Morgunblaðið - 21.08.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.08.2005, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN KRISTJÁNI B. Jónssyni er í nöp við notendur torfæruhjóla og honum gremst nýundirritaður af- notasamningur Vélhjólaíþrótta- klúbbsins (VÍK) og Lands- sambands vélsleðamanna við sveitarfélagið Ölfus. Þetta dylst ekki þeim sem lesa skrif hans í Morgunblaðinu föstu- daginn 12. ágúst. Umræddur samn- ingur snýr að afnot- um landsvæðisins við Bolöldusvæði og Jós- epsdal og þrátt fyrir augljósa gremju Kristjáns þá markar þessi samningur ákveðin tímamót í baráttu vélhjóla- íþróttamanna sem staðið hefur í hart nær þrjá áratugi. Kristján hefur af- bragðsgóðan ritstíl og hann fetar sig gegnum skrifin með góðri upp- byggingu á grein sinni og styður sig áleiðis við skrautlegar upp- nefningar á þeim sem tengjast málefninu. Í niðurlagi greinar sinnar um „glæpaverk“ „ógæfu- fólksins“ eins og hann kýs að orða það skín í aðdáun Kristjáns á þjóðsögum og speki gamalla manna. Kemur það ekki á óvart þar sem hér fer maður sem virðist láta skrif sín stjórnast af fornfá- legum hugsunarhætti í bland við takmarkað umburðarlyndi og þröngsýni. Þannig séð gæti lestur greinarinnar verið hin ágætasta skemmtun ef ekki skini í svo áber- andi og sérdeilis óskemmtilega vanþekkingu Kristjáns á málefn- inu sem hann þó kýs að skrifa um í blöðin. Auðvitað hata fæstir náttúruna eins og flögrar að Kristjáni. Það eru hins vegar svo margar mis- munandi leiðir til að njóta hennar og engin ein leið sem hentar öll- um. Sumir vilja læðast um landið í hljóðri andakt, íklæddir stutt- buxum og gönguskóm. Öðrum lík- ar betur að berast mót fjöllum háum á hestbaki og enn aðrir kjósa helst að stunda sína útivist og hreyfingu með því að svífa um á hvellu vélknúnu ökutæki. Margir einstaklingar leyfa sér jafnvel þann munað að njóta landsins og náttúrunnar á alla þessa máta allt eftir því hvernig stund og staður kallar til þeirra. Allt þetta útivist- arfólk stendur frammi fyrir því að mæta samferðamönnum sínum og ekki síður náttúrunni sjálfri með tilhlýðilegri virðingu og umburð- arlyndi. Engin ein leið til útiveru er öðrum fremri og vissulega ber öllum að leggja sitt af mörkum svo næsti útivist- armaður njóti hins sama og sá sem á undan fór. Í öllum hópum fyrirfinnast því miður ein- staklingar sem af ein- hverjum ástæðum átta sig ekki á þessu og sverta þá gjarnan heildina með vanhugs- uðum athöfnum sín- um. Sem betur fer sjá samt flestir í gegnum þetta og dæma ekki heilu ávaxtafarmana út frá einu skemmdu epli. Smíðuð hafa verið lög fyrir þennan málaflokk en því miður misst marks að mörgu leyti þar eð þau endurspegla ekki hina raun- verulegu þörf. Lausnin er ekki að banna einfaldlega allt nema lau- flétt tipl um landið – sem að mörgu leyti er núverandi staða og hefur svo sannarlega ekki gefið góða raun. Að sjálfsögðu kann ekki heldur góðri lukku að stýra að leyfa hamslausan átroðning tví- eða fjórhjóla né heldur tví- eða fjórfættra. Miklu frekar þarf að hafa skipulag á notkun landsins í samræmi við mismunandi þarfir þeirra sem stunda útivist. Fyrir þessu er góð reynsla sem sjá má víða. Áberandi gönguslóðir í hlíð- um fjalla eins og Vífilfells eða Esj- unnar eru ágæt dæmi um skipu- lagða notkun náttúrunnar. Svo ekki sé nú minnst á hestaslóðir meðfram, undir og yfir alla