Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 53
41LAUGARDAGUR 1. maí 2004 YFIRÞJÁLFARI ÓSKAST! Unglingaráð handknattleiksdeildar Víkings óskar eftir að ráða yfirþjálfara fyrir keppnistímabilið 2004-05. Auk yfirumsjónar með skipulagi þjálfunar hjá Víkingi er yfirþjálfara ætlað að þjálfa 1-2 flokka hjá félaginu. Umsóknir og/eða fyrirspurnir berist á felagsmenn@vikingur.is fyrir 9. maí n.k. Kevin Keegan: Fáum tækifæri til að skrifa handritið FÓTBOLTI „Ég held að það sé ekki búið að skrifa handritið,“ sagði Kevin Keegan, framkvæmda- stjóri Manchester City. „En við fáum tækifærið til að skrifa það. Það væri gaman fyrir mig ef við kæmumst úr fallhættu á laugar- dag á heimavelli, þar sem okkur hefur ekki gengið sem best, gegn Newcastle, félagi sem ég hef bæði leikið fyrir og þjálfað.“ Keegan lék með Newcastle á ár- unum 1982 til 1984 og var fram- kvæmdastjóri þess á árunum 1992-1997. Sigur City á Newcastle og ósig- ur Leeds í Bolton á morgun væru óskaúrslit Manchester-liðsins. City hefur aðeins sigrað í þrem af sautján deildarleikjum sínum á heimavelli í vetur. City er í 17. sæti, þrem stigum á undan Leeds en hefur auk þess mun betri markatölu. „Einhverra hluta vegna höfum við ekki unnið eins marga leiki og við hefðum viljað á heima- velli,“ sagði Keegan. „En það þýðir ekki að við getum ekki klárað þetta með stæl, unnið tvo síðustu heima- leikina og komið okkur í burtu af fallsvæðinu. Ég hef alltaf haft það á tilfinningunni að við munum ekki falla. Úrslitin hafa ekki verið okk- ur í hag, við höfum gert jafntefli þegar við áttum að sigra og höfum dregist inn í fallbaráttuna,“ sagði Keegan. „Við höfum alltaf vænst þess að næsti leikur verði stóra stökk- ið fyrir okkur en við höfum átt í erfiðleikum með að vinna, sér- staklega hér á heimavelli. Við verðum að kippa þessu í lag á móti Newcastle, sem er að keppa að allt öðrum markmiðum en við,“ sagði Keegan. „Þetta verður erfiður leikur en engu að síður eigum við að geta sigrað.“ ■ Sacramento Kings slógu út Dallas Mavericks: Mike Bibby með stjörnuleik KÖRFUBOLTI Sacramento Kings slógu Dallas Mavericks út í fyrstu um- ferð úrslitakeppni NBA-deildar- innar í körfuknattleik með sigri í sannkölluðum spennuleik, 119-118. Þar með fór einvígið 4-1 og kemur það kannski nokkuð á óvart því lið- in voru með svipaðan árangur í deildakeppninni. Sacramento var fimm stigum yfir, 119-114, þegar 3:21 voru eftir og lokaspretturinn var æsilegur. Dallas minnkaði muninn í eitt stig og fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn en Dirk Nowitski hitti ekki úr erfiðri skot- stöðu. Mike Bibby átti sannkallað- an stórleik fyrir Kóngana og skor- aði 36 stig sem er það mesta sem hann hefur skorað í úrslitakeppni á sínum ferli. Að auki gaf hann 8 stoðsendingar, reif niður 4 fráköst og var með 5 stolna bolta – þokka- legur leikur það! Peja Stojakovic skoraði 23 stig og hirti 10 fráköst, Brad Miller var með 23 stig og þeir Doug Christie og Chris Webber 13, Christie gaf að auki 8 stoðsending- ar og hirti 6 fráköst og Webber var með 7 fráköst. „Ég vissi að enginn okkar myndi vilja fara aftur til Dallas á þessu keppnistímabili,“ sagði Bibby og bætti við: „Það kom ekkert annað til greina en að nýta tækifærið til fulls og klára einvígið í þessum leik og sem betur fer tókst það.“ Hjá Dallas var Dirk Nowitski með 31 stig og 14 fráköst, Steve Nash setti niður 24, gaf 14 stoðsendingar og tók 7 fráköst. Marquis Daniels skoraði 19 stig og Antonie Walker skoraði 15 stig og reif niður 13 fráköst. „Hann hrein- lega kálaði okkur í þessum leik,“ sagði Steve Nash um frammistöðu Mike Bibby: „Hann kom þeim aftur inn í leikinn með mikilvægum körf- um og var síðan ótrúlega sterkur undir lokin.