Morgunblaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 27 MINNINGAR Við fótagaflinn á rúminu þótti henni rísa mikill hvítabjörn sem teygði hrammana til hennar. En björninn hafði mannsandlit – föður okkar Margrétar, Guðmundar Hjaltason- ar. Skömmu seinna greiddist hagur Margrétar og drengur fæddist. Þeg- ar móðir okkar heyrði drauminn, þótti henni betra dreymt en ódreymt, því hvítabjörn væri álitinn höfðingjafylgja samkvæmt þjóð- trúnni. Úr því að björninn hafði ásjónu föður okkar var auðvitað sjálfsagt að hann væri að vitja nafns og drengurinn yrði skírður nafni móðurafa síns. Í hentugan tíma var litli drengurinn skírður Guðmundur af séra Árna Björnssyni, prófasti í Görðum á Álftanesi. Liðu svo tímar að þau hjón, Mar- grét og Halldór Kjærnested, fluttu til Reykjavíkur. Fyrst bjuggu þau á Ránargötu 12. Guðmundur litli var kominn vel á fót og farinn að leita sér félaga. Þar í grenndinni lék hann sér oft við jafnaldra sinn. Barn þetta var haldið bráðaberklum og þar mun Guðmundur hafa smitast af þessum sjúkdómi sem þá herjaði eins og drepsótt á æskulýð landsins. Guð- mundur var þá 6 ára og veikin tók þetta fíngerða barn hörðum tökum. Hann fékk blóðspýju og þar að auki lífhimnubólgu. Löngu áður en svo illa var komið hafði Margrét, móðir hans, leitað til Helga Ingvarssonar læknis á Vífilsstöðum og Berklahæli Hringsins í Kópavogi. Þá lá ég í berklum á hæli Hringsins. Vegna þessara fjölskyldutengsla ákvað Helgi læknir að Guðmundur yrði fluttur á hæli Hringskvenna. Það varð Guðmundi mikið gæfuspor. Á Hælinu var hjúkrunarkona, Una Sigtryggsdóttir frá Framnesi í Skagafirði, merkiskona, mjög fær í sínu starfi. Ég gleymi aldrei þeim degi þegar fröken Una stóð í dyr- unum með litla Guðmund í fanginu, rétt eftir að hann kom á Hælið. Sár- lega magur, fölur með ljóst hár, blautt af sótthita, horfði hann til mín þar sem ég lá. Hann brosti til mín daufu brosi. Hann var eins og fölvað blóm sem viknar í sumarandans blæ. Dagarnir liðu. Fröken Una vakti yfir sjúklingi sínum öllum stundum með óþreytandi þolinmæði. Og undr- ið skeði. Hægt en örugglega kom batinn. Loksins rann Guðmundur upp eins og fífill í túni. Þetta var hreint undur. Hann fór að geta heim- sótt mig og hlustað á sögur um forn- ar hetjur, Sigurð Fáfnisbana, Gretti og Gunnar á Hlíðarenda. Þeir þótti Guðmundi skemmtilegastir. Afturbatinn er dásamlegur tími. Þá er eins og heimurinn hlægi og allt verði nýtt. Guðmundur var farinn að fara út í sólina og loksins hljóp hann um allt. Á þessum tíma voru engin berklameðöl til sem dygðu. Það var því eindæma hjúkrun Unu Sig- tryggsdóttur sem segja má að Guð- mundur ætti líf sitt að launa. Ást þessarar góðu hjúkrunarkonu er geymd í fögrum vísum sem Una orti til síns litla sjúklings og eru prent- aðar í ævisögu Guðmundar. En vett- vangur alls þessa hamingjuláns var Hæli Hringskvenna í Kópavogi sem þessar ágætu konur ráku með fá- dæma dugnaði á mjög erfiðum kreppuárum frá 1926 og lengur. Hringskonur komu oft og gátu glaðst yfir þessum mikla sigri sem unnin var undir þeirra þaki. Oft sá ég í speglinum mínum hvar frú Kristín Vídalín Jakobsson gekk nið- ur stíginn að Hælinu, sem hún var vakin og sofin yfir. Um jólin fékk Guðmundur litli svo mikið