Morgunblaðið - 13.09.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.09.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 25 MINNINGAR ✝ Berta Herberts-dóttir fæddist á Hamraendum í Breiðuvík á Snæ- fellsnesi 18. júlí 1926. Hún andaðist á Dvalarheimilinu Grund 5. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðlaug Sigmunds- dóttir, f. 11. júní 1904, d. 8. júní 1984, og Herbert Pálsson, f. 4. maí 1909, d. 1. desember 1925. Berta giftist Hannesi Helgasyni frá Reykjavík f. 10. ágúst 1929. Foreldrar hans voru Mínerva Haf- liðadóttir, f. 20 júní 1903, d. 3. maí 1996, og Helgi Kristjánsson, f. 20. maí 1906, d. 1932. Börn Bertu og Hannesar eru: 1) Guðlaug Maggý, f. 20. janúar 1950, gift Jóni Pétri Jónssyni, f. 13. apríl 1946, börn þeirra eru Hannes Viðar, f. 1. maí desember 1983, og Heimir Már, f. 22. nóvember 1986. 4) Lára, f. 1. október 1959, synir hennar eru Magnús Helgi Hilmarsson Schram, f. 24. september 1982, og Davíð Örn Hilmarsson, f. 9. sept- ember 1987. 5) Sigmundur, f. 5. september 1961, kvæntur Sigrúnu Arnardóttur, f. 22. ágúst 1961, börn þeirra eru Karolína Margrét, f. 7. apríl 1997, og Kristian Örn, f. 7. apríl 1997, dóttir Sigrúnar er Anna Leijonhjelm, f. 22. apríl 1985. Berta bjó á Hamraendum fram að tvítugsaldri, stundaði nám við Húsmæðraskólann á Staðarfelli og vann við ýmis störf eins og þá tíðk- uðust. Þau hjónin fluttu til Reykja- víkur eftir giftingu, bjuggu þar fjögur ár og síðar í Kópavogi frá 1955–1980 er þau fluttu aftur til Reykjavíkur. Eftir að börnin voru uppkomin unnu þau hjónin sem umsjónarmenn orlofsbúða í Svignaskarði fimm sumur. Síðar vann hún á saumastofunni Hlín og sem matráðskona í Hólabrekku- skóla. Berta verður jarðsungin frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. 1972, og Lovísa Rut, f. 14. janúar 1978, unnusti Björn Ingi Ragnarsson, f. 26. maí 1976. 2) Hafdís, f. 19. október 1953, gift Stefáni Gunnari Stefánssyni, f. 8. febrúar 1946, börn þeirra eru a) Gunnar Haukur, f. 16. októ- ber 1972, kvæntur Arnþrúði Jónsdóttur, f. 2. október 1973, dóttir þeirra er Þór- unn Snjólaug, f. 19. júlí 1998, b) Berta Ósk, f. 4. apríl 1975, dóttir hennar er Rebekka Rut Þorbjörnsdóttir, f. 14. nóvem- ber 1999, og c) Stefán Örn, f. 3. ágúst 1980. 3) Helgi, f. 21. ágúst 1958, kvæntur Guðmundu Huldu Eyjólfsdóttur, f. 23. maí 1958, börn þeirra eru Hannes, f. 30. júlí 1977, kvæntur Gerði Jónsdóttur, f. 7. júní 1979, Vignir Freyr, f. 22. Elskuleg móðir okkar er látin eftir löng og erfið veikindi og langar okk- ur systkinin að minnast hennar með nokkrum orðum. Mamma var um- hyggjusöm móðir, alltaf til staðar þegar við þurftum á henni að halda og veitti það okkur mikið öryggi á uppvaxtarárunum. Hún stjórnaði heimili sínu af natni og iðjusemi, þar sem hennar helstu kostir nutu sín vel. Má þar helst nefna að hún hafði mikið jafnaðargeð, var ákaflega nægjusöm, allt lék í höndum hennar og gat hún gert mikið úr litlu sem nauðsynlegt var á stóru heimili sem okkar. Á heimilinu voru auk okkar systkina okkar ástkæru Lauga amma og Lára ömmusystir. Það var oft glatt á hjalla hjá okkur og mikill gestagangur en alltaf nóg pláss fyrir gesti, þó þröngt væri búið fyrstu ár- in. Það voru mikil viðbrigði fyrir okkur þegar við fluttum úr tveggja herbergja kjallaraíbúðinni á Kópa- vogsbrautinni í einbýlishúsið á Mánabrautinni sem pabbi og mamma byggðu með eigin höndum. Við munum vel eftir þegar þau komu heim seint á kvöldin, þreytt eftir langan vinnudag. Mamma ræktaði garðinn sinn. Það sást vel á fallega garðinum hennar heima sem hún lagði mikla natni við og einnig á sambandi hennar við frændfólkið. Frændfólkið frá Hamraendum var sífellt í huga henn- ar og minntist hún oft uppvaxtarár- anna þar með mikilli hlýju. Áhuga- málin voru mörg og tókst henni að finna tíma til að sinna margvíslegum hannyrðum. Mamma og pabbi höfðu mjög gaman af að ferðast og minn- umst við systkinin margra tjald- og veiðiferða. Þau höfðu mikla ánægju af söng og dansi, voru með í að stofna Samkór Trésmíðafélags Reykjavík- ur sem þau ferðuðust með víða, stunduðu samkvæmisdansa í mörg ár og veitti þetta mömmu mikla gleði. Hjartarýmið var stórt og nutu barnabörnin og langömmubörnin þess oft að fá að vera hjá henni ömmu Bertu og voru nokkur barna- börnin hjá henni á daginn fyrstu árin sín meðan við foreldrar þeirra stund- uðum vinnu. Við skildum ekki alltaf hve mikið var á hana lagt síðustu árin en hún tók öllu með jafnaðargeði, sem var einn af hennar góðu kostum. Það var erfitt fyrir þau okkar systkinanna sem búum í Noregi að geta ekki ver- ið nálægt henni þessi síðustu ár. Að lokum langar okkur að færa starfsfólkinu á deild A3 á Dvalar- heimilinu Grund og öðrum sem stunduðu hana í veikindum hennar okkar innilegustu þakkir fyrir góða umönnun og hjartahlýju. