Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 27
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
17
72
1
Kúba
lægsta verðið
Frá 59.490 kr.
Flugsæti með sköttum
Yfir
700
sæt
i se
ld
Auk
afe
rð 2
6. f
eb.
Heimsferðir opna þér nú ótrúlegt tækifæri til að kynnast fegurstu
eyju Karíbahafsins með sérflugum sínum til Kúbu í vetur. Nú getur
þú valið um dvöl í 1 eða 2 vikur og valið úr glæsilegu úrvali hótela
þar sem þú nýtur dvalarinnar með “allt innifalið” allan tímann.
Perlur Kúbu
14-16 daga ævintýraferð til
Kúbu þar sem þú nýtur og
upplifir allt það besta sem
þessi fagra eyja hefur að
bjóða.
• 26. feb. (aukaferð 16 dagar)
- örfá sæti laus
• 7. mars - uppselt
• 21. mars - uppselt
Bókaðu strax
og tryggðu þér bestu
gististaðina og
lægsta verðið.
vikulegt leiguflug
Brottfarir:
• 16. nóv. - uppselt
• 26. feb. - aukaflug
• 7. mars - uppselt
• 21. mars - laus sæti
• 28. mars - 11 sæti
• 4. apríl - laus sæti
• 11. apríl - laus sæti
Aukaflug 26. febrúar
Kletthálsi 13 // s. 5876644 // www.gisli.is
Sterku norsku Steady
bátarnir sameina kosti hefðbundinna
slöngubáta og plastbáta.
Verð frá 99.000kr.
Þekktustu utanborðsmótorar heims
á verði á við það sem ódýrast þekkist.
Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta.
Verð frá 79.000kr.
Johnson-Evinrude
Steady
Styrkurinn
og aflið
Nefna má að á tímaskeiði skutu þau
skjólshúsi yfir Leo Trotzky sem var á
flótta undan morðhundum Stalíns, og
sagt að Kahlo og Trotzky hafi orðið
dável til vina. Sem áður hefur verið
vikið að hefur mönnum þótt freist-
andi að velta fyrir sér hvort harmræn
örlagasaga hinnar skammlífu lista-
konu og ástþrungna náttúrubarns,
ásamt magnaðri ævisögu sem þýdd
hefur verið á mörg tungumál, hafi
orðið til þess að meðalgáfum hafi ver-
ið lyft á stall en um leið fullyrt að
framkvæmdin ryðji burt öllum
vangaveltum þar um. Auðvelt að vera
hér að mestu sammála þótt sýningin
hafi komið skrifara dálítið undarlega
fyrir sjónir á staðnum, einkum fyrir
smæð myndanna og hins vegar mikla
og náhvíta veggi. Þessi tegund mynd-
listar hrópar annars á mikla nálgun
og mjúka innsetningu í stað þessa
opna og óvægna umhverfis, en að öllu
samanlögðu felst jafnaðarlega mikill
ávinningur af því að lifa sig inn í hvert
einstakt myndverk fyrir sig, augliti til
auglitis, samsamast útgeislun þess…
Meinleg örlög einstakralistamanna hafa stund-um orðið mörgum öðr-um til mikils ávinnings,
almenningi um leið. Þarna varð mér
hugsað til van Goghs, en örlagasaga
hans lagði á einn hátt grunninn að
MoMA, New York. Mál að þrjár vell-
auðugar framfarasinnaðar konur og
miklir listvinir komust svo við yfir lífi
og örlögum málarans sjónum hrygga
sem skar af sér eyrað, að tendraðist
hugmynd í heilabúum þeirra og þó
frekar hjörtum um safn yfir núlistir
til að koma í veg fyrir að amerískum
listamönnum væru búin viðlíka örlög.
