Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 19
arasaumuð og með skinni.
Ég komst til Eyja 17 ára,
með mér fylgdi að ég hefði
fengið berkla en hefði
læknast og mætti vinna. Ég
lenti hjá góðu fólki, Helga
Benediktssyni útgerðar-
manni og Guðrúnu Stef-
ánsdóttur. Ég var bara einn
vetur. Þetta var indælisfólk,
ég hef aldrei þekkt nema
gott fólk, ef ég hefði þekkti
eitthvað annað hefði ég bara
látið það eiga sig.“
– En hvernig er að vera á
Hrafnistu?
„Það er afskaplega gott og
vel rekið heimili, alltaf verið
að gera eitthvað fyrir okkur,
auðvitað má eitthvað að
finna, ég er frekar matvönd
og mér finnst leiðinlegt að
komast ekki eins oft í bað og
meðan ég bjó úti í Hleinum.
Þar vorum við Óskar með
neðanjarðarsturtu, sem við
kölluðum svo, og gátum
fengið okkur bað þegar við vildum,
maður var svo fljótur að skola sig.
En hvað matinn snertir þá er mér
ekki vandara um en stelpunum mín-
um, þeim þótti fiskurinn ekki alltaf
góður en pabbi þeirra sagði bara: „Ef
þið viljið ekki matinn sem mamma
ykkar býr til þá farið þið bara frá
borðinu.““
Vildi að myndin yrði
um líf heimilisfólksins
Við Þorsteinn tökum nú að ræða
um myndina sem á að fara að frum-
sýna.
„Ég vildi að myndin yrði
um líf heimilisfólksins frek-
ar en hefðbundin kynning-
armynd um Hrafnistu,“
segir Þorsteinn.
„Ég geri allt sjálfur má
segja, skrifa handrit, tek
og klippi, stjórna og fram-
leiði. Þannig get ég haft
stjórn á öllum hlutum og
komist nær fólkinu. Það er
enginn þulur í myndinni.
Viðtölin eru óformleg og
persónurnar tala við
„áhorfandann“ eins og
kunningja. Það er mikið
sungið og dansað en engin
utanaðkomandi tónlist,“
bætir hann.
Aðrar persónur sem
fram koma eru Sigurður
Ólafsson, skipstjóri frá
Vestmannaeyjum, sem
segir að hann sé kominn í
Paradís á Hrafnistu; Klara
Tryggvason, en öll börn
hennar nema eitt búa er-
lendis, þannig að hún fær heimsóknir
í pökkum og símtölum; og Leifur Ei-
ríksson sem breytir athöfninni að
búa um rúmið í leikfimisæfingu.
„Nafnið á myndinni vísar til þess
að þegar ég byrjaði upptökur á
myndinni þá hljómaði söngur á göng-
unum og ómaði jafnvel út á götu.
Þetta er söngur lífsins og hugmyndin
er að myndin fjalli um lífsgleðina og
lífskraftinn hjá fólki sem þarf að búa
við ýmsar takmarkanir vegna aldurs
og sjúkdóma.“
Guðný Þórðardóttir 17 ára 1929, með silkihatt og í káp-
unni sem kostaði nærri tvenn mánaðarlaun.
gudrung@mbl.is
’Guðný er leikkonaog átti sinn feril í
Neskaupstað, hún
ber með sér inn í
myndina andblæ
frá þeim stað –
frá sínum heimi.‘
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 19
Málstofan hefst kl. 15:00 á 1. hæð
í Ásgarði á Hvanneyri
Mánudaginn 21. nóvember mun
Gísli Már Gíslason, prófessor í
vatnalíffræði við Háskóla Íslands, vera
í Málstofu og ræða um „Áhrif búsetu
á vötn og vatnasvið á Íslandi“.
Allir velkomnir
AUGLÝSING
Svavar
Sigurðsson
Heimasíður:
Sayno.is
og
vortex.is/sayno
P &
Ó
internet.is/po
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111