Morgunblaðið - 18.11.2005, Síða 64
64 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍKDV
topp5.is
S.V. / MBL
Þar sem er vilji,
eru vopn.
“Meistaraverk!” - San Fran Chronicle
“Fullkomin!” - The New Yorkera
“Langbesta mynd ársins!” - Slate
Mörgæsamyndin sem er að slá í gegn
um allan heim og mun heilla alla
Íslendinga upp úr skónum.
H.J. Mbl.
Lord of War kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16 ára
March of the Penguins kl. 6 - 8 og 10
Litli Kjúllinn kl. 6 íslenskt tal
Elizabeth Town kl. 8 og 10.30
Wallace & Gromit kl. 6 enskt tal
Corpse Bride kl. 8 og 10
Hip Hip Hora ! kl. 6 ísl. texti
LITLI KJÚLLIN Ísl tal. kl. 6
SERENITY kl. 8 - 10.10 B.i. 16 ára.
WALLACE & GROMIT ísl tal kl. 6
LORD OF WAR kl. 8 - 10.10 B.i. 16 ára.
Þau eru góðu vondu gæjarnir.
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
Vinsælasta myndin á
Íslandi í dag
Gæti valdið ótta ungra barna !
Tvær frábærar á dönsku
Drabet (morðið) - opnunarmynd oktoberbíófest
sem Hlaut kvikmynda verðlaun Norðurlandaráðs
SÝND KL. 8 M. ÍSL. TEXTA
Voksne Mennesker sigurvegari eddu
verðlaunanna! frábærlega skemmtileg mynd eftir
Dag Kára SÝND KL. 10 M. ÍSL. TEXTA
LITLI KJÚLLIN M/- Ísl tal. kl. 6
SERENITY kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
WALLACE & GROMIT ísl tal kl. 6
ZORRO 2 kl. 8
KISS KISS BANG BANG kl. 10.30
FORSÝND Í KVÖLD!
Nýjasta stafræna teiknimyndaundrið frá Disney .
Með Óskarsverðlaunahafanum og hinum skothelda Nico-
las Cage. Heimur vopnasala hefur aldrei verið eins flókinn.
Hvað segirðu gott?
Bara drelli fínt. Margt í gangi.
Heldurðu að byggð í Vatnsmýr-
inni komi til með að verða lyfti-
stöng fyrir Knattspyrnufélagið
Val?
(Spurningin er frá síðasta að-
alsmanni, Stefáni Hilmarssyni).
Eflaust, stutt að fara með rækjur
og klósettpappír.
Kanntu þjóðsönginn?
Ööö, neibb …
Hvenær fórstu síðast til útlanda
og hvert?
Október, London. Stutt en gott.
Uppáhaldsmaturinn?
Allur matur sem aðrir elda fyrir
mig. Er reyndar vitlaus í lifur!
Bragðbesti skyndibitinn?
Maðurinn minn.
Besti barinn?
Sirkus, Kaffibarinn og svo 101
þegar ég er í þannig fíling.
Hvaða bók lastu síðast?
Ótrúlega langt síðan ég las bók
síðast, skammarlega langt! Gluggaði
síðast í Íslenskar þjóðsögur, langaði
að lesa um drauga.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Forðist okkur í leikstjórn Stefáns
Jónssonar. Frábært!
En kvikmynd?
Star Wars. Margir wookiar, gam-
an.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Stútfullur i-pod af frábærri tón-
list, ný og gömul. Akkúrat núna er
Eurythmics í gangi, „Who’s that
girl?“
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Dægursveiflan ræður því, X-ið
trónir þó hæst á listanum.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Stelpurnar!
Gætirðu hugsað
þér að taka þátt
í raunveru-
leikaþætti
í sjónvarpi?
Nei nei.
G-strengur eða
venjulegar
nærbuxur?
Já! Nærfata „fet-
ish“ á háu stigi.
Helstu kostir
þínir?
Æ, það veit ég
ekki. Get dundað
mér mikið ein með
sjálfri mér.
En gallar?
Hugsa of mikið,
ræð ekkert við haus-
inn á mér og er oft
haldin ákvarð-
anafælni.
Besta
líkamsræktin?
Bætir, hressir, kætir. Það vita all-
ir.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Eitthvert fínerí sem ég fékk í jóla-
gjöf, Valentino.
Ertu með bloggsíðu?
Nei.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Nei, verð að handfjatla áður en ég
festi kaup.
Flugvöllinn burt?
Hann böggar mig ekkert, frekar
fótboltavöllinn burt.
Viltu spyrja næsta aðalsmann
að einhverju?
Í hverju ertu?
Íslenskur aðall | Brynhildur Guðjónsdóttir
Eiginmaðurinn besti skyndibitinn
Brynhildur vill frekar fótbolta-
völlinn burt en flugvöllinn.
Aðalskona vikunnar
hefur slegið í gegn í
hlutverki Edith Piaf á
fjölum Þjóðleikhúss-
ins og sendi nýverið
frá sér sína fyrstu
plötu með hljómsveit-
inni BBÖ’s.
Morgunblaðið/Ásdís
Í GÆR var tilkynnt um að evr-
ópsku tónlistarverðlaun sjónvarps-
stöðvarinnar MTV verði haldin í
Kaupmannahöfn á næsta ári.
Áður hafði það borist í tal að
Reykjavík væri ein þeirra borga
sem kæmu til greina fyrir verð-
launaafhendinguna árlegu en svo
varð ekki í þetta sinn. Að sögn
Kára Sturlusonar, tónleikahaldara
og athafnamanns, stóð upphaflega
til að reyna að hýsa MTV-
verðlaunin hér á landi á næsta ári
en það hafi komið í ljós fyrir
nokkru að úr því yrði ekki.
Ástæðan var meðal annars sú að
fyrr á árinu var MTV-sjónvarps-
stöðinni hleypt af stokkunum í
Danmörku og verður hátíðin liður
í því að kynna þá nýjung. Kári
sagði það þó alls ekki útilokað að
hátíðin yrði haldin hér á landi í
framtíðinni, jafnvel árið 2007 eða
2008.
Það voru Brent Hansen, yf-
irmaður hjá MTV, og Brian Mikk-
elsen, menningarmálaráðherra
Danmerkur, sem kynntu ákvörð-
unina á blaðamannafundi í gær.
Áætlað er að hátíðin fari fram
hinn 9. nóvember á næsta ári en
staðsetning hefur enn ekki verið
tilkynnt. Líklegt þykir þó að
íþróttaleikvangurinn Parken á
Österbro í Kaupmannahöfn verði
fyrir valinu.
Tónlist | MTV í Kaupmannahöfn
Reuters
Madonna mætir til nýafstaðinnar MTV-hátíðar í Lissabon.
Í Reykjavík 2007?