Tíminn - 18.03.1973, Blaðsíða 24

Tíminn - 18.03.1973, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 18. marz 1973. gæti dunið yfir þau á hverri stundú: — Þessi maður á ekki að borga fötin okkar. Ef hann borgar þau, fer ég ekki i þau. Ég vil ekki, að hann borgi neitt fyrir okkur. Þau voru komnir flekkir i andlitið á Hugh, Caddie var orðin vand- ræðaleg, en Pia hafði óðara geng- ið burt. Hún stóð i dyragættinni sneri að þeim baki og raulaði smálag. — Hver borgar þau? — Ég, sagði Fanney. — Hver á peningana? — Ég á þá. En Hugh lét ekki leika á sig. — Hjá hverj- um fékkstu þá? — Hjá... föður þinum, sagði Fanney hikandi. — Föður minum? Svarið var svo óvænt, aö Hugh varð orðlaus. En peningarnir voru að vissu leyti frá Darrell, hugsaði Fanney hrygg. — Eigimaður þinn hefur sýnt göfuglyndi. Minna verður ekki sagt.haföi MacCrae málflutn- ingsmaðurinn hennar mælt, og hann skýrði Fanneyju frá þvi, að Darrell hefði meö fyllstu sann- girni og lagalegum rétti getað höfðað mál gegn Rob fyrir að ginna eiginkonu hans. — Eins og högum herra Auillets er háttað, er þetta i sannleika ginning, mælti McCrae og leit af Fann- eyju. Það var alls ekki þannig. Alls ekki, langaði Fanneyju til að hrópa, en það var gagnslaust að segja slikt við McCrae, sem hafði haldið áfram að benda henni á, hvernig Darrell hefði misst gleð- ina, sem hann hefði haft af konu sinni, og um leið þá stoð og styttu, sem hún hefði verið honum. Samt sem áður vildi hann ei lögsækja Quillet né krefjast skaðabóta, en setti það skilyrði, að herra Quillet legði fram tiltekna fjárupphæð — samsvarandi þeirri, sem Darrell legði fram handa Fanneyju. — Og yfir þessu fé hafið þér algeran umráðarétt. - En mér er ómögulegt að taka við þessu. Ég gæti það ekki, hafði Fanney hróp- að og ætlað aö kafna af blygðun og kvöl , en það var ekki aðeins Darrell, heldur Rob, sem vildi þetta endilega. — Það getur alltaf eitthvað komið fyrir, hvenær sem er, einkum i kvikmyndaheimin- um. Auk þess er alltaf rétt að sýna göfuglyndi. Þannig var Darrell, ráðvandur og umhyggjusamur. Ekkert af þvi, sem gerzt hafði, féll Fanneyju jafnþungt og þetta. Lifeyrir lsabellu frænku hvarf, um leið og hún dó en Fanney bjóst við að fá eitthvað fyrir húsið og húsgögnin, sem átti að selja og hún hafði einnig erft nokkur hundruð pund, sem Isabella hafði lagt fyrir handa Fanneyju. Hún hafði þegar eitt miklu af þessum peningum fyrir fæði og húsnæði, siðan hún fór frá Stebbings. Hún hafði greitt McCare og flugmið- ann til Milanó, og hún hafði einnig keypt sér föt, til dæmis þennan greiðsluslopp. Fyrir utan arfinn frá ísabellu frænku, sem hefði áreiðanlega látið i ljós, vanþókun á framferði Fanneyjar, átti Fanney, sem aldrei hafði átt grænan eyri sjálf, innstæðu i bankabók, skuldabréf, ágóða- hluta og hlutabréf i fyritækjum svo að hún hefði getað sagt drembilega, um leið og hún borgaði: — Hugh, viltu gjöra svo vel aö vera ekki alltaf að skipta þér af þvi, sem fullorðið fólk er að gera. Þeim fannst friðsælt aö koma út i sólskinið i Riva. Niöri við höfn- ina voru fiskimennirnir að dytta aö bátunum sinum, mála þá og laga stafina i nöfnunum, Delfinu, Mariu, Cristinu. Pia og Caddie námu staðar til þess að horfa á, en Hugh hélt áfram einn meö hendurnar i vösunum og sparkaði smásteinum á undan sér. Hann blistraði ekki, Fanney hafði ekki heyrt hann blistra, siðan hann kom á sveitasetrið. Hún titraði enn eftir þessa leiðinlegu miskliö i búðinni. Allt i kringum þau var þýzkt ferðafólk. Mér geðjast vel að Þjóðverjum, hugsaði Fanney. En þessir! Þarna voru holdugar konur i þungum ullarkápum með örlitla flókahatta ofan á hvirfl- inum. Eiginmenn þeirra voