Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 33
UMRÆÐAN
MÁLEFNI eldri borgara fá sjald-
an þann hljómgrunn sem þau eiga
skilið og sum svið sem skipta aldraða
mjög miklu liggja í
þagnargildi. Einn þess-
ara málaflokka er geð-
heilbrigðisþjónusta og
þunglyndi meðal eldri
borgara. Ýmsir sér-
fræðingar, s.s. svið-
stjórar á Landspít-
alanum og geðlæknar,
hafa nýverið bent á
þörfina í þessum mála-
flokki.
Ég hef tvisvar sinn-
um lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu
um rannsókn á þung-
lyndi meðal eldri borg-
ara þar sem m.a. átti að
skoða umfang vandans,
orsakir og afleiðingar,
sem og forvarnir. Í
þingmálinu var einnig
bent á að engin stofnun
innan heilbrigðisgeir-
ans hér á landi fæst á
skipulagðan hátt við
þunglyndi eldri borgara. Í bæði
skiptin hefur þingmálið verið svæft í
meðförum stjórnarmeirihluta Al-
þingis.
Sérstaða þunglyndis
eldri borgara
Samkvæmt skýrslum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO)
er þunglyndi einn erfiðasti og dýr-
asti sjúkdómur mannkyns. Á Íslandi
er talið að um 12.000–15.000 manns
þjáist af þunglyndi. Þunglyndi meðal
eldri borgara getur haft margs kon-
ar sérstöðu sem ber að taka tillit til.
Þunglyndi meðal aldraða getur í
sumum tilfellum verið frábrugðið
þunglyndi annarra aldurshópa þar
sem missir maka eftir langt hjóna-
band, einmanaleiki, verkefnaleysi,
óvirkni, hreyfingarleysi, missir sjálf-
stæðis, fjárhagsáhyggjur, félagsleg
einangrun og jafnvel lífsleiði geta
verið veigameiri orsök en hjá öðrum
hópum. Sömuleiðis geta mörg ein-
kenni þunglyndis verið álitin eðlileg-
ur fylgifiskur öldrunar og skörun
getur verið á milli líkamlegrar van-
heilsu og aukaverkana lyfja-
meðferðar. Dvöl á hjúkrunarheim-
ilum getur haft ýmis andleg áhrif á
viðkomandi þar sem einstaklingur
stendur skyndilega frammi fyrir því
að búa við nýjar og aðrar aðstæður í
nánu samneyti við nýtt og ókunnugt
fólk.
Engin öldrunargeðdeild
hér á landi
Það er því brýn þörf á að rannsaka
sérstaklega þunglyndi meðal eldri
borgara. Með greiningu á þunglyndi
eldri borgara má auka þekkingu á
þunglyndi meðal þessa fólks í þeirri
von að draga megi úr tíðni þess, gera
meðferð skilvirkari og fækka sjálfs-
vígum.
Gott starf hefur vissulega verið
unnið hér á landi í tengslum við
þunglyndi og má þar nefna fræðslu-
verkefni Landlæknis sem kallast
Þjóð gegn þunglyndi og starf Geð-
ræktar. Sömuleiðis hafa margir
öldrunargeðlæknar og aðrar stéttir
unnið feykilega gott starf á þessu
sviði.
Erlendis má finna sérstakar geð-
deildir fyrir aldraða og heilsugæslu-
þjónustu fyrir aldraða með geðræn
vandamál. Miðað við stöðuna í Nor-
egi ættu tvær slíkar stofnanir að
vera hér á landi. Nú er hins vegar
engin sérstök öldrunargeðdeild
starfrækt á Íslandi. Á Landspítala-
Landakoti væri hægt að búa til sér-
staka öldrunargeðdeild án mikils
kostnaðar þar sem margt fagfólk
starfar nú þegar.
Sjálfsvíg meðal eldri borgara
Mikilvægt er að skoða tíðni sjálfs-
víga og sjálfsvígstilrauna meðal eldri
borgara, en að sjálfsögðu ber að
nálgast slíkt af mikilli varúð og nær-
gætni. Sjálfsvíg meðal eldri borgara
hafa lengi verið feimnismál hér á
landi eins og víða annars staðar.
