Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 35
UMRÆÐAN
ÞAÐ mun hafa verið árið 1986, sem
Björgólfur Guðmundsson og fleiri
lykilstjórnendur Hafskips hf. voru
settir í gæsluvarðhald, svo til í beinni
útsendingu Sjónvarpsins. Undanfari
atburðarins voru samræmdar að-
gerðir fjölmiðla, svo sem Helgar-
póstsins, alþingismanna og sam-
keppnisaðila. Hafskipi stjórnuðu
ungir og hugmyndaríkir menn. Voru
sagðir handgengnir Albert Guð-
mundssyni og félagar í Sjálfstæð-
isflokknum. Helgarpósturinn komst
yfir trúnaðarupplýsingar frá Haf-
skipi og túlkaði allt sem neikvæðast
gagnvart félaginu og stjórnendum
þess. Alþingismenn höfðu hátt. Ólaf-
ur R. Grímsson, varaþingmaður, fór
þar fyrir og komust aðrir ekki með
tærnar þar sem hann hafði hælana.
Komst til mikilla metorða síðar.
Verðugur launa sinna! Nú hófst lög-
reglurannsókn og undirbúningur
gjaldþrots Hafskips og viðskipta-
banka þess. Lögreglurannsókn þessi
var beinlínis svar við háværum kröf-
um alþingismanna og því enginn vafi
að um pólitíska aðför var að ræða.
Málið talið það umfangsmikið að sér-
stakur saksóknari var settur í það,
Jónatan Þórmundsson prófessor við
lagadeild HÍ. Hátt var reitt til höggs
og hvellir miklir. Sakamálin koðnuðu
samt niður og hin sérsetti saksóknari
varð að segja af sér og er nú almennt
talinn hafa unnið meira af striti en
viti í þessu máli. Helgarpósturinn
seldist sem aldrei fyrr að sögn Gunn-
ars Smára, „fjölmiðlamógúls“. Enda
margir forvitnir. Nú verður þessi
saga ekki lengri sögð hér, enda al-
kunn. Það er hins vegar til að taka,
að upp úr aldamótunum varð til stór-
veldi í íslensku viðskiptalífi. Baugur
hf. Skráð, þá, í Kauphöll Íslands.
Einhverjir kæra forsvarsmenn fé-
lagsins og nú hafa verið birtar ákær-
ur á hendur forstjóra þess og fleir-
um. Forstjórinn og fyrrnefndur
Gunnar Smári telja að um pólitískar
ofsóknir sé að ræða líkt og í Haf-
skipsmálinu. Ákærði, forstjóri Baugs
Group, veitir viðtal á virtri breskri
sjónvarpsstöð og gefur hinu íslenska
dóms- og stjórnkerfi falleinkunn.
Forseti Íslands mætir í sama þátt og
mærir þann góða dreng JÁJ. Pró-
fessor Jónatan Þórmundsson gefur
strax út lögfræðiálit, þar sem ákærur
allar séu, að hans mati, afar fáfengi-
legar. Nú leita ýmsar spurningar á
huga almúgamanns, sem er skatt-
greiðandi á Íslandi og verslar í Bón-
us. Er það t.d. tilviljun að aðalákær-
endurnir í Hafskipsmálinu, svo sem
Forseti Íslands, Gunnar Smári og
Jónatan, skuli nú vera helstu verj-
endur hinna ákærðu kaupsýslu-
manna? Hafa þeir lært af reynslunni
og hyggjast sýna yfirbót á þennan
máta? Allt er þetta mál hið furðuleg-
asta og auðvitað vonum við öll að Jón
Ásgeir og félagar reynist saklausir.
Fyrst þeir krossfestu þig Kristur
/hvað gera þeir þá við ræfla eins og
mig? spurði skáldið. Og ef „hags-
munaaðilar“ gátu 1984–86 fengið
blaðamenn, stjórnmálamenn og rétt-
arkerfið til aðfarar á keppinaut –
hvað er þá hægt núna? Og hverja er
verið að kvekkja með aðdróttunum
um núverandi spillingu í íslensku
stjórnar- og réttarkerfi, á erlendum
vettvangi og letja erlenda fjárfesta
hingaðkomu? Geta menn enn ekki
sætt sig við að ekki tókst að knésetja
Hafskipsmenn að fullu og öllu? Síð-
asta spurning: Hvar eru rannsókn-
arblaðamenn og sagnfræðingar?
Hefur þögnin verið keypt? Hætti
Páll Magnússon á 365 vegna þess að
hann fékk ekki að birta ákæruskjal,
sem Stöð 2 hafði undir höndum?
HALLDÓR BEN
HALLDÓRSSON
bankamaður
á eftirlaunum.
Afturbatagæjar
Frá Halldóri Ben Halldórssyni:
Grandavegur - Eldri borgarar - 3ja herb. íbúð
87 fm 3ja herb. íbúð á 6. hæð í lyftu-
húsi fyrir eldri borgara ásamt stæði í
bílskýli og sérgeymslu í kjallara. Íbúð-
in skiptist í forstofu með skáp, parket-
lagða stofu með útgangi á svalir, eld-
hús, tvö herbergi, bæði með skápum,
flísalagt baðherbergi og þvottaher-
bergi. Mikið útsýni yfir fjallahringinn
og sjóinn. Mikil sameign. Tvær lyftur.