Hér á ferð stofnendurnir; Miss Lillie
P. Bliss, Mary Quinn (Mrs. Cornelius
J. Sullivan) og Abby Aldrich (Mrs.
John D. Rockefeller jr,). Upp reis
fyrsta núlistasafn í heiminum sem
opnaði dyr sínar á fimmtugustu og
fjórðu götu vestur hinn sjöunda nóv-
ember 1929. Safnið færði stöðugt út
kvíarnar og við mikla stækkun þess
nokkur undangengin ár er saman-
lagður gólfflötur þess orðinn á við
sextán knattspyrnuvelli og dugir
varla til þá mikilsháttar viðburðir eru
á dagskrá...
Tate Modern, Bankside, erfjölþætt safn en býr þó ekkiyfir sömu töfrum og MoMAog eins og það er sett upp
skilur maður hina minnkandi heildar-
aðsókn undangengin ár, hér um full-
mikla miðstýringu og staðalhug-
myndir að ræða er virkar þreytandi á
gestina enda rekst maður víða á
steinsofandi fólk í hægindastólum.
Í hálfum túrbínusalnum var önnur
sýning, sem álengdar leit út eins og
Disneyland, en ákvað fljótlega að
geyma mér hana þar til síðast, margt
fólk þar á stjái,en þegar til kom beið
mín magnaðasta lifunin í Lundúnum
að þessu sinni. Skildi fljótlega af
hverju fólk stímaði á framkvæmdina
og skoðaði vel, frábær gjörningur á
ferð sem lyftir brúnunum hátt upp á
enni þess. Um að ræða að arkitekt-
arnir Herzog & de Menon eru að
pæla í frumformum er þeir fiska eftir
í umhverfi bygginga sem þeim er fal-
ið að hanna og útkoman svo lífræn og
fjölþætt að skoðendur falla í stafi.
Hér er það samræmið við náttúru-
sköpin og umhverfið sem ráða för og
vinnubrögðin eins langt frá almennri
og staðlaðri teiknistofuvinnu og
hugsast getur. Frumformin í lands-
laginu tekin til meðferðar og þau
skorin niður eins og andinn blæs
þeim í brjóst hverju sinni og upp úr
þeim rísa fyrirhugaðar byggingar
eðlilega og áreynslulaust. Staðfestir
það sem ég hef lengi vitað, að arki-
tektúr er mikið mál og hér margir
kallaðir en fáir útvaldir, að baki mik-
illa afreka gríðarleg vinna rannsóknir
og ósérhlífni. Minnist hér orða ann-
ars nýskapanda, hins franska Jean
Nouvel: Ég vona, að fólk muni skilja,
að arkitektúr hefur ekkert með upp-
finningu forma að gera. Hér ekki um
leikvöll fyrir börn og gamalmenni að
ræða. Arkitektúr er hinn raunveru-
legi orustuvöllur andans…
Eitthvað fyrir Íslendinga, sem
gengur seint að líta niður fyrir tær
sér og nýta hin stórkostlegu náttúru-
sköp allt um kring hins vegar óðfúsir
að leita langt yfir skammt, troða sér í
skóhlífar annarra úti í heimi.
Loks ber að víkja að sýningu á
verkum Gabriele Münter í galleríi
Courtault stofnuninni í Somerset
húsi, eins af meðlimum Bláa riddar-
ans, einu konuna í röðum þýsku ex-
pressjónistanna og ástkonu Vassilys
Kandinskys. Verk hennar nutu sín
ólíkt betur í þessari gömlu byggingu
en Kahlos á Tate Bankside, en hefðu
líkast til tekið sig enn betur út á Tate
fyrir sinn litræna kraft. Sjálft Cour-
tault-safnið einstakt fyrir hinar
mörgu perlur sem veggi þess prýða,
þótt ekki sé það stórt. Finnst ég
skulda Gabrielu Münter að ég víki
nánar að henni síðar enda vorum við
vel sjónkunnug árin mín í München…
Hluti af sýningu þeirra Herzog & de Menon í innri helmingi Túrbínuhallar Tate
Modern Bankside.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111