Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 43

Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 43 MINNINGAR ✝ Kristín Halls-dóttir fæddist á Kálfafelli í Suður- sveit 30. júní 1941. Hún lést á Háskóla- sjúkrahúsinu í Örebro í Svíþjóð 14. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Guðný Stef- ánsdóttir, f. 1917, og Hallur Björnsson f. 1913, d. 1959. Hún ólst upp í Suðursveit til fjögurra ára ald- urs. Þá fluttist hún til Akraness með foreldrum sín- um. Systkini hennar eru: Björn S., f. 8.8. 1949, og Edda, f. 3.10. 1951. Eftirlifandi eiginmaður Kristín- ar er Kjell Söderberg, f. 18.12. 1945. En honum giftist hún 30.6. 2001. Barn hans er Ann Charlotte Söderberg, f. 2.7. 1976. Kristín giftist Viggó Björnssyni, f. 2.2. 1931, d. 29.3. 1982. Börn þeirra eru: 1) Hallur, f. 15.12. 1959, maki Linda Sigurðardóttir og eiga þau fjögur börn og eitt barna- barn. 2) Kristrún Birna, f. 7.11. 1960, maki Jón Rafn Ein- arsson og eiga þau eina dóttur en áður átti Kristrún tvo syni. 3) Dagný, f. 17.2. 1965, maki Óskar Rúnar Sam- úelsson og eiga þau þrjú börn. 4) Guðni Þór, 20.9. 1967, maki Ylva Viggos- son og eiga þau tvo syni. Kristín og Viggó skildu. Einnig eignaðist Kristín Vernharð Svein, f. 7.12. 1974, sambýliskona Maria Jannesson, og Þórunni Kristínu, f. 14.3. 1978, sambýlis- maður Martin Widö. Árið 1979 flytur Kristín til Dan- merkur og svo í september 1980 til Örebro í Svíþjóð Útför Kristínar verður gerð frá Mäster Olofs kapell í Örebro í dag og hefst athöfnin klukkan 10. Vinkona okkar, Kristín Hallsdóttir í Örebro í Svíþjóð, lést að kvöldi hinn 14. september síðastliðinn á Há- skólasjúkrahúsinu í Örebro, eftir all- löng og erfið veikindi. Í dag, 30. sept- ember, verður hún jarðsungin og kvödd af ættingjum sínum og vinum hér í borginni. Kristín Hallsdóttir flutti frá Ís- landi í lok áttunda áratugarins, bjó um skeið í Danmörku en flutti fljót- lega til Svíþjóðar og settist að í Örebro og bjó hér eftir það. Sjálf fluttum við hingað 1990 og þá ókunn flestum Svíum og Íslendingum sem hér búa. Tilviljun réð að við hittum Kristínu og fljótt tókst með okkur góður kunningsskapur sem varð að vináttu. Við kynntumst einnig börn- um hennar sem hér bjuggu þá, Guðna, Venna, og Þórunni. Guðni býr enn hér í Örebro með konu sinni og tveimur drengjum, Venni býr í Landskrona og Þórunn býr í Prag. Önnur börn og barnabörn Kristínar eru búsett á Íslandi. Þegar flutt er til útlanda og sest að í nýrri og ókunnri borg er mikilvægt að ná fljótt góðum tengslum við aðra og skapa það félagslega umhverfi sem vinir og kunningjar eru. Kristín Hallsdóttir og Kjell Söderberg, eig- inmaður hennar, hafa verið meðal þeirra sem við höfum haft mest sam- band við undanfarin ár. Eiginmaður, börn og barnabörn sakna eiginkonu, móður og ömmu og vinir hennar góðrar og skemmtilegrar vinkonu, sem ávallt var ánægjulegt að hitta og spjalla við. Kristín var Íslendingur fram í fingurgóma og sannkölluð ís- lensk húsmóðir í besta skilningi þess orðs. Hún lét sér annt um fjölskyldu sína og ásamt Kjell skapaði hún heimili sem lýsti smekkvísi og vand- virkni. Kristín var atorkukona, jafnt á vinnustað sem heimili. Hún var mikil hannyrðakona og var sífellt með