Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 17
Akureyri | „Skaparinn er ekki
með okkur þessa dagana –
alla vega ekki við svona
vinnu,“ sagði Gunnar Björg-
vinsson, starfsmaður Fram-
kvæmdamiðstöðvar Akureyr-
arbæjar, þar sem hann var að
vinna við endurbætur á lóð
leikskólans Flúða, ásamt fé-
laga sínum Herði Gunn-
arssyni. „Við höfum fengið
alls kyns veður við þessar
framkvæmdir og þá aðallega
úrkomu.“ Á meðan á þessum
framkvæmdum hefur staðið
hefur verið þrengt aðeins að
börnunum en þau láta það
ekki á sig fá. Meðal annars á
setja gúmmíhellur við leik-
tækin á lóðinni, sem er mikið
öryggisatriði fyrir börnin.
Morgunblaðið/Kristján
Skaparinn ekki með okkur
Framkvæmdir
Akureyri | Höfuðborgin | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
ÞJÓÐAHÁTÍÐ verður í Þorlákshöfn á
morgun, laugardaginn 1. október. Í lok
síðastliðins árs bjuggu í sveitarfélaginu
Ölfusi 186 manns frá 16 þjóðlöndum,
nýbúar eru þannig tæplega 11% íbúa þess
og er nokkuð hátt hlutfall miðað við önnur
sveitarfélög í landinu. Enn fjölgar nýbú-
um í Þorlákshöfn og er nú fjöldi barna í
grunnskólanum þar sem báðir foreldrar
eru erlendir 27, en 9 börn eru tvítyngd í
skólanum. Þróunin er sú að nýbúar fara í
auknum mæli af leigumarkaði og kaupa
sér húsnæði. Fólkið hefur því greinilega
áhuga á að setjast að í sveitarfélaginu til
lengri tíma.
Þessi staða gerir að verkum, segir í
frétt, að brýnt er að allir íbúar þess geri
sér ljóst að þeir búa og hrærast í fjöl-
menningarlegu samfélagi. „Þrátt fyrir að
það geti verið erfitt að mörgu leyti og
geri kröfu um mikla þolinmæði, skilning
og kostnað vegna túlkaþjónustu, þá getur
ávinningurinn, ef vel er unnið úr, verið
mikill.“ Með því að efna til þjóðahátíðar
er skref stigið í þá átt að draga fram þá
menningarlegu fjölbreytni og auðlegð sem
býr í samfélaginu. Dagskráin hefst kl. 15 í
Ráðhúsi Ölfuss, en þar koma íbúar fjöl-
margra landa fram og kynna land sitt,
þjóð og menningu. Kynnt verður starf-
semi Samtaka kvenna af erlendum upp-
runa sem og Alþjóðahúss. Stúlkur frá Fil-
ippseyjum dansa þjóðdansa, lesin verða
upp ljóð á ýmsum tungumálum, mynd-
bönd um Mongólíu og Litháen verða sýnd,
þá verður kynnt niðurstaða úr teikni-
samkeppni grunnskólabarna og leik-
skólabörn sýna mynd sem þau hafa unnið.
Dagskránni lýkur kl. 18.
Úr
bæjarlífinu
Fjölmenning í Þorlákshöfn.
Þjóðahátíð í
Þorlákshöfn
Litlar freistingar ímat og tónum ereins konar yf-
irskrift hádegistónleika í
Ketilhúsinu í dag, föstu-
daginn 30. september kl.
12.15. Tónlistarfélag Ak-
ureyrar efnir til þeirra í
samvinnu við Einar Geirs-
son landsliðskokk á Kar-
ólínu restaurant.
Stefnt er að því að há-
degistónleikar verði mán-
aðarlegur viðburður á
vegum félagsins í vetur og
er áhersla lögð á að vekja
athygli á því tónlistarfólki
sem starfar á Akureyri og
í nágrannabyggðum og
skapa því þannig mögu-
leika á að koma fram.
Það rennir stoðum und-
ir starfsgrundvöll þess á
svæðinu og bætir búsetu-
skilyrðin.
Tónlistarfélagið er
rúmlega 60 ára gamalt, en
það var endurvakið á síð-
astliðinum vetri eftir
stuttan blund og hafa
stjórnarmenn uppi metn-
aðarfull áform um öflugt
starf á komandi vetri. Lið-
ur í því er röð hádegistón-
leika í Ketilhúsinu og
liggur fyrir dagskrá fram
á næsta vor, alls 9 tón-
leikar.
Fyrstu tónleikarnir
verða sem fyrr segir í dag
og þar ríða á vaðið þau
Agniezska Panasiuk, pí-
anóleikari, Gunnar Þor-
steinsson, óbóleikari og
Pawel Panasiuk, sellóleik-
ari. Munu þau flytja bras-
ilíska tónlist og framleiðir
Einar mat í anda hennar
en hann mun einnig fræða
gesti um matinn, svo að úr
verður notaleg hádeg-
isstund bæði fyrir líkama
og sál.
Agniezka Panasiuk, Gunnar Þorsteinsson og Pawel
Panasuik munu flytja brasilíska tónlist í Ketilhúsinu.
Matur
og tónar Vísa Péturs í Reyni-hlíð þarfnast skýr-inga. Hún er um
Björn Dagbjartsson.
Stebbi hólkur ók vega-
vinnumönnum á hrist-
járni, þ.e. vörubíl. Þeir
tóku upp dóttur Kristjáns
á Mýlaugsstöðum, en
stýft og sílt var mark
hans.
Stendur heima stýft og sílt
stóð á eyrum gamla Kristjáns
en Birni verður ekki illt
upp á hjólaglöðum hristjárns.
Pétur orti aðra um Björn.
Þar er Mós Mývatnsós og
Rósa matráðskonan:
Yfir lax í ljósri sósu
langar mig að sitja
en meistara Björn á Mós til
Rósu
megum við til að flytja.
Sigrún Haraldsdóttir seg-
ist andlaus og þess vegna
yrkir hún:
Upp er nagað andans brauð,
urið vín úr þrúgu.
Ljóðagyðjan liggur dauð
laufs í gulri hrúgu.
Enn af Pétri
pebl@m,bl.is
GRUNDASKÓLI á Akranesi verður móð-
urskóli á sviði umferðarfræðslu hér á landi.
Samningur þess efnis milli Umferðarstofu
og Grundaskóla var undirritaður á Akra-
nesi nú í vikunni að viðstöddum samgöngu-
ráðherra, Sturlu Böðvarssyni. Grundaskóli
á að vera öðrum grunnskólum á Íslandi til
fyrirmyndar og ráðgjafar á sviði umferð-
arfræðslu. Umferðarstofa verður skólan-
um til ráðgjafar við þetta verkefni.
Markmið með þessu samningi er að efla
umferðarfræðslu í skólum og reyna að
fækka umferðarslysum með markvissri
fræðslu. Þessu markmiði á að ná m.a. með
því að
Grundaskóli verður opinberlega móður-
skóli á sviði umferðarfræðslu á Íslandi, þar
verður umferðarfræðsla með þeim hætti
að hún megi vera öðrum skólum til eft-
irbreytni og hvatningar.
Í Grundaskóla starfar verkefnisstjóri og
hópur kennara sem sinna umferðarfræðslu
sérstaklega. Samningsaðilar í samstarfi við
Námsgagnastofnun fylgja eftir nýjum um-
ferðarvef og kynna öðrum skólum vefinn
skv. sérstöku samkomulagi sem undirritað
var fyrr á þessu ári.
Móðurskóli
í umferðar-
fræðslu
Siglufjörður | Bæjarráð Siglufjarðar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni ályktun þar
sem fram kemur að ráðið mótmæli harð-
lega þeirri ákvörðun Símans að leggja nið-
ur starfsstöð fyrirtækisins á Siglufirði og
segja upp tveimur starfsmönnum. „Ljóst
er að með aðgerðum þessum eru forsendur
samnings, er Siglufjarðarkaupstaður hefur
nýlega gert við Símann um þjónustu,
brostnar af hálfu kaupstaðarins,“ segir í
ályktun bæjarráðs. Fram kemur einnig að
Siglufjörður geti verið einangraður staður
„og gríðarlega mikilvægt er að á staðnum
séu aðilar sem geta sinnt fyrirtækjum og
einstaklingum varðandi fjarskiptamál.
Siglfirðingar munu ekki sætta sig við þá
skerðingu á þjónustu og öryggi sem þessi
ákvörðun hefur í för með sér og munu bæj-
aryfirvöld leita allra leiða til þess að úr
þessum þáttum verði bætt.“
Sætta sig ekki
við skerta
þjónustu
♦♦♦
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Multidophilus
12 tegundur lifandi
mjólkursýrugerla.
Geymdir í kæli
og þess vegna virkari.
Yfir 20 milljarðar
í hverjum skammti.
Berið saman lesningu
á umbúðum.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn