Morgunblaðið - 13.09.2005, Qupperneq 1
Spásagnir
og stríð
Ímyndunin og ímyndunarflugið í
augum Margaret Atwood | Miðopna
Nína og Geiri
á Broadway
Björgvin fagnar 35 ára
útgáfuafmæli sínu | Menning
Íþróttir í dag
Auðun Helgason með flest M
Skagamenn vilja halda í Ólaf
Landsbankinn áfram aðalbakhjarl
„AÐILAR vinnumarkaðarins þurfa
að sjálfsögðu að taka mið af öllum
atriðum. Mér finnst að sjálfsögðu
eðlilegt að þeir
taki mið af þeirri
verðbólgu sem er
umfram það sem
þeir höfðu gert
ráð fyrir,“ sagði
Halldór Ásgríms-
son forsætisráð-
herra.
„Á móti kemur
að þessar verð-
hækkanir eru að
langmestu leyti vegna húsnæðislið-
arins, sem eru nýjar forsendur og
síðan er ljóst að þær skattalækk-
anir sem hafa verið ákveðnar komu
fram eftir að kjarasamningar voru
gerðir og hafa mikil áhrif á kaup-
mátt. Að sjálfsögðu er það kaup-
mátturinn sem skiptir meginmáli í
þessu sambandi. Mér sýnist að
kaupmáttaraukningin hafi orðið
meiri en hægt var að gera ráð fyrir
þegar kjarasamningar voru gerð-
ir,“ sagði hann ennfremur.
Halldór sagði að hækkun vísitöl-
unnar væri töluvert meiri en gert
hafi verið ráð fyrir. Áhrif þess að
útsölum sé lokið séu meiri en búist
hafi verið við, en á móti komi að
reiknað sé með töluvert minni
hækkun næst.
„Þó þetta sé mikil hækkun sem
veldur áhyggjum eru spárnar fyrir
árið í heild svipaðar og verið hefur
eða í kringum 3,5% og á næsta ári á
bilinu 3,5–4%. Þetta er vissulega
meiri verðbólga en æskilegt er, en
það eru engin ný eða óvænt tíðindi í
þessu. Meginástæðan fyrir hækk-
uninni í ár er húsnæðisliðurinn og
síðan olíur og bensín og aðrar
hækkanir eru mjög litlar.“
Hann benti líka á að það væri
mikið aðhald í fjárlögum næsta árs.
Kaupmáttaraukningin
meiri en gert var ráð fyrir
FÁTT bendir til að verðbólgumark-
mið kjarasamninga gangi eftir í
haust þegar forsendur samninga
verða endurmetnar, að mati Alþýðu-
sambands Íslands. Hagstofan birti í
gær vísitölu neysluverðs fyrir sept-
embermánuð, sem sýnir að verð-
bólgan mælist nú 4,8% og er komin
yfir efri vikmörk verðbólgumark-
miðs Seðlabankans, sem er forsenda
gildandi kjarasamninga.
„Þessi mæling kveður upp úr um
að það mun reyna á verðlagsfyrir-
vara í kjarasamningunum og menn
munu þurfa að hefja umræður á
grundvelli þess að um verulegt frá-
vik sé að ræða frá verðbólgu-
markmiði Seðlabankans en skrifað
er inn í samninga að það sé ein af
forsendum samninganna,“ segir
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins.
Viðsemjendur á almenna vinnu-
markaðinum taka samningsforsend-
ur samninganna til sérstakrar skoð-
unar fyrir 15. nóvember. „Það er
umfjöllunarefni nóvembermánaðar
að skoða þetta,“ segir Hannes.
„Þessar tölur eru orðnar þannig,
að það er alveg ljóst að það mun
reyna á þetta ákvæði,“ segir Hann-
es.
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ, segir að nú séu því miður
litlar sem engar líkur á því að verð-
lagsmarkmið samninganna gangi
eftir. „Núna er verðbólgan 4,8% og
við þyrftum að sjá umtalsverða verð-
hjöðnun til að nálgast 2,5% markið,
sem er afar ólíklegt. Ég geri að vísu
ráð fyrir að það dragi úr verðbólgu í
næstu mælingu en það verður ekki
um verðhjöðnun að ræða, heldur
mun verðbólguhraðinn sennilega
minnka,“ segir Ólafur Darri.
Hefja þarf við-
ræður í haust
Eftir Ómar Friðriksson
og Hjálmar Jónsson
Verðbólgan mælist | 11
Verðbólgan mælist 4,8% og er orðin meiri en í forsendum gildandi kjarasamninga
Halldór
Ásgrímsson
Berlín. AP. | Angela Merkel, kanslaraefni
kristilegra demókrata í Þýskalandi,
reyndi að verja forskot þeirra í skoð-
anakönnunum þegar leiðtogar þýsku
flokkanna leiddu saman hesta sína í um-
ræðuþætti í sjónvarpi í gærkvöldi.
