Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Löngu fyrirhuguð utanlands-ferð hófst í miklumþrengslum á Keflavíkur-flugvelli, tvíarma biðraðirút fyrir dyr, sem ég hef
aldrei upplifað áður. Af sem áður var
er flugferðir voru mikil lifun, nú líkj-
ast þær stórfelldum gripaflutningum
á háannatímanum, þakkar margur
guði fyrir kominn á áfangastað og
hefur komið sér fyrir í eitthvert far-
artækið sem flytur hann með hraði
burt úr flughöfnunum. Nærtækt að
hugleiða hvar þetta endar með út-
þenslu flughafna, sem eru farnar að
líkjast smáþorpum eða kannski held-
ur verslunarkeðjum í örum vexti.
Engin flughræðsla né innilokunar-
kennd hér undirliggjandi, öryggið
margfalt í lofti en á láði og því eru all-
ar þessar öryggisleiðbeiningar í far-
þegarýminu í upphafi flugs farnar að
koma mörgum spánskt fyrir sjónir,
og helst til þess fallnar að seinka flugi
og hræða líftóruna úr viðkvæmu
fólki. Hafa menn hugleitt hvernig
ástandið væri ef ferlið færðist yfir á
önnur farartæki til að mynda bílinn
sem þó býður upp á margfalda hættu
sbr. slysatíðnina? Þetta svona í
framhjáhlaupi vegna þess að ég las
snjalla grein hér um í dagblaði ytra.
Til viðbótar mætti leggja niður þess-
ar tímafreku hefðbundnu og úreltu
matargjafir á styttri leiðum, svo og
söluáráttu á tollfrjálsum varningi en
huga meir að því að gera flugferð-
irnar sem ánægjulegastar fyrir far-
þegana og þá úr mörgu að moða. Allt
þetta skondið vegna þess að mikið úr-
val veitingastaða er á flughöfnunum
og tollfrjálsum verslunum um leið,
ætti því að vera guðsþakkarvert að
vera laus við átroðninginn í háloftun-
um.
Lundúnir bjóða jafnaðarlegaupp á miklar lifanir hvaðsjónarheiminn snertir og þáekki ónýtt að fá inni við hlið-
ina á British Museum eins og skeði að
þessu sinni. Má alveg segja að 7000
ára fortíð hafi andað á mig úr næsta
nágrenni á nóttu hverri og loks ná-
lægð allan síðasta dag minn í borg-
inni. Mig bar seint að en strax árla
morguns naut ég þess út í fingur-
góma að virða fyrir mér mannlífið út
um glugga efri hæðar almennings-
vagnsins sem bar mig á Portrettsafn-
ið við austurenda Þjóðlistasafnsins
við Trafalgartorg. Alltaf tilhlökkun-
arefni að koma á þetta safn því fáar
þjóðir eru hér eins jarðtengdar aftur í
aldir og fjölbreytnin mikil. Fjarri lagi
að einungis sé um hefðbundna flibba-
portrett og fegrunaraðgerðir á
myndfleti, extreme makeover að
ræða, nei útliti viðfangsefnanna eru
gerð skil á fjölþættan hátt, jafnvel
grófan og skoplegan. Á einn veg um
mikla sjónræna sögu engilsaxa að
ræða, einkum þeirra sem getið hafa
sér nafns, en á seinni tímum langtum
minna aðalsins en uppgötvunar- og
vísindamanna, leikara, stjórnmála-,
bókmennta-, tón- og sjónlistamanna,
svo eitthvað sé nefnt. Hið mikilvæg-
asta er þó sjálf útfærslan og hér ræð-
ur engin níðþröng og mörkuð stefna
leiðinni á seinni tímum…
Þrátt fyrir fjölbreytnina á hinni ár-
legu „BP Portrait Award“ býr hún
vissulega yfir undirtóni ákveðinnar
hefðar sem hefur verið að bera hana
ofurliði hin síðari ár, einkum í ljósi of-
urraunsæis sem tíðum nálgast ljós-
myndina um of. En jafnaðarlega
skera nokkur myndverk sig úr fyrir
myndræna útfærslu, og skondið nokk
einmitt fyrir hið síðastnefnda að
þessu sinni, en með einhverri yfirhaf-
inni og óútskýranlegri viðbót.
Enginn skyldi vanmeta þessar
áherslur því þær hafa einmitt skilað
engilsöxum svo mörgum og drjúgum
málurum í áranna rás, einnig á rót-
tæku nótunum. Og vel á minnst, þá
hafa sumir þátttakendanna meðal
annars sótt menntun sinna í hönnun-
arskóla sem einnig leggja áherslu á
þennan geira, samanber forsíðu-
myndir Time og fleiri ámóta rita, ein-
stakir jafnvel til rússneskra aka-
demía!