af dýrind- is jólagjöfum frá Hringskonum. Því gleymdi hann aldrei. Guðmundur var ein tvö ár á Hæli Hringsins. Segja má að við frænd- systkinin risum bæði upp frá dauð- um undir verndarvæng Hrings- kvenna. Við gáfum bæði Guði dýrðina. Hvort á sinn hátt. Næst lágu leiðir okkar saman í Landakotsskóla. Meulenberg biskup sá fljótt hvað í Guðmundi bjó og tók við hann ástfóstri. Guðmundur gerð- ist kórdrengur við messur í Krists- kirkju. Þar lærðist honum umgengni á helgum stað og rækti þá þjónustu með barnslegum virðuleik. Árið 1936 skeði sá hörmulegi at- burður að franska rannsóknarskipið Pourqoui pas? fórst á Þormóðsskeri. Leiðangursforinginn, dr. Charcot, hinn heimsfrægi vísindamaður, fórst þar með allri skipshöfn sinni, utan eins skipverja. Flest líkin fundust og skyldu þau öll jarðsyngjast frá Kristskirkju í Landakoti. Meulen- berg biskup var mjög annt um að jarðarförin færi fram með þeim virðuleik sem hæfði slíkum sorgarat- burði. Valdi biskup Guðmund Kjærnested til að halda uppi slóð- anum á kórkápu biskupsins sem gekk síðastur í hinni afarlöngu pró- sessíu á eftir hinum fjöldamörgu lík- kistum. Þessarar jarðarfarar var getið í öllum helstu blöðum heims og margar myndir fylgdu. Það sagði mér Meulenberg biskup að hvar sem Guðmundur sást á þessum heims- fréttamyndum hefði hann gert allt rétt, svo sómi var að. Þarna var Guð- mundur 13 ára. Nokkru seinna sett- ist hann í Héraðsskólann á Laugar- vatni. Síðan hófst sjómennska Guðmundar. Varð hún ærið söguleg. Snjókólgudaga hríðir harðar til heljar draga blómann jarðar. Kalt var á Fróni, Kjærnested. Þannig kvað Jónas Hallgrímsson um forföður Guðmundar. Skipherrar og áhafnir varðskip- anna urðu þjóðhetjur. Læt ég aðra færari um að rekja þá sögu. Guðmundur var andlega sinnaður frá bernsku. Hann sótti kirkjur eftir því sem ástæður leyfðu fyrir sjó- mann, bæði í Landakoti og Hall- grímskirkju. Við áttum oft tal um kirkjumál og leist báðum vel á sam- kirkjuhreyfinguna. Þau hjónin, Mar- grét og Guðmundur, gengu saman til Rómar, og margar ferðir fóru þau til sólarlanda. Hans verður sárt saknað af sínum nánustu svo góðminnis- stæður sem hann var. Blessaður frændi minn er nú kom- inn í annað ljós. Hvíli hann í friði. Sigurveig Guðmundsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði. Guðmundur Kjærnested er einn fárra Íslendinga sem kalla má þjóð- hetju. Ég var aðeins barn að aldri þegar þorskastríðin geisuðu á átt- unda áratugi síðustu aldar en man vel hvað ég var stoltur yfir því að Guðmundur skipherra Kjærnested væri frændi minn. Leiðir okkar lágu þó lítt saman fyrr en á seinni árum. Ég var þá í framhaldsnámi í sagn- fræði á Englandi og fór að rannsaka sögu þorskastríðanna. Ytra hitti ég togarasjómenn og liðsmenn breska sjóhersins. Auðvitað hafði öldurnar lægt og þeir fullyrtu að Guðmundur Kjærnested og aðrir skipherrar Landhelgisgæslunnar hefðu verið frábærir sjómenn; það mættu þeir eiga! Við Guðmundur skrifuðumst líka á og hittumst oft þegar ég var fluttur heim. Naut ég þá gestrisni hans og Margrétar á þeirra hlýja heimili. Guðmundur var hreinskil- inn, hispurslaus og fjörlegur þegar hann rifjaði upp baráttuna við Bret- ann og annað frá löngum starfsferli. Fyrir mig eru þessi