Í umræðuþættinum minnti Gerhard
Schröder, kanslari og leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokksins, kjósendur á and-
stöðu stjórnarinnar við innrásina í Írak,
en sú afstaða er talin hafa stuðlað að
óvæntum sigri flokksins árið 2002.
Angela Merkel svaraði þessu með því
að hamra á stöðu efnahagsmála í Þýska-
landi. Sagði hún að Schröder hefði mis-
tekist að rétta efnahaginn við og draga
úr atvinnuleysinu. | 16
Hamraði á efna-
hagsmálunum
„VIÐ lofuðum meirihlutastjórn og
það er það sem við ætlum að færa
landinu,“ sagði Jens Stoltenberg,
leiðtogi Verkamannaflokksins í
Noregi, í gærkvöldi þegar flest
benti til þess að vinstriflokkarnir
hefðu fengið meirihluta þingsæta í
kosningunum sem fram fóru í gær.
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra borgaralegu flokkanna,
játaði sig sigraðan í gærkvöldi þeg-
ar um 96% atkvæðanna höfðu verið
talin. Rauðgræna bandalagið svo-
nefnda – Verkamannaflokkurinn,
Sósíalíski vinstriflokkurinn og Mið-
flokkurinn – var þá með alls 88
þingsæti af 169. Borgaralegu flokk-
arnir fengu samtals 81 sæti.
Stjórnarflokkarnir þrír – Hægri-
flokkurinn, Kristilegi þjóðarflokk-
urinn og Venstre – fengu alls 44
þingsæti. Framfaraflokkurinn,
sem studdi stjórnina, fékk 37 sæti.
Verkamannaflokkurinn er helsti
sigurvegari kosninganna, fékk 62
þingsæti og bætti við sig nítján.
Fylgi flokksins var 32,8% og jókst
um 8,5% frá síðustu kosningum.
Sósíalíski vinstriflokkurinn fékk
fimmtán þingmenn kjörna og tap-
aði átta þingsætum.
Miðflokkurinn fékk ellefu sæti
og bætti við sig einu. Framfara-
flokkurinn er nú stærstur hægri-
flokkanna, bætti við sig ellefu sæt-
um og fékk 37. Fylgi flokksins var
22,1% og jókst um 7,4% frá síðustu
kosningum.
Venstre, sem er frjálslyndur
flokkur hægra megin við miðju,
styrkti einnig stöðu sína á þinginu,
fékk tíu þingsæti og bætti við sig
átta. Hinir borgaralegu flokkarnir
tveir – Hægriflokkurinn og Kristi-
legi þjóðarflokkurinn – töpuðu hins
vegar miklu fylgi. Hægriflokkurinn
tapaði fimmtán þingsætum, fékk
23 og fylgi hans minnkaði um 7,1%.
Kristilegi þjóðarflokkurinn, flokk-
ur Kjells Magne Bondeviks for-
sætisráðherra, fékk ellefu þing-
sæti, tapaði ellefu sætum og
fylgistapið nam 5,6%.
„Það eru mér mikil vonbrigði að
stjórnin skyldi ekki hafa haldið
velli,“ sagði Bondevik í gærkvöldi
og kvaðst ætla að fara á fund kon-
ungs til að leggja fram afsagnar-
beiðni sína.
Vinstriflokkar náðu
meirihluta í Noregi
Reuters
Jens Stoltenberg, leiðtogi norska Verkamannaflokksins og forsætisráðherraefni vinstriflokkanna, í þinghús-
inu í Ósló í gærkvöldi. Í kosningabaráttunni kvaðst Stoltenberg ætla að efla velferðarkerfið. Hann lagðist
hins vegar gegn áformum borgaralegu flokkanna um skattalækkanir og frekari einkavæðingu.
Verkamanna-
flokkurinn bætti
við sig nítján
þingsætum
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Væntanlegur forsætisráðherra Noregs
Washington. AFP, AP. | Michael Brown, yfir-
maður FEMA, stofnunar almannavarna í
Bandaríkjunum, kvaðst í gær ætla að
segja af sér. Hann hafði
sætt harðri gagnrýni
fyrir að bregðast seint
og illa við náttúru-
hamförunum við
Mexíkóflóa 29. ágúst.
„Ég tel það þjóna
best hagsmunum stofn-
unarinnar og forseta
Bandaríkjanna að gera
þetta, þannig að fjöl-
miðlarnir beini athyglinni að því góða
starfi sem hafið er, í stað þess að einblína á
mig,“ sagði Brown.
Þremur dögum áður var Brown sviptur
umsjón með björgunarstarfinu á hamfara-
svæðunum. Nancy Pelosi, leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeild þingsins, fagnaði af-
sögninni og sagði hana löngu tímabæra.
Brown, sem sagðist hafa rætt síðast við
George W. Bush forseta fyrir fimm eða
sex dögum, kvaðst segja af sér að eigin
frumkvæði. Hann hefði rætt um helgina
við skrifstofustjóra Hvíta hússins, Andy
Card, sem hefði ekki beðið hann að segja
af sér.
Yfirmaður FEMA
segir af sér
Michael Brown
STOFNAÐ 1913 247. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is