Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 16

Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 16
E ftir þriggja og hálfs tíma stífa keyrslu frá Reykjavík var áfangastaðnum, Sauðárkróki, loks náð. Seint um kvöld- matarleytið er kom- ið að húsi Geirmund- ar Valtýssonar og taka hann og Mínerva kona hans vel á móti blaða- manni. Þegar inn er komið bíða eftir þreyttum ferðalangi mikil og góð veisluföng, lambalæri með öllu til- heyrandi, brúnuðum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli, sósu og salati. Og ekki var eftirrétturinn síðri. Blaðamaður hugsaði með sér að oft hefði honum í starfi verið boðið upp á fría pylsu eða hamborgara en ekkert í líkingu við þetta. Við matarborðið var pólitík rædd og eftir mat var horft á umræðuþætti fréttastöðvanna. Blaðamanni leið eins og hann ætti heima þarna. Þannig vildu Geirmund- ur og Mínerva án efa að honum liði. Eftir matinn var haldið niður í kjallara þar sem Geirmundur hafði komið fyrir smáaðstöðu til að semja lög. Eftir örlítið meira spjall um dæg- urmál snúum við okkur að plötunni hans sem var að koma út: Segðu mér aðeins frá plötunni. „Þetta er safnplata með tveimur diskum, þrjátíu og sex lög. Annar diskurinn er rólegur en hinn er stuð- diskur þannig að fólk getur annað- hvort sofnað út frá öðrum eða ryksugað með hinum,“ segir Geir- mundur og hlær, „það er allt í boði.“ „En sjáðu til, það eru komin út 125 lög eftir mig á plötu og það var dálítið erfitt að velja lögin … og þó ekki því þetta snýst líka eilítið um það hvað fólk biður um á böllum hjá mér og hvað lög hafa verið spiluð mest í út- varpi og eftir mínu eigin höfði að sjálf- sögðu líka. Og ég held að ég hafi hitt naglann vel á höfuðið því að þeir í út- gáfufyrirtækinu Senu voru ánægðir með þetta enda hefur samstarfið við þá verið ánægjulegt.“ Þú semur öll lögin? „Já ég sem öll lögin en það sem mig skortir er að geta búið til textana líka. Ég hugsa að ég gæti það ef ég hefði nægan tíma til þess, ég er svo tíma- laus maður.“ Af hverju hefur þú svona lítinn tíma? „Ég er að vinna í fullu starfi í Kaup- félagi Skagfirðinga þannig að flest minna laga eru bara samin á kvöldin. Ég hef til dæmis aldrei tekið mér frí til að semja.“ Hvernig verða lögin til? „Bæði verða þau til þannig að ég fæ texta, oftar en ekki frá Kristjáni Hreinssyni sem er ótrúleg texta- smíðamaskína, og ég sem við þau lög eða ég sem lögin bara sjálfur og fæ texta við.“ Samstarf ykkar Kristjáns hefur verið farsælt, hvaða lög telurðu hafa heppnast best í ykkar samstarfi? „Þau eru nú þónokkur en ef ég ætti að nefna einhver þá væru það lögin „Þegar sólin sest“, „Hvort sem ég vaki eða sef“, „Línudans með Línu“, „Í ljósinu“ sem Páll Rósinkrans syng- ur og „Lukkuhjólið“ sem Rúnar Júl- íusson syngur.“ Innblásturinn, pressan Trúin barst í tal hjá okkur og lá beinast við að spyrja Geirmund hvort trúin veitti honum innblástur í laga- smíð sinni. „Ja sko, ég er nú trúaður og það er eitthvað við hana sem hjálpar mér …“ Eða er það kannski eitthvað annað sem veitir þér innblástur? „Ja ég náttúrulega þarf að semja undir pressu sko.“ Hvað meinarðu undir pressu, á síð- ustu stundu? „Já það þarf að vera eitthvað til staðar eins og í fyrra þegar ég hélt upp á sextugsafmælið mitt, þá gaf ég út plötu númer 13 með 13 lögum því ég á afmæli hinn 13. apríl,“ segir Geir- mundur og hlær. „Þessi lög samdi ég í beit, byrjaði í nóvember og kláraði í lok janúar og það náttúrulega voru eintómir Skagfirðingar sem sömdu textana. Þetta er pressan, ég varð að klára þetta því diskurinn varð að koma út á afmælisdaginn.