samtöl ekki að- eins góð minning um góðan mann heldur ómetanleg heimild sem mun nýtast við ritun á sögu þorskastríð- anna. Ég hitti Guðmund síðast nokkrum dögum fyrir andlátið þegar við fór- um yfir formálsorð sem hann var beðinn um að skrifa í nýja breska bók um þorskastríðin. Hann vildi að fram kæmi hve háðir Íslendingar voru auðlindum hafsins og að þótt skorist hefði í odda erfði hann ekki neitt við nokkurn mann. Ég leyfi mér að ljúka þessum eftirmælum með orðum Guðmundar sjálfs í þessum formála: „Mér var það heiður að starfa við löggæslu og björgunar- störf á hafinu umhverfis Ísland nær alla mína starfsævi. … Við Íslend- ingar öðluðumst sjálfstæði 1944 en vissum að lokasigur í sjálfstæðisbar- áttunni ynnist ekki fyrr en við fengj- um full yfirráð yfir fiskimiðunum umhverfis landið, lífæð okkar allra. Sú staðreynd leiddi til átaka við vina- þjóðina Breta þar sem okkur fannst réttlætið sigra að lokum. Þessi átök voru þó ekki stríð í huga okkar. Við bárum virðingu fyrir breska sjó- hernum og öllum erlendum sjó- mönnum á Íslandsmiðum. Við gerð- um okkar skyldu; þeir gerðu sína.“ Guðni Th. Jóhannesson. Bernskuminningar okkar systkina eru samofnar Dadda, eins og Guð- mundur Kjærnested var jafnan kall- aður á heimili okkar. Hann var mað- urinn hennar Möggu frænku, systur hennar mömmu. Hann var eini full- orðni karlmaðurinn í öllu húsinu, en þar bjuggu amma, ásamt nokkrum systrum sínum á háaloftinu, mamma með okkur fjögur og svo Magga og börnin þeirra Dadda, sem líka voru fjögur. Margar konur og stór barna- hópur. Daddi var mikið í burtu vegna vinnu sinnar, aðallega á sjó. Mikil virðing var borin fyrir Dadda af öll- um íbúum hússins. Þegar hann var í landi vorum við systkinin minnt á það og þar með gefið í skyn að við yrðum að hafa hljótt um okkur. Störf Dadda voru sveipuð dulúð, hann var hjá Gæslunni, enginn vissi nákvæm- lega hvert hann fór, hvað hann var að gera eða hversu lengi hann yrði. Allt slíkt var trúnaðarmál. Daddi fór bara að heiman í einkennisbúningi skipherra, fínn og flottur og kom svo til baka jafnfínn og flottur. Það var gott að geta leitað til Dadda ef eitt- hvað kom fyrir. Gagnvart okkur var Daddi þá í hlutverki hins ábyrga föð- ur sem leysti úr málum vel og skjótt. Fylgdi hann okkur á slysavarðstofu ef svo bar undir. Það var líka aðdá- unarvert hvernig allt þetta fólk bjó saman í stóru húsi, umgekkst hvað annað af umhyggjusemi en þó af- skiptaleysi án þess að nokkurn tím- ann slettist upp á vinskapinn. Þegar við uxum úr grasi kynnt- umst við nýjum manni. Daddi hafði mikinn áhuga á allri samfélagsum- ræðu, fylgdist vel með stjórnmálum og tók virkan þátt í félagsmálum. Hann var líka mikill fjölskyldumað- ur og hafði áhuga á börnum og barnabörnum. Ekki bara sínum eig- in, heldur líka okkar. Honum þótti gaman að spjalla um heima og geima og naut þess sérstaklega þegar hann var hættur hjá Gæslunni að vinna í utanríkisráðuneytinu. Þar gætti hann dyranna og umgekkst háa sem lága af sömu kurteisinni og lítillæt- inu. Seinni árin hafa þau Magga ver- ið dugleg að ferðast, bæði innan- lands og utan. Þau fóru gjarnan til sólarlanda á veturna og í útilegur hér heima á sumrin. Þau voru líka fastir gestir í leikhúsum og