Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 23
hljóð eða hreyfing, verður til þess að
hún forðar sér hið snarasta. Felubún-
ingur er nauðsynlegur en hann gerir
lítið gagn ef hreyfing er á veiðimann-
inum.
Góður hundur gulls ígildi
Við veiðar á heiðagæs sem og öðr-
um fuglum eru notaðar haglabyssur
og er fuglinn nánast alltaf skotinn á
flugi þegar hann er koma inn til lend-
ingar. Það er á ábyrgð hverrar skyttu
að þjálfa skotfimi sína þannig að ekki
fljúgi særðar gæsir á brott og algeng
mistök eru að byrja skjóta of
snemma þegar færin eru of löng eða
skyttan misreiknar fjarlægðir. Ágæt
regla er að leggja tálfuglana ekki
lengra en 20–30 metra frá þeim stað
er skytturnar velja sér til fyrirsátar
og skjóta ekki fyrr en bráðin er kom-
in inn yfir tálfuglana. Algengustu
haglastærðir sem notaðar eru við
gæsaveiðar eru nr. 2–4 og fráleitt er
að nota minni hleðslur en 42 grömm.
Það er síðan sjálfsagður hlutur að
hirða upp skothylki eftir sig og farga
þeim á ábyrgan hátt; fátt er jafn
hvimleitt og að ganga um veiðislóð
utan veiðitíma og sjá haglaskothylki
á víð og dreif. Það er slæmur vitn-
isburður um veiðimenn.
Veiðar að kvöldlagi á haustin gera
kröfur um tvennt. Í fyrsta lagi að
veiðimenn geri sér grein fyrir tak-
mörkunum sínum og hafi með sér
þjálfaðan hund sem getur sótt fallinn
fugl í vatn eða fundið hann á landi en
auðvelt er að missa sjónar á fugli sem
fellur á myrkvað landið. Særðan fugl
sem getur falið sig í gjótum eða
skorningum er ekki á færi neins
nema hunds að finna. Það er líka sóun
á stuttum birtutíma að eyða honum í
leit að fallinni bráð þegar hundur get-
ur leyst það mál á augabragði.
Hitt atriðið snýr að öryggi veiði-
mannanna sjálfra og er sjálfsagt að
hafa gps-tæki og annan öryggisbún-
að meðferðis svo ánægjuleg veiðiferð
snúist ekki upp í andhverfu sína.
honum. „Þetta er frábær lax,“ seg-
ir hann með aðdáun. „Nú er mikið
af smálaxi að ganga og gaman að
ná einum vænum.“
Hann lyftir fiskinum upp fyrir
myndatöku og smellir svo léttum
kossi á dömuna áður en hann kveð-
ur.
Laxinn má nánast
veiða eins og silung
Þegar við göngum niður að
Klapparhyl talar Marcellier um
Selá, sem er greinilega í miklu
uppáhaldi hjá honum. „Þessi á er
svo afskekkt og mjög kröfuhörð
veiðiá. Umhverfið er afskaplega
fallegt og tilkomumikið, og svo
þarf veiðimaðurinn að beita öllum
sínum kúnstum, auk þess sem það
er líkamlega erfitt að fara hér um
og veiða.“
Hann segist búa í fjölmennri
borg, hrærast í fjármálaheimi sem
einkennist af hraða og streitu og
það sé afar mikilvægt fyrir sig að
komast á svona afskekkta staði og
vera einn með sjálfum sér. „Einn
af aðalkostunum við Ísland er að
það er öruggt og fólkið vinalegt.
Svo er stutt að fara hingað frá Par-
ís.
Já, þessi á er mjög fjölbreytileg,
og það er líka stór fiskur í henni,
fiskur sem má nánast veiða eins og
silung. Íslenski laxinn er mjög sér-
stakur, eins og hvernig hann kem-
ur í hitsið og stippaðar smáflugur.“
Þá segir hann íslenska laxinn afar
kraftmikinn í sambanburði við laxa
annars staðar. Hann rifjar upp við-
ureign við 20 punda lax sem tók
strippaða flugu í Stekknum fyrir
fimm árum, en það er eftirlætis
veiðistaður Marcelliers í ánni.