“ Vinnurðu vel undir pressu? „Já það hefur gengið mjög vel. Það er fyndið að segja frá því að ég gerði tvisvar lögin fyrir þjóðhátíð í Eyjum. Annað þeirra gerði ég árið 1991 og þá fékk ég sendan textann um morgun- inn og sendi síðan lagið á kassettu seinna um daginn til dómnefndarinn- ar og hún valdi lagið.“ Semurðu lögin fyrir þig eða til þess að selja þau? „Áður fyrr sendi ég lögin frá mér og textinn var saminn fyrir þau en þetta hefur snúist við með Kristjáni. Hann sendir mér textann og ég sem lögin við. Þá veit ég líka hvernig stemmningin er í laginu út frá text- anum, þannig sem ég stemninguna.“ Hver samdi fyrir þig texta áður en Kristján kom inn í þitt líf ef svo má segja? „Séra Hjálmar Jónsson var hér sóknarprestur og samdi hann feiki- mikið af lögum enda hagyrtur maður með eindæmum. Það má segja að ég hafi uppgötvað hann,“ segir Geir- mundur og skellihlær enda fór Hjálmar síðar á þing og varð eftir það Dómkirkjuprestur. „Hann var óhemjuvinsæll prestur og við gerðum mörg góð lög saman sem oft voru send inn í Eurovision-keppnina eins og til dæmis „Með vaxandi þrá“, „Lífsdansinn“ og „Látum sönginn hljóma hátt“. Órafmagnaður dans Hver er munurinn á Geirmundi fyrir 47 árum og núna? „Það hefur nú bara allt breyst í þjóðfélaginu, böllin voru ekki mikið mögnuð upp, harmonikkan var vinsæl og hljómsveitin mín hét Rómó og Geiri. Síðan fékk ég mér gítar og við spiluðum þannig, harmonikka og gít- ar, heillengi eða í sex ár.“ Hvernig tónlist spiluðuð þið? „Við vorum bara að spila þetta vin- sæla, Bítlana og Elvis, og reyndum að spila þetta á okkar hátt. Við vorum ekki með rafmagn í hljóðfærunum en stóðum okkur engu að síður. Við reyndum bara að vera ekki með neitt ofbeldi gegn lögunum. Ég er á móti því að spila tökulög ef það er ekki gert almennilega. Þá er eins gott að sleppa því bara.“ Dansaði fólkið? „Já þetta hefur náttúrulega bara gengið út á það að spila fyrir fólkið og að það dansi. Við erum danshljóm- sveit.“ En hvar spilarðu oftast núna og hvar nýturðu þín best? „Það er nú erfitt að dæma, en Út- hlíð er góður ballstaður. Það versta er hins vegar að gömlu góðu sveitaböllin eru að verða útdauð. Áður fyrr spilaði maður til dæmis þrisvar á sumri í Úthlíð en núna er það bara einu sinni. Þessi markaður er að færast inn í höfuðborgina en það er alltaf jafn- gaman að spila á gömlu góðu böllun- um. Í sumar spilaði ég í Úthlíð og klukkan hálfeitt var varla kjaftur í húsinu. Ég hélt að ég væri búinn að missa þetta en þegar á leið þá svoleið- is troðfylltist húsið, átta til níu hundr- uð manns, og mér varla leist á þetta.“ Hvert er fjölmennasta ballið sem þú hefur spilað á? „Hér áður fyrr voru Miðgarðsböll- in í Skagafirðinum óhemjuvinsæl en það var í kringum 1974 til 1978. Þá kom fólk til dæmis í kringum versl- unarmannahelgina og þá var tjaldað í kringum heimilið og sjö hundruð manns komu á föstudegi og sunnu- degi og eitt þúsund manns á laugar- degi. Þetta var gríðarlega skemmtilegur tími og geysimikið af fólki. Þá var ballabransinn algjörlega í hámarki.“ Á öllum þessum langa ferli þínum, hverju ertu þá stoltastur af? „Ég er mjög stoltur af því að hafa þraukað allan þennan tíma. Ég hef aldrei gefist upp og ég hef haft mjög góða stráka með mér og passað að þeir séu alltaf yngri,“ segir Geir- mundur hlæjandi og heldur áfram: „Ég hef einhvern kraft sem ég smita til þeirra og þeir hafa ungæðið þannig að þetta blandast mjög vel saman.