helstu þjóðvegi landsins og víðar. Flestir sætta sig við slíkt skipulag og yf- irvöld, gjarnan í samvinnu við grasrótina, hafa oftar en ekki komið myndarlega að þessum mál- um. Hvernig væri annars umhorfs hjá okkur ef yfirvöld hefðu ekki á einhverjum tímapunkti komið til móts við þann fjölda sem stundar reiðmennsku, hlaup, göngur eða golf? Er ekki líklegt að við stæð- um nú frammi fyrir daglegum slysum á skokkurum og hesta- mönnum sem sitt á hvað yrðu fyr- ir bílum eða golfkúlum á milli þess sem golfáhugamenn væru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa runnið í hrossataði. Lausnin hlýtur að liggja í því að yfirvöld ásamt grasrótinni vinni í sameiningu að því að koma upp skipulagðri aðstöðu í takt við þörf- ina. Sem átak í þessu hefur VÍK barist fyrir því að fá til afnota svæði í nágrenni höfuðborgarinnar svo að beina megi áhugamönnum um útivist og vélhjól á til þess ætluð svæði. Þessi barátta hefur staðið í bráðum þrjá áratugi og á meðan árangurinn hefur látið á sér standa hefur áhugamönnum um þessa tegund útivistar fjölgað verulega. Undanfarin þrjú ár raunar svo mikið að til vandræða hefur horft. Samningurinn sem Kristján agnúast útí og hann vill meina að sé ávöxtur freklegrar áróð- ursherferðar einhvers „gólkórs“ með „áráttuhegðun“ er í raun ein markverðasta framkvæmd yf- irvalda í baráttunni fyrir verndun náttúrunnar í langan tíma. Hér sýnir Sveitarfélagið Ölfus í verki mikla framsýni. Enginn, sem til þessa málaflokks þekkir, er í vafa um að þessi stórmannlegi gjörn- ingur sveitarstjórnarfólks í Ölfusi verður til þess að skipulag kemst á útivist vélhjólaáhugamanna í ná- inni framtíð. Vélhjólaíþróttafólk á höfuðborgarsvæðinu og víðar – jafnt karlar, konur og börn fagna þessum áfanga og munu vafalítið þakka fyrir sig með ábyrgum akstri á svæðinu. Fornar slóðir Einar Sverrisson svarar grein Kristjáns B. Jónssonar ’Engin ein leið til úti-veru er öðrum fremri og vissulega ber öllum að leggja sitt af mörkum svo að næsti útivist- armaður njóti hins sama og sá sem á undan fór.‘ Einar Sverrisson Höfundur er í umhverfisnefnd VÍK, náttúruunnandi og áhugamaður um vélhjólaakstur. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is Leitum að 600-900 fm skrifstofuhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu fyrir opinberan aðila. Nánari upplýsingar veitir Sigurður á Miðborg í síma 533 4800. 600-900 FM SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ÓSKAST Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Til sölu 201,1 fm gott raðhús á pöllum auk 22,4 fm bílskúrs. Húsið er vel skipulagt og skiptist m.a. í stóra stofu og borðstofu með mikilli lofthæð og er gengið þaðan út á stórar suðursvalir. Fjögur góð svefnherbergi, baðherbergi, snyrting og stórt þvottaherbergi. Falleg ræktuð lóð með stórri verönd. Húsið er mjög vel staðsett. Ákveðin sala. Verð 42,8 millj. BRÚNALAND - RAÐHÚS SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali KJARRHÓLMI 30 KÓPAVOGI OPIÐ HÚS kl. 14-17 Falleg 4ra herbergja 90 fm íbúð á 2. hæð auk ca 10 fm geymslu, samtals ca 100 fm, í fallegu fjölbýli í Fossvogsdalnum. Þrjú rúmgóð herbergi. Stórar suðursvalir. Fallegt útsýni yfir Fossvogsdalinn úr stofu. Nýlegar innréttingar. Þvottahús í íbúð. Gervihnattasjónvarp. Góð sameign. Stutt í fallegt útivistar- svæði. Eignin getur losnað fljótlega. Verð 17,9 