Leiðin lá næst til hinnar árlegu
sumarsýningar Konunglegu aka-
demíunnar, engar stórsýningar á
Þjóðlistasafninu þar sem verið er að
gera við tröppuuppganginn og sitt-
hvað úr forhliðinni, en safnið sjálft þó
opið. Sumarsýningin að þessu sinni
hin 237. í röðinni (!), en þó nokkur ár
síðan hin rykföllnu viðhorf hefðarinn-
ar voru kústuð burt og lögð áhersla á
gagnsæi yfir alla línuna um leið og
leitast er við að sækja endurnýjun í
gestaverk heimsþekktra erlendra
samtímalistamanna. En þetta reynd-
ist sýnu áhrifaminnsta útgáfan sem
ég hef augum borið, aðalgesturinn
Ed Ruscha með heilan sal olli mér
þannig vonbrigðum, landar hans
James Rosenquist og Chuck Close
einnig ekki upp á sitt besta frekar en
margir af helstu bógum liðinna ára
svo sem David Hockney, eitthvert yf-
irbragð vélrænnar rútinu í svo mörg-
um verkanna í stað ferskrar lifunar.
Deild vatnslita, teikninga og graf-
íkmynda einnig áberandi lakari en oft
áður. En svona gengur þetta með all-
ar árvissar stórsýningar að þær eiga
sínar hæðir og lægðir inn á milli.
Megintilgangur fararinnar var þó
að bera augum aðalsýningu Tate
Modern Bankside, yfirlit á mynd-
verkum hinnar mexíkósku Fridu
Kahlo og skundað þangað árla daginn
eftir. Dagsverk að skoða þetta mikla
safn vel og því mikilvægt að mæta
snemma vilji menn upplifa aðalsýn-
ingarnar í sæmilegu næði. Frida
Kahlo er löngu orðin að þjóðsögu,
stormasöm ævi hennar og að hún var
gift goðsögninni Diego Rivera vega
þar þungt, þótt óumdeilanlega hafi
hún verið snjall málari. Kahlo bjó á
köflum við nær óbærilegar þjáningar
af völdum hörmulegs slyss á unga
aldri, oftast annað tveggja í hjólastól
eða rúmliggjandi afhjúpaði hún á
miskunnarlausan hátt sálarlíf sitt,
hugarfóstur og ímyndanir í mynd-
verkum sínum. En löngu fyrir slysið
var ljóst að um mjög sérstæðan per-
sónuleika var að ræða, sést þannig
kornung í karlmannsfötum á fjöl-
skyldumynd, og hún lagði ekki síður
hug til kvenna en karla. Var í þá veru
ekki einhöm í ástarlífi sínu en um leið
þjáðist hún af afbrýði útí spúsann
Diego Rivera, sem átti það til að
leggjast með fyrirsætum sínum og
öðrum tilkippilegum fljóðum. Þau
Kahlo og Rivera voru annars full-
komnar andstæður í útliti, hún grönn,
fíngerð og smávaxin, hann stórskor-
inn og digur. Pólitískar skoðanir
þeirra voru þó í góðu samræmi enda
varla annað hægt en að vera róttæk-
ur í þessu vígi kúgunar og einsýnnar
yfirstéttar, fátæktar og ríkidæmi.
Lundúnir
Sjálfsmynd eftir Gabrielu Münter, sirka 1910,
olía á plötu, 49x33,7 cm. Stofnun Thyssen
Bornemisza, Madríd.Frida Kahlo, ljósmynd eftir Imogen Cunningham 1931.
Dean Marsh; Giuletta Coates, olía á plötu
28,3/4x225/8 cm. Ein af verðlaunamynd-
unum á hinni árlegu sýningu „BP Portrait Aw-
ard“ í National Portrait Gallery í Lundúnum.
SJÓNSPEGILL
Bragi Ásgeirsson
Getum útvegað nokkrar FORD ESCAPE XLT 4X4 bifreiðar frá Hertz í USA.
Bílarnir eru 2005 árgerð, í óaðfinnanlegu ástandi. Eknir 35 til 45 þús. km.
Vel búnir þægindum s.s V6 3000cc vél, 200 hestöfl, loftkælingu, CD spil-
ara, Cruise Control, ABS, sjálfskiptingu o.m.fl. Verðið er aðeins 2.299.000
kr. Fyrir 99 þúsund aukalega getum við boðið ábyrgð frá íslensku trygg-
ingafélagi til 130.000 km eða til þriggja ára. Afgreiðslutími er um 6 vikur.
FORD ESCAPE 2005 Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
Frekari uppl. veitir Magnús í síma 891 8277
Gólfefnaval ehf Faxafeni 10 108 Reykjavík
Sími 517 8000 Fax 517 8008 golfefnaval@golfefnaval.is www.golfefnaval.is
Sturtuklefar og baðkör
Gólfefnaval
Tæknilegar upplýsingar um sturtuklefa
Teg.: OLS 8001. Stærð 103x103x220 cm.
Einn með öllu
Höfuðsturta, handsturta, fótsturta,
nudd, gufurafall, Hi-Fi útvarp,
sími, stjórnborð, fjarstýring,
geislaspilaratengi, vifta, ljós,
spegill, o.m.fl.
Kr. 139.000 – áður 178.800 kr.
Tæknilegar upplýsingar um baðkar
Teg.: OLS 6035. Stærð 200x110x0,70 cm.
Öll blöndunartæki þ.m.t. hand-
sturta, vatnsnudd, loftnudd, stjórn-
borð, Hi-Fi útvarp, draumakoddar,
öryggishandfang, o.m.fl.
Eitt með öllu
Kr. 163.000
– áður 196.800 kr.
TILBOÐ
!