Hann landaði laxinum eftir að hafa
elt hann hátt í kílómetra niður eftir
ánni. Hann segir fiskana í Selá
jafnsterka og helmingi þyngri en
laxa annarsstaðar – hérna séu svo
sannarlega sterkustu laxar sem
hann hafi lent í. „Það er mjög erf-
itt að kljást við stóra fiska hér og
maður tapar þeim gjarnan. Það var
mjög gaman að sjá stóra laxinn í
Stekknum koma 10, 15 sinnum í
fluguna áður en hann tók. Það var
Black Brahan númer 14 – ég er
enn með hana með mér.“
Að berjast fyrir
laxastofnana í Frakklandi
Marcellier veiðir næst í Klapp-
arhylnum, nettan og fallegan
streng við spegil þar sem laxar
stökkva. „Þarna er fjörið,“ segir
hann en byrjar mun ofar. Hann er
nánast búinn að veiða sig niður
strenginn, og undrast að hafa ekki
reist fisk, en þá tekur hann skyndi-
lega, alveg neðst. Marcellier hristir
höfuðið brosandi um leið og hann
veður í land. „Ég var farinn að ótt-
ast að ég fengi ekki fisk hér,“ segir
hann og býr sig undir að sporðtaka
sprækan smálax.
Við göngum aftur upp með ánni
og stefnum nú að strengnum efst í
Brúarhyl, ofan við gömlu brúna.
Marcellier ætlar að stoppa stutt
við og setur Sunray Shadow-túpu
strax undir. Hann segir mér á
meðan frá aðkomu sinni að Vernd-
arstofni villtra laxastofna og sam-
starfinu við Orra Vigfússon á þeim
vettvangi. „Við kynnntumst árið
1992 og tveimur árum síðar kom
ég fyrst til Íslands til veiða. Ég hef
mest verið í því að berjast fyrir
laxastofnana í Frakklandi, en við
höfum fengið styrk frá franska rík-
inu allar götur frá 1994.“ Marcel-
lier hefur komið að fjáröflun sam-
takanna og tók líka þátt í að tala
máli NASF á fundi með fiskveiði-
nefnd Evrópusambandsins í Bruss-
el í vor. „Sjáðu þetta!“ segir hann
fullur aðdáunar þegar stór lax
stekkur í harða strengnum, hættir
að tala og veður út í ána.
Mjög fljótlega neglir vænn smá-
lax fluguna og eftir nokkur til-
þrifamikil stökk er hann kominn að
landi og er sleppt með stæl. Marc
tekur nokkur köst til en stefnir síð-
an aftur á Brúarbreiðu og hyggst
ljúka síðustu vakt sinni í Selá þetta
sumrið þar.
„Það er gríðarlega fallegt hér í
dalnum,“ segir hann. „Sólarupprás-
in og sólsetrin geta verið óviðjafn-
anleg. fuglalífið er svo auðugt – og
engin hljóð í bílum. Vopnafjörður
er dásamlega fjarri umheiminum.“
Hann segir rétt að þetta sé besta
veiði sín í Selá til þessa; búinn að
landa um 40 og missa 60 til. Það sé
gríðarlega mikið af fiski í ánni en
hún er líka vandveidd, hún er mjög
tær og laxinn styggist auðveldlega.
Hann á enn 30 mínútur til stefnu
og nú hitsar hann hratt yfir
strauminn og strippar flugur í lok-
inn. Tíu mínútum fyrir lok veiði-
tímans neglir fimm punda lax flug-
una, sá sjötti þennan morguninn,
og sá sjötti sem syndir aftur
sprækur út í strauminn.
„Jæja, nokkrar mínútur til,“ seg-
ir Marcellier og veður í síðasta
sinn út í Selá þetta sumarið.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 23
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Vetur, sumar
vor og haust
Rally. Alvöru fjórhjól á 450.000 kr.
Bombardier fjórhjól
eru fyrir allar aðstæður.
Alltaf.
Outlander 800
er öflugasta fjórhjólið
á markaðnum. Seldist
upp en kemur aftur
í september.
Outlander Max 400
4 x 4 fyrir tvo. Þjarkur sem
fer áfram og áfram og áfram
DS 650 X
Sannkallað tryllitæki
á meðal fjórhjóla.
Útlitið segir allt.
Verð. 980.000 kr.
Düsseldorf
í september
frá kr. 23.460
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri • sími 461 1099 • www.terranova.is
Terra Nova býður nú frábær kjör á flugi með þýska flugfélaginu LTU til Düsseldorf
í september. Flogið er tvisvar í viku svo
þér gefst kostur á að skella þér í stutta
helgarferð eða lengri skemmtiferð.
Düsseldorf er fjölbreytt og skemmtileg
borg sem spennandi er að heimsækja.
Kr. 54.990
- Vikuferð (flug og hótel)
Verð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Antares*** í 7 nætur með morgunverði.
Netbókun.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Kr. 23.460
Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Netverð
á mann.
Kr. 39.990
- Helgarferð (flug og hótel)
Verð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Antares*** í 3 nætur með morgunverði. Út
1. sept. og heim 4. sept. Netbókun.
Síðustu sæti
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111