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Guð blessi þig, elsku mamma, Maggý, Hafdís, Helgi, Lára og Sigmundur. Eigi stjörnum ofar á ég þig að finna, meðal bræðra minna mín þú leitar, Guð. Hvar sem þrautir þjaka, þig ég heyri biðja: Viltu veikan styðja, vera hjá mér þar? (Sigurbjörn Einarsson.) Hún Berta frænka mín og vinkona er flutt til betri heima, laus við erfið veikindi, Hún hefur verið mér mjög náin allt mitt líf. Það fyrsta sem ég man frá því að ég var barn á æskustöðvum okkar undir Jökli. Ég fékk að leika með postulínsbollastell með mynd, mikla dýrgripi, er ekki voru fyrir alla. Unga stúlku í eldhúsinu heima að krulla hárið og strauja kjól fyrir ball- ið, ég krakkinn fór á ballið og vissi við hverja hún dansaði og man enn. Svona liðu árin við leik og störf, ég man sumarið er ástin á stráknum að sunnan kviknaði og varð að báli er logaði út lífið. Hannes og Berta flytja suður og Lauga mamma með, setja saman heimili í Reykjavík. Fyrstu árin mín hér syðra var ég nær daglegur gestur, hún var sú fyrsta er ég trúði fyrir minni ást og fyrsta úr fjölskyldunni sem fékk að hitta kærastann, frá fyrsta degi urðu þau miklir mátar og milli okkar allra var mjög kært. Ógleymanlegar eru stundirnar á Kópavogsbrautinni öll börnin fimm Lauga og Lára í tveggja herbergja íbúð, allir glaðir og ánægðir, engin talaði um þrengsli, þetta var sér- stakt samfélag, þar var sungið hlegið og grátið saman, öllum leið vel. Þarna kom best í ljós góða skapið hennar Bertu laus við öfund, afbrýði- semi hún var svo glöð með hópinn sinn og Hannes. Þær skipta mörgum tugum stund- irnar sem við áttum saman þar og á Mánabraut við söng spil að ógleymd- um jólaboðum og púkkspili. En stærst var hún í bylnum stóra á þessu ári, alltaf þakklát og sterk, þetta var lærdómstími fyrir mig. Kæri Hannes, nú sýndi sig að eld- urinn sem kviknaði fyrir nær 60 ár- um var ekki slokknaður, það var gott að vera með ykkur. Já, þinn vil ég vera, vígja þér mitt hjarta, láta ljós þitt bjarta leiða, blessa mig. (Sigurbjörn Einarsson.) Elsku fjölskylda, megi minningin um elskulega móður og ömmu lifa hún gaf ykkur veganesti út í lífið. Hannes, við minnumst gömlu góðu daganna. Guð geymi ykkur öll. Takk fyrir allt og allt. Erna. BERTA HERBERTSDÓTTIR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HALLA HAFLIÐADÓTTIR frá Siglufirði, til heimilis á Suðurbraut 10, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 14. september kl. 15.00. Haraldur Guðmundsson, Maríanna Haraldsdóttir, Júlíus Matthíasson, Guðmunda Haraldsdóttir, Þórður Vilhjálmsson, Ragna J. Ragnarsdóttir, Emil H. Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, HUGRÚN KRISTINSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 14. september kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Parkinson-samtökin. Þorsteinn Briem, Emil Kristinn Briem, Haukur Geir Eggert Briem, Stefán Berg Rafnsson, Sigurður Hilmar Hansen, Harpa Dögg Nóadóttir og barnabörn, Jórunn Kristinsdóttir, Sigurlaug Kristinsdóttir, Einar Eggertsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON kennari, Sóleyjargötu 7, Reykjavík, lést föstudaginn 9. september Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 19. september kl. 15.00. Hlín Helga Pálsdóttir, Andri Birkir Ólafsson, María Guðbjartsdóttir, Olga Björk Ólafsdóttir, Roland Hartwell, Helga Lára Ólafsdóttir, Ásgeir Friðriksson, Magnús Björn Ólafsson, Jóhann Ólafur og Andri Hrafn Andrasynir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, TORFI JÓNSSON skipstjóri, Mýrum 6, Patreksfirði, sem lést laugardaginn 10. september, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 17. september kl. 14:00. Oddbjörg Þórarinsdóttir, Kristín B. Torfadóttir, Rúnar Árnason, Jón Torfason, Kolbrún Sigr. Sigmundsdóttir, Þórarinn Torfason, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sambýlismaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR ÞÓR ARASON, Grænási 1B, Ytri Njarðvík, andaðist laugardaginn 10. september. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 16. september kl. 13.30. Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Stefán G. Einarsson, Eydís Eyjólfsdóttir, Ari Einarsson, Ása Guðmundsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.