Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍK
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”Með Steve Carell úr “Anchorman” og
“Bruce Almighty”
A.G. Blaðið
FYRSTI HLUTI AF ÞRÍLEIK. DÚNDUR FÓTBOLTAMYND
SEM HITTIR Í MARK OG MIKLA MEIRA EN ÞAÐ.
D.V.
S.V. MBL
kvikmyndir.is
V.J.V. TOPP5.IS
R.H.R. MÁLIÐ
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur
fyrir stefnumótið. Með þeim stórgóða
John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
GOAL! kl. 5.45 - 8 - 10.20
DEUCE... kl. 6
THE MAN kl. 8
THE CAVE kl.10
GOAL! kl. 8 - 10.15
VALIANT m/- Ísl tali kl. 6
40 YEAR OLD VIRGIN kl. 8 - 10.15
CHARLIE AND THE... kl. 6
Must Love Dogs kl. 6 - 8 - 10.10
The 40 Year Old Virgin kl. 8 og 10.20 b.i. 14
Valiant - íslenskt tal kl. 6
Charlie and the... kl. 5.45
Strákarnir Okkar kl. 8 b.i. 14
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
29. september til 9. október
Close Up - Sýnd kl. 6
Scared Sacred - Sýnd kl. 8
What Remains of us -
Sýnd kl. 10.05
Le Regard / Augnráðið - Sýnd kl. 10
Diane Lane John Cusack
SÉRHVER DRAUMUR
Á SÉR UPPHAF
FRUMSÝND Í DAG! FRUMSÝND Í DAG!
Hvað segirðu gott?
Ég segi nánast alltaf allt gott og það sama í dag!
Kanntu þjóðsönginn?
Já, ég get klórað mig í gegnum hann og skammast
mín í raun fyrir að vera ekki með hann á kristaltæru.
Það er skylda hvers Íslendings að kunna á honum góð
skil.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Ég fór í síðustu viku til London. Ég legg það þó í
vana minn að koma aftur heim.
Uppáhalds maturinn?
Íslenskur fiskur með nýju íslensku grænmeti.
Bragðbesti skyndibitinn?
HP flatkökur frá Selfossi með osti frá Mjólkurbúi
Flóamanna.
Besti barinn?
Honesty barinn á SoHo hótelinu í London er svoldið
spes.
Hvaða bók lastu síðast?
Bankabókina mína, hún er fljótlesin og hentar mér
mjög vel sem lesefni.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Það fer eftir hvað þú flokkar sem
leikrit. Hvað kallarðu Baugsmálið?
En kvikmynd?
Pride and Prejudice sem ég kunni bara vel að meta.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég er að hlusta mikið á nýju Stones plötunna. Hún
er alveg geðveik.
Uppáhalds útvarpsstöðin?
Ég hlusta nokkuð jafnt á Bylgjuna, FM957 og Rás2.
Þær eru duglegar að spila íslenska tónlist.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Idolið, það er eini þátturinn sem ég er í. Segir sig
sjálft.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru-
leikaþætti í sjónvarpi?
Ég er í einum núna og var í einum í fyrra.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Ég veit nú ekki hvernig G-strengur myndi fara mér
og hryllir reyndar við tilhugsuninni.
Helstu kostir þínir?
Duglegur.
En gallar?
Alltaf að.
Besta líkamsræktin?
Ég svitna alltaf mest þegar ég borga líkamsrækt-
arkortin.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Konan mín gaf mér ilmvatn frá Marc Jakobs einu
sinni og ég nota það mikið.
Ertu með bloggsíðu?
Nei, ég lifi nógu spennandi lífi.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Já, ég geri það, bækur og geisladiska og annað. Þá
sérstaklega þegar ég er að leita eftir sértæku efni.
Flugvöllinn burt?
Ég veit það ekki – ef ég kaupi mér einkaþotu þá
væri fínt að hafa völlinn hérna við hliðina á mér, Ég
bý í vesturbænum stutt frá vellinum.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann? Bítlarnir eða
Stones?
Íslenskur aðall | Einar Bárðarson
Duglegur og alltaf að
Fyrsti aðalsmaður vikunnar er
Einar Bárðarson athafnaskáld og
nýskipaður dómari Idol – Stjörnu-
leitar. Af því tilefni er Einar fyrsti
viðmælandi Íslensks aðals sem
verður héðan í frá vikulega í
Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
„Ég svitna alltaf mest þegar ég borga líkamsrækt-
arkortin,“ segir nýskipaði Idol-dómarinn.
KÖNTRÍSVEIT Baggalúts blæs til
sveitasöngvamessu í Stúdentakjall-
aranum við Hringbraut í Reykjavík
í kvöld. Leikin verða sönglög af
hljómdisknum Pabbi þarf að vinna,
í bland við sígilda sveitasöngva
bandaríska. Barinn verður opinn
langt fram á kvöld – eða meðan
birgðir endast. Kynnt verða helstu
undirstöðuatriði línudans og hins
einkennandi gleðiöskurs „Jíha“.
Gestir eru hvattir til að læra söng-
texta utanbókar og taka hressilega
undir. Sérstakir leynigestir: John
Denver og Johnny Cash, sem leika
og syngja sín þekktustu lög með að-
stoð Gísla miðils.
Viðeigandi klæðnaður er sem
fyrr æskilegur – en hestar og annar
búfénaður er stranglega bannaður
innanhúss, að gefnu tilefni. Ösku-
bakkar og hrákadallar verða á
staðnum, öllum til brúks.
Baggalútsmenn líta til veðurs.
Hestar bannaðir
Baggalútur spilar í Stúdentakjall-
aranum í kvöld. Dagskrá hefst um
miðnætti.
FJÖLDI aðstandenda mynda
verður viðstaddur sýningar á Al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í
Reykjavík. Á eftir sýningum
myndanna gefst áhorfendum
kostur á að spyrja þá spjörunum
úr. Í dag verða þrír leikstjórar
viðstaddir þrjár mismunandi sýn-
ingar.
ScaredSacred í Háskólabíói kl.
20. Leikstjórinn Velcrow Ripper
verður á staðnum. What Remains
of Us í Háskólabíói kl. 22.05.
Leikstjórinn François Prèvost
svarar spurningum. Loks verður
Pawel Pawlikowski viðstaddur
sýningu á mynd sinni My Sum-
mer of Love í Regnboganum kl.
18.
Leikstjórar svara
spurningum
www.filmfest.is