Morgunblaðið - 21.08.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 37
UMRÆÐAN
ÞEGAR talað er í niðrandi tóni
um „atvinnumótmælendur“ er lát-
ið í veðri vaka að þeir stingi tilvilj-
anakennt niður fæti hvar sem eitt-
hvað gerist, og mótmæli því. Þetta
er næstum rétt en þar með alveg
rangt. Því framvinda heimsins er
ekki jafn tilvilj-
anakennd og hún get-
ur virst í nærmynd.
Eftir að önnur kerfi
lögðu upp laupana er
nú eitt kerfi í þann
mund að sölsa undir
sig veröld manna eins
og hún leggur sig, yf-
irleitt nefnt kapítal-
ismi. Það felur eink-
um í sér að
skiptagildi hluta og
fyrirbæra í heiminum
er gert hærra undir
höfði en raungildi
nokkurs í lífi manneskju. Enda er
skiptagildi þægilegra en raungildi,
að því leyti að það má mæla og
því má safna.
Mótmælendurnir eru ekki hér
vegna þess að þeim þyki svo sér-
staklega vænt um íslenska kletta,
heldur til að berjast gegn því að
öllu sem fólki þykir vænt um, þ. á
m. íslenskum klettum, verði
drekkt í auðmagni.
Auðmagnið er sérstök vél og
undarleg. Á Íslandi hefur í fimm-
tán ár eða lengur mest borið á
þeim málstað að auðmagnið sé
betra í að búa til auð en önnur
kerfi. Og því er ekki hægt að and-
mæla. Enda er nú svo mikill auður
á Íslandi að þarf að farga honum,
bílaumboð í borginni fargaði á síð-
asta ári 4–5 ára gömlum notuðum
bílum sem ekki fékkst nógu hátt
verð fyrir, frekar en selja þá
ódýrt. Þetta er hinn íslenski álþrí-
hyrningur: ál fer út, bílar fara inn,
hraðar en nokkru sinni (og stífla
götur …) og er fargað eftir fjögur
ár til að rýma fyrir nýjum. Auð-
urinn eykst en hann á sér rökvísi
sem er önnur en mannleg rökvísi.
Mótmælendurnir sem lögreglan
hefur elt um hálendið og suður til
Reykjavíkur tilheyra þá þeim
djarfa hópi fólks sem annars veg-
ar neitar að taka þátt í framleiðslu
fáránleikans, og vill hins vegar
varpa ljósi á hann, jafnvel með
ólöglegum aðgerðum. Þetta heitir
borgaraleg óhlýðni, og hefur á öll-
um stigum sögunnar
verið nauðsynlegur
undanfari mögulegra
breytinga.
Umfjöllunin um
mótmælendurna virð-
ist hins vegar að-
allega neikvæð. Og
allir virðast geta tínt
eitthvað til, til að for-
mæla erlendu mót-
mælendunum. Það er
vitaskuld auðveldast
fyrir yfirlýsta hægri-
menn, og næsta sjálf-
gefið, en tekur sárast
að heyra vinstrimenn, jafnvel and-
mælendur virkjanaframkvæmda,
tína til frávísunarklisjur. „Þetta
eru bara krakkar að skemmta
sér.“ „Þetta er allt of seint.“ „Þau
eru að kaupa sér samvisku.“ „Þau
vilja geta sagt frægðarsögur af
sér.“ „Hafa þau ekkert betra að
gera?“ Ég hef sérstakt dálæti á
þeim ummælum sem ég heyrði að
skiljanlegt væri ef raðhúsaeigend-
ur í Hafnarfirði mótmæltu stækk-
un álversins þar, þá væri þó verið
að traðka á eignum manna en
„svona lagað er náttúrlega bara
barnaskapur“. Hvers vegna hafa
allir tiltæk svona einföld rök til að
láta eins og ekkert hafi gerst? Og
hvernig er hægt að láta eins og
ekkert hafi gerst á meðan lög-
regla, yfirvöld, prestar og fjöl-
miðlafulltrúar bregðast við af
óvenjulegri og, að virðist, óþarfri
sefasýki?
Mergur málsins er sá að eitt-
hvað gerðist. Atburður átti sér
stað. Og atburðir eru ekki vel-
komnir á Íslandi, þeir raska ró
smábæjarsamfélagsins. Það komu
manneskjur sem lá nógu mikið á
hjarta til að klífa 50 metra háan
byggingakrana og hírast í honum í
margar klukkustundir. Þau eiga
ekki raðhús í Hafnarfirði en finnst
gaman að tjalda. Það er óþægilegt
að standa frammi fyrir spurning-
unni: Er í alvörunni eitthvað þess
virði? og þægilegra að formæla
krökkunum fyrir lætin. Því það
sem er vegið að eins og yfirvöld
sýna fyrir slysni með viðbrögðum
sínum er hvernig við lifum. Það er
hægt að lifa öðruvísi. Og það er
raunar auðvelt. Það þarf margra
ára skólagöngu og stöðugar
áminningar fjölmiðla til að halda
trú á hagkerfið gangandi. Pen-
ingar eru nefnilega þess eðlis að
ef allir hætta að trúa á þá verða
þeir verðlausir og hætta þar með
að verða til. Því þeir eru bara
holdtekinn átrúnaður. Á tímum
þegar stjórnmálamenn hafa tekið
að sér hlutverk samningsaðila við
fjármagnsheiminn og sölu þess
sem þeir áttu aldrei, og drekkt
svo stofnunum lýðræðisins í
skiptagildi að þær þykja ómerki-
legri en góðar stöður innan stór-
fyrirtækja, verða þeir ekki endi-
lega vinsælir sem mæta til að
benda og hrópa þar sem sökkva
skal enn einum stað í peningum.