Húsvörður og ýmis þjónusta. Verð 27,5 millj.
Þverás
Vel staðsett 149 fm einbýlishús á
einni hæð með innbyggðum 39 fm
bílskúr á þessum eftirsótta stað.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús
með hvítum sprautulökk. innrétt og
góðum borðkrók, 4 rúmgóð herbergi, stofu með aukinni lofthæð, baðherbergi,
þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Eignin er í góðu ásigkomulagi jafnt að
innan sem utan. Hús nýmálað að utan. Ræktuð lóð. Verð 36,9 millj.
Dragavegur
Glæsilegt 249 fm einbýlishús á fjórum
pöllum m. innb. bílskúr á þessum fal-
lega og gróna stað í Laugarásnum.
Eignin skiptist m.a. í rúmgóða borð-
stofu, eldhús með góðum innrétt. og
góðri borðaðstöðu, stóra stofu m. út-
gangi á skjólgóðar flísalagðar suður-
svalir, sex herbergi, þar af eitt nýtt
sem sjónvarpsherb., fataherb., flísalagt baðherb. auk gestasalernis og þvotta-
herb. með sturtu. Aukin lofthæð á tveimur efstu pöllum hússins. Ræktuð
glæsileg lóð með skjólveggjum og veröndum. Hiti í innkeyrslu og stéttum
framan við hús. Óskað er eftir kauptilboðum í eignina.
Miðborgin - Efri sérhæð
Mjög falleg 227 fm efri sérhæð í hjarta
miðborgarinnar ásamt 5 sér bílastæð-
um á lóð. Hæðin skiptist m.a. í stofu,
borðstofu, rúmgott eldhús, fjögur her-
bergi og stórt flísalagt baðherbergi
auk gestasalernis. Mikil lofthæð, stór-
ar svalir til suðurs og fallegt útsýni úr
stofum. Arinn í íbúð og innfelld lýsing í öllum loftum. Hús nýmálað að utan.
Verð 55,0 millj.
Sörlaskjól - 3ja herb.
Falleg og þó nokkuð endurnýjuð 81
fm íbúð á 1. hæð í þríbýli auk tveggja
sér geymslna á þessum eftirsótta
stað. Nýlegar innréttingar í eldhúsi,
samliggjandi skiptanlegar stofur, rúm-
gott herbergi með nýlegum skápum
og nýlega endurnýjað flísalagt bað-
herbergi. Sameiginl. sólpallur með
skjólveggjum. Verð 21,5 millj.
Sumarbústaður - Borgarbyggð
Fallegur 40 fm bústaður, staðsettur á
kjarrivöxnum útsýnisstað í Borgar-
byggð. Skiptist í stofu, eldhús, 2 her-
bergi, hol og salerni. Nýtt eldhús, ný
verönd um 140 fm kringum bústaðinn
og nýtt parket á gólfum. Stutt í alla
þjónustu. Verð 6,9 millj.
Þorragata - Eldri borgarar -
4ra herb. íbúð með bílskúr
Nýkomin í sölu björt og afar glæsileg
124 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð í lyftu-
húsi með stórkostlegu útsýni ásamt
19,0 fm bílskúr og 6,5 fm sérgeymslu.
Íbúðin skiptist í forstofu með skáp,
stórar samliggjandi stofur, tvö herbergi, bjart eldhús með góðri gluggasetn-
ingu, búr og flísalagt baðherbergi. Þvottaherbergi í íbúð. Svalir til suðurs, yfir-
byggðar að hluta og er þar um 8 fm sólstofa. Vandaðar innréttingar. Parket og
flísar á gólfum. Mikil sameign. Verð 43,5 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
GRÆNIHJALLI 17 - FRÁBÆR EIGN
SÖLUSÝNING Í DAG Á MILLI KL. 15 - 17
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali.
Upplýsingar
gefur Brynjar
Harðarson,
gsm 840 4040.
Stórglæsilegt raðhús á tveimur hæðum, sem á síðustu árum hefur verið endurnýjað frá
grunni, jafnt að innan sem utan, auk þess sem garður, plön og stéttar hafa verið endurnýj-
aðar á afar vandaðan hátt. Að innan hafa allar innréttingar, gólfefni, loft, lýsing og böð ver-
ið endurnýjuð á afar smekklegan og hagnýtan hátt. Staðsetning hússins er mjög góð, stutt
í bæði skóla og leikskóla. Grænihjallinn er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og
stutt í allar áttir. Húsið stendur við lokaðan botnlanga í honum fá bílastæði. Við breytingu á
lóðinni var hins vegar komið fyrir stæðum fyrir 4 - 6 bíla sem er stór kostur.
Arnartangi Mos. - glæsil. einbýli
með 52 fm bílskúr
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt fullbúið steinhús á einstaklega góðum stað í lok-
uðum botnlanga. Ný-legt þak, nýlega málað að utan. Fjögur svefnherbergi. Glæsilega
endurnýjað baðherbergi. Rúmgott fallegt eldhús. Mjög góður garður. Mögulegt er að
húsið losni fljót-lega. Heildarstærð hússins er 191,7 fm V. 39,8 millj.
Upplýsingar á Valhöll eða hjá Þórarni sölumanni í s. 899 1882
Fréttir í
tölvupósti