Morgunblaðið - 21.08.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 49
MENNING
Auglýsing
Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 12 frá 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess
að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:
- að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífs-
- gildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;
- að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á
Hólum.
Starfstími sjóðsins er til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 m.kr. fyrir hvert starfsár.
Stjórn Kristnihátíðarsjóðs auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Í samræmi við hlutverk sjóðsins
verða styrkir veittir til tveggja sviða: menningar- og trúararfs og fornleifarannsókna. Á árinu 2005 verður 60% af
úthlutunarfé sjóðsins veitt til fornleifarannsókna en 40% til menningar- og trúararfs.
Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum á síðastliðnu starfsári hans þurfa að sækja um á ný, óski þeir eftir áframhald-
andi stuðningi Kristnihátíðarsjóðs.
Menningar- og trúararfur
Sjóðurinn veitir styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar. Einkum verður litið
til margvíslegra verkefna er tengjast almenningsfræðslu, umræðum og rannsóknum og skulu verkefnin m.a.:
a. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð fræðslu- og
námsefnis;
b. stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn, t.d. fyrir tilstilli mennta- og
menningarstofnana eða fjölmiðla; og
c. efla rannsóknir á menningar- og trúararfi íslensks samfélags.
Sjóðurinn mun veita forgang þeim framhaldsverkefnum sem hlutu styrk við síðustu úthlutun, enda uppfylli þau
kröfur um framvindu og árangur.
Fornleifarannsóknir
Sjóðurinn veitir styrki til fornleifarannsókna, bæði uppgraftar og skráningar fornleifa, auk kynningar á niðurstöð-
um rannsókna. Stjórn sjóðsins leggur áherslu á að árangur rannsóknanna verði aðgengilegur almenningi (plaköt,
margmiðlunarefni, sýning muna og jafnvel rústa). Einkum verður litið til rannsóknarverkefna er varða:
a. mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal;
b. aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði;
c. aðra mikilvæga sögustaði, s.s. verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði.
Sjóðurinn mun að þessu sinni eingöngu styðja þau verkefni sem hlutu styrk við síðustu úthlutun, enda uppfylli
þau kröfur um framvindu og árangur. Einnig verður tekið tillit til samvinnu umsækjenda við innlendar og erlend-
ar rannsóknarstofnanir eða fræðimenn og áhersla verður lögð á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á
sviði fornleifafræði á Íslandi.
Umsóknir
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Miðað er við að verkefnin, sem styrkt eru við
næstu úthlutun, verði unnin á árinu 2006. Umsóknir skulu taka til eins árs í senn en Kristnihátíðarsjóður mun
styrkja verkefni sem unnin eru á árinu 2006. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið. Vakin er
sérstök athygli á að hér er um lokaúthlutun að ræða til allra verkefna, þar sem starfstíma sjóðsins er nú að ljúka.
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis
(www.raduneyti.is, sjá forsætisráðuneyti, Kristnihátíðarsjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu
ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400, netfang postur@for.stjr.is).
Umsóknarfrestur er til 16. september 2005 og verður úthlutað úr sjóðnum hinn 1. desember 2005. Umsóknir til
Kristnihátíðarsjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.
Stjórn Kristnihátíðarsjóðs, 21. ágúst 2005.
TVENNIR tónleikar verða haldnir
með Kammerhópnum frá Klaustri í
Þjóðleikhúskjallaranum 24. og 25.
ágúst. Hópurinn hélt á dögunum
þrenna tónleika á Kirkjubæjar-
klaustri og mun hann flytja rjómann
af dagskránni fyrir tónleikagesti í
Reykjavík.
Á efnisskrá verða fjölbreytt verk
eftir höfunda á borð við Janacek,
Kodaly, Piazzolla, Gunnar Þórðar-
son, Ellington og fleiri.
Að hópnum standa þau Auður
Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari, Björn
Thoroddsen og Gunnar Þórðarson
gítarleikarar, Edda Erlendsdóttir
píanóleikari, Olivier Manoury band-
oneonleikari, Jón Rafnsson kontra-
bassaleikari og síðast en ekki síst
Egill Ólafsson söngvari.
Tónleikarnir hefjast kl. 21. Að-
gangseyrir er 1.600 kr. og sætafjöldi
er takmarkaður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kammerhópur
í Kjallaranum
SIGURÐUR Pétur Högnason
heldur sína sjöttu einkasýningu á
málverkum í Deiglunni á Akureyri
nú um stundir og sýningin er
fjórða einkasýning hans á þessu
ári, hinar þrjár að vísu ekki í al-
mennum sýningarsölum ætluðum
fyrir myndlist. Sigurður er raf-
verktaki, en menntaður í myndlist
á kvöldnámskeiðum í Myndlista-
skóla Arnar Inga og Myndlista-
skóla Akureyrar. Sigurður sýnir
hér allmörg málverk og er mikil
breidd í nálgun hans við málverk-
ið, svo mikil að erfitt er fyrir
áhorfandann að gera sér grein fyr-
ir því hver markmið hans eru sem
myndlistarmanns. Sýningin í heild
vekur upp spurningar um hlutverk
sýningarsalarins í Deiglunni og
hvort ekki sé hægt að fá listamenn
með skýrari markmið en hér er
raunin til að sýna í salnum.
Málverk Sigurðar eru bæði
abstrakt og fígúratíf og allt þar á
milli eins og nöfn myndanna eru til
vitnis um, en þau eru svo nokkur
dæmi séu nefnd: Álfheimar, Erfða-
tækni í ógöngum, Straumfléttur,
Ex skjús mí, Loftbólugarðurinn,
Verktakar í fótabaði.
