Fréttablaðið - 01.05.2004, Qupperneq 12
12 1. maí 2004 LAUGARDAGUR
EVRÓPUKÓK
Stækkun Evrópusambandsins til austurs
hefur verið fagnað með ýmsum hætti. Í
Póllandi má fá sérstaka útgáfu af kókflösk-
um þar sem búið er að bæta stjörnum
Evrópusambandsins við vörumerkið fræga.
Vinir Afríku:
Unnið gegn malaríudauða
SJÁLFBOÐALIÐAR Tíu prósent barna
undir fimm ára aldri í sunnan-
verðri Afríku deyja af völdum
malaríu. Júlíus Valdimarsson fer
fyrir hópi fólks sem vinnur í sjálf-
boðavinnu við að stöðva malaríu-
dauða og leita þau að sjálfboða-
liðum sem vilja leggja málstaðn-
um lið.
Á sunnudaginn klukkan tvö
verður fundur á kaffi Sólon þar
sem verkefnið verður kynnt en
leitað er eftir fólki sem vill hjálpa
til við fjáraflanir og uppákomur
til að styrkja verkefnið, síðar
gætu sjálfboðaliðarnir jafnvel
farið til hjálparstarfa í Afríku.
Fjáröflunin er til að styrkja kaup
á flugnanetum fyrir börn undir
fimm ára en þau hafa engar varn-
ir gegn malaríu. Af þeim tveim
milljónum manna sunnan Sahara
sem deyja árlega af völdum malar-
íu er helmingur þeirra börn. ■
ALÞINGI Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýndu Valgerði
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra
harðlega fyrir að neita að opin-
bera niðurstöð-
ur starfshóps,
sem skipaður
var til að endur-
skoða ákvæði
samkeppnislaga
um verkaskipt-
ingu á milli Sam-
keppnisstofnun-
ar og Ríkislög-
reglustjóra, en
brot á sam-
keppnislögum
voru rædd utan
dagskrár á Al-
þingi í fyrradag.
Við upphaf
þingsins gerði
Bryndís Hlöðversdóttir, Samfylk-
ingunni, athugasemdir við að
gögnin yrðu ekki lögð fram, en
ráðherra vísaði í upplýsingalög
þar sem málið væri enn til með-
ferðar hjá ríkisstjórn og yrði ekki
lagt fyrir yfirstandandi þing
„Það hefur verið skilningur á
því að slá þurfi skjaldborg um
pólitíska stefnumótun meðan hún
er á viðkvæmu stigi,“ sagði
Valgerður.
Kveikjan að þessu var rann-
sókn Samkeppnisstofnunar á
meintu samráði olíufélaganna,
en deila viðskiptaráðherra og
dómsmálaráðherra um vald-
mörkin er enn óleyst. Bryndís
sagði mikilvægt að Samkeppnis-
stofnun hefði nauðsynlegar
heimildir til að rannsaka brot, en
rannsóknir stofnunarinnar
mættu ekki tefja fyrir rannsókn
lögreglunnar. Ágallar hefðu
þegar komið fram á reglum í
þessu sambandi.
„Deila Samkeppnisstofnunar
og Ríkislögreglustjóra gerir þá
kröfu að skýra verður lögin.
Ekkert bólar á tillögum við-
skiptaráðherra til úrbóta og enn
er óvissa fyrir hendi um vald-
mörk þessara stofnana. Þetta er
algjörlega óviðunandi ástand,“
sagði Bryndís.
Valgerður sagði frumvarps-
drög nefndarinnar gera ráð fyrir
að rannsókn á meintum brotum
fyrirtækja færi fram innan Sam-
keppnisstofnunar, en lögregla
færi með mál sem varða einstak-
linga. „Ekki verður séð að slík til-
högun brjóti gegn Mannréttinda-
sáttmála Evrópu, enda er hún
fyrir hendi til dæmis í Bretlandi
og í Þýskalandi,“ sagði ráðherra.
Valgerður greindi frá því að
rannsókn Samkeppnisstofnunar
á meintu samráði olíufélaganna
miðaði vel og málið væri einnig
til rannsóknar hjá lögreglunni,
lagaóvissa hefði ekki tafið fram-
gang málsins. Þegar litið væri til
framtíðar væri æskilegt að finna
verkaskiptingu milli þessara
stofnana fastari farveg.