prjónana við höndina. Kristín var þekkt fyrir lopapeysurnar sem hún prjónaði og margir vildu eignast. Þegar við hugsum um þann tíma, sem við þekktum Kristínu, minn- umst við ekki síst styttri og lengri ferða sem við fórum saman. Þar á meðal ferð okkar til Miðjarðarhafs- strandar Frakklands og dvöl í Nice, en þá bjó Þórunn dóttir Kristínar þar. Við ókum bíl og Kristín prjónaði, spjallaði og lék á als oddi allan tím- ann. Þetta voru skemmtilegar dagar sem oft bar á góma síðar. Ósjaldan hittumst við á heimili þeirra Krist- ínar og Kjell sem var gestkvæmt. Ekki síst komu þar margar vinkonur Kristínar sem hún hafði eignast hér á liðnum árum. Fyrir um það bil tíu árum veiktist Kristín af brjóstakrabbameini. Hún fór í aðgerð og náði fljótt bata og var brátt komin til starfa á ný á skrif- stofu sjúkrahússins, þar sem hún vann síðustu árin. En veikindunum var ekki lokið. Kristín veiktist enn og gekkst undir fleiri aðgerðir og lækn- ismeðferðir. Atorka hennar og þol- gæði sýndi sig best á þessum tíma. Sífellt reis hún á fætur og hún gafst ekki upp. Svo seint sem í ágúst fóru þau Kjell í heimsókn til Þórunnar dóttur sinnar í Prag. Á hverjum degi fór hún út, skoðaði markverða staði og naut þess að vera með manni sín- um og dóttur í þessari fallegu borg. Ferðin reyndist vera sú síðasta. Heimkomin til Örebro lagðist hún enn, helsjúk og kraftarnir á þrotum. Við dánarbeðinn sátu eiginmaður og sonur. Við þökkum samfylgdina og send- um börnum Kristínar Hallsdóttur og barnabörnum sem og öðrum ættingj- um hennar heima Íslandi og annars staðar samúðarkveðjur. Svanhvít og Tryggvi Þór, Örebro. KRISTÍN HALLSDÓTTIR Mikið þótti mér vænt um hana ömmu Stínu. Eitt sinn sem oftar þegar ég var hjá henni mátti ég ráða hvað væri í mat- inn. Hún hélt að ég mundi velja pizzu eða eitthvað svoleiðis en ég valdi lax sem var einnig í miklu uppáhaldi hjá henni. Nú borða ég alltaf lax með sí- KRISTÍN JÓNSDÓTTIR ✝ Kristín Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 30. júní 1933. Hún lést á heimili sínu, Tjarna- bóli 10 á Seltjarnar- nesi, 20. september síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 29. september. trónu eins og hún amma mín gerði. Það var gaman hjá henni í búðinni á Grund, hún leyfði mér alltaf að af- greiða og svo spurði ég bara: „Amma, hvað kostar þetta?“ Ég vona að henni ömmu minni líði vel uppi á himnum og að hún verði alltaf hjá mér hvert sem ég fer og í draumheimum. Ég mun alltaf elska minninguna um þig, amma mín. Ég hef ætíð elskað þig og þú mig. Bið Guð um að láta fara vel um þig. Elísabet Snjólaug Reinhardsdóttir. AFMÆLI Spilað á miðvikudags- og föstudagskvöldum í Keflavík Sl. miðvikudagskvöld var haldinn sameiginlegur fundur bridsfélag- anna á Suðurnesjum þ.e. Brids- félagsins Munins í Sandgerði og Bridsfélags Suðurnesja, og var rætt um framtíð bridsíþróttarinnar á svæðinu. Þar kom m.a. fram að fundarmenn voru sammála um að eitthvað rót- tækt þyrfti að gera í málum félag- anna ef íþróttin ætti ekki hreinlega að deyja út á svæðinu. Ákveðið var að snúa vörn í sókn, ráða keppnisstjóra til að stjórna spilakvöldunum og að hafa sameiginleg kvöld. Spilað verður framvegis á mið- vikudags- og á föstudagskvöldum. Á miðvikudögum verða spiluð öll helstu mót félaganna og á föstudögum verð- ur léttur brids þar sem óvanir eru hvattir til að mæta. Aðstoðað verður við myndun para. Byrjað verður að spila í kvöld, föstudaginn 30. sept. kl. 19.30 stundvíslega. Vonast er eftir góðri þátttöku og verður spilað eins og vanalega í Félagsheimilinu á Mánagrund. FEBK Gjábakka Það var spilað á 9 borðum sl. föstu- dag og var hörkukeppni í báðum riðl- um.Úrslitin urðu þessi í N/S: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss 236 Jón Hallgrímss. – BJarni Þórarinss. 235 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 232 A/V: Helga Helgad. – Björn E. Péturss. 247 Ólafur Ingvarss. – Þorsteinn Sveinss. 237 Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 235 Meðalskorin var 216. Frá Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Fyrsta spilakvöld haustsins var sunnudaginn 25. sept. Spilaður var tvímenningur á átta borðum. Úrslitin voru eftirfarandi í N/S: Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfsson 213. Jón Jóhannsson – Birgir Kristjánsson 202. Garðar Jónsson – Guttormur Vik 179. A/V: Brynja Dýrborgard. – Þorleifur Þórarins. 235 Þorbjörn Benediktss. – Sveinn Ragnarss.184 Unnar Atli Guðmss. – Jóhannes Guðmss. 183 Spilað verður á sunnudögum í vet- ur í Breiðfirðingabúð klukkan 19. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 26.9. Spilað var á tíu borðum og með- alskorin var 216 stig. Árangur N–S Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 258 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 253 Jón Hallgrímsson – Helgi Hallgrímss. 248 Árangur A–V Ægir Ferdinandss. – Ragnar Björnss. 289 Magnús Jóhannsson – Erla Sigurðard. 238 Þorsteinn Sveinss. – Kristján Jónss. 231 Hraðsveitakeppni í Hafnarfirði Mánudaginn 26. september var spilað fyrsta kvöldið af þremur í hraðsveitakeppni.Eftir það kvöld er staða efstu sveita þessi: Hrafnhildur +64 Hulduherinn +38 Djasssveitin +19 Hrafnhildur og félagar hafa strax tekið góða forystu en keppninni verð- ur fram haldið næsta mánudag, 3. október, og má þá búast við að aðrir reyni að rétta hlut sinn. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Grímur Karlsson, skipstjóri og módel- smiður í Njarðvíkum, Reykjanesbæ, er sjö- tugur í dag, farsæll skipstjóri og aflakló og módelsmiður. Grímur er afreks- maður á heimsmæli- kvarða og hefur gert sögu og menningu Ís- lands slíkan greiða að fágætt er og reyndar er það einsdæmi í heiminum að einn og sami maðurinn hafi smíðað á þriðja hundr- að skipsmódela sem gefur glögga og spennandi mynd af sögu flota eins lands nánast frá upphafi eða í meira en hundrað ár. 70 þessara skipa eru í glæsilegu Bátasafni Reykjanes- bæjar í Duushúsum. Safnið er ein- stakt í heiminum og er hitt Árnasafn Íslendinga, spegilmynd af fiski- skipaflota Íslendinga. Snorri Sturluson, Sturla Þórðarson og fleiri snillingar skrif- uðu kjarnakafla Ís- lendingasagna, Lúðvík Kristjánsson skrifaði 5 bindi íslenskra sjávar- hátta, snilldarverk sem íslenska þjóðin hefur tæplega skynjað ennþá vegna þess að það gæti verið slorlykt af bók- unum, Jónas skrifaði ljóð ljóðanna, Hall- grímur Pétursson sálma sem hjálpuðu þjóð okkar að lifa af aldir, Halldór Laxness skóp