Og þá ekki á meðal hinna sem
héldu að þeir hefðu andmælt nóg
og væru nú þegar saklausir. Gest-
irnir sem komu til að vera með
læti eiga ómælt lof skilið og verði
þeim nú fylgt úr landi, eins og lít-
ur út fyrir, koma þau vonandi sem
fyrst aftur.
Mótmælendur og andstyggð
Haukur Már Helgason fjallar
um mótmælendur við Kára-
hnjúka ’Hvers vegna hafa allirtiltæk svona einföld rök
til að láta eins og ekkert
hafi gerst?‘
Haukur Már Helgason
Höfundur er meðlimur í Reykjavík-
urakademíunni.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Útsala
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi
sími 554 4433
Fréttir
í tölvupósti
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
BYGGÐARENDI - STANDSETT
Stórglæsilegt 363 fm einbýli með innbyggðum bílskúr. Húsið hefur mjög mikið verið
endurnýjað. Á efri hæðinni er forstofa, hol, stórar samliggjandi stofur, sólstofa, arin-
stofa, eldhús, baðherbergi og hjónaherbergi. Á neðri hæðinni er hol, herbergi, geymsla
og sjónvarpsherbergi auk 105 fm 3ja herbergja íbúðar sem mjög auðvelt er að sameina
aðalíbúðinni. V. 64 m. 4833
EYJABAKKI 13 1.H.H.
Snyrtileg og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð til vinstri. Íbúðin skiptist í hol, eldhús,
stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt
þvottahús. Svalir eru út frá íbúðinni í vestur. Næg bílastæði eru við húsið. Snyrtileg
sameign. V. 14,9 m. 5139
ÆGISÍÐA - GLÆSIEIGN
Glæsileg neðri sérhæð í einu af fallegustu húsunum við Ægisíðuna. Húsið er teiknað af
Einari Sveinssyni arkitekt árið 1951. Frábært óhindrað sjávarútsýni er úr íbúðinni. Hæð-
in hefur mjög mikið verið endurnýjuð síðastliðin ár, meðal annars gólfefni, gluggar (harð-
viður) og gler, baðherbergi o.fl. Auk þess hefur húsið verið steypuviðgert og málað og
þak endurnýjað. Raflagnir hafa einnig verið endurnýjaðar. Í kjallara fylgir góð geymsla
og sameiginlegt þvottahús. 5153
FURUBYGGÐ - PARHÚS Í SÉRFLOKKI
Einlyft bjart og glæsilegt parhús með fallegum garði (lækur í garði) í mjög rólegu
umhverfi innst í botnlanga. Húsið skiptist m.a. í forstofu, hol, hjónaherbergi, eldhús,
borðstofu, stóra stofu með kamínu, tvö svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi,
þvottahús, geymslu og tvo bílskúra. Annar bílskúrinn er 62 fm á tveimur hæðum. Góð
sólverönd og mjög fallegur gróður. Á lóðarmörkum rennur fallegur lækur. Allar
innréttingar og gólfefni eru sérlega glæsileg og vönduð. V. 45 m. 5220
OPIÐ HÚS - ARNARHRAUNI 36
Í MIÐBÆ HAFNARFJ.
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 245 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Arnarhraun í
Hafnarfirði. Húsið skiptist m.a. í tvær stofur, sólstofu, fimm herbergi, baðherbergi og
snyrtingu. Sérstaklega fallegur garður til suðurs. Úr sólstofu er gengið út í garð á timb-
urverönd. Húsið er mjög vel staðsett en þaðan er örstutt í miðbæinn, skóla, íþróttahús,
Lækinn o.fl. Húsið getur verið laust fljótlega. HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG,
SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-15. V. 39,5 m. 5067
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Glæsileg neðri sérhæð í einu af fallegustu húsunum við Ægisíðuna. Húsið er teiknað af
Einari Sveinssyni arkitekt árið 1951. Frábært óhindrað sjávarútsýni er úr íbúðinni. Hæðin
hefur mjög mikið verið endurnýjuð síðastliðin ár, meðal annars gólfefni, gluggar (harðviður)
og gler, baðherbergi o.fl. Auk þess hefur húsið verið steypuviðgert og málað og þak endur-
nýjað. Raflagnir hafa einnig verið endurnýjaðar. Í kjallara fylgir góð geymsla og sameiginlegt
þvottahús. 5153
ÆGISÍÐA - GLÆSIEIGN
ÞINGVALLAVATN - EIGNARLÓÐ -
SUMARHÚS
Heimili að heiman. Á besta stað við Þingvallavatn, í landi Skálabrekku (30 mínútur frá
Reykjavík), er risið glæsilegt 170 fm sumarhús byggt sem heilsárshús á rúmlega
8.000 fm eignarlóð (0,8 ha). Húsið er á steyptum grunni með vélslípaðari plötu og
hitalögnum í gólfi. Það verður klætt að utan með báruáli og harðviði og frágengið til
innréttinga að innan. Aðalhúsið er um 140 fm og gestahús er um 30 fm. Allar upplýs-
ingar á skrifstofu FM í síma 550 3000. Sjá einnig á fmeignir.is og skalabrekka.is.
13732
Fréttir á SMS