og samkvæmt eðlilegum
málskilningi er þar átt við skrif-
legar kvartanir, en það er vænt-
anlega það sem Herdís á við þegar
hún notar orðið „kæra“.
Iltalehti-málið
Einnig er rétt að fjalla um þá
staðhæfingu Herdísar að tiltekinn
dómur Mannréttindadómstóls Evr-
ópu hnekki þeim hluta álits Per-
sónuverndar þar sem segir að
þrátt fyrir að eðlilegt geti verið að
fjalla um tiltekinn einstakling
vegna þess að hann teljist vera al-
mannapersóna leiði ekki af því að
eðlilegt sé að fjalla með sama
hætti um þá sem tengjast honum.
Í þessum dómi, sem kveðinn var
upp hinn 16. nóvember 2004, er
fjallað um mál vegna frétta í
finnska dagblaðinu Iltalehti um að
tiltekinn lögmaður hafi ekið undir
áhrifum áfengis og ráðist á lög-
reglumann. Í fréttunum var þess
getið að eiginkona lögmannsins
væri tiltekin þingkona og taldi hún
að með því hefði verið brotið gegn
einkalífsrétti sínum. Höfðaði hún
mál fyrir finnskum dómstólum og
dæmdu þeir henni skaðabætur.
Dagblaðið taldi að með því hefði
grundvallarreglan um tjáningar-
frelsið verið brotin og höfðaði það
mál gegn finnska ríkinu fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu.
Hann komst að þeirri niðurstöðu
að brotið hefði verið gegn tjáning-
arfrelsisákvæði mannréttindasátt-
málans. Í rökstuðningi fyrir þeirri
Um mörk friðhelgi einkalífs
og tjáningarfrelsisins –
Athugasemdir við grein Herdísar Þorgeirsdóttur
Eftir Þórð Sveinsson
Þórður
Sveinsson
Reuters
Ofurfyrirsætan Naomi Cambell er ein þeirra sem höfðað hafa mál gegn fjöl-
miðlum fyrir brot á friðhelgi einkalífsins.
Íþróttir á morgun
Helgin öll…