Morgunblaðið - 21.08.2005, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Elsku frændi, ég
er ekki enn búin að
fatta hvað hefur
skeð. Síðast er ég sá
þig þá varstu, eins og
síðustu ár sem ég hef
séð þig, á hjólinu þínu. Alltaf á
hjólinu. Við vorum miklir vinir
þegar við vorum lítil og ég fékk að
leika svolítið með þig þegar þú
varst lítill. Þú varst strax svo
ákveðinn og vissir alveg hvað þú
vildir, eins og þegar þú komst með
mömmu þinni í skírnina til Írisar
systur og mættir í múnbútsunum
og þér fannst það nú bara mjög
fínt og engin leið fyrir mömmu
þína að fá þig úr þeim og í betri
skó, nei, þú vissir hvað þú vildir
aðeins 4 ára gamall. Svo á ung-
lingsárunum þá voru lítil samskipti
eðlilega þar sem maður er svo
upptekinn af vinum og áhugamál-
um. Við frændsystkinin hefðum nú
getað haldið betra sambandi en ég
hugsaði alltaf að það væri nægur
tími til að kynnast upp á nýtt er
við yrðum eldri, en svo er greini-
lega ekki eins og við, því miður,
höfum fengið að kynnast. Ég hefði
viljað að litli strákurinn minn fengi
að kynnast þér, því ég hugsa að
þið hefðuð orðið góðir saman,
ákveðnir ungir menn. Lífið er allt-
of stutt hjá sumum okkar og mað-
ur skilur þetta ekki alveg, en sem
betur fer þá áttir þú góða að og
lifðir lífinu vel og skemmtilega,
alltaf á fullu að gera hitt og þetta
sem þér datt í hug. Takk kærlega
fyrir þann tíma sem ég fékk með
þér, svo sjáumst við aftur seinna.
Ásdís frænka.
Það er erfitt að setjast niður og
skrifa minningagrein um vin sinn,
vitandi af því að hann er ekki leng-
ur hér. Þegar ég flutti til Reykhóla
fyrir 4 árum þá þekkti ég Mána
ekkert, en ég heyrði margt um
hann, allir voru að tala um Mána á
hjólinu og að hann hafi gert þetta
á hjólinu og farið þangað á hjólinu,
allt sem ég heyrði um hann var
eitthvað sem tengdist honum og
MÁNI
MAGNÚSSON
✝ Máni Magnús-son fæddist í
Reykjavík 2. nóvem-
ber 1988. Hann lést
7. ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Hjalla-
kirkju 12. ágúst.
hjólunum. Ég kynnt-
ist Mána ekki al-
mennilega fyrr en nú
í sumar þegar hann
byrjaði í Þörunga-
verksmiðjunni á
Reykhólum. Mána
fannst oft gaman að
stríða öðrum í verk-
smiðjunni og þegar
hann var nýbúinn að
því, þá var hann allt-
af dansandi og lítandi
í kringum sig í ótta
um að einhver gerði
eitthvað á móti.
Þessa 2-2½ mánuð sem Máni
vann á Reykhólum brölluðum við
margt saman, fórum t.d. út á
Langavatn á pínulitlum Zodiac,
sem við kölluðum sirka bát, með
litlum rafmagnsmótor, fórum af og
til í Bjarkalund, vorum á rúnt-
inum, hann að leika sér á hjólinu
og ég að fylgjast með honum eða
bara heima að horfa á video. Það
skiptir engu máli hvað við gerðum,
alltaf gátum við haft gaman af því,
eins og við sögðum, það væri nóg
að hafa okkur tvo saman og þá
væri gaman. Við höfðum oft mjög
gaman af því að vera í vinnunni,
aðallega þegar við vorum að mála,
því þá settum við alltaf disk í spil-
arann og þá skipti engu máli hvort
það var Bubbi, Metallica, Írafár
eða Gylfi Ægis, alltaf dönsuðum
við með og sungum hástöfum, við
vorum alltaf í bananastuði eins og
við sögðum. Við vorum búnir að
ákveða mikið hvað við ætluðum að
gera í vetur, þegar ég væri fluttur
í bæinn til að fara í skólann. Við
ætluðum saman vestur reglulega,
ætluðum svo að dunda okkur í
bílnum mínum og svo í hans bíl
þegar hann væri búinn að kaupa
sér bíl.
