Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 26

Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 26
26 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ G uðni Th. Jó- hannesson sagnfræðingur var fyrir fimm árum að blaða í bók Gylfa Gröndals um Kristján Eld- járn, þriðja forseta íslenska lýðveld- isins, er út kom árið 1991. Í heimild- arskrá rak hann augun í að Gylfi hefði byggt m.a. á dagbókum Kristjáns, að undanskildum þeim færslum og minnispunktum er sneru að stjórn- armyndunarviðræðum og öðru slíku. Gylfi tók það fram að þær heimildir biðu sagnfræðinga framtíðarinnar. „Ég hugsaði með mér; ég er sagn- fræðingur; skyldi framtíðin vera runnin upp?“ segir Guðni. Hann var ekki að tvínóna við hlutina heldur setti sig í samband við ekkju Krist- jáns, Halldóru Eldjárn, og falaðist eftir því að skoða gögn forsetans. Einkum var Guðni að leita gagna um landhelgismál og þorskastríð, en hann var þá að rannsaka þau mál í doktorsnámi í Englandi og batt vonir við að í dagbókum Kristjáns væri að finna eitthvað þeim viðkomandi. Þór- arinn Eldjárn rithöfundur skrifaði síðan Guðna fyrir hönd móður sinnar og sagði það mat fjölskyldunnar að tímabært væri að leyfa aðgang að öll- um gögnunum. Og þótt eitthvað væri tengt þorskastríði og landhelgismál- um í blöðum föður hans, væri mest um stjórnarmyndanir en þar gæti ýmislegt hnýsilegt leynst. Guðni yf- irfór gögnin og gerði sér fljótt grein fyrir að upplýsingar þær sem Krist- ján hafði skráð hjá sér gæfu tilefni til ítarlegrar rannsóknar og umfjöllun- ar. „Það var gífurlega gaman að lesa þessar minningar Kristjáns. Þær eru frábær heimild um mikilvægasta hlutverk forsetans í stjórnskipuninni, stöðu hans við stjórnarmyndanir, og kölluðu á að gerð yrði öflug bók,“ seg- ir Guðni. Minningar á geltandi garm Annars vegar er um að ræða vélrit- aðar dagbækur, sem Kristján sló inn sjálfur á gamlan og geltandi ritvéla- garm, yfirleitt að kvöldi dags eftir að hafa fundað með forystumönnum stjórnmálaflokkanna að loknum al- þingiskosningum, og hins vegar seg- ulbandsupptökur. „Þeir sögðu honum þar hver staðan væri, hvernig lands- lagið lægi og hvaða möguleikar væru á myndun samsteypustjórnar. Krist- ján dró saman efni þessara funda í minnispunktum sínum og bætti við frá eigin brjósti skilningi sínum á stöðu mála. Þetta gerði hann allan sinn forsetaferil frá 1968 og frá 1979– 1980, þegar hann lét af störfum, las hann inn á segulband sambærileg minnisatriði. Upptökurnar eru líka frábærar heimildir, hann er óformlegri en í rit- uðu máli, slettir aðeins meira og mað- ur kemst jafnvel nær honum per- sónulega og rás atburða en því sem var skjalfest. Kristján var auðvitað mikill íslenskumaður og skrifaði gull- aldarmál, en það er mikil nautn að hlusta á hann tala af einlægni um það sem stjórnmálamenn þess tíma voru að segja honum. Það er markvert að árið 1980 lá hann í flensu og stytti sér stundir við að hlusta á spólurnar, og bætti við upptöku að því loknu þar sem hann sagði eitthvað á þá leið að það hefði verið ansi skemmtilegt að hlusta á þetta og meira að segja gæti þetta orðið heimildir. En þótt hann hafi gert sér fulla grein fyrir sagn- fræðilegu gildi þessara gagna, var honum jafnframt ljóst að allir fund- irnir með stjórnmálaleiðtogunum voru trúnaðarmál og ótímabært væri að leyfa opinberan aðgang fyrr en að drjúgum tíma liðnum. Nú er aldar- fjórðungur síðan seinustu upptök- urnar voru gerðar, og því óhætt að telja að nægur tími sé liðinn. Enginn bíður skaða af birtingu þessara gagna og Kristján var það mikið prúðmenni að hann talar aldrei illa um nokkurn mann.