Morgunblaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 17
Akureyri | Þeir tóku sig vel út
skipverjarnir á Ingunni AK,
þar sem þeir stóðu stoltir í
stafni skipsins við komuna til
Akureyrar á fimmtudag. Þeir
komu ekki einungis með 1.600
tonna síldarafla til hafnar, held-
ur voru þeir einnig með Þor-
stein ÞH, fjölveiðiskip Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar, í togi.
Þorsteinn fékk í skrúfu í Síldar-
smugunni og varð vélarvana í
kjölfarið. Eftir að Þorsteinn var
kominn upp að Slippkantinum
hélt Ingunn áleiðis til Vopna-
fjarðar til löndunar og fór afl-
inn bæði til vinnslu og í
bræðslu. Þorsteinn var hins
vegar tekinn upp í flotkvína við
Slippstöðina þar sem viðgerð
fer fram.
Morgunblaðið/Kristján
Stoltir í stafni Ingunnar
Skipverjar
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Svo byrjað sé á veðrinu. Vorið var kalt,
sumarið líka. Haustið byrjar ekki sérlega
vel. Það er frekar kalt og blautt. Spurning
með veturinn. Búið að kaupa snjófram-
leiðslukerfi í Hlíðarfjall. Síðastliðnir vetur
óvenju snjóléttir og lítið hægt að renna sér
á skíðum. Skyldi þó aldrei vera að nú á
komandi vetri snjói sem aldrei fyrr.
Vetrarstarf eins og menn kalla það er að
hefjast út um allt. Kórar farnir að syngja
eftir sumarfrí og allt að fara í fulla sveiflu.
Skautahöllin hefur opnað eftir sumarið.
Þar eru krulluiðkendur komnir á fullt
skrið. Þetta er íþrótt sem fest hefur rætur
norðan heiða, en var þar til nú ekki iðkuð
annars staðar á landinu, en sunnanmenn
eru að fara af stað nú í haust. Iðkendum
hefur fjölgað mjög og áhugi eykst sífellt.
Dæmi þess að fólk hafi byrjað í krullunni
af því það hélt þetta væri hallærislegasta
íþrótt sem hægt væri að stunda. Komist
svo að raun um að hún sé skemmtileg.
Eyfirðingar ganga að kjörborði í byrjun
október. Kjósa um sameiningu allra sveit-
arfélaga í firðinum. Það hafa þeir gert áð-
ur. Fyrir löngu, en þá reyndist ekki vilji
fyrir stórri sameiningu. Þótt liðinn sé
röskur áratugur frá þeim kosningum hef-
ur örugglega ekki mikið breyst. Vilji íbúa í
minni sveitarfélögum virðist ekki vera fyr-
ir stórri sameiningu. Forsvarsmenn sveit-
arfélaganna hafa líka verið iðnir við að
koma á framfæri alls konar gagnrýni. Nú
síðast að kynningarefnið, sem á að dreifa
til íbúa í vikunni, sé ekki nægilega gott.
Einungis talað um kosti sameiningar.
Gallanna hvergi getið. Íbúarnir geta svo
sjálfir lagt mat á það seinni part vikunnar
þegar efnið dettur inn um lúgurnar.
Svolítið skondið líka mitt í sameiningar-
umræðu að Svarfdælingar vilja endur-
heimta sjálfstæði sitt, slíta sig út úr Dal-
víkurbyggð .á Það verður spennandi að sjá
hver niðurstaðan úr kosningunum verður.
Eða nei, ekki spennandi. Ætli flestir hafi
ekki nú þegar hugmynd um hvernig fer.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
Grímsey | Miklar breyt-
ingar hafa staðið yfir und-
anfarnar vikur varðandi
ljósabúnað Grímseyinga.
Nýlokið er við að grafa
allt rafmagn í jörð og
þessa dagana er verið að
undirbúa komu nýs vél-
búnaðar rafstöðvarinnar.