Þær eru miklu fleiri minning-
arnar um Mána sem ég á og mun
aldrei gleyma. Lífið á Reykhólum
finnst mér hafa verið nokkuð tóm-
legt síðustu daga, nú heyrir maður
ekki í neinu mótorhjóli þjóta um
göturnar, enginn til að vera að fífl-
ast með og enginn til að hanga
með á kvöldin og horfa á video.
Mér finnst ég vera heppinn að
hafa fengið að kynnast Mána, því
hann var engum líkur, hann var
ekki bara sérstakur heldur var
hann einstakur, og kveð ég hann
með miklum söknuði. Ég vil svo
senda fjölskyldu Mána alla mína
samúð.
Bragi Jónsson.
Elskulegi bróðir
minn, Robbi, ég sakna
svo bross þíns, húm-
orsins, góðmennsku
þinnar og gullhjarta
þíns. Ég hef grátið
mig í svefn á hverju
kvöldi síðan þú lést. Ég á svo marg-
ar minningar um þig sem ég mun
aldrei gleyma. Þú varst hjá okkur í
Bandaríkjunum þegar ég féll í dá og
mér var ekki hugað líf. Ég sá Láru
ömmu í þessu dái og það var hún
sem sendi mig heila til baka. Ég
RÓBERT
CASSIS
✝ Róbert Cassisfæddist 25. jan-
úar 1964. Hann lést
6. júlí síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu 14.
júlí.
man að ég reifst við
hana af því að ég vildi
ekki fara. Himnaríki
er svo fallegt og afi er
búinn að byggja
draumahúsið hennar
ömmu og ég trúi því
að við hittumst öll þar
þegar okkar tími
kemur. Ég veit að þú
ert þar núna.
Ég sé þig ennþá
fyrir mér brosandi og
ég man orðin þín
„Lára, þú ert svo fal-
leg systir mín og ég
elska þig“. Ég mun aldrei gleyma
þessum orðum elsku stóri bróðir
minn. Þú verður alltaf í hjarta mínu.
Mér datt ekki í hug síðast þegar
ég sá þig að það yrði í síðasta sinn,
en ég veit að við hittumst aftur á
himnum þar sem þú munt taka á
móti mér opnum örmum. Ég vildi að
þú hefðir kynnst manninum mínum
Ken og 4 ára syni mínum Tyler. Þú
hefðir elskað hann eins mikið og ég,
hann er svo góðhjartaður. Jonna
bróður þótti líka svo vænt um þig
og hann saknar þín mjög mikið.
Hann á yndislega dóttur sem heitir
Inga.
Þér leið best þegar þú varst með
Ásu og sonum þínum, Samúel og
Aroni, þeir eru svo yndislegir. Ekki
hafa áhyggjur, ég mun halda sam-
bandi við strákana, Ásu og dætur
hennar Beggu og Lilju. Ég veit að
þú mundir vilja það.
Við elskum þig og söknum þín.
Ég bið til guðs að gefa okkur öllum
sem þótti vænt um þig styrk til að
halda áfram. Ég bið um styrk fyrir
Ásu og litlu frændur mína og vona
að þau lifi hamingjusömu lífi.
Hjarta mitt er hjá þér eins og ég
veit að þú ert hjá mér þegar ég
þarfnast þín. Mamma, pabbi, Jonni
og ég elskum þig og eigum alltaf
eftir að sakna þín Robbi.
Þín litla systir,
Lára.
