Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 12

Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 12
12 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ É g ek stóra umferðar- götu í höfuðborginni Nairobi, framhjá fólki sem selur vörur í veg- kantinum og yfir opið svæði. Sólin brýst fram úr skýjum og ég dreg djúpt andann og virði fyrir mér fjólublá blóm og myndarleg tré. Það er fallegt í Kenýa, vinalegt og gott, og ég er ánægð að vera komin hingað aftur. Ég var hér í vor og áður fyrir nokkrum árum. „Við erum að koma,“ segir bílstjór- inn og bendir fram veginn. Við höfum einungis ekið stutta stund frá gisti- heimilinu. Ég kinka kolli og verð að viðurkenna að mér líður hálffurðu- lega. Ég veit ekki við hverju ég á að búast af stað sem frægur er fyrir öm- urlegheit og enginn veit fyrir víst hve margir byggja. Opinberar tölur eru frá 800.000 og upp í 1,5 milljónir. Þetta er stærsta fátækrahverfi í allri Afríku. Sumir fullyrða að þarna búi yfir 2 milljónir og segja þetta jafnvel vera stærsta fátækrahverfi í heimin- um öllum. Hvernig er slíkur staður? Og skyndilega blasir hann við. Út- jaðar Kibera-fátækrahverfisins. Bíl- stjórinn glottir og trommar létt á stýrið. Blautur úrgangur í sólskini Að hverfinu liggur straumur af fólki. Ég hvessi augun á bárujárns- brak og fylgi eftir gráum reyk sem liðast upp í bláan himin og falleg bólstraský. Bárujárnskofar standa þétt hver upp við annan og á þökum hefur verið komið fyrir steinum til að halda járninu niðri. Plöturnar eru ryðgaðar og víða stór göt í þeim. Skyndilega tek ég þétt fyrir munn og nef. Hryllilegur óþefur berst inn um bílrúðuna. Hópur fólks stendur við stóran ruslahaug og aðstoðar mann á gröfu við að færa sorp yfir í vörubíl. Úrgangurinn er blautur eftir rigningar seinustu nátta og heitur í sólinni. Jeremías, verður ekki að koma þessu í burtu? Þeir sem hópast í kringum gröfuna hafa augljóslega hugsað það sama. Vegurinn við hauginn er eitt leðju- svað og við bíðum dágóða stund fyrir aftan hópinn. Mér finnst ég geta þreifað á ólyktinni þegar við ökum loks hjá, upp hæð og lengra inn í hverfið. Ég hélt samt að ég kallaði ekki allt ömmu mína í þessum efnum. Ætli litlu stelpunum sem stóðu hjá hafi fundist þetta jafnóhugnanlegt stofustáss og sjálfri mér? Þú munt iðrast! „Ætlarðu út í þessum skóm? Ertu alveg viss?“ segir bílstjórinn og stöðvar loks bifreiðina. Ég er í ein- földum sandölum með bandi á milli tánna. „Hvað meinarðu? Ég er ekki með neina aðra,“ svara ég. Ég heyri manninn tauta að ég muni iðrast. Staðurinn sé skítugur í meira lagi. Í litlu húsi á bak við nýlegan báru- járnsvegg tekur hressilegur maður á móti mér. Þetta er Paul Mulongo, starfsmaður Nyumbani-hjálparsam- takanna. Stofnandi þeirra er banda- rískur en starfsmenn langflestir frá Kenýa. Nyumbani hjálpar börnum sem smituð eru af alnæmi. Fyrir utan húsið bíður hópur mæðra með börn sín. Samtökin hafa gert kraftaverk og starfið vaxið fljótt. Hjá Nyumbani er tekið á móti veik- um börnum, þau greind og athugað hvort þau gætu verið smituð af al- næmi. Mjög veik börn fá reglulega að borða og lyf sem halda alnæminu niðri. Til að fá þau þarf barn að vera afskaplega illa haldið, enda lyfin rán- dýr – um 10.000 íslenskar krónur á mánuði. Hvernig á fólk að hafa efni á slíku í landi þar sem algeng mánaðar- laun eru nokkur þúsund krónur? Samtök sem fá fjárframlög frá fólki