Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af öllum úlpum og kápum
í dag og á morgun
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Góðar flauelsbuxur
Str. 36-56
Stakir jakkar og
úrval af pilsum
Laugavegi 84 ● sími 551 0756
Mjódd, sími 557 5900
Cat bolirnir komnir aftur
Einnig flottir leðurjakkar svartir og brúnir
Verð kr. 16.990
Verið
velkomnar á
Breiðholtsdaga
Gallabuxur háar
í mittið kr. 3.990
Bolir kr. 1.990
Flíspeysur kr. 1.990
Vatteruð
vesti kr. 3.990
Laugavegi 54
sími 552 5201
HELGA Sigrún Harðardóttir hefur
verið ráðin skrifstofustjóri þing-
flokks framsóknarmanna í stað
Péturs Gunn-
arssonar, sem
gegnt hefur því
starfi frá árinu
2003. Pétur hef-
ur tekið við
starfi sem upp-
lýsingafulltrúi
félagsmálaráðu-
neytisins.
Á vef Fram-
sóknarflokksins,
framsokn.is, seg-
ir að Helga Sigrún hafi starfað inn-
an flokksins um margra ára skeið,
en í síðustu alþingiskosningum
skipaði hún 5. sætið á lista flokksins
í Suðurkjördæmi.
Helga Sigrún lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
1989 og kennaraprófi frá Kenn-
araháskóla Íslands árið 1993. Hún
lauk síðan diplomanámi í náms- og
starfsráðgjöf frá HÍ 1994 og meist-
aragráðu í mannlegum samskiptum
og stjórnun frá The University of
Oklahoma 2002. Hún hefur síðustu
árin starfað sem verkefnastjóri hjá
Impru, nýsköpunarmiðstöð Iðn-
tæknistofnunar.
Nýr skrifstofu-
stjóri þingflokks
framsóknar-
manna
Helga Sigrún
Harðardóttir
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands átel-
ur þau vinnubrögð lögreglunnar í
Reykjavík sem urðu til þess að rík-
issaksóknari ákvað að sækja ekki til
saka þrjá karlmenn sem frömdu
hópnauðgun á konu sumarið 2002.
„Konan kærði nauðgunina um-
svifalaust og var framburður hennar
trúverðugur samkvæmt upplýsing-
um lögreglu, sem flutti konuna á
Neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb
kynferðisafbrota. Þrátt fyrir að
málsatvik lægju ljós fyrir var rann-
sókn lögreglunnar svo áfátt að sak-
sóknari féll frá ákæru. Dómsmála-
ráðherra varð ekki við ósk lögmanns
konunnar um að hnekkja þeirri
ákvörðun,“ segir í ályktun frá félag-
inu.
Femínistafélagið telur þetta mál
vera áfall fyrir fórnarlömb kynferð-
isafbrota og sýna að réttaröryggi
þeirra sé ekki tryggt.
„Þá vekur málið upp alvarlegar
efasemdir um vinnubrögð lögregl-
unnar í Reykjavík og forgangsröðun
mála, en fram kom að málinu var ýtt
til hliðar vegna annarrar grófrar lík-
amsárásar. Femínistafélag Íslands
beinir því til ríkislögreglustjóra að
hlutast til um verklag við rannsóknir
þannig að slík mál endurtaki sig
ekki. Jafnframt beinir félagið þeim
tilmælum til dómsmálaráðherra að
hann grípi til allra tiltækra aðgerða
til að bæta megi vinnubrögð lögregl-
unnar í Reykjavík og verklag við
meðferð sakamála af þessu tagi.“
Femínistafélagið
gagnrýnir lögregluna
ALMAR Grímsson hefur ákveðið að
taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði sem haldið
verður í nóvember nk. Sækist hann
eftir 2. sæti á
framboðslista
flokksins í næstu
sveitarsjórn-
arkosningum.
Almar er vara-
bæjarfulltrúi en
hefur tekið virk-
an þátt í starfi
bæjarstjórnar á
yfirstandandi
kjörtímabili og
haft m.a. frumkvæði um stefnumót-
un í málefnum aldraðra og heil-
brigðismálum. Almar á sæti í fjöl-
skylduráði Hafnarfjarðar sem fer
með, auk framangreindra mála-
flokka, félagsmál, íþrótta- og tóm-
stundamál og forvarnir. Almar er
einnig varamaður í skipulags- og
byggingaráði. Hann hefur einnig
verið virkur í félagsmálum m.a. á
sviði líknarmála og gegnir fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum.
Almar gefur kost
á sér í 2. sæti í
Hafnarfirði
Almar Grímsson
Fréttir á SMS