Tíminn - 18.03.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 18. marz 1973.
mm
mtth
Hlfltftó
•Irii Irrdr ííb ndcf
IW.J \1W) it.uírn
í^iKÍsVr lovt^rr. Nöíijlc iiiámc
luiknMtr ci Uusymt mtd <XrU\-
v<- iniliikT «>g r4íMli«>sni»(jí* r,
»r»! nm-iiciri tív« jjJimí ttíki-
•« t pA dm íúi, Itáittfckríftmic
íil, <>iir mc«á hcll fothí«i!<ö»f^
iktrrúúk ttf <lc gcsngívnc jprr-
r.
í™ lc«nini{cr < t j.» r.oik f*vcl .*í
ifev viri.f kfo&jrrnr, «>U' m vi ha
sri» rr. tírl. r c<<f l«vk<'<I r»«3
l*£k*lk ;>á hlifní, snm vkrrv !*><'» (
aí í-*-*r o*í *kiíycfietií}^I»v<í».'H
hotiUcix tölkimi^rn h«t vjf«
rct iiktc mlix'dr 4rt rn»J !»>«« ^t>
dcf u«4 ít*r »tiiicx. Mct. úcr lt.*t
JsfUrxi »i!r invJ fmhnkf hdir- ikkr
ViFtct :,»ng! fy i::>< r'ífíi
WiBldátvtíf t»l k!m<c»«:í, Tc^w rtn'
ÍWtfcr **ív tii <ic f.)5k, »h icencr.
Tcdr Knhcn-
ryntöK't ftm'rtj-
t.'mdslrtitcr »>c<!
>!.»«dikc hmarí~.
m&æM
tH$I finil lliit tsnfHit«2
AAynda
saga
stritsins
á
Norður
löndum
yfir, að þeim séu ekki gerð góð
skil i þessu glæsilega verki.
Þarna er að finna fjölda mynda
eftir Islenzka listamenn, látna og
núlifandi. Einnig löngu látna
listamenn, sem enginn veit nöfn
á.
Bókin spannar timabilið allt frá
steinöld fram á okkar daga. Að
vonum eru ekki kynntar hellna-
ristur frá Islandi, en töluvert er
til af þeim i Skandinaviu og
Danmörku og þegar á þeim tima
hjuggu menn myndir af erfiði
sinu i grjót. Þá voru plægðir akr-
ar og róið til fiskjar og dýr veidd á
landi og segja frumstæðar mynd-
ir höggnar í berg sina sögu um
daglegt lif þess tima. A vikinga-
öld fleygir vinnubrögðum fram,
og verða margþættari og sömu-
leiðis þær myndir, sem menn
gerðu þá af starfi sinu. Þær verða
skýrari og eru nú unnar I marg-
visleg efni.
Um 1300 kemur fyrst til kasta
íslendinga i þessari myndasögu.
Er þar um að ræða lýsingar I
handritum. Eru nokkrar blað-
siður bókarinnar helgaðar þvi
efni og sýna tslendinga við fisk-
veiðar, hvalskurð. smiðar, fjár-
gæzlu, flutninga og jafnvel
böðullinn er sýndur við sitt starf.
Broby-Johansen segir, að myndir
þessar séu gerðar af munkum i
islenzkum klaustrum, og sýni þær
fyrst og fremst daglega önn
manna á þeim tima, sem bækurn-
ar eru gerðar. Bendir hann á, að
lestrar- og skriftarkunnátta hafi
verið almennari á Islandi á þeim
timum en i nokkru ööru landi i
heiminum, og að þjóðhættir hafi
verið þannig i landinu, að lítið bil
var milli kofa hjáleigubóndans,
stórbændanna og klaustranna.
Allt voru þetta menningarsetur.
En þótt i þessu greinarkorni sé
aðallega getið um framlag
Islendinga til margnefndrar
bókar, má ekki gleyma, að furðu-
margt var og er starfað á öðrum
Norðurlöndum og á Grænlandi og
fór það#dont”ekki fram hjá þar-
lendum listamönnum, sem marg-
ir hverjir höfðu ekki síður list-
A bókarkápu er mynd eftir Munch af skógarhöggsmanni.
R. Broby-Johansen er heims-
þekktur danskur listfræðingur,
(kunsthistorikcr) og rithöfundur,
sem er einkar lagið að rýna lista-
verk og útskýra á annan hátt en
þeir fagurkerar sem kenna sig við
listfræöi. Broby-Johansen álitur
aö listin sé samtvinnuð < dagl.i llfi
mannsins og sé ekki og hafi aldrei
vcrið aðeins fyrir fáa útvalda.
Ilefur hann ritaö 20 bækur um
listfræðileg efni,þar sem hann
leggur áherziu á, að list sé ails-
staðar aö finna, ef maður aöeins
gefur sér tima til aö hyggja að
henni. Bækur Broby-Johansens
hafa verið þýddar á mörg tungu-
mál og gefnar út i stórum upp-
lögum. Undirrituöum er ekki
kunnugt um, að nein bóka hans
hafi verið þýdd á Islenzku, en
sjálfsagt eiga margir hériendir
bækur hans I skápum slnum,enda
eru nokkrar þeirra ávallt til I
bókaverziunum. Meðal þeirra
bóka hans, sem hvað mestum
vinsældum hafa náö eru „Krop og
Klær” og „Verdenskunst og Var-
dagskunst". Segja þessir bóka-
titiar nokkuð til um efni þeirra og
jafnframt um efnisvai hans og
iistskoðun yfirleitt.
Ariö 1969 kom út mikið verk
eftir Broby-Johansen sem ber
nafnið „Dagens Dont gennem Ar-
tusindernei’ I þeirri bók er safnað
saman listrænni tjáningu manns-
ins á daglegu starfi sfnu á öllum
timum og er úr flestum heims-
hornum. Sú bók seldist upp á
stuttum tima og var gefin út i
annað sinn.
Nú er komin út önnur bók um
sama efni, en að þessu sinni tak-
markar höfundurinn sig eingöngu
við Norðurlönd og Grænland.
Heitir sú bók „Dagens Dont i
Norden” eða Dagleg önn á
Norðurlöndum. Undirtitill er
Myndræn vinnusaga i Danmörku,
Noregi, Svíþjóö, á Islandi, Fær-
eyjum, Grænlandi og meðal
Lappa. I formála segir Broby-Jo-
hansen, að i fyrri bók hans um
vinnuna hafi efnið verið svo yfir-
gripsmikið, að ekkert rúm hafi
veriö fyrir slikan afkima jaröar,
sem Norðurlöndin eru, en úr þvi
sé bætt meö þvi að gefa úr sér-
staka bók um vinnuna á Norður-
löndum eins og myndlistarmenn
tjá hana.
Bók þessi er á fjórða hundrað
blaðsíður að stærð og er að
meginuppistöðu myndir, flestar
prentaðar i litum og er bókin hinn
eigulegasti gripur.
Islendingar þurfa sizt að kvarta
Myndir úr Isienzkum handritum af daglegum störfum á miðöldum.