Morgunblaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 17
Guðjón Friðriksson er einn vinsælasti ævisagnahöfundur landsins og hefur þrívegis hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir verk sín. Sonurinn ... „... En svo kom bréfið þitt, andandi allt þessum blíða, elskulega anda sem ég hvergi finn nema hjá þér og ég varð svo glaður. Þú skilur mig svo fullkomlega og tekur tillit, já meira en ég á skilið, til tilfinninga minna. Þú veist hvernig ástatt er með stúderingarnar --- já, elsku mamma, ég skal reyna að horfa niður í öldurnar og lifa mig inn í gang þeirra. Ég skal ekki leggjast fyrir sjóveikur á lagarskipið svo ég verði ónýtur farangur og verra en það. Ég kem smátt og smátt og, mamma mín, mér „tekst held ég að verða tollheimtumaður“.“ Uppreisnarmaðurinn ... „Mikið óendanlega er það vitlaus statsinstitution [ríkisstofnun] að láta þá menn, sem eiga að sitja í embættum, ganga í gegnum þessi vitlausu examen [próf] sem aldrei hafa neina praktíska þýðingu. Það leiðir það af sér að hafi verið í þeim kraftur og fjör þá kafnar það og bognar á leiðinni og þessi eilífa þvingun á andanum demoraliserar [afsiðar] hann og leggur spírur til ýmislegs sem embættismönnum er við brugðið fyrir. Ég veit ekki til hvers ég er að skrifa þetta – jú, þá sér þú að minnsta kosti að ég er lifandi.“ edda.is Pabbinn ... „Sigurður er mikið úti og vanalega heldur þægur en allraddljótur þegar hann fer í bassa. En það gjörir hann þegar hann fær ekki allan sinn vilja. Ástríður segir ennþá ekkert annað en „Adda, Adda“ með mörgum nuancer [tilbrigðum], frá urri til skræks, frá skipan til bænar, og er digur mjög eins og hún á nafn til og nefljót. Kristjana nafna þín er mest „interessant“ sem stendur. Andlitið á henni er okkar einasta staðkvæmi (substitut) fyrir suðrænt „Landskab“. Blátt er Miðjarðarhafið og blár er himinninn í Nizza en blárra er þó undir augunum á Nönu og á nefinu og enninu eru rauðar rósir með dökkgrænum lundum á milli. Hún fór nefnilega svo herfilega á hausinn í hálku á Skólabrúnni – var mærkelig nok að elta stelpu en ekki strák, verður kannski annað ofan á ef hún eldist. Andlitið varð eins og rúskumsnúsk af undarlega löguðum skilningarvitum. En hún meiddist ekkert í höfðinu sjálfu, var frísk og glöð strax sama daginn og er nú að útenda sín glóðaraugu.“ Skáldið og sjarmörinn Einstök sýn á óvenjulega heillandi mann Ég elska þig stormur – ævisaga Hannesar Hafstein Hannes Hafstein var bráðgert glæsimenni, orti kvæði sem enn lifa á vörum landsmanna og sagt var að kvenhylli hans væri „óendanleg“. Hann var auk þess sá stjórnmálamaður sem þjóðin hefur haft hvað mest dálæti á, lífs og liðinn. Færri vita hins vegar að þessi óskasonur Íslands átti um margt stormasama ævi og á milli stóru sigurstundanna voru sárir ósigrar. Í þessari vönduðu og skemmtilegu ævisögu dregur Guðjón Friðriksson fram heilsteypta og um margt óvænta mynd af manninum Hannesi, meðal annars í ljósi fjölmargra einkabréfa og nýrra heimilda sem aldrei áður hafa komið fyrir almenningssjónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.