“ Dallas Mavericks eru því úr leik mun fyrr en menn á þeim bæ gerðu ráð fyrir og spurn- ing hvort Jón Arnór Stefánsson fái ekki tækifæri strax næsta haust – það virðist ekki veita af. ■ LEIKIR Í DAG Arsenal - Birmingham Blackburn - Man. United Charlton - Leicester Chelsea - Southampton Man. City - Newcastle Portsmouth - Fulham Wolves - Everton LEIKIR Á MORGUN Aston Villa - Tottenham Bolton - Leeds Liverpool - Middlesbro STAÐAN Arsenal 34 24 10 0 69:24 82 Chelsea 35 22 6 7 61:29 72 Man. United 35 22 5 8 61:33 71 Liverpool 35 14 11 10 49:36 53 Newcastle 34 13 14 7 47:34 53 Aston Villa 35 14 10 11 46:41 52 Fulham 35 13 9 13 49:44 48 Charlton 35 13 9 13 44:45 48 Birmingham 35 12 12 11 42:44 48 Bolton 35 12 11 12 42:52 47 Southampton 34 12 9 13 39:35 45 Middlesbrough 35 12 9 14 41:44 45 Blackburn 35 11 7 17 49:57 40 Portsmouth 34 11 7 16 39:48 40 Everton 35 9 12 14 42:48 39 Tottenham 35 11 6 18 44:56 39 Man. City 35 7 14 14 48:51 35 Leeds 35 8 8 19 36:71 32 Leicester 35 5 14 16 42:60 29 Wolves 35 6 11 18 35:73 29 KEVIN KEEGAN Við höfum alltaf vænst þess að næsti leikur verði stóra stökkið fyrir okkur. MIKE BIBBY Lagði grunninn að sigri sinna manna með sannkölluðum stórleik. Við vorum tilbúnar frá upphafi FH sigraði ÍBV 30-27 í Kaplakrika í undanúrslitum RE/MAX-deildar kvenna í handknattleik. Félögin leika oddaleik í Eyjum á morgun. HANDBOLTI FH-stelpur gerðu það sem fæstir áttu von á í gærkvöldi – lögðu Eyjastelpur að velli í Kaplakrika í öðrum undanúrslita- leik liðanna í úrslitakeppni RE/MAX-deildar kvenna í hand- knattleik. Lokatölur urðu 30-27 í bráðskemmtilegum leik sem ein- kenndist fyrst og fremst af mikilli baráttu og leikgleði heimastelpna. Þær mættu gríðarlega vel stemmdar til leiks og náðu strax í upphafi góðum tökum á leiknum. Greinilegt var að FH-stelpur voru afar vel meðvitaðar um að það mætti alls ekki hleypa gestun- um í sinn hraða leik enda eru þær þekktar fyrir að refsa andstæð- ingunum harðlega fyrir hver mis- tök. Mest náðu þær svart/hvítu sex marka forskoti í fyrri hálfleik en gestirnir náðu að minnka mun- inn í þrjú áður en haldið var til búningsherbergja. Í síðari hálfleik héldu heimastelpur sínu þótt Eyjastelp- ur gerðu nokkrar harðar atlögur að þeim. Nokkur spenna hljóp í leikinn undir lokin þegar munur- inn varð aðeins tvö mörk en góður endasprettur tryggði FH-stelpum sætan en jafnframt óvæntan sig- ur sem þær áttu fyllilega verð- skuldaðan. Gunnur Sveinsdóttir fór mik- inn í liði FH og Þórdís Brynjólfs- dóttir var afar traust. Kristín María Guðjónsdóttir varði vel og oft á mikilvægum augnablikum og þær Bjarný Þorvarðardóttir og Björk Ægisdóttir stóðu vaktina vel. Annars ber að hrósa liðsheild- inni fyrst og fremst enda lagði hún grunninn að sigrinum. Hjá ÍBV var Guðbjörg Guð- mannsdóttir sterkust ásamt Önnu Yakovu. Julia Gautimorova var góð í markinu en miklu munaði fyrir liðið að lykilmenn eins og Sylvia Strass og Alla Gokorian fundu sig ekki nægilega vel. „Ég held að það sé óhætt að segja að fáir ef nokkrir hafi átt von á sigri okkar hér í kvöld nema við sjálfar,“ sagði besti maður vallarins í gærkvöldi, Gunnur Sveinsdóttir, leikmaður FH og bætti við: „Við breyttum í sjálfu sér ekki miklu frá því í leiknum í Eyjum, lögðum áfram áherslu á að trufla miðjuspilið hjá þeim og loka eins mikið á hraðaupphlaupin og mögulegt var. Munurinn á þessum leik og þeim fyrri var ein- faldlega sá að nú vorum við til- búnar frá upphafi og leikgleðin og baráttan var eins og best verður á kosið og fleytti okkur langt. Við vitum vel að það verður erfitt að vinna úti í Eyjum en við sýndum það hér að við getum þetta alveg og stefnum hiklaust á að halda áfram á þessari braut. Mörk FH: Þórdís Brynjólfs- dóttir 9/6, Gunnur Sveinsdóttir 7, Bjarný Þorvarðardóttir 5, Björk Ægisdóttir 4, Dröfn Sæmunds- dóttir 3 og Guðrún Hólmgeirs- dóttir og Sigrún Gilsdóttir eitt mark hvor. Kristín María Guðjónsdóttir varði 15 skot, þar af eitt víti. Mörk ÍBV: Anna Yakova 9/3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 7, Birgit Engl 5, Sylvia Strass 2, Alla Gokorian 2 og Edda Eggertsdóttir og Elísa Sigurðardóttir eitt mark hvor. Julia Gautimorova varði átján skot, þar af eitt vítakast. ■ FH VANN ÍSLANDSMEISTARANA Þórdís Brynjólfsdóttir skoraði níu mörk í sigri FH-inga á ÍBV. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.