Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 55

Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 55
allt taka þátt í norrænum skjaladegi með margvíslegum hætti. Á www.skjaladagur.is er sýning á skjölum, getraun og fróðleikur. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga nema mánudaga í vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóðleiðsögn, margmiðlunarsýning og gönguleiðir. www.gljufrasteinn.is. Safnahúsið á Egilsstöðum | Í anddyri niðri hefur verið opnuð sýningin „Við Heiðar- og Fjallamenn“. Sýningin er sett upp í tilefni Norræna skjaladagsins. Þar gefur að líta myndir, skjöl og fleira frá Möðrudal og nokkrum bæjum í Jökuldalsheiði. Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja- safnið – svona var það, Fyrirheitna landið, íslenskt bókband. Sýnt er íslenskt bókband gert með gamla laginu, jafnframt nútíma- bókband og nokkur verk frá nýafstaðinni al- þjóðlegri bókbandskeppni. Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa. Veitingastofan Matur og menning býður alhliða hádegis- og kaffimatseðil. Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Ís- lands eru fjölbreyttar og vandaðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17. Kvikmyndir Kvikmyndasafn Íslands | Skoðið fréttir um kvikmyndasafnsmál á nýju heimasíðunni okkar www.kvikmyndasafn.is . Þar er einnig að finna sýningadagskrá Kvikmyndasafns Íslands fyrir veturinn 2005–2006. Norræna húsið | Criss Cross Social– Political. Hér er stefnt saman kvikmyndum kvikmyndagerðarmanna, myndlistarmanna, sem og heimildamyndum, frá Norðurlönd- unum og Eystrasaltsríkjunum. Fókusinn er á heiminn fyrr og nú, og hvernig kvikmynda- gerðarmenn og listamenn bregðast við óreiðu hans. 12 myndir. Aðgangur ókeypis. Fundir Krabbameinsfélagið | Ný rödd heldur fund í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 4. hæð, miðvikudaginn 23. nóv. kl. 20.15. Dagskrá: Noðurlandaþing barka- kýlislausra, fyrirhugað afmæli félagsins í desember. Önnur mál. Stjórnin. Kvenfélagið Aldan | Jólafundur verður haldinn á Hótel Valhöll sunnudaginn 20. nóv. Rútuferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12. Kvenfélagið Keðjan | Fundur verður hjá Kvenfélaginu mánudaginn 21. nóv. kl. 20 í Flugvirkjasalnum, Borgartúni 22. Efni fund- ar: Kransagerð. Fyrirlestrar Kennaraháskóli Íslands | Guðrún Krist- insdóttir prófessor og Ingibjörg H. Harð- ardóttir lektor halda fyrirlestur 23. nóv. kl. 16.15–17.15, í Kennaraháskóla Íslands. Greint verður frá verkefni sem miðast að því að skoða hvernig börn almennt skilja og skynja ofbeldi á heimilum, áhrif þess á börn og álit þeirra á vænlegum viðbrögðum. Málþing Skriðuklaustur | Í ár eru liðnar fjórar aldir frá fæðingu Brynjólfs Sveinssonar biskups í Skálholti. Sýning verður um Brynjólf og 17. öldina fram í desember í Skriðuklaustri. Gunnarsstofnun býður til lítils málþings um Brynjólf við opnun sýningarinnar sunnu- daginn 20. nóv. kl. 14. Aðgangur er ókeypis. Námskeið Staðlaráð Íslands | ISO 9000. Námskeið 1. desember. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir meg- ináherslum og uppbyggingu kjarnastaðl- anna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Nánari upplýsingar og skráning á www.stadlar.is. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 55 DAGBÓK Hugrekki. Norður ♠104 ♥1096 N/Enginn ♦K865 ♣10932 Vestur Austur ♠83 ♠G6 ♥D532 ♥ÁKG74 ♦G742 ♦ÁD10 ♣D87 ♣654 Suður ♠ÁKD9752 ♥8 ♦93 ♣ÁKG Englendingar náðu sér ekki á strik í opna flokknum í Estoril og voru fjarri því að komast í 8 liða úrslit. En þeir sýndu góða takta inn á milli, einkum bræðurnir Jason og Justin Hackett. Í sýningarleik Englands og Japans uppskar Justin hrifningu áhorfenda fyrir kjarkmikla blekkispilamennsku. Hann varð sagnhafi í fjórum spöðum eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður Chen Jason Furuta Justin – Pass 1 hjarta Dobl 3 hjörtu Pass Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur kom út með tromp og Just- in reyndi tíuna í borði í veikri von um að komast inn til að svína í laufinu. En austur kom í veg fyrir það með gosanum – því miður fyrir vörnina, eins og síðar kom á daginn. Justin taldi víst að tígulásinn væri í austur, svo helsta vinningsvonin virt- ist sú að laufdrottningin kæmi niður önnur. En það gat ekki sakað að þreyta andstæðingana með nokkrum trompum. Justin tók öll trompin nema eitt og veitti því athygli að austur henti tveimur laufum. Honum þótti því ein- sýnt að vestur væri með laufdrottn- inguna vel valdaða og lagði fyrir hann snöru með því að spila út gosanum, undan ÁK! Vestur vildi ekki eiga það á hættu að láta drottninguna falla undir háspil makkers, svo hann fylgdi með smá- spili og laufgosinn átti slaginn. Virkilega óforskammað. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Vistvæn egg MIG langar að benda dýravinum á þann möguleika að kaupa egg af varphænum sem ekki eru geymd í búrum. Þau eru fáanleg í nokkrum verslunum og bera heitið „vistvæn egg, egg hæna sem eru í lausa- göngu“. Einu sinni hétu þau ham- ingjuegg og fannst mér það svo sannarlega réttnefni. Dýravinir, ver- um samkvæm sjálfum okkur og borgum örlítið meira fyrir eggin og höfum hreina samvisku. Mig langar einnig að benda á að Hagkaup (að minnsta kosti á Garða- torgi) bjóða ekki upp á þessi egg þótt þeir auglýsi að þeir bjóði upp á mesta úrval matvöru á landinu. Sjálf hef ég fundið vistvæn egg í Nóatúni, Nettó og Fjarðarkaupum. Ég vil taka fram að ég er á engan hátt tengd þessari framleiðslu. Elísabet Jónsdóttir. Þrifsi Á DEGI íslenskrar tungu og í fram- haldi af ágætri grein Baldurs Haf- stað á dögunum langar okkur til að deila með ykkur orði. Við hjónin höfum nú í áratug not- að orðið þrifsi um bréfþurrkur í eld- húsi eða skylda hluti. Hefur orðið farið vel í munni okkar og barnanna. Orðið rímar á móti snifsi og beygist eins en fær að auki dýpri merkingu af sögninni að þrífa. Úlfar Guðmundsson og Herborg Pálsdóttir. Frímerkjasöfnun POUL, sem er frá Kaupmannahöfn, óskar eftir að komast í samband við frímerkjasafnara á Íslandi sem get- ur útvegað honum notuð frímerki. Þeir sem gætu liðsinnt honum vin- samlega hafi samband við: Poul Merrald, Maglekær 16, 2.th. DK-2610 Rødovre, Danmark. Salt á sundlaugabarma ÉG fór í laugarnar einn morguninn eins og ég geri stundum. Þar hafði verið stráð grófu salti á alla sund- laugarbarmana og var þetta eins og eftir haglél. Þetta er að sjálfsögðu gert svo fólk renni ekki í hálku. En hvers vegna svona gróft salt, því ekki fínt salt? Fólk var í vandræðum vegna þessa. Ólafur Þór Friðriksson. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hlutavelta | Þessar duglegu stelpur, teiknuðu myndir, máluðu þær og seldu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 477 krónur. Þær heita Dögg Rúnarsdóttir, Sara Mjöll Jónsdóttir og Magnea Ásta Magn- úsdóttir. Stelpurnar ætla ekki að láta staðar numið, því næst ætla þær að búa til litabækur, sem eiga að kosta rosalega mikið og einnig ætla þær að perla til styrktar góðu málefni. Morgunblaðið/Kristján Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi hefir ákveðið að efna til prófkjörs 4. febrúar 2006 til að velja frambjóðendur á lista sjálfstæðismanna í kom- andi bæjarstjórnarkosningum. Prófkjörið er bundin kosning og skal gera tillögu til kjörnefndar um fram- bjóðendur eigi síðar en 12. janúar 2006. Hver tillaga er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokks- mann og skal borin fram af 20 flokksmönnum. Hér með er auglýst eftir áhugasömum frambjóðendum til að taka þátt í prófkjörinu. Framboðum skal skilað til formanns kjörnefndar, Péturs Kjartanssonar, Bollagörðum 26, Seltjarnarnesi eða hvers af kjörnefndarmönnum sem er, en þeir eru: Stefán Pétursson, Þóra Einarsdóttir, Jón Jónsson, Gunnar Lúðvíksson, Margrét Pálsdóttir, Pétur Árni Jónsson, Friðrik Friðriksson og Þórður Búason. F.h. kjörnefndar, Pétur Kjartansson Prófkjör 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 Rbd7 6. cxd5 exd5 7. e3 Be7 8. Dc2 0-0 9. Bd3 He8 10. 0-0 Rf8 11. h3 g6 12. Hab1 Re6 13. Bh4 Rg7 14. b4 a6 15. a4 Bf5 16. b5 axb5 17. axb5 Rd7 18. Bxe7 Hxe7 19. Bxf5 Rxf5 20. bxc6 bxc6 21. Ra4 Hc8 22. Rc5 Rd6 23. Rxd7 Hxd7 24. Re5 Hdc7 25. Hfc1 Df6 26. Hb6 c5 27. Db2 Dd8 28. dxc5 Rc4 Staðan kom upp í heimsmeist- arakeppni landsliða sem lauk fyrir skömmu í Beer-Sheva í Ísrael. Alex- ander Onischuk (2.628), hvítt, nýtti sér veilurnar í svörtu kóngsstöðu Lazaro Bruzon (2.677). 29. Hxc4! dxc4 30. Rg4 Hc6 30. ... Hxc5 hefði ekki gengið upp vegna 31. Rh6+ Kf8 32. Dh8+ Ke7 33. Df6+. Eftir texta- leikinn er taflið einnig tapað á svart þó að hann hafi getað þreyð þorr- ann. 31. Rh6+ Kf8 32. Dh8+ Ke7 33. De5+ Kf8 34. Dh8+ Ke7 35. Dg7 Dd1+ 36. Kh2 Hxb6 37. Dxf7+ Kd8 38. cxb6 Dd6+ 39. f4 Dxb6 40. Dd5+ Ke7 41. Rg8+ Kf8 42. Rh6 Hc7 43. Dg8+ Ke7 44. Dxh7+ Kd8 45. Dg8+ Kd7 46. Rg4 Kc6 47. Dxc4+ Kb7 48. De4+ Ka7 49. Re5 Hc3 50. Dd4 Hb3 51. Rxg6 Hxe3 52. Dxb6+ Kxb6 53. h4 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.