ÖRN JÁKUP DAM
WASHINGTON
✝ Örn Jákup DamWashington
fæddist í Reykjavík
13. maí 1980. Hann
lést á heimili sínu
aðfaranótt 19. júlí
síðastliðins og var
jarðsunginn frá
Neskirkju 29. júlí.
úr munni þeirra sem
áttu að umvefja en
ekki hrinda frá sér.
En ég veit og þú
veist að Guð hann
hefur þig núna því
þessi heimur átti þig
aldrei skilið. Ég er
svo stolt af því að
geta sagt að þú varst
vinur minn. Takk
fyrir öll brosin og öll
árin sem ég fékk að
þekkja þig.
Hérna eru nokkur
orð til þín frá mér:
Hugrakkur, fallegur, samkyn-
hneigður. Enginn skilur, enginn
sér. Allir þrá. allir vilja. Þú gafst,
þú tókst. Þú trúðir, þú sást. Án
þín, ekkert.
Ég elska þig.
Ég votta foreldrum þínum og
fjölskyldu samúð mína, missir ykk-
ar er mikill en ég bið að Drottinn
gefi ykkur styrk í ykkar sorgum.
Hvíldu vel í faðmi Jesú.
Þín vinkona
Valdís.
Elsku fallegi vinur
minn. Þegar ég
heyrði þessar sorgar-
fréttir brast hjartað í
mér í þúsund mola,
þú varst svo blíður og góður og
þitt barnslega fas og bros kom
manni alltaf til að hlæja.
Tignarlegur er orðið sem lýsir
þér best. Ég get ekki lýst því hvað
ég sakna þín mikið en ég get sagt
að heimurinn er fátækari án þín,
og hann verður aldrei samur. Það
krafðist mikils hugrekkis að vera
þú. Allir fordómarnir og sleggju-
dómarnir sem þú mættir, fordóm-
ar sem voru ekki byggðir á neinum
grunni öðrum en ótta. Særandi orð
Með nokkrum orð-
um viljum við minn-
ast Hjartar bekkjar-
bróður okkar, nokkuð
sem okkur óraði ekki
fyrir að við þyrftum
að gera svo fljótt.
Hjörtur var jákvæður, hress og
góður drengur sem fékk mann allt-
af til að brosa. Hann lífgaði svo
sannarlega upp á bekkinn. Eitt
sinn fór hann út úr kennslustof-
unni og sagði um leið þá gullnu
setningu „I’ll be back“. Lokaði síð-
an dyrunum, en opnaði þær aftur
og bætti um betur og sagði „I’ll be
back twice“. Bekkurinn kunni svo
sannarlega að meta húmorinn hans
Hjartar og hló mikið. Við eigum
fullt af öðrum skemmtilegum
minningum um Hjört sem munu
ylja okkur um hjartarætur um leið
HJÖRTUR
SVEINSSON
✝ Hjörtur Sveins-son fæddist 21.
september 1981.
Hann lést 4. ágúst
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Kópavogskirkju 12.
ágúst.
og við finnum til
saknaðar því góður
drengur er fallinn frá
og heimurinn fátæk-
ari fyrir vikið. Per-
sónuleikar eins og
Hjörtur hafði að
geyma eru vand-
fundnir.
Við viljum votta
fjölskyldu Hjartar og
ástvinum samúð okk-
ar og biðjum góðan
guð að veita ykkur
styrk í þessari miklu
sorg. Minning um
góðan dreng lifir.
Elsku Hjörtur þín verður sárt
saknað, við munum aldrei gleyma
þér.
Þínar bekkjarsystur úr Digra-
nesskóla
Ásta Kristín, Dagrún, Drífa,
Elísabet, Íris Dröfn, Jóna
Björk og Karitas.
Fleiri minningargreinar
um Hjört Sveinsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Emil Ólafsson,
Arnar Ingvarsson og Hilmar Freyr
Sveinþórsson.