Sumir telja að sjálfsvígstíðni meðal
aldraðra sé hærri en opinberar tölur
segja til um. Víða erlendis, t.d. í
Bandaríkjunum, er sjálfsmorðstíðni
hæst á meðal karlmanna sem eru
eldri en 85 ára. Það er
því nauðsynlegt að
meta umfang þessa
vanda til að geta
brugðist við honum og
spornað gegn þessari
vá. Lykilatriðið er að
greina vandamálið svo
að hægt sé að bregðast
rétt við því.
Í ljósi mikillar notk-
unar á geð- og þung-
lyndislyfjum er nauð-
synlegt að bregðast við
þunglyndi með öllum
tiltækum leiðum. Til-
hneigingin hefur verið
að leysa þennan vanda
meðal eldri borgara
með lyfjagjöf í stað
annarrar meðferðar.
Það þarf einnig að
huga að annars konar
meðferð samhliða
lyfjameðferð eða í stað
hennar, t.d. með því að
auka félagslega ráðgjöf og auðvelda
heimsóknir til öldrunarlækna og sál-
fræðinga á heilsugæslustöðvum.
Sömuleiðis getur aukin hreyfing og
aðstaða til hreyfingar verið skyn-
samleg leið til að sporna gegn þung-
lyndi. Mikilvægt er að tryggja að-
komu ólíkra stétta að þessum vanda
og rótum hans sem geta verið svo
margslungnar.
Hætta á meiriháttar
heilbrigðisvandamáli
Allflestir fagaðilar sem gáfu um-
sögn með þessu þingmáli voru sam-
mála um að þörf væri á rannsóknum
á þunglyndi meðal eldri borgara og
fögnuðu tillögunni. Má þar nefna
Landlækni, stjórn Samtaka heil-
brigðisstétta, Félag eldri borgara,
Læknaráð og Öldrunarfræðafélag
Íslands.
Eldri borgurum fjölgar sífellt en
til ársins 2010 mun landsmönnum 65
ára og eldri fjölga um 11% og lands-
mönnum 80 ára og eldri fjölga um
29%. Hætt er við að þunglyndi meðal
eldri borgara verði að meiri háttar
heilbrigðisvandamáli ef ekki er
brugðist hratt og rétt við. Skipun
nefndar sem rannsaki þessi mál, eins
og þingsályktunartillagan gerir ráð
fyrir, er brýnt verkefni og ætti að
hrinda í framkvæmd sem fyrst.
Þunglyndi, kvíði og einmanaleiki á
ekki vera eðlilegur fylgifiskur efri
áranna.
Hugsum vel um eldri borgara
Ágúst Ólafur Ágústsson fjallar
um málefni eldri borgara
’Þunglyndi,kvíði og ein-
manaleiki á ekki
vera eðlilegur
fylgifiskur efri
áranna.‘
Ágúst Ólafur Ágústsson
Höfundur er varaformaður Samfylk-
ingarinnar og alþingismaður.
Hesthamrar, 112 Rvk - Einbýli
Glæsilegt og óvenju vandað, samtals rúm-
lega 220 fm einbýli, þar af 180 fm kjallari.
Þrjár aukaíbúðir eru í kjallara allar með sér-
inngangi. Þær eru allar í útleigu og gætu
borgað af 30-40 millj. króna láni. Aðalhæð-
in er öll á einni hæð og er alveg sér þ.e.a.s.
inngangur að framan en sérinnkeyrsla er
fyrir aukaíbúðirnar. Eignin uppi er samtals
221,2 fm með innbyggðum tvöföldum bíl-
skúr. Stór, skjólsæll og fallegur garður.
Tveir sólpallar. Gengið er út á annan pall-
inn um tvöfalda hurð úr eldhúsi og einnig
útaf stofu. Einstakt tækifæri. Sjá lýsingu
og myndir á www.fold.is.
Parhús, Álfhólsvegi, Kópavogi
Nýlegt parhús með aukaíbúð. Frábær
staðsetning í grónu hverfi. Þrjú svefnher-
bergi, stór stofa, tvennar svalir og bílskúr.