Nú lít ég ekki svo á að mynd-
listin eigi aðeins að vera fyrir inn-
vígða eða langskólagengna, ekki
heldur er ég þeirrar skoðunar að
listamenn eigi almennt ekki að
reyna að selja verk sín. Það er hins
vegar staðreynd að myndlist er
ákveðið fag, rétt eins og bók-
menntir, læknisfræði, uppeldis-
fræði o.s.frv. Hún á sér sögu og
hún gegnir ákveðnu hlutverki í
menningu okkar og lífi í dag,
margbrotnu hlutverki. Saga mynd-
listarinnar, möguleikar hennar og
gildi í þjóðlífinu eru þess eðlis að
sjálfsagt er að bera virðingu fyrir
listgreininni með því að nálgast
hana af alvöru og metnaði, ekki
síst þegar afraksturinn er síðan
sýndur í sýningarsal sem ætlaður
er myndlist.
Sigurður Pétur er ekki hæfi-
leikalaus málari og án efa gæti
hann málað málverk sem stæðu
fyrir sínu ef hann legði sig fram
um það. Sýningin hér er hins veg-
ar til vitnis um dugmikinn áhuga-
málara sem hefur gaman af því að
búa til litríkar myndir og gefa
þeim skemmtileg nöfn, lengra nær
metnaðurinn tæpast.
Annaðhvort á sýning Sigurðar
Péturs betur heima í öðrum sal-
arkynnum eða Deiglan er endan-
lega dottin út af kortinu sem sýn-
ingarsalur fyrir samtímalist,
salurinn gæti þá lagt sig fram um
að sýna verk áhugafólks sem einn-
ig geta verið spennandi. Mikilvægt
er þó að gera greinarmun þarna á
milli, þar sem ólík markmið eru á
ferð.
Morgunblaðið/Kristján
Bergúlfur, mynd á sýningu Sigurðar Péturs Högnasonar í Deiglunni.
Af ýmsum toga
MYNDLIST
Deiglan, Akureyri
Til 21. ágúst. Opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13–17.
Málverk, Sigurður Pétur Högnason
Ragna Sigurðardóttir
VEFLISTAKONAN Heidi Strand
hefur staðið í stórræðum síðustu
misseri. Um þessa helgi hefur hún
sýnt á veflistahátíðinni Festival of
Quilts 2005 sem haldin er í Birming-
ham á Englandi á vegum samtak-
anna European Art Quilt Found-
ation. Hefur Heidi sýnt á hverri
sýningunni af annarri sem síðan hafa
á endanum leitt hana til Birming-
ham: „Þetta bar þannig til að árið
1997 hélt ég sýningu í Vasa í Finn-
landi á mikilli Íslandshátíð. Seinna
meir var haldin alþjóðleg sýning í
Ungverjalandi. Þeir sem að sýning-
unni stóðu vildu fá fulltrúa frá
Skandinavíu og leituðu til Finnanna
sem bentu á mig hér á Íslandi,“ segir
Heidi frá. „Sú sýning var síðan sett
upp í Frakklandi og gefin var út bók
með verkum sýningarinnar. Sú bók
hafnaði í Japan og í kjölfarið var mér
boðið að taka þátt í World Quilt
Carneval í Nagoya í Japan, sem
haldin var í tengslum við heimssýn-
inguna. Síðan var mér boðið að taka
þátt í sýningunni í Birmingham, svo
þetta hefur sannarlega ofið upp á
sig.“
Fyrr í mánuðinum tók Heidi síðan
þátt í World Quilt & Textile-sýning-
unni þar sem dómnefnd valdi til sýn-
ingar verk listamanna frá 13 löndum
og átti Heidi þar tvö verk og er eini
fulltrúi Íslands. Sú sýning var sett
upp í Columbus í Ohio og verður í
Manchester í New Hampshire þessa
helgi.
Heidi Strand lærði list sína í Nor-
egi en elti síðan ástina til Íslands í
byrjun 9. áratugarins. Hún hélt sína
fyrstu einkasýningu hér á landi 1982.
Heidi Strand sýnir á
hátíð í Birmingham
Verkið Flækingar eftir Heidi
Strand sem sýnt er í Birmingham.
Sunnudagur 21. ágúst
11.00: Hátíðarmessa. Sr. Sigurður
Pálsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni, sr. Þorvaldi Karli
Helgasyni og Magneu Sverris-
dóttur djákna.
Söngflokkurinn Voces Thules
syngur. Organisti: Björn Steinar
Sólbergsson. David Sanger,
konsertorganisti frá Englandi,
leikur eftirspil.
17.00: Matteusarpassían eftir
Johann Sebastian Bach, BWV 244
fyrir tvo kóra, drengjakór, tvær
hljómsveitir og sjö einsöngvara.
Eitt af höfuðverkum vestrænnar
menningar flutt í fyrsta skipti hér
á landi í barokkstíl, með einsöngv-
urum í fremstu röð.
Flytjendur: Markus Brutscher
tenór, guðspjallamaður. Andreas
Schmidt bassi, Jesús. Noémi Kiss
sópran, Robin Blaze kontratenór,
Gunnar Guðbjörnsson tenór,
Jochen Kupfer bassi, Benedikt
Ingólfsson bassi, Pílatus o.fl.
Mótettukór Hallgrímskirkju,
Drengjakór Reykjavíkur, Hall-
grímskirkju, Unglingakór Hall-
grímskirkju, Alþjóðlega barokk-
sveitin í Den Haag. Stjórnandi:
Hörður Áskelsson.
Miðaverð: 4.000 kr.
Dagskrá Kirkjulistahátíðar