Pétur Unnsteinsson,
starfsmaður hjá Rarik,
sagði að nýju tækin í raf-
stöðina væru væntanleg
um mánaðamótin septem-
ber/október. Pétur,
ásamt þeim Inga Guðjóns-
syni hjá Rarik og Hans
Ragnari Ragnarssyni frá
SR vélaverkstæði á Siglu-
firði eru að undirbúa jarð-
veginn þannig að allt
verði klárt þegar þau
koma. Í millitíðinni er það
hávaðabelgur mikill sem
stendur utan við rafstöð-
ina sem sér Grímseying-
um fyrir rafmagni. Sig-
urður Bjarnason, raf-
veitustjóri í Grímsey,
hefur að sjálfsögðu unnið
samhliða þeim Rarik-
mönnum í einu og öllu við
undirbúning nýju stöðvar-
innar. Pétur Unnsteins-
son sagði að á vori kom-
anda yrði svo rafstöðin
klædd að utan og þar með
sleginn lokahnúturinn á
endurnýjaða rafstöð sem
mun sjá um „ljósin í bæ“
Grímseyinga um ókomin
ár.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Pétur, Hans Ragnar og Ingi við hávaðabelginn utan við rafstöðina.
Rafmagn í jörð og ný rafstöð
Ferskeytlan hefurekki tapað fjöri ogsést það best á því
að enn koma fram ungir
hagyrðingar. Halla Oddný
Magnúsdóttir 17 ára
menntaskólamær orti
sléttubönd í enskutíma:
Brúka fræðin, aldrei í
enskutímum blunda.
Mjúka holdsins freisting flý,
fráleitt drykkju stunda.
En ef vísunni er snúið
við breytist merkingin!
Stunda drykkju, fráleitt flý
freisting holdsins mjúka.
Blunda tímum ensku í
aldrei fræðin brúka.
Rúnar Kristjánsson yrki
eftirmæli um Guðmund
Kærnested skipherra:
Íslensk þjóð með elsku-
geð,
anda trega klökkum,
kappann Guðmund
Kærnesteð
kveður nú með þökkum.
Lengi stóð hann sterkan
vörð,
styrkti rætur góðar,
fyrir sína fósturjörð,
farsæld lands og þjóðar.
Af fræðum
pebl@mbl.is
Hofsós | Fiskvinnslu í fiskvinnsluhúsinu á
Hofsósi, sem síðustu mánuði var rekin af
fyrirtækinu Norðurósi ehf., var hætt fyrir
skömmu. Lauk þar með áratuga starfsemi
á þessu sviði í þorpinu sem þó hafði verið
með nokkrum hléum síðustu ár.
Norðurós tilkynnt þessa ákvörðun
snemma á þessu ári þannig að þessi mála-
lok komu ekki á óvart og hafði fólk verið að
hætta hjá fyrirtækinu undanfarna mánuði.
Undir lokin störfuðu þar 8 manns en í jan-
úar á þessu ári voru þar 17 manns í vinnu.
Fólkið sem hætti á dögunum hefur flest
fengið vinnu a.m.k. tímabundið. Fisk-
vinnsluhúsið á Hofsósi og tækjabúnaður í
því er í eigu Fisk Seafood. Einhverjar
þreifingar munu vera um starfsemi í hús-
inu áfram en að mati Jóns G. Jóhannesson-
ar sem var verkstjóri hjá Norðurósi síð-
ustu mánuðina er ekki útlit fyrir að um
hefðbundna fiskvinnslu verði að ræða í
húsinu á næstunni.
Fiskvinnslu
hætt
Húnavatnssýsla | Biskup ÍslandsKarl Sig-
urbjörnsson, er í vísitasíu um Húna-
vatnsprófastsdæmi. Vísitasían hófst hinn
8. septem-
ber og er
hún í tveim-
ur hlutum.
Fyrri hlut-
inn er 8. –
12. septem-
ber en síðari
hlutinn 2. –
9. okóber.
Í þessari
vísitasíu
mun biskup
skoða um 30
kirkjur,
taka þátt í
fjölda helgi-
stunda og guðsþjónustna, heimsækja átta
skóla og þrjár sjúkrastofnanir og dvalar-
heimili. Mikilvægur þáttur í vísitasíu er að
ræða við sóknarnefndafólk prófastsdæm-
isins og mun biskup eiga fjölda funda með
því. Þá heldur hann kyrrðardag með prest-
um prófastsdæmisins að Melstað þann 7.
október. Með biskupi í för eru eiginkona
hans, Kristín Guðjónsdóttir og Guðni Þór
Ólafsson prófastur í Húnavatnsprófasts-
dæmi.
Biskup í
vísitasíu
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Melstaðarkirkja í Vestur-
Húnavatnssýslu.
♦♦♦
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Fréttir á SMS