“ En er eitthvað sem þú sérð eftir? „Ég ætlaði að hætta árið 1971 en þá komu til mín tveir strákar sem voru með mér í hljómsveitinni og báðu mig að stofna hljómsveit aftur og ferillinn hélt áfram.“ En hvernig er það eftir 47 ár í bransanum, ertu auðugur maður? „Ja ég á jörð frammi í firði, Geir- mundarstaði, þar sem ég er með kind- ur og hesta. Mestur minn aukapen- ingur hefur farið í að halda þessari jörð við eins og húsinu og girðingum og svo framvegis. Ég hef hvorki reykt né drukkið en ég neita því ekki að maður hefur haft ágætlega upp úr þessu með mikilli vinnu. En ekki gleyma því að þetta er allt nætur- vinna!“ Bransinn í dag Hvernig finnst þér poppbransinn vera í dag? „Mér finnst ekkert mikið vera að gerast í íslenskri popptónlist. Mér finnst það hafa verið þannig í nokkur ár. Þetta eru nú voðalega mikið töku- lög, þar sem gömul lög eru endurút- sett. Þetta er að vísu voða gott fyrir mig því að ég kann flest af þessum gömlu lögum.“ Fylgdist þú eitthvað með Airwa- ves-hátíðinni, það er nú mikil gróska þar? „Nei ekki mikið, þetta höfðar lítið til mín. Þetta er kannski gamaldags hugsunarháttur hjá mér en ég fylgist ekkert mikið með henni.“ Þegar maður er svona hokinn af reynslu, lumarðu þá ekki á sögum úr bransanum? „Ja ég get sagt þér það að sögunum fer fækkandi núna, áður fyrr var allt- af eitthvert vesen sem kom upp á; tví- bókanir, flugvélavesen, bílavesen og þar fram eftir götunum. Í dag er þetta orðið svo pottþétt hjá manni að það kemur varla neitt upp á.“ En var ekki kvenfólkið mikið utan í þér? „Jú og er!“ segir Geirmundur og hlær, „ég get sagt ykkur það að mað- ur kynnist mörgu fólki, konum jafnt sem körlum, og það er náttúrulega fylgifiskur starfans. Síðan má segja að ég hafi grætt talsvert á því að heita Geirmundur því það heitir enginn annar því nafni.“ Framtíðin Hvað er svo í vændum hjá Geir- mundi Valtýssyni? Ný plata, ný lög? „Ja veistu það, ég held að ég hafi samið yfir mig í fyrra. Mig myndi kannski langa að taka einhver töku- lög eins og við ræddum fyrr. Pétur heitinn Kristjánsson, stórvinur minn, gerði slíka plötu með lögum Kims Larsens og ég fæ næstum tár í augun við að hlusta á hana. Ég fékk hug- mynd um að taka lög með Shakin’ Stevens sem er mikill sveiflumaður.“ Hvar sérðu þig eftir 10–15 ár? Verðurðu ennþá í sveiflu? „Nei það held ég ekki, annars er ekkert hægt að segja um það. Ég er mjög heilsugóður en þetta fer að verða mikið áreiti á mann. Maður keyrir þetta út um allt land; Vopna- fjörður, Seyðisfjörður, Húsavík og Reykjavík, en samt er einhver kraft- ur í manni sem keyrir mann áfram. Það er hægt að líkja mér við sjó- mann, ég get kallað mig „showmann“ segir Geirmundur að lokum og skelli- hlær. „Nei nei, ég nenni ekki að vera í neinu símaviðtali, þú bara kemur í Skagafjörð- inn.“ Svona var hljóðið í Geirmundi Valtýssyni, sennilega einum frægasta Skagfirðingi fyrr og síðar. Sigurður Pálmi Sigur- björnsson fyllti tankinn og brunaði norður til sveiflu- kóngsins. ’Ég hef aldrei gefist upp og ég hef haftmjög góða stráka með mér og passað að þeir séu alltaf yngri.‘ Ekki sjómaður heldur „showmaður“ Morgunblaðið/Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson Geirmundur Valtýsson 16 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.