“ Embættið átti að vera óháð pólitík Fyrstu kosningarnar í forsetatíð Kristjáns voru sumarið 1971 og í kjöl- farið fór ríkisstjórn Jóhanns Haf- steins, Sjálfstæðisflokki, frá völdum, en Jóhann hafði tekið við forsætisráð- herraembættinu ári fyrr eftir svip- legt fráfall Bjarna Benediktssonar. Ólafur Jóhannesson, Framsóknar- flokki, myndaði vinstri stjórn í kjöl- farið, sem stundum var kölluð Ólafía. Hún sprakk með hvelli í maí 1974 í kjölfar þess að Ólafur bar fram frum- varp sem fól í sér að vísitöluhækkun launa yrði fryst. Samtök frjálslyndra og vinstri manna hættu þá að styðja ríkisstjórnina. „Þegar Ólafur rauf þing gengu þá- verandi stjórnarandstæðingar, Hannibal Valdimarsson, Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, er ver- ið hafði samgöngu- og félagsmálaráð- herra í stjórn Ólafs til ársins 1973, Gylfi Þ. Gíslason, Alþýðuflokki, og Geir Hallgrímsson, Sjálfstæðisflokki, ansi hart að Kristjáni Eldjárn. Þeir sögðu sem svo að hann ætti að neita að staðfesta þingrofsbeiðni Ólafs Jó- hannessonar á þeim forsendum að á þingi væri meirihluti gegn því að þing væri rofið, og gefa þeim í staðinn færi á að mynda nýja stjórn án þess að þing væri rofið og gengið til kosninga. Þetta er mjög áhugavert í ljósi þeirr- ar umræðu sem hefur verið undan- farin misseri um valdsvið forseta Ís- lands og rétt hans eða ekki til að neita að verða við vilja framkvæmdavalds- ins eða löggjafans. Kristján segir frá því í dagbókum sínum að hann geti ekki séð hvaða tilgangi það hefði átt að þjóna að láta það eftir að þessir menn færu að reyna stjórnarmynd- un, en gæti glöggt séð hvaða voðaaf- leiðingar það hefði fyrir hann sjálfan og stöðu forseta, ef hann hefði farið að ráðum þeirra. Hann segir eitthvað á þá leið að hann telji að það sé blátt áfram ekki hægt að blanda forseta- embættinu svona inn í stjórnmála- átök. Hann skrifaði því undir þing- rofsbeiðnina, en tók sér þó hálftíma frest til íhugunar. Niðurstaða Kristjáns, sem hann hvarf aldrei frá, var sú að forseti Ís- lands ætti ekki að blanda sér í pólitík og ætti ekki að taka fram fyrir hend- urnar á forsætisráðherra. Vildi ráð- herra rjúfa þing var það ekki í verka- hring forsetans að leggja mat á þá beiðni eða draga hana í efa. Ég tel því ljóst að um leið og Ólafur Jóhannes- son æskti þingrofs varð Kristján Eld- járn að hlýða þeirri beiðni, nema hann vissi fyrir víst að með því væri gengið gegn stjórnarsáttmála og vilja annarra ráðherra. Svo var ekki þegar hér var komið sögu. Kristján gat ekki leyft sér að efast um rök Ólafs Jó- hannessonar eða deila um þau við hann, og því síður að draga sitt sam- þykki á langinn.“ Spurður um hvort stilla megi upp sem andstæðum ákvörðun Kristjáns annars vegar og hins vegar þeirri ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, sumarið 2004, að synja lögum um fjölmiðla staðfesting- ar, segir Guðni vandkvæðum bundið að bera þessi mál saman. „Það er hins vegar alveg augljóst að Kristján Eld- járn hafði aðrar hugmyndir um póli- tíska stöðu forsetans en Ólafur Ragn- ar Grímsson. Hvað hefði Kristján gert, hefði hann lent í áþekkri stöðu og Ólafur Ragnar? Það eru mörg ef. Það kom einu sinni fyrir í tengslum við Laxárdeiluna árið 1970 að farið var óformlega fram á við Kristján að hann neitaði lögum staðfestingar, og þá virtist hann komast að þeirri nið- urstöðu að það væri ekki í verkahring forseta að ganga gegn vilja löggjaf- ans og framkvæmdavaldsins.