listsýn- ingum. Þau hjón höfðu verið gift í rúm 60 ár. Samt voru þau alltaf eins og nýtrúlofuð. Það, hvernig þau hjón höguðu lífi sínu, var til fyrirmyndar fyrir komandi kynslóðir. Guðmundur átti því láni að fagna að halda góðri heilsu og vera vel á sig kominn. Því kom andlát hans óvænt. Við sendum móðursystur okkar og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur og vitum að móðir okkar deilir þeirri kveðju með okkur. Ingibjörg, Halldór, Lára og Sigurður Júlíusarbörn. Jafnan þegar ég hitti Guðmund Kjærnested á förnum vegi var hon- um velferð Landhelgisgæslu Íslands ofarlega í huga. Hann bar góðan hug til þeirra sem þar störfuðu og vildi veg þeirra og stofnunarinnar sem mestan. Þess vegna er það sérstakt harmsefni, þegar Guðmundar er minnst, að hann skyldi ekki hafa lifað nægilega lengi til að sjá langþráðan draum sinn um stóráták í þágu Landhelgisgæslunnar rætast. Um þær mundir, sem ríkisstjórnin var að leggja á ráðin um að verja þremur milljörðum króna til að efla skipa- og flugvélakost Landhelgisgæslu Ís- lands, barst fréttin um andlát Guð- mundar. Hvað eftir annað hefur sannast á undanförnum áratugum, hve Íslend- ingum er mikið í mun að vel sé búið að Landhelgisgæslu Íslands og þeim, sem þar starfa. Í þessu felst mikil viðurkenning til þeirra, sem haldið hafa merki gæslunnar hæst á loft. Guðmundur Kjærnested var þar í fararbroddi að Eiríki Kristó- ferssyni skipherra gengnum. Guðmundur var 17 ára að aldri þegar hann varð háseti árið 1940, fyrst á millilandaskipum en síðan á varðskipinu Ægi, en hann varð stýri- maður hjá Landhelgisgæslunni 1949 og skipherra 1954 til 1984 eða í 30 ár. Landgrunnslögin um útfærslu land- helginnar voru sett 1948 og síðan var hún færð út í áföngum frá þeim tíma til 200 mílnanna árið 1975. Við hverja útfærslu reyndi á áhafnir varðskip- anna og í öll skiptin var Guðmundur Kjærnested við stjórnvölinn, fyrst sem stýrimaður og síðan sem skip- herra. Guðmundur varð þjóðfrægur fyrir skipstjórn sína og ávann sér mikla virðingu og vinsældir fyrir fram- göngu á hættu- og spennutímum. Hann var fylginn sér af hógværð og festu og farsæll skipherra. Mér er ljúft að votta minningu Guðmundar virðingu og færa honum þakkir fyrir ómetanleg störf í þágu íslensku þjóðarinnar. Fyrir fram- göngu manna á borð við hann nýtur Landhelgisgæsla Íslands óskoraðs trausts. Ég færi Margréti Önnu Símonar- dóttur, ekkju Guðmundar, börnum þeirra hjóna og ástvinum öllum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Guðmundar Kjærnested. Björn Bjarnason. Fjölmargir hringdu til mín alla leið til útlanda – þar sem ég var að reka erindi stofnunar minnar – til þess að tilkynna mér að „gamla kempan“ væri fallin, eins og fleiri en einn fyrrverandi samherja og aðdá- enda skipherra síns og vinar orðaði það á svo viðeigandi hátt. Þetta er einmitt dæmigerð ímynd, sem ekki aðeins starfsmenn Land- helgisgæslunnar eiga af Guðmundi Kjærnested skipherra, heldur þjóðin öll. Aldrei á ævi minni hef ég að minnsta kosti heyrt annað, enga ósamhljóma rödd í okkar þjóðarkór í þessum efnum, þegar lofa skal þátt Guðmundar og annarra skipherra og áhafna þeirra á örlagastundum í sjálfstæðisbaráttu okkar. Öll eigum við mynd í huga okkar af skipherranum – yfirveguðum, ró- legum og einbeittum, en jafnframt hógværum og gætnum, en líka smáglettnum í orðum og á svip í samtölum við fréttamenn, sem og samstarfsmenn og ráðamenn lands og þjóðar, gjarnan úti á brúarvæng eða við landgang skips síns að af- loknu afreki, sem hann túlkaði eins og hversdagslegan atburð á stofu- gólfinu sínu heima. Fas hans allt bar vitni um festu, einbeitni og umfram allt hógværð og kurteisi og virðuleika, sem einungis hinn jafnvægissterki getur sýnt, sá sem veit um mátt sinn og góða yfir- sýn yfir menn og málefni. Í okkar augum – ungra og aldinna – er Guðmundur Kjærnested skip- herra hetja og dæmigerður fyrir starfsmenn stofnunar, sem ávallt hefur haft einvala liði á að skipa til að takast á við ein vandasömustu störf- in í þágu lands og þjóðar á sjó og landi. Minningin um hinn djarfhuga, glögga og skjótráða skipherra, Guð- mund Kjærnested, lifir hann um ókomin ár og er lyftistöng og hvatn- ing til Landhelgisgæslu Íslands. Ég bið góðan Guð að geyma hann og blessa um tíma og eilífð. Ástvinum hans og ættingjum, svo og vinum og fyrrverandi samstarfs- mönnum til sjós og lands, votta ég samúð og virðingu fyrir hönd Land- helgisgæslu Íslands. Georg Kr. Lárusson, forstjóri. Kveðja frá Öldrunarráði Landhelgisgæzlunnar og Sjómælinga Íslands Guðmundur Kjærnested skip- herra, sem við kveðjum nú, var einn af stofnendum Ráðsins árið 1996, en það skipa fyrrverandi starfsmenn, sem komnir eru á eftirlaun. Flestir áttu meirihluta starfsævi sinnar hjá Gæzlu og Sjómælingum. Félagarnir eru nú 22, og sigldu margir með Guð- mundi, sumir allt að 10 árum sam- tals. Með starfshæfni sinni og persónu- gerð var Guðmundur einn af burðar- ásum Landhelgisgæzlunnar. Með ákveðinni en sanngjarnri stjórn var hann öðrum fyrirmynd og einnig traustur félagi og vinur. Í söknuði okkar viljum við senda Margréti og afkomendum okkar hlýjustu samúðarkveðjur. Ólafur Valur Sigurðsson, formaður. Þegar Guðmundur Kjærnested hafði lokið sínum langa og glæsta ferli í Landhelgisgæslunni fannst honum heldur snemmt að draga sig í helgan stein og því varð það úr að hann hóf störf í móttöku utanríkis- ráðuneytisins árið 1984. Starfsfólk ráðuneytisins var alla tíð talsvert upp með sér að þessi þjóðhetja skyldi taka að sér að vera andlit ráðuneytisins. Erlendum tignargest- um jafnt sem þeim sem þurftu að leita aðstoðar starfsmanna ráðu- neytisins var tekið með sömu eðlis- lægu hlýju og virðuleika. Myndug- leika og hörku þurfti hann síður að beita en fyrr á árum en aðrir eðl- iskostir hans, glettni og lempni nutu sín þess betur. Það tíðkast ekki í ut- anríkisþjónustunni að kjósa vinsæl- ustu starfsmenn enda gæti það frem- ur orðið til að auka á úlfúð. Það er hins vegar morgunljóst að hefði ver- ið efnt til slíkrar kosningar hefði Guðmundur átt auðvelt með að sigra þau ár sem hann starfaði þar. Hann og hans góða kona Margrét undu sér ekki síður utan vinnutíma þegar yngra starfsfólkið fitjaði upp á ferða- lögum eða gleðskap af einhverju tagi. Guðmundur starfaði á ellefta ár í ráðuneytinu, nokkuð fram yfir SJÁ SÍÐU 28 Freigátan Naid siglir á varðskipið Tý við Austurland í apríl 1976. Miklar skemmdir urðu á varðskipinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.