víða um heim hafa það ekki einu sinni almennilega. „Á endanum erum við góðgerðar- samtök sem reiðum okkur á fjár- framlög frá fólki. Við gætum gert miklu meira ef við einungis hefðum meira fé,“ segir Paul. Heilsugæsla fyrir alnæmissmituð börn Við Paul setjumst niður inni í húsi Nyumbani. „Fátæktin í Kibera er gríðarleg. Hreinlæti og skólpmál eru í lamasessi. Það gerist auðveldlega þar sem fólk býr jafnþétt. Aðstæð- urnar hérna eru þannig að enginn – nákvæmlega enginn – ætti að búa við þær,“ segir hann ákveðinn. Í húsinu er meðal annars heilsugæsla fyrir al- næmissmituð börn og ættingja þeirra. Paul segir flesta sem til þeirra leita gera það vegna húðsjúkdóma eða magavandamála. Óhreint vatn er aðalorsökin. Margir koma einnig vegna öndunarerfiðleika og vanda- mála í brjósti. „7–8 manneskjur sem sofa, elda mat á hlóðum og gera allt í pínulitlu herbergi, skapa aðstæður sem er ein- faldlega ekki heilbrigt að vera í,“ út- skýrir hann. Í miklu þéttbýli smitast sjúkdómar líka auðveldlega. Berklar eru til dæmis algengir í Kibera. Í starfi sínu leggur Nyumbani áherslu á foreldrafræðslu og leiðir til að koma í veg fyrir alnæmissmit. Starfsmennirnir fræða fólk um al- næmi, til dæmis um smitleiðir á milli móður og barns á meðgöngu og við brjóstagjöf. Paul fullyrðir að 42% lík- ur séu á að barn fái alnæmi ef móðir þess er smituð og það er á brjósti fyrstu 2 árin. Hjá Nyumbani er fólk frætt um mikilvægi vel samsettrar næringar og hreinlætis, almennt og ekki síst þegar einhver er veikur af alnæmi og ónæmiskerfið bregst. Með heilbrigðum lífsháttum er fólk lík- legra til að geta lifað án lyfja en ella. Á skautum í þykkri leðju Í gegnum tíðina hef ég oft verið innan um gríðarlega fátækt. Ég hef séð svo mikla skerandi neyð að stundum hefur mig hálfsvimað og ég hugsað ringluð hvernig í ósköpunum þetta megi vera í jafnauðugum heimi. Hvernig má það vera að heill millj- arður gangi svangur til hvílu í heimi þar sem miklu meira en nóg er af mat? Ég hef velt fyrir mér fátækt og ég hef séð fátækt í ýmsum löndum – en ég hef sjaldan séð jafnmikla langvar- andi neyð á einum stað og í Kibera. Í Kibera er ekki neyð vegna jarð- skjálfta eða flóða. Þar eru engar dramatískar myndir af börnum með hungruð augu og maga sem stendur Morgunblaðið/Sigríður Víðis Séð niður einn af stígunum í útjaðri Kibera-fátækrahverfisins þar sem talið er að á bilinu 800 þús.–1,5 milljónir manna búi. Í Kibera eru hreinlætis- og skólpmál í lamasessi, líkt og víða í stórum fátækrahverfum. Ryðgað bárujárn við brúnan læk Undir ryðguðum járnplötum húkir eldri maður. Þvottur blaktir á snúru innan um bárujárnsbrak, þykka leðju og hauga af rusli. Skær barnshlátur myndar furðulega and- stæðu við yfirþyrmandi sorplykt. Sigríður Víðis Jónsdóttir heimsótti Kibera-fátækrahverfið sem er stærsta sinnar teg- undar í Kenýa og raunar eitt af þeim stærstu í heimi. Þar býr að minnsta kosti þrisvar sinnum öll íslenska þjóðin. Kibera-fátækrahverfið er eitt það stærsta í heiminum. Þar standa bárujárns- og moldarkofar þétt hver upp við annan. ’Stórfyrirtæki notfæra sér fátæka fólkið héðan og ráða ekki nema takmarkað af föstu starfsfólki. Síðan pikka þau út starfsfólk sem safnast saman fyrir framan hliðin þeirra á hverjum degi og borga þeim sem eru svo heppnir að fá vinnu í lausa- mennsku, skamm- arlega lág laun.‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.