Steingrímur J. Sigfússon,
Vinstri grænum, taldi það ámæl-
isvert að viðskiptaráðherra héldi
skýrslu um þessi mál frá þinginu
og benti á rétt þingmanna til að
krefja ráðherra svara. Jóhanna
Sigurðardóttir, Samfylkingunni,
sagði ráðherra misbeita valdi
sínu og sýna þinginu ósvífni og
niðurlægingu. „Hvað hefur ráð-
herrann að fela,“ spurði Jóhanna.
bryndis@frettabladid.is
Samtök atgvinnulífsins:
Samið við
Samiðn
KJARASAMNINGAR Samtök atvinnu-
lífsins og Samiðn, samband iðn-
félaga, hafa gengið frá nýjum kjara-
samningi. Samningurinn gildir frá
26. apríl 2004 til ársloka 2007.
Almennar launahækkanir og hækk-
anir á lífeyrisframlögum eru þær
sömu og í fyrri samningum Sam-
taka atvinnulífsins. Þá eru kaup-
taxtar færðir nær greiddum laun-
um á svipaðan hátt og gert var í ný-
gerðum kjarasamningum við Raf-
iðnaðarsambandið og MATVÍS.
Innan Samiðnar eru byggingar-
menn, málmiðnaðarmenn, bíliðna-
menn, netagerðarmenn, garðyrkju-
menn og hárgreiðslufólk. ■
Mörkinni 6. Sími 588 5518
OPIÐ
Virka daga
frá kl. 10-18
Laugardaga
frá kl. 10-16
SUMARTILBOÐ
Stuttar og síðar kápur,
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnkápur bolir, peysur
og slæður.
15-50% Afsláttur!
Mjódd - Sími 557 5900
OPIÐ Í DAG 1. MAÍ
VERIÐ VELKOMNAR
JÚLÍUS VALDIMARSSON
Júlíus í hópi sjálfboðaliða eftir vel heppnað verkefni.
VIÐSKIPTARÁÐHERRA GAGNRÝNDUR
Valgerður Sverrisdóttir var sökuð um það á Alþingi í fyrradag að misbeita ráðherravaldi sínu með því að neita að afhenda þingmönnum
gögn um valdmörk Samkeppnisstofnunar og Ríkislögreglustjóra. Bryndís Hlöðversdóttir sagði það algjörlega óviðunandi ástand.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
„Það hefur
verið skilning-
ur á því að
slá þurfi
skjaldborg
um pólitíska
stefnumótun
meðan hún
er á við-
kvæmu stigi.
Sökuð um að leyna
upplýsingum
Valgerður Sverrisdóttir er sökuð um að niðurlægja þingið með því að
neita að afhenda gögn um valdmörk Samkeppnistofnunar og lögreglunn-
ar. Eðlilegt að slá skjaldborg um pólitíska stefnumótun segir ráðherra.
…með allt fyrir fjölskylduna
BROTIST INN Í BLÓMABÚÐ Brot-
ist var inn í blómabúðina Blóma-
lind í Búðardal í fyrrinótt. Þjóf-
urinn braut glugga, sem hann
spennti síðan upp og skreið inn.
Hann stal happaþrennum og
fleiri vörum að verðmæti um 30
þúsund krónur. Málið er í rann-
sókn.
HRAÐAKSTUR Um tuttugu voru
teknir fyrir of hraðan akstur í um-
dæmi Blönduóslögreglunnar í gær.
AÐALMEÐFERÐ HEFST Í JÚNÍ
Ákveðið var í fyrirtöku á Lands-
símamálinu í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær að aðalmeð-
ferð þess skyldi hefjast 2. júní
næstkomandi. Dómari í málinu
verður Símon Sigvaldson og með-
dómarar eru þeir Skúli Magnús-
son og Helgi I. Jónsson dóm-
stjóri. Fimm manns eru ákærðir í
málinu og var Árni Þór Vigfússon
sá eini ákærðu sem mætti í hér-
aðsdóm í gær.
■ Lögreglufréttir ■ Dómsmál