Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
LAUGARDAGUR
BARÁTTUDAGUR VERKAFÓLKS
Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks er í
dag, 1. maí, og verða baráttufundir um allt
land. Í Reykjavík fer kröfuganga frá Skóla-
vörðuholti og verður lagt af stað klukkan 14
frá Hallgrímskirkju. Lúðrasveit verkalýðsins
og Lúðrasveitin Svanur fara fyrir göngu. Úti-
fundur hefst á Ingólfstorgi klukkan 14.35.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART SUNNAN til, bjartast suð-
austanlands en skýjað með köflum í
Reykjavík. Rigning eða slydda á Norður-
landi. Kólnandi veður. Sjá síðu 6.
1. maí 2004 – 111. tölublað – 4. árgangur
● aldrei skortur á hugmyndum
Tilraunaeldhúsið:
▲
SÍÐA 44
Fagnar fimm
ára afmæli
● eve online heillar netverja
Magnús Bergsson:
▲
SÍÐA 42
Íslenskur tölvuleikur
setur heimsmet
FANGAR PYNTAÐIR Myndir sem CBS-
sjónvarpsstöðin komst yfir og sýna banda-
ríska hermenn pynta og niðurlægja írakska
fanga í Abu Ghraib-fangelsinu fyrir utan
Bagdad hafa vakið hörð viðbrögð um allan
heim. Sjá síðu 2
200 MILLJÓNA SAMKOMULAG Í
dag tekur gildi nýtt lyfjaverð í heildsölu á
27 pakkningum í fimm lyfjategundum, í
kjölfar samkomulags lyfjaverðsnefndar og
heildsala. Lyfjakostnaður landsmanna
lækkar um 200 milljónir króna. Sjá síðu 4
SVARTUR BLETTUR Stjórnarandstaðan
krefst rannsóknar á tildrögum þess að
íslensk stjórnvöld studdu hernaðinn í Írak.
Formaður Samfylkingarinnar segir Íraks-
stríðið svartasta blettinn á utanríkisstefnu
Íslendinga. Sjá síðu 6
SEX MÁNUÐIR Þýskur maður játaði í
gær fyrir dómi innflutning á sjö kílóum af
hassi og hlaut sex mánaða fangelsi fyrir.
Maðurinn var ásamt tveimur bræðrum
ákærður fyrir innflutning á 27 kílóum af
hassi. Sjá síðu 8
● bílar
Ómar Ragnarsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sögur af honum
fylla heila bók
AÐILD FAGNAÐ Í LITHÁEN Hálfum öðrum áratug eftir að Litháar börðust fyrir sjálfstæði sínu undan oki Sovétríkjanna heitinna eru
þeir ásamt níu öðrum þjóðum orðnir aðilar að Evrópusambandinu. Fagnað var í gærkvöld þegar ríkin urðu formlega aðilar að samband-
inu klukkan tólf á miðnætti við upphaf alþjóðlegs baráttudags verkalýðsins.
HEILBRIGÐISMÁL „Það lítur út fyrir
að við verðum að grípa til mjög
harkalegra aðgerða til að ná tök-
um á þeirri sparnaðarkröfu sem
stjórnvöld hafa sett á okkur,
draga verulega úr þjónustu og
gera ýmislegt sem okkur er sann-
ast sagna gríðarlega mikið á móti
skapi,“ sagði Guðmundur Þor-
geirsson, sviðsstjóri lækninga á
lyflækningasviði Landspítala -
háskólasjúkrahúss.
Fái lyflækningasvið Land-
spítalans ekki yfirdráttarheimild
á fjáraukalögum, liggur fyrir að
draga þarf úr bráðaþjónustu á
sviðinu, að sögn Guðmundar.
Þegar hefur verið ákveðið að
draga úr hjartaþræðingarþjón-
ustu. Það mun óhjákvæmilega
leiða til þess að biðlistar byggjast
upp á ný. Þá er ætlunin að hefja á
ný notkun einfaldari og ódýrari
hjartagangráða en áður. Lyfja-
notkun verður breytt, að svo
miklu leyti sem hægt er. Aðgerð-
irnar munu snerta fjölmarga
hópa, svo sem hjartasjúklinga,
fólk með iktsýki, sjúklinga sem
þurfa sýklalyf, nýrnabilunar-
sjúklinga, sem þurfa örvun við
blóðmyndun í meinmerg, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þá liggur fyrir að sumarlokanir
verða auknar, meðal annars á húð-
deild og deild fyrir hjartaþræðing-
arsjúklinga. Þá kemur til álita að
draga úr svefnrannsóknum.