millj. Pálmi og Arndís sýna eignina í dag sunnudag frá kl. 15 – 17. AUSTURBAER.IS Vorum að fá í einkasölu/leigu, glæsilegt ca 90 m² skrifstofuhúsnæði á þessum eftir- sótta stað miðsvæðis í Reykjavík. Húsnæð- ið er stór salur með 4-5 vinnustöðvum og stóru fundarherbergi. Svalir í vestur. Lyfta í húsinu. Verð 15,5 millj. Þingholtsstræti 27 • Sími 533 1122 • Fax 533 1121 Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali, sími 897 0634 Magnús Kristinsson, verkfr., sími 861 0511 ATVINNUHÚSNÆÐI SKIPHOLT 50C - SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI BAUGSFEÐGAR hafa haldið því fram að ráðamenn hafi verið með árásir á Baug og með því skapað „andrúm“ sem varð aflvaki þess að lögregla réðst inn í fyrirtækið. Því er rétt að skoða meintar árásir á Baug. Hverj- ir sögðu hvað. Stenst það skoðun að Davíð Oddsson hafi ráðist á fyrirtækið með ósæmilegum hætti? Skoðum málið. Hinn 22. janúar 2002 urðu umræður á Alþingi. Á stjórnarfundi í Baugi voru ummæli for- sætisráðherra á Alþingi talin til merkis um árásir stjórnvalda á Baug. Því er rétt að rifja upp um- ræðurnar á Alþingi í ljósi sög- unnar. Hreðjatak Svarta-Péturs og Össur Þriðjudaginn 22. janúar 2002 kvaddi Össur Skarðhéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, sér hljóðs á Alþingi og gagnrýndi Baug harkalega. Vinstrimenn höfðu gagnrýnt hækkun mat- vælaverðs og beindu sérstaklega spjótum sínum að risanum á markaðnum, Baugi. Össur kallaði fyrirtækið Svarta-Pétur sem væri með hreðjatak á matvörumarkaði með 60% markaðshlutdeild og hefði kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur. Hann krafðist aðgerða „…þar á meðal að skipta upp slíkum ein- okunarrisum til þess að vernda hagsmuni neytenda“. Formaður Samfylkingarinnar krafði forsætisráð- herra svara. Valdi sé beitt af skynsemi Davíð Oddsson for- sætisráðherra sagði: „Auðvitað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota aðstöðu sína. Auðvitað er 60% eignaraðild í matvælafyr- irtækjum, verslunarfyrirtækjum í matvælaiðnaði, allt of há hlutdeild. Auðvitað er það uggvænlegt og sérstaklega þegar menn hafa á til- finningunni að menn beiti ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi. Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum ef þær eru misnotaðar.“ Spyrji hver fyrir sig. Hver var með gífuryrði? Í stjórn Baugs var bókað að stjórnvöld hefðu andúð á félaginu. Sumarið 2002 kærði við- skiptafélagi Baugs, Jón Gerald Sullenberger, þá feðgana og rann- sókn lögreglu hófst. Skömmu síðar tók Baugur yfir Fréttablaðið – en eignarhaldi var leynt fyrir al- menningi. Í framhaldi af því hóf- ust dylgjur um að Davíð Oddsson hefði staðið fyrir innrásinni í Baug. Reynt að skipta út í Stjórnarráðinu Kortéri fyrir kosningar 2003 kom svo Fréttablaðið með sprengju sína sem átti að ýta Dav- íð Oddssyni til hliðar og ryðja brautina fyrir nýja „herra“ í Stjórnarráðið. Fréttin átti að sanna að Davíð Oddsson hefði átt samskipti við Jón Gerald Sullen- berger og verið valdur að innrás- inni í Baug. Valdamestu við- skiptamenn landsins voru að reyna að skipta um herra í Stjórn- arráðinu. Meir um það síðar. Hverjir gagnrýndu Baug? Hallur Hallsson fjallar um Baugsmálið ’Valdamestu viðskipta-menn landsins voru að reyna að skipta um herra í Stjórnarráðinu.‘ Hallur Hallsson Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.