Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jón Yngvi / KASTLJÓS
Þegar Freyja Hilmarsdóttir
er myrt hverfur handrit að bók
sem hún er að skrifa með
berorðum frásögnum fyrrverandi
eiginkvenna þekktra manna.
„Þrælspennandi og vel fléttuð
www.jpv.is
„… æsispennandi og leiftrandi fyndin.“
Edda Jóhannsdóttir / DV
„Bráðskemmtilegur samtímakrimmi.“
Páll Baldvin Baldvinsson / DV
„Rígheldur … æsispennandi.“
Guðmundur Steingrímsson /
Kvöldþátturinn
„Sjóðheitur krimmi.“
Jakob Bjarnar Grétarsson / DV
„Þrælfín spennusaga sem heldur
athyglinni óskertri allan tímann.“
Guðríður Haraldsdóttir / VIKAN
glæpasaga“
MARÍA Ellingsen leikkona fer með
hlutverk Ísbjargar í annarri syrpu
danska spennumyndaflokksins Örn-
inn sem sýndur er á Rúv á sunnu-
dagskvöldum. Fjalla þættirnir um
hálfíslenska rannsóknarlögreglu-
manninn Hallgrím Örn Hallgrímsson
og baráttu hans við skipulagða
glæpastarfsemi og skugga sinnar eig-
in fortíðar. Hallgrímur, sem leikinn
er af Jens Albinus, ólst upp í Vest-
mannaeyjum og kemur Ísland oft
upp í huga hans þegar hann hugsar
um fortíð sína. Þá streyma meðal
annars fram minningar tengdar Ís-
björgu sem er æskuást Hallgríms frá
Vestmannaeyjum.
Eina nóttina þegar hann er á kafi í
erfiðri glæparannsókn dúkkar hún
svo upp í nútíðinni, hleypur hann
næstum um koll og verður eftir það
hluti af lífi hans eins og leynivinur
sem enginn sér nema hann. Segir
María að í raun sé Ísbjörg eins og
gamall sálufélagi sem Hallgrímur
leiti til. Þau byrja að fylgjast að og þá
kemur ýmislegt í ljós um það hvers
vegna Hallgrímur fór frá Vest-
mannaeyjum sem unglingur og mynd
hans af fortíðinni fer að breytast.
María kom á skjáinn fyrir hálfum
mánuði í Danmörku þegar 13. þáttur
var sýndur þar og verður persóna
hennar viðloðandi þættina að minnsta
kosti eitthvað inn í þriðju syrpu að
sögn Maríu því tökur á henni eru
hafnar. Sjálf fær hún ekki að sjá
handritið fyrr en stuttu fyrir tökur og
halda handritshöfundarnir þannig at-
burðarásinni mjög leyndri sem er
spennandi fyrir bæði áhorfendur og
leikara.
Ódysseifskviða rammi sögunnar
Þættirnir hafa notið mikilla vin-
sælda víða um Evrópu og voru þeir
meðal annars tilnefndir til Emmy-
verðlaunanna í ár en verðlaunaaf-
hending fer fram 27. þessa mánaðar,
sama dag og 13. þáttur verður sýndur
á RÚV. María segir að Ódysseifs-
kviða sé notuð sem rammi fyrir sög-
una. Ódysseifur fer frá eyjunni sinni,
líkt og Hallgrímur yfirgaf Vest-
mannaeyjar, og lendir í löngu ferða-
lagi og stríði og svo reynir hann að
komast heim. Það reynist erfitt því
hann berst alltaf af leið og lendir bæði
í fanginu á konum og í klóm skrímsla.
Segir María að gaman sé að vita þetta
þegar horft er á þættina, það gefi
þeim aðra vídd. En svo veit hún ekki
hversu náið Ódysseifskviðu verði
fylgt, en Ódysseifur kemst heim að
lokum og þá sé spurningin hvort
Hallgrímur komist til Vestmannaeyja
að lokum og hvort einhver Penelópa
bíði hans.
Margir Íslendingar
koma við sögu
Spurð um ástæðu þess að hún var
fengin til að taka að sér hlutverk Ís-
bjargar segir María að leitað hafi ver-
ið eftir íslenskri leikkonu og hafi hún
verið valin úr hópi 10 leikkvenna sem
til greina komu. Tökur hófust í janúar
á þessu ári og munu standa allt fram
til næsta árs en ekki hafa verið gerð-
ar áætlanir um að taka upp fleiri serí-
ur en þá þriðju. Flýgur María út í
tökur þangað sem leikurinn berst
hverju sinni, Kaupmannahafnar,
Stavanger og upp í fjöll í Noregi. Seg-
ir María að þó nokkrir Íslendingar
komi við sögu í Erninum í stærri og
minni hlutverkum, en auk hennar og
Elvu Óskar Ólafsdóttur leiki Kor-
mákur Gunnarsson hann ungan og
birtist í hverjum þætti, Benedikt Erl-
ingsson og María Pálsdóttir hafi leik-
ið í fyrsta þættinum svo nokkrir séu
nefndir. Þá þjálfi Benedikt Erlings-
son Albinus í íslensku, þeir Albinus
vinni mjög náið saman fyrir hvern
þátt og eins ef laga þarf framburð í
eftirvinnslu. Fólk hafi verið að dást að
íslensku Albinus í þættinum en fáir
viti að það sé Benedikt sem standi á
bak við framburðinn. Segir María það
hafa verið frábærlega gaman að taka
þátt í þessu verkefni.