Tveggja herbergja aukaíbúð með út-
leigumöguleika. Verð 39,0 millj. 6900
Einbýlishús, Skeljagranda, 107
Reykjavík Fallegt 320 fm einbýli í enda
í lokaðri götu. Á neðri hæð eru stórar stof-
ur, rúmgott eldhús og gestasnyrting. Á efri
hæð eru fjögur svefnherbergi og stórt
fallegt baðherbergi. Lítil íbúð er í kjallara
auk hobbyherbergis. Innbyggður bílskúr.
Vandað hús með óvenjulegri og fallegri
lóð. Glæsileg eign á rólegum stað í vestur-
borginni. Skipti möguleg á raðhúsi eða
góðri sérhæð í vesturborginni eða á
Seltjarnarnesi. Verð 65 millj. 7010
Hæð, Reynimel, 107 Reykjavík
Falleg hæð og stórt ris. Þrjú góð herbergi.
Tvennar stofur og gott sjónvarpshol.
Tvennar svalir og baðherbergi á báðum
hæðum. Eignin er mikið endurnýjuð. Verð
33,0 millj. 6896
Álfheimar 3. hæð - 4ra herb.
Laus strax
Falleg og mikið endurnýjuð íbúð á þessum
vinsæla stað. Ný eldhúsinnrétting með
fallegum nýjum tækjum frá Bosch. Nýlegt
parket á allri íbúðinni. Nýleg tæki á baði.
Laus við kaupsamning.
Verð 19,5 millj. 6782
Framnesvegur, 107 Rvk. - 5
herb.
Mikið endurnýjuð 5 herbergja íbúð á þess-
um vinsæla stað. Nýjar lagnir, nýtt raf-
magn. Allt nýtt á baði, hornbaðkar og
falleg tæki. Fjögur svefnherbergi, björt og
góð stofa. Húsið er í góðu ástandi, nýmál-
að.
Fálkagata, 107 Rvk. - 4ra
herb.
Vorum að fá í einkasölu fjögurra herbergja
íbúð á þessum eftirsótta stað. Íbúðin er
skemmtilega skipulögð, góð herbergi og
stór stofa. Skipt var um eldhúsinnréttingu
fyrir nokkrum árum. Húsið sjálft er í mjög
góðu ástandi og var nýlega tekið í gegn.
Þetta er eign á frábærum stað, m.a. stutt í
Háskólann og fallegt útivistarsvæði. Íbúðin
þarfnast smá lagfæringa og er því á góðu
verði. 19,9 millj. nr 6960
Sumarhús í Skorradal
Nýtt og glæsilegt 57 fm sumarhús með
svefnlofti. Rafmagn og heitur pottur. Ein-
stök staðsetning í kjarri vaxinni náttúru
með útsýni yfir Skorradalsvatn, Snæfells-
jökul og Langjökul. Stutt í sund og veiði.
Nýtt innbú fylgir. Verð 15,9 millj. 7007
Hraunhvammur, 220 Hafnar-
firði - Einbýli
Ca 148 fm einbýli á þessum eftirsótta
stað. Fjögur góð svefnherbergi, stór stofa,
rúmgott eldhús. Bygging bílskúrs er hafin.
Húsið er klætt að utan. Verð 27,9 m. 6898
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Krókamýri - 4ra - Garðabæ
Hraunhamar fasteignasala hefur
fengið í einkasölu 101,6 fer-
metra 4ra herbergja íbúð á
annarri hæð með sérinngangi
vel staðsetta í Mýrahverfi í
Garðabæ. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, stofu, borðstofu, eld-
hús, þrjú herbergi, baðherbergi,
þvottahús og geymslu. Góðar
suðursvalir. Stutt er í skóla og
leikskóla. Frábær staðsetning.
Verð 24,3 millj.
Opið hús í dag frá kl. 16-18
Laugarnesvegur 74 - íbúð 0201
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is
-Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Erum með í sölu mjög góða mikið endurnýjaða íbúð á 2. hæð ásamt bíl-
skúr. Íbúðin er laus strax. 2 svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur.
Mjög góð eign á góðum stað. Opið hús verður í dag, sunnudag 21. ágúst
frá kl. 16-18. Björn tekur á móti áhugasömum.
Allar upplýsingar um eignina er hægt
að fá hjá Þórarni sölumanni í síma 899 1882