“ Of óljósar áætlanir Guðni segir varðandi þingrofið 1974 að það hafi haft sitt að segja að þremenningarnir Geir, Gylfi og Hannibal voru aldrei með tilbúna stjórn eða stjórnarsáttmála. „Kröfur þeirra voru of veikar; áætlanir of óljósar. Þegar Geir Hallgrímsson hringdi í Kristján að morgni 8. maí og kvaðst geta myndað stjórn, fengi hann til þess nokkurra daga frest, spurði forseti að vonum: „Hverja?“ Svör Geirs urðu þá loðin: Kannski „stjórn fjögurra flokka“ og „kannski“ með Sjálfstæðisflokki, Alþýðuflokki og „Hannibalistum“. „Með 31 at- kvæði“, sagði Kristján um slíka stjórn sem hefði ekki heldur meiri- hluta í báðum deildum. Forseti vissi einnig að allt tal um að Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra myndi skipta um lið var úr lausu lofti gripið. Í vikunni eftir þingrofið ákvað Kristján þó að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll. Hann bað Magnús Torfa um að koma á sinn fund og spurði hvort einhverjar líkur hefðu verið til þess að hann hefði gengið til stjórnarmyndunar með „andstöðu- flokkunum“. Svarið var skýrt og skorinort, eins og Kristján skráði hjá sér, þ.e. að slíkir draumar væru full- komin fjarstæða.“ Aðfaranótt 9. maí 1974 var settur fundur í sameinuðu þingi. Eysteinn Jónsson tilkynnti þá að þar eð forseti Íslands hefði gefið út bréf um þingrof væri ekki unnt að verða við þeirri beiðni sem fyrir lægi um umræður um vantraust á ríkisstjórnina. Fékk svo forsætisráðherra orðið. Ólafur Jóhannesson las fyrst forsetabréf um þingrof þar sem fram komu þær ástæður sem hann hafði rakið fyrir forseta um nauðsyn þess. Því næst las Ólafur forsetabréf um alþingis- kosningar 30. júní og loks las hann bréf forseta um umboð til forsætis- ráðherra til þess að rjúfa þing. Þing var rofið og efnt til kosninga 30. júní. Eftir þingrofið sagði Hanni- bal Valdimarsson af sér formennsku í Samtökum frjálslyndra og vinstri- manna og lýsti að svo búnu yfir stuðningi við Alþýðuflokkinn. Ríkis- stjórn Ólafs baðst lausnar í júlí. Geir Hallgrímsson, Sjálfstæðisflokki, Ópólitískur forseti í pólitísku embætti Kristján Eldjárn, forseti Íslands, tók sér hálftíma umhugsunarfrest en kom ekki til hugar að neita þingrofsbeiðni Ólafs Jóhannessonar vorið 1974. Eftir að stjórn Ólafs fór frá völdum 1979 myndaðist svo alvarleg stjórnarkreppa að Kristján var við það að mynda utanþingsstjórn með Jóhannes Nordal seðlabankastjóra í stól forsætisráðherra. Þetta kemur fram í bók Guðna Th. Jóhannessonar, Völundarhús valdsins, sem fjallar um stjórnarmyndanir, stjórnarslit og stöðu forseta Íslands í valdatíð Kristjáns. Sindri Freysson spjallaði við Guðna um óróann í íslenskum stjórnmálum á 8. áratugnum. Morgunblaðið/Kristinn Guðni segir augljóst að Kristján Eldjárn hafði aðrar hugmyndir um pólitíska stöðu forsetans en Ólafur Ragnar Grímsson.  ’Forseti heyrði áBirni Bjarnasyni, ein- um tryggasta stuðn- ingsmanni Geirs, að það væri töluvert mikil stemning fyrir stjórn Gunnars með- al óbreyttra sjálf- stæðismanna.‘ ’Hann virtist komastað þeirri niðurstöðu að það væri ekki í verkahring forseta að ganga gegn vilja lög- gjafans og fram- kvæmdavaldsins.‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.