Fréttablaðið - 01.05.2004, Síða 18

Fréttablaðið - 01.05.2004, Síða 18
Það stendur mikið til,“ segirKR-ingurinn Hafsteinn Egils- son. „Við erum að fagna 105 ára afmæli KR og ætlum að byrja sumarið með stæl með skemmt- un í KR-heimilinu í kvöld.“ Það eru Stuðmenn sem halda uppi fjörinu á fagnaðinum en KR-bandið hitar upp stemning- una í húsinu. „KR-bandið er samansett af hreinræktuðum KR-ingum með Guðjóni Hilm- arssyni í broddi fylkingar og bandið spilar einungis Bítlana, Rolling Stones og KR-lög. Stuð- menn taka svo við af KR-band- inu um ellefu leytið.“ Skemmtunin í kvöld hefst með þriggja rétta máltíð. „Það verður hátíðarkvöldverður fyrir þá sem vilja. Við vorum með 1.200 manns í mat í KR-heimil- inu þegar félagið hélt upp á 100 ára afmælið. Nú hefur verið ákveðið að halda afmælisfagnað á fimm ára fresti og við höldum upp á afmælið í dag af því tilefni að Íslendsmeistaramótið er að hefjast. Boltinn er farinn að rúlla og KR-ingar eru alltaf svo bjartsýnir á vorin. Það er því til- valið fyrir alla Vesturbæinga að skella sér á ball, hitta KR-inga og halda upp á vorkvöld í Vest- urbænum.“ Húsið verður opnað klukkan 19.30 í kvöld en á skemmtuninni í kvöld verða veittar viðurkenning- ar fyrir þá sem hafa átt sérlega langt og gott starf á vegum KR. ■ Eftir átján ára stjórn Íhalds-manna í Bretlandi náði Verka- mannaflokkurinn, með Tony Blair í forsvari, stórsigri í þingkosningum á þessum degi árið 1997. Verka- mannaflokkurinn undir heitinu „New Labour“ náði 179 sæta þing- meirihluta sem er stærsti meiri- hluti sem bresk stjórn hefur haft síðan 1935. Með þessum sigri varð Tony Blair, þá 43 ára, yngsti for- sætisráðherra Breta í meira en öld. Frjálslyndum demókrötum gekk einnig vel í þessum kosningum og tvöfölduðu fjölda þingmanna sinna, þrátt fyrir að fá færri atkvæði en í kosningunum 1992. Fylgi Íhalds- flokksins hins vegar, með þáverandi forsætisráðherra, John Major, galt afhroð með minnsta kjörfylgi sem flokkurinn hafði fengið síðan 1832. Í kjölfarið sagði Major af sér sem leiðtogi flokksins og William Hague var kosinn í hans stað. Í kjölfar kosninganna voru margir sem efuðust um að Íhalds- flokkurinn gæti náð aftur meiri- hluta á þingi í næstu kosningum, þar sem bilið á milli flokkanna væri of mikið. Enda sannreyndist það í kosningunum 2001 þegar þing- mönnum Íhaldsflokksins fjölgaði um einn á meðan þingmönnum Verkamannaflokksins fækkaði um sex. Þar sem staða Íhaldsflokksins hafði ekki vænkast eins og vænst var sagði Hague af sér sem formað- ur Íhaldsflokksins eftir kosningar 2001. ■ ■ Þetta gerðist 1786 Wolfgang Mozart frumsýnir óper- una Brúðkaup Figaros í Vín. 1867 Lundúnarsáttmálinn er undirritað- ur og hlutleysi Lúxemborgar þar með tryggt. 1883 Buffalo Bill stjórnar fyrstu Villta vesturs sýningu sinni. 1898 Bandaríski hershöfðinginn Geor- ge Dewey vinnur stórsigur gegn spænska flotanum í Manilaflóa í stríði milli Spánar og Bandaríkja- manna. 1941 Citizen Kane með Orson Welles í aðalhlutverki frumsýnd í New York. 1948 Alþýðulýðveldi Kóreu er stofnað. 1960 Bandarísk U2 njósnaflugvél skotin niður í flugi yfir Sovétríkin. 1967 Elvis Presley giftist Priscillu Beauli- eu í Las Vegas. TONY BLAIR Kom, sá og sigraði með Verkamanna- flokknum árið 1997 og varð í kjölfarið yngsti forsætisráðherra Breta í rúma öld. Valdatíð Blair hefst 18 1. maí 2004 LAUGARDAGUR ■ Afmæli Björn Magnússon, Þórðarsveig 3, lést miðvikudaginn 28. apríl. Huld Dalrós Ásgrímsdóttir, Lönguhlíð 5a, Akureyri, lést fimmtudaginn 22. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörg Guðmundsdóttir (Dúdda), Aflagranda 40, Reykjavík, lést miðviku- daginn 28. apríl. 13.00 Dagný Guðmundsdóttir, Sunnu- vegi 3, Skagaströnd, verður jarð- sungin frá Hólaneskirkju. 13.30 Arndís Þorbjarnardóttir áður til heimils á Víðivöllum 10, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfoss- kirkju. 14.00 Guðfinna Helgadóttir frá Ey, Njálsgerði 10, Hvolsvelli, verður jarðsungin frá Breiðabólsstaðar- kirkju í Fljótshlíð. 1. maí 1997 TONY BLAIR ■ Breski Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í kosningum á þessum degi. Afmæli KR FAGNAR ■ 105 ára afmælinu og af því tilefni verður slegið upp Stuðmannaballi í KR-heimilinu í kvöld. GLENN FORD Ein aðalstjarna hvíta tjaldsins á síðustu öld er 88 ára í dag. 1. maí Það var einfaldlega leitað tilmín af stjórn leiklistar- sambandsins og það stóð þannig á að ég gat tekið þetta að mér,“ segir Helga E. Jónsdóttir nýráð- inn framkvæmdastjóri Grím- unnar, sem eru íslensku leik- listarverðlaunin. „Mér finnst þetta mjög spennandi verkefni. Það tókst mjög vel til á síðasta ári sem var í fyrsta skipti sem verðlaunin voru veitt og þau verða nú með svipuðu sniði. Það er verið að ganga frá samning- um við kostunaraðila og verð- launaafhendingin verður í beinni útsendingu.“ Þessa dagana eru leikhús- stjórar leikhúsanna að safna saman afrakstri leikársins til að veita nefndinni upplýsingar. „Það er tæplega þrjátíu manna valnefnd, sem enginn veit hver er í, sem reynir að skoða allar sýningar. Síðan verður kosning þar sem hver nefndarmaður vel- ur í flokka. Þá verður endanlega valið úr þeim sem eru tilnefndir og tilkynnt um þá sérstaklega. Enginn veit svo hver mun hljóta verðlaunin fyrr en að kvöldi 16. júní.“ Helga segir að úr afrakstri síðasta leikhússárs séu spennandi verk sem verið er að velja úr. „Það er mikill vaxtar- broddur í íslensku leikhúslífi. Gífurlega stór hópur leikhús- manna er að störfum sem sýnir mikla áræðni og það er ekki síst unga fólkið sem er óhrætt við að fara ótroðnar slóðir. Hér á landi er stöðug þróun í listgreininni og fagmennska vex jafnt og þétt. Það er mjög þarft að líta yfir leikárið og fagna með þess- um verðlaunum, sem stuðla fyrst og fremst að fagmennsku í leikhúslífinu.“ ■ Tímamót HELGA E. JÓNSDÓTTIR ■ nýr framkvæmdastjóri Grímunnar. Mikil birta og sólskin í leikhúsinu HELGA E. JÓNSDÓTTIR Segir mikinn vaxtarbrodd í íslensku leikhúslífi og að fagmennskan í greininni vaxi jafnt og þétt. Vorkvöld í Vesturbænum STUÐMENN Ætla að fagna vorinu með Vesturbæingum í kvöld á 105 ára afmæli KR. ■ Jarðarfarir ■ Andlát Ragnheiður Torfadóttir, fyrrum rektor MR, er 67 ára. Álfheiður Inga- dóttir líffræðingur er 53 ára. Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur er 52 ára. Ragnheiður Gestsdóttir rit- höfundur er 51 árs. Páll Ólafsson handboltaþjálf- ari er 44 árs. Viktoría og Nótt falleg nöfn Mér þykir vænt um nafnið mittþó það sé svolítill tungu- brjótur og virki ekki mjög vel í út- löndum,“ segir leikkonan Arn- björg Hlíf Valsdóttir. „Mig langaði reyndar til að heita Lísa þegar ég var lítil og notaði það nafn þegar ég var að leika mér. Ég nefndi svo hestinn minn Nótt, en Nótt og Viktoría finnst mér bæði ákaflega falleg nöfn. Í dag langar mig þó ekki að heita neitt annað en Arn- björg Hlíf.“ ■ ■ Hvað vildirðu heita? …með 105 verslanir, veitingastaði og kaffihús

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.