Fréttablaðið - 01.05.2004, Síða 46
34 1. maí 2004 LAUGARDAGUR
Leiklistarneminn Guðjón Dav-íð Karlsson sló eftirminni-
lega í gegn í hlutverki Kela í
söngleiknum Grease sem sýnd-
ur var í Borgarleikhúsinu fyrir
nokkru. Gói, eins og hann er
gjarnan kallaður, er á þriðja ári
í leiklist við Listaháskóla Ís-
lands en hefur komið víða við á
leiklistarferli sínum sem er þó
bara rétt að byrja.
„Ég ákvað að gerast leikari
þegar ég var fimm ára en það
var aðallega af því að mig lang-
aði að vera svo margt. Ég er svo
praktískur maður að ég sá það í
hendi mér að ef ég yrði leikari
gæti ég orðið allt sem mig lang-
aði til að vera; lögga og allt það,“
segir Gói hlæjandi og bætir við:
„Ástæðan hefur kannski breyst
svolítið með árunum. Hún er
ekki ennþá sú að mig langi til að
vera svo margt en það var svona
upphaflega ástæðan.“
Hættuleg baktería
Gói lék í skólaleikritum í
Austurbæjarskóla en áhuginn á
leiklistinni kviknaði fyrir alvöru
þegar hann lék í sýningunni
Heimur Guðríðar eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur. „Þar var
ég í pínulitlu hlutverki en hjálp-
aði til með tæknina og annað.
Svo ferðaðist ég með atvinnu-
fólkinu um landið og það fannst
mér alveg frábært. Þá fann ég
að bakterían var orðin hættu-
lega sterk og ég sá að ég gæti
ekki gert neitt annað en að
verða leikari – ég myndi ekki
vera í rónni ef ég færi að vinna
á einhverri skrifstofu,“ segir
Gói, sem lék Sölmund Eyjólfs-
son í leikriti Steinunnar. Hann
fékk þó ekki að segja eitt auka-
tekið orð í sýningunni. „Ég held
að ég hafi verið inni á sviðinu í
svona 25 sekúndur. Ég var samt
alltaf að reyna að draga það –
labbaði hægt inn á og aftur hægt
út af. Mig langaði alltaf til að
segja eitthvað en þorði aldrei.
Kannski sem betur fer, það
hefði sennilega ekki fallið í góð-
an jarðveg.“
Leikhúsið alltaf jafn magnað
Gói segist alltaf hafa heillast
af leikhúsinu sem áhorfandi.
„Þó að ég hafi þreifað á hinum
ýmsu embættum leikhússins
finnst mér ennþá jafn merkilegt
að sitja í salnum, ljósin slokkna,
tjaldið er dregið frá og það
kviknar þetta líf beint fyrir
framan augun á áhorfendum.
Þetta er svo mikill töfra- og æv-
intýraheimur. Þótt ég þekki all-
ar brellurnar finnst mér þetta
alltaf jafn magnað. Mér finnst
þetta ofboðslega heillandi og
vinnan í leikhúsunum er mjög
skemmtileg. Ég get ekki hugsað
mér betri vinnu.“
Gói lék nokkur smáhlutverk
áður en hann fór að læra til leik-
listar en hann lék meðal annars í
Pétri Pan og Bláa hnettinum í
Þjóðleikhúsinu. Hlutverk Kela í
Grease var hins vegar fyrsta
stóra hlutverkið í atvinnusýn-
ingu eftir að hann byrjaði í skól-
anum. „Mér fannst Keli vera
aðaltöffarinn en mörgum þótti
hann svolítill lúði,“ segir Gói.
„Ætli ég sé ekki svolítill lúði í
mér en er stoltur af því.“
Hættulegt að verða
stimplaður
Það er afar stutt í grínið hjá
Góa og hann hefur stundum ver-
ið spurður að því hvort hann ætli
sér að verða grínleikari. „Ég
hugsa að hlutverkin skiptist
jafnt þegar ég lít yfir farinn veg.
Síðasta sumar lék ég til dæmis í
þremur sýningum en Keli í
Grease var eina grínhlutverkið.
Hin tvö voru meira að segja svo-
lítið mikið dramatísk,“ segir Gói,
sem stofnaði leikhópinn Hið lif-
andi leikhús í fyrra ásamt Þor-
leifi Arnarsyni, sem þá var nýút-
…með allt á einum stað
Leikl
baktería
hætt
Ég ákvað að verða
leikari þegar ég var
fimm ára en það var aðal-
lega af því að mig langaði
að vera svo margt.
,,
GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
Góa er margt til lista lagt. Hann leik-
ur einnig með hljómsveitinni Hollí-
vúdd sem spilar eingöngu íslenska
tónlist frá 1983-1995. „Við spilum
bara skemmtilegustu lögin og eina
hljómsveitin sem gerir það,“ segir
Gói, sem er farinn að skipuleggja
sveitaballarúntinn í sumar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
Þetta er meiriháttar, það er fisk-ur á hjá hverjum veiðimannin-
um á fætur öðrum hérna við vatn-
ið og þetta eru fallegir fiskar,“
sagði Gunnar Helgason leikari er
við hittum hann við Vífilsstaða-
vatn í vikunni. Í þann stutta tíma
sem við stoppuðum var bullandi
veiði í vatninu.
„Ég hef aldrei séð annað eins
hér við vatnið. Þetta er mokveiði,“
sagði Gunnar og gaf sig á tal við
veiðimann, sem var að koma með
fallegan silung að landi.
Aðeins utar í vatninu voru þrír
veiðimenn í hnapp og þeir voru
allir með fiska á í einu. Það var
fjör.
Ragnheiður Thorsteinsson
kastaði flugunni fimlega og það
voru fiskar að vaka víða um vatn-
ið. Skömmu seinna veiddi Ragn-
heiður fallegan silung.
Veiðin byrjaði í Elliðavatni í
morgun og veiðimenn voru mætt-
ir snemma á staðinn að renna fyr-
ir fiskinn. Veiðin á örugglega eft-
ir að vera góð fyrsta daginn, að-
stæður eru allavega fínar og oft
hefur verið kaldara en nú.
Margir veiðimenn hafa fengið
far upp að Elliðavatni í vikunni til
að kíkja á stöðuna, en það var
erfitt að fá ekki að taka eitt og eitt
kast.
Veiðin hefst líka formlega í
Þingvallavatni í dag en þar hafa
veiðimenn aðeins verið að taka
eitt og eitt kast og einn og einn
fisk. ■
VÍFILSSTAÐAVATN
Ragnheiður Thorsteinsson í Vífilsstaðavatni
í vikunni en skömmu seinna veiddi hún
fallegan silung.
Fiskur í hverju kasti
Elliðavatn opnað í morgun fyrir veiðimönnum.
Á veiðum
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiðiskap.
VEIÐIMAÐURINN Veiðimaðurinn
kom út í vikunni, málgagn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, og þar er
meðal annars að finna viðtal við
Bjarna Ómar Ragnarsson, for-
mann félagsins, Árna Baldursson
hjá Laxá og Þröst Elliðason hjá
Strengjum. Risarnir þrír á veiði-
leyfamarkaðinum skiptast á skoð-
unum og kemur margt merkilegt
fram í þessum samræðum, Meðal
annars er spurt hvort Stangó sé
tímaskekkja og hvort Ísland sé
fyrir Íslendinga, svo eitthvað sé
tínt til.
HÓPFERÐ AÐ LJÓSAVATNI Í dag
verður farin hópferð að Ljósa-
vatni í Ljósavatnsskarði frá
Gróðrarstöðinni á Akureyri
klukkan 16. Það eru Rúnar Þór
og Guðmundur Ármann sem
stjórna ferðinni. Skorað er á
félagsmenn í Stangaveiðifélagi
Akureyrar að fjölmenna og fá
tilsögn frá þeim sem þekkja
veiðistaðina í vatninu og vita
hvar silungurinn heldur sig.
FJÖR VIÐ SOGIÐ Það var fjör við
Sogið í vikunni þegar Loop,
SVFR og Fluguveiðiskólinn
héldu þar námskeið en Klous
Frimor frá Loop var leiðbeinandi
á námskeiðinu. Námskeiðið þótti
takast vel.
■ Veiðifréttir
FISKUR Á LAND
Málin rædd við Vífilsstaðavatn í vikunni. Fiskurinn kominn á land og nú er spáð í hvað
hann tók.