bækur bókanna inn í nútímann, Kjarval málaði málverk sín beint úr hjartslætti og afli ís- lenskrar náttúru og fangaði þannig yndi Íslands á einstakan hátt og Grímur Karlsson hefur með báta- flota sínum smíðað verðmætustu handrit íslenskrar sögu í atvinnu- uppbyggingu nútímans. Það sem er sérstæðast í sjálfu sér við skipsmódel Gríms er ekki aðeins fjöldinn, heldur andi skipanna, kar- akterinn í hverju skipi eins og það sé nýkomið af sjó í besta standi, spúlað út, hreint og bjart. Kannski spilar inn í að Grímur sjálfur hefur alla tíð, auk handlagni af Guðs náð, skynjað anda og sál skipanna, skynjað óskir og þrár sjómannanna sem skópu auðinn í hendur Íslendingum. Grím- ur hefur aldrei verið einn á ferð, fylgiaflið og næmleikinn hefur alltaf verið með í för. Það gustar af Grími þegar svo ber undir, enda vanur að kljúfa pusið með skipsstefni og enni sínu, en léttleikinn er aðalsmerkið, hlýjan, tryggðin og í barngæsku sinni er hann eins og bráðið smjör. Í viðbót við hið einstæða hand- verk er Grímur hafsjór af fróðleik um skipaflota Íslands, útgerð og sjó- menn almennt. Við félagar hans í Bátafélaginu í Reykjanesbæ send- um honum heillaóskir á sjötíu ára af- mælinu, þessum sporlétta og spræka sagnaritara og sjómanni í orði og á borði. Árni Johnsen. GRÍMUR KARLSSON FRÉTTIR HITTUMST-hópurinn mun hittast vikulega í október og nóvember, alls átta skipti, á miðvikudögum kl. 16 – 18, í fyrsta skipti 5. október nk. og verður stærð hans 15 unglingar. Hópurinn er fyrir unglinga í 9. og 10. bekk grunnskóla sem glíma við at- hyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Hittumst-hópurinn er hugsaður sem vettvangur félagsstarfs þar sem áhersla verður lögð á jákvæða og skemmtilega samveru allra í hópn- um. Þegar hópurinn hittist verður tekist á við ýmis verkefni og æfingar sem þjálfa samskipti og ýta undir þroska einstaklingsins, bæði per- sónulega og í hóp. Hópstarfið mun byggjast á aðferðafræði reynslu- náms (e. experiential learning) sem er óhefðbundin námsaðferð sem byggist á að skoða og uppgötva eig- inleika og hæfileika einstaklinganna með því að taka virkan þátt í starfi hóps og með því að fá endurgjöf frá hópnum. Hópurinn tekst á við ýmis verkefni og æfingar, og það verður hinn sameiginlegi reynslugrunnur sem starfið byggist á, segir í frétta- tilkynningu. Leiðbeinendur hópsins eru frá þjálfunarfyrirtækinu Áskorun ehf. og eru: Björn Vilhjálmsson, kennari og verkefnastjóri í Hinu húsinu (ÍTR), Ingibjörg Valgeirsdóttir, uppeldis- og kennslufræðingur, og Harpa Ýr Erlendsdóttir, iðjuþjálfi hjá SLF. Hópstarfið fer fram í íþróttasal SLF á Háaleitisbraut 13, einnig verður hægt að hafa afnot af fræðslusal Sjónarhóls þegar þess þarf. Hittumst-hópurinn er á vegum ADHD-samtakanna sem eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyld- ar raskanir. Allar nánari upplýs- ingar um hópstarfið eru veittar á skrifstofu samtakanna í síma 581 1110 eða í netpóst adhd@adhd- .is. Sjá ennfremur vefsíðu samtak- anna www.adhd.is. Hópstarf fyrir unglinga með athyglisbrest og ofvirkni Leiðbeinendur hópstarfsins, frá vinstri ; Ingibjörg Valgeirsdóttir, Björn Vilhjálmsson og Harpa Ýr Erlendsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.