Sjá nánar síðu 2
Bráðaþjónustu
er stefnt í voða
Lyflækningasvið Landspítala - háskólasjúkrahúss þarf að draga verulega úr
þjónustu vegna fjárskorts. Lyflækningasvið er rekið með 20 milljóna halla í
hverjum mánuði og mun samdrátturinn bitna hart á bráðaþjónustu.
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 38
Sjónvarp 48
Vanefni í Klink og bank
Vanefni er yfirskrift samsýningar á
myndlist sem opnar í dag í húsnæði
Klink og bank. Þar verður heiðruð sú
stefna að andinn sé gull og efnið skítur.
Myndlistasýning: Tíðarandinn:
Útlitið á rokkurunum virðist ganga í
hringi. Helstu rokkararnir í dag sækja
útlit sitt í smiðjur rokkara sem gerðu
allt brjálað á árum áður.
Rokktískan endurtekur sig
SÍÐUR 32 & 33
▲SÍÐA 26
▲
Tíu ríki bættust í hóp aðildarríkja Evrópusambandsins í nótt:
Nýtt tímabil í sögu Evrópu
EVRÓPA Stækkun Evrópusambands-
ins til austurs var fagnað víða í Evr-
ópu í gær, síðasta daginn áður en
átta fyrrum austantjaldsríki og
tvær Miðjarðarhafseyjur urðu
aðilar að sambandinu. Tugir þús-
unda tóku þátt í athöfnum sem var
efnt til í gær en ríkin tíu fengu að-
ild að sambandinu þegar klukkan
sló tólf á miðnætti í Brussel og
Róm.
„Nýtt tímabil er hafið í sögu Evr-
ópu,“ sagði Guy Verheugen, forsæt-
isráðherra Belgíu, við athöfn nærri
höfuðstöðvum Evrópusambandsins
í Brussel. Franski starfsbróðir
hans, Jean-Pierre Raffarin, var enn
tilfinningaríkari þegar hann lýsti
viðbrögðum sínum. „Ég tárast,“
sagði hann.
Landsvæðið sem Evrópusam-
bandið teygir sig yfir stækkaði um
fjórðung og íbúafjöldinn jókst um
fimmtung þannig að nú búa rúm-
lega 450 milljónir manna í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins. Þó er
hætt við að Kýpur-Tyrkir sjái litla
ástæðu til að fagna í dag þar sem
Kýpur-Grikkir felldu áætlun Sam-
einuðu þjóðanna um sameiningu
eyjarinnar og komu þar með í veg
fyrir að tyrkneski hlutinn fengi
aðild að Evrópusambandinu. ■
Nýr háskóli:
Heiti ekki
eftir Reagan
BANDARÍKIN Ekkert verður úr því
að settur verði á fót háskóli í
Bandaríkjunum sem ber nafn
Ronalds Reagan, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, í það minnsta
ekki á næstunni. Nancy Reagan,
kona hans, hafnaði hugmyndum
manna sem hafa unnið að stofnun
skólans en samkvæmt bandarísk-
um lögum ræður forseti eða maki
hans því hvort skóli fái að bera
nafn forsetans.
Hvatamenn að stofnun skólans
gerðu ráð fyrir að 10.000 stúdent-
ar gætu stundað nám þar og höfðu
fengið vilyrði landeiganda fyrir
því að gefa jörð undir skólann. ■
FH vann
Íslandsmeistarana
Íslandsmótið í handbolta:
● leika oddaleik á morgun
SÍÐA 41
▲
M
YN
D
/A
P
RONALD REAGAN
Margir dá forsetann fyrrverandi, nokkrir
þeirra vildu nefna háskóla eftir honum
en kona hans hafnaði því.
Frumlegir þjófar:
Faldi soninn
í ferðatösku
HONG KONG Karlmaður í Hong Kong
var handtekinn eftir að tólf ára
sonur hans fannst falinn í ferða-
tösku sem maðurinn hafði með sér
í rútuferðalag. Maðurinn var ekki
að reyna að komast hjá því að
borga fargjaldið fyrir soninn held-
ur átti sonurinn að opna aðrar tösk-
ur í farangursgeymslu rútunnar og
ræna verðmætum úr þeim.
Tollverðir fundu drenginn þegar
þeir skoðuðu farangur mannsins á
eftirlitsstöð milli Hong Kong og
meginlands Kína en þeim þótti mað-
urinn haga sér undarlega. Drengur-
inn var með vasaljós, skrúfjárn og
farsíma á sér. Maðurinn var hand-
tekinn en engum sögum fer af hvað
varð um drenginn. ■