María hleypur Örninn um koll
Jens Albinus, sem leikur Hallgrím Örn Hallgrímsson, og María Ellingsen.
María Ellingsen
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
BJÖRN Ingi Hrafnsson hefur
ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosn-
ingar næsta vor, en opið prófkjör
verður haldið í janúar. Hann segist
ekki óttast að taka við stjórnartaum-
unum þegar kannanir bendi til þess
að flokkurinn nái ekki inn manni í
borgarstjórn, og segist stefna á að
ná einum til tveimur borgarfulltrú-
um í komandi kosningum.
„Mér er ljóst að þetta er að mörgu
leyti afar ögrandi verkefni, ekki síst í
ljósi skoðanakannana sem sýna lítið
fylgi. Ég vonast til þess að fá umboð
framsóknarmanna í Reykjavík til
þess að snúa þessari þróun við og
gera Framsóknarflokkinn öflugan
og sterkan,“ segir Björn Ingi.
Hann hefur starfað sem aðstoðar-
maður Halldórs Ásgrímssonar for-
sætisráðherra og fyrrv. utanríkis-
ráðherra síðan árið 2003, og var þar
á undan framkvæmdastjóri þing-
flokks Framsóknarflokksins. Hann
hefur m.a. verið formaður fjöl-
skyldunefndar ríkisstjórnarinnar.
Björn Ingi segir að hann muni
m.a. leggja áherslu á málefni barna-
fjölskyldna í borginni og að efla
starfsemi íþróttafélaga, en einnig
muni hann beita
sér í skipulags-
málum, og á því
að gera breyting-
ar á lóðaúthlutun
í borginni. Hann
nefnir einnig að
það þurfi að
breyta strætis-
vagnakerfinu, t.d.
með því að fella
niður fargjöld
fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja,
og hugsanlega fella gjöldin alfarið
niður gefist sú tilraun vel.
„Ég hef fundið mikinn meðbyr og
áhuga flokksmanna um að ég gefi
kost á mér, og ég er auðvitað afar
þakklátur fyrir það, enda er það mik-
ilvægt veganesti við upphaf þessarar
ferðar. Ég hef haft mikinn áhuga á
borgarmálunum lengi, og langar að
leggja mitt lóð á vogarskálarnar,“
segir Björn Ingi.
Hann segir forsendurnar aðrar en
þær hafa verið í undanförnum borg-
arstjórnarkosningum, flokkurinn
hafi ekki boðið fram undir eigin
merkjum síðan árið 1990. Þessar
nýju aðstæður kalli á nýtt fólk til að
leiða listann og með það í huga gefi
hann kost á sér í fyrsta sætið.
Björn Ingi gefur
kost á sér í
fyrsta sætið
Björn Ingi
Hrafnsson
UNGLINGATEITI fór úr bönd-
unum í Grafarvogi í fyrrinótt, og
gerðu óboðnir gestir sig heima-
komna þrátt fyrir að veisluhaldari
reyndi að rýma húsið. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík mun eldri
maður hafa haft í hótunum við fólk
í húsinu, og barið húsið að utan með
felgulykli, auk þess sem hann var
með hníf á sér. Maðurinn náðist
skömmu síðar þar sem hann ók
undir áhrifum áfengis, og fann lög-
reglan bæði hnífinn og felgulyk-
ilinn í bílnum.
Barði hús að utan
með felgulykli
LÖGREGLAN í Keflavík handtók á
föstudagskvöld mann sem grun-
aður var um sölu fíkniefna. Við hús-
leit á heimili hans fundust um 170
grömm af ætluðu hassi, auk þess
sem þrjú grömm af samskonar
fíkniefnum fundust í bifreið manns-
ins. Við yfirheyrslur viðurkenndi
hann að hafa ætlað að selja hassið.
Málið telst upplýst og var mann-
inum sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Hasssali handtek-
inn í Keflavík
ÞRÍR drengir kvörtuðu undan öðr-
um þremur í miðbænum í fyrrinótt
og sögðu þá með hnífa og öxi á sér.
Lögreglan í Reykjavík leitaði þre-
menninganna, tveir voru farnir af
vettvangi þegar að var komið, en
einn drengjanna, sem reyndist 16
ára, var gripinn. Reyndist hann
með hníf á sér, og þar sem ekki
náðist í foreldra hans var barna-
verndaryfirvöldum gert viðvart.
16 ára með hníf
í miðbænum
LÖGREGLA hafði afskipti af
drukknum manni á reiðhjóli eftir
að hann hjólaði á bíl á horni Lækj-
argötu og Hverfisgötu í fyrrinótt.
Maðurinn var færður til yf-
irheyrslu, en hann reyndist ölvaður
og ekki fær til hjólreiða, og var því
tekin úr honum blóðprufa. Ekki er
heimilt að stjórna farartæki af
nokkurri tegund eða ríða hesti,
undir áhrifum áfengis, og má mað-
urinn því eiga von á sekt.
Drukkinn
hjólaði á bíl