Fréttablaðið - 27.05.2004, Síða 55

Fréttablaðið - 27.05.2004, Síða 55
43FIMMTUDAGUR 27. maí 2004 Saatchi brennur MYNDLIST Meira en hundrað lista- verk úr frægu nútímalistasafni Charles Saatchi hafa eyðilagst í eldsvoða. Eldur kviknaði í vöru- geymslu sem verkin voru geymd í. Nútímalistaverk eftir Tracey Emin, Damien Hirst, Sarha Lucas og Gary Hume eru á meðal verkanna sem töpuðust. Talsmaður Saatchi sagðist vera gjörsamlega eyðilagður vegna fregnanna og sagði tjónið hlaupa á milljónum punda. Svartan reyk lagði frá vöru- geymslunni þannig að brunans varð vart í margra kílómetra fjarlægð. Ekki er enn vitað nákvæm- lega hvaða verk eyðilögðust í eldinum. Fólk í listaheiminum er sammála um að þetta sé sorg- ardagur í sögu samtímalistar en margir af frægustu og virtustu listamönnum samtímans eru taldir eiga verk í skemmunni. Eitt af þeim verkum sem tal- in eru ónýt er tjald Tracey Emin en verkið bar titilinn „Everyone I Have Ever Slept With 1963–1995“. Á hliðar tjaldsins voru saumuð 102 nöfn elskenda hennar og ann- arra sem hún hafði eytt nótt með, svo sem fjölskyldumeðlima. Verk- ið var tilnefnt til Turner-verðlaun- anna og borgaði Saatchi 40 þúsund pund fyrir það. Verkið Hell eftir Chapman- bræðurna er einnig talið ónýtt en það voru stórir glerkassar sem sýndu hörmungar og eyði- leggingar. Talið er að Saatchi hafi borgað 500 þúsund pund fyrir verkið. ■ Með eða á móti fyrsta nýbúanum MYNDLIST Momentum, norræn sam- tímalistahátíð, stendur nú yfir í Moss í Noregi. Tæplega fjörutíu listamenn taka þátt í sýningunni og þrír af þeim eru frá Íslandi. „Sýn- ingarstjórarnir Per Tverbakk og Caroline Corbetta komu hingað til lands fyrir tveimur árum til að skoða listamenn hér á landi,“ segir Magnús Sigurðarson en hann er einn íslensku listamannanna sem taka þátt í sýningunni. „Rétt fyrir jólin höfðu þau svo samband við okkur Ragga Kjartans og Erlu S. Haraldsdóttur.“ Verk Íslendinganna voru af misjöfnum toga. „Erla gerði verk í samvinnu við sænska listamann- inn Bo Melin sem sýnt var á upp- lýstum auglýsingaskiltum úti um alla borg. Þetta voru ljósmyndir af götustemningunni í Moss en þau breyttu ásjónunni í átt að yfir- gefnu fátækrahverfi. Raggi Kjartans var hins vegar með eins konar sögumálverk af skútuteikn- ingum, skemmdu korni og mynd- bandi þar sem sviðsett var ofbeldi dansks nýlenduherra á skítugum, ósiðmenntuðum Íslendingi á fyrri hluta síðustu aldar.“ Greining hins augljósa var heitið á verki Magnúsar. „Það voru sjö manns í vinnu við að setja upp verkið og það tók viku að koma því upp. Við vorum með tuttugu tonn af norskum dagblöð- um og hlóðum fjögurra metra háan og níu metra langan vegg sem er hálfhruninn í annan end- ann. Það kviknar alltaf eitthvað líf út frá eyðileggingunni og við enda veggsins plantaði ég lúpínu,“ seg- ir Magnús. „Lúpínan er fyrsti ný- búinn á Ísland. Þegar hún var flutt inn varð allt í einu til fjólublátt landslag hér heima og lúpínan skipti þjóðinni í tvennt því annað hvort ertu með eða á móti lúpín- unni.“ Momentum hefur fest sig í sessi og vakið athygli út fyrir Norðurlöndin. „Þetta var mjög vel skipulagt og gaman fyrir okkur að vera tekin inn í þennan skandin- avíska hóp. Þekkt nöfn úr list- heiminum tóku þátt í umræðum í tengslum við opnunina og það er þýðingarmikið fyrir okkur að fá viðbrögð við listaverkunum.“ ■ Andar, trommur og söguhefð LISTAHÁTÍÐ Alla leið frá Thule í Græn- landi kemur trommudansarinn Robert Peary sem tekur þátt í tónlist- arverkefni með tónlistarmönnunum Geert Waegeman frá Belgíu, Mads Lumholt frá Danmörku og íslenska slagverksleikaranum Pétri Grétars- syni. Í sýningu sinni í Borgarleikhúsinu í kvöld verða sagðar tvær hefðbundn- ar sögur frá Qaanaaq-svæðinu sem fjalla um viðkynni manna við anda- heiminn. Peary er uppruninn frá þessu svæði í Grænlandi, en auk þess að vera trommudansari er hann einnig shaman og sögumaður. Eftir að sögurnar hafa verið sagð- ar mun sýningin breytast í blöndu af hefðbundnum grænlenskum trommu- söng og nútímatónlist, auk þess sem Pólstjörnurnar munu dansa og byggja á gömlum hefðum shamaisma. Þetta verður því líklega óvenjuleg sýning þar sem hefðir fjögurra landa blandast saman og áhorfendur vita ekki alveg á hverju þeir eiga von. ■ TJALD EMIN Myndin sýnir inn í tjald Emin, það er talið ónýtt eftir brunann í London BRUNARÚSTIR Þetta er mikið áfall fyrir unnendur samtímalistar, tjónið hleypur á milljónum punda. SAMTÍMALISTAMENN Ragnar Kjartansson, Magnús Sigurðarson og Erla S. Haraldsdóttir eiga öll verk á Momentum í Noregi. Þau standa hér fyrir framan verk Erlu. ■ LISTAHÁTÍÐ Í DAG 17.00 Tónlistartorg í Kringl- unni, Sigling með Guðna Franz- syni. 21.00 Pólstjörnur, samstarf íslenskra, grænlenskra og belgískra tónlistarmanna í Borg- arleikhúsinu. PÓLSTJÖRNUR Robert Peary, Mads Lumholt, Geert Wa- egeman og Pétur Grétarsson.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.