Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 21 DAGLEGT LÍF F jórir upprennandi fata- hönnuðir hafa tekið höndum saman og opn- uðu fyrir nokkru vinnu- stofu í Garðastræti 4. Þetta eru þau Guðjón Sigurður Tryggvason, Hrafnhildur Guðrún- ardóttir, Stefán Svan Aðalheiðarson og Thelma Björk Jónsdóttir en þau hafa öll numið fatahönnun í Listahá- skóla Íslands. Stór og mikill gluggi er á vinnustofunni þar sem flíkur og aukahlutir hafa verið til sýnis fyrir gesti og gangandi og þau ætla að endurnýja gluggann með reglulegu millibili. Hvað kom til að þið ákváðuð að hafa sameiginlega vinnustofu? „Okkur vantaði stað til að halda náminu við og með því að hafa vinnustofu saman drífum við hvert annað áfram. Í skólanum var mikið aðhald og ef það er eitthvað sem maður verður að hafa þá er það sjálfsagi til að vinna að sinni eigin hönnun,“ segir Stefán. Thelma bætir við: „Okkur langar að vinna í því sem við erum að gera en það getur verið erfitt að lifa á því þar sem markaðurinn er svo lítill. Við þurfum því öll að vinna annað með.“ Thelma, Stefán og Hrafnhildur vinna í Kron-búðunum ásamt ann- arri aukavinnu til að ná endum sam- an en Guðjón er á lokaári sínu í LHÍ. Er dýrt að framleiða eigin hönn- un á Íslandi? „Já það má segja það. Það er lítið úrval efna á Íslandi, allt er mjög dýrt og síðan er markaðurinn lít- ill. Við gerum því fá stykki af hverju. En það er að breytast smám saman,“ að sögn Hrafnhildar. „Já það er til fólk eins og Ragna fróða, sem er með fjölda manns í vinnu hjá sér, merki eins og Nikita og 66°norður sem eru að gera það gott. En þetta er spurning um hvaða áherslur þú vilt hafa,“ bætir Guðjón við. Uppgangur í höfuðfötum Verslunum sem selja skemmtilega hönnun eins og Kron er að fjölga á höfuðborgarsvæðinu og því er að verða auðveldara fyrir íslenska hönnuði að koma flíkum sínum í sölu að sögn Stefáns. Thelma hefur um nokkurt skeið verið að selja höf- uðföt í Kronkron á Laugavegi og segir það ganga vel. „Það er eins og konur hafi verið hræddar að bera eitthvað á höfðinu og það má segja að það hafi ekki fengist neitt al- mennilegt á höfuðið á Íslandi. En það hefur verið tekið mjög vel í það sem ég er að gera, það er mikil eftirspurn og ég ætla að halda þessu áfram,“ segir Thelma. Er kannski auðveld- ara að selja aukahluti en föt? „Það er ódýrara að framleiða aukahluti og þaðan koma allar tekj- urnar hjá stóru nöfn- unum til dæmis, af ilm- vötnunum og fylgi- hlutum sem þeir selja undir merkinu,“ segir Hrafnhildur. „Þetta er bara eins og með okkur sjálf, við erum oftar tilbúin til að kaupa okkur fylgihlut en heila, dýra flík,“ segir Thelma. „Það er líka hægt að nota smá- hluti meira en til dæmis 200 þúsund króna kápu sem verður bara spari,“ segir Guðjón. Nú eru kynja- skiptin jöfn á vinnustofunni sem enn er ónefnd þegar þetta viðtal er tekið. Er strákum að fjölga í fatahönn- un? „Erlendis eru miklu fleiri strákar en stelpur sem eru fata- hönnuðir. Hér á Íslandi er að meðaltali einn strákur í hverjum árgangi,“ segir Guð- jón. Gera ekki við rennilása Hvernig verður fyrirkomulagið í vetur á vinnustofunni? „Það er frábært að hafa gluggann og við ætlum að leyfa fólki að fylgj- ast með því sem við erum að gera og hafa flíkur til sýnis frá upphafi til enda,“ segir Stefán. „Þá getur fólk fylgst með ferlinu, hvort sem það eru tauprufur, flíkur úr lérefti eða endanlega útkoman sem við setjum upp á kvöldin þegar við förum heim,“ segir Guðjón. Hrafnhildur bætir við að fólki sé velkomið að heilsa upp á þau en þau taka skýrt fram að þau séu ekki með sauma- stofu. „Við gerum ekki við rennilása eða styttum buxur,“ segja þau í kór og hafa greinilega lent í þeim mis- skilningi áður.  FATAHÖNNUN | Fjórir fatahönnuðir tóku sig saman og halda úti opinni vinnustofu í Garðastræti Morgunblaðið/Jim Smart Eftir Söru M. Kolka sara@mbl.is Hægt að fylgjast með þeim í glugganum Hægt verður að fylgjast með hönnun ungu fatahönnuðanna í glugganum frá upphafi til enda með sniðum og tauprufum. Fata- hönnuðirnir Stefán Svan, Hrafnhildur Guðrúnardóttir, Thelma Jónsdóttir með Vivianne (sem er í læri) og Guðjón Tryggvason. Handtaska eftir Hrafnhildi. Thelma selur höf- uðskraut í Kron- kron á Laugavegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.