Morgunblaðið - 21.08.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 53
MARGIR hafa eflaust velt fyrir sér
hvað sjónvarpskonan Vala Matt
hygðist taka sér fyrir hendur síðan
tilkynnt var að hún myndi ekki halda
áfram umsjón með sjónvarpsþætt-
inum Innliti/Útliti á Skjá einum.
Svarið liggur nú fyrir, hún hefur í
vetur umsjón með nýjum þætti á
Sirkus ásamt Hálfdáni Steinþórs-
syni. Þátturinn ber heitið Veggfóður
og verður lögð aðaláhersla á hönnun,
lífsstíl og arkitektúr, að sögn Völu.
„Já, við ætlum að fjalla um hönn-
un, lífsstíl og arkitektúr frá ýmsum
hliðum og líta inn og skoða heimili
fólks. Einnig ætlum við að sýna ýms-
ar sniðugar hugmyndir sem fólk er
að framkvæma heima hjá sér. Við
munum taka til umfjöllunar lífsstíl
fólks sem er svolítil útvíkkun á hinu
hefðbundna innliti. Við ætlum einnig
að vera með annan fótinn í útlöndum
þar sem við skoðum hvað er efst á
baugi í hönnun og heimsækjum
einnig Íslendinga sem búsettir eru
erlendis. Í fyrsta þættinum förum
við til New York og heimsækjum Ís-
lendinga þar,“ sagði Vala.
Verður þátturinn líkur Innliti/
Útliti að uppbyggingu?
„Þar sem ég er arkitekt að mennt
hef ég alltaf verið að fjalla um hönn-
un og arkitektúr út frá ýmsum sjón-
arhornum. Ég verð áfram með þá
umfjöllun sem ég hef verið með en
reyni í leiðinni að víkka sjóndeild-
arhringinn.“
Vala og Hálfdán eru sem fyrr seg-
ir umsjónarmenn Veggfóðurs en þau
fá sér til fulltingis ýmsa sérfræð-
inga.
„Þau Sesselja Thorberg iðnhönn-
uður, Guðlaug Halldórsdóttir text-
ílhönnuður, Andrea Róberts, Nína
Dögg Gunnarsdóttir og Sigtryggur
Magnason og ýmsir fleiri taka að sér
minni verkefni fyrir okkur,“ sagði
Vala.
Fyrsti þáttur Veggfóðurs verður
sýndur á Sirkus mánudagskvöldið
29. ágúst næstkomandi klukkan 21.
Sjónvarp | Nýr þáttur um hönnun á Sirkus
Vala og veggfóðrið
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hálfdán Steinþórsson og Vala Matt eru umsjónarmenn Veggfóðurs.
ÞAÐ er aldrei of seint að hampa
duldum meistaraverkum. Nýjasta
og jafnframt fyrsta breiðskífa
kanadísku jað-
arrokksveit-
arinnar Arcade
Fire er eiginlega
ekki lengur ný,
kom út á síðasta
ári, en ekki er
langt síðan hún varð fyrst fáanleg í
verslunum hér á landi. Skemmst er
frá að segja að það er auðskiljanlegt
að plötunni hafi verið hampað af er-
lendum skríbentum sem einni þeirri
bestu sem kom út á síðasta ári. Hún
er nefnilega alveg ævintýralega góð,
fjölbreytt og innihaldsríkari en nær
allt það nýrokk sem út var gefið í
fyrra samanlagt. Platan er löng,
uppfull af löngum, hádramatískum
og vel sömdum lögum sem eru
snilldarvel útsett, leikin og sungin af
fádæma innlifun. Minnir mann einna
helsta á það þegar maður tapaði sér
gjörsamlega yfir fyrstu Tind-
ersticks-plötunni. Já, eins og sjá má
á öllum þessum hástemmdu yfirlýs-
ingum, þá tapar maður sér yfir þess-
ari plötu. Svo góð er hún.
Arcade Fire til Íslands. Og það
strax! … elsku bestu tónleikahald-
arar.
E.s. Svo er ekki úr vegi að geta
hinnar áhugaverðu EP-plötu sem
kom út fyrir skemmstu en hún hefur
að geyma fyrstu demó-upptökur
sveitarinnar. Fantagott stöff.
Maður
tapar sér
TÓNLIST
Erlendar plötur
Arcade Fire – Funeral
Skarphéðinn Guðmundsson
Leikkonan Eva Longoria er bú-in að jafna sig eftir höf-
uðhögg og sneri aftur á tökustað
Aðþrengdra eiginkvenna um
helgina en hlutur féll ofan á höfuð
hennar við
tökur á þátt-
unum.
Meiðslin ollu
ekki sjáan-
legum skaða
eða örum á
höfði þess-
arar vinsælu
leikkonu.
Aðdáendur
hennar höfðu
miklar
áhyggjur og
sendu henni fjölda korta, blóma og
skilaboða.
Longoria leikur fyrrverandi fyr-
irsætuna Gabrielle Solis í þátt-
unum. Þeir fjalla á gamansaman
en sótsvartan hátt um lífið í út-
hverfum Bandaríkjanna og eru
geysivinsælir bæði þar og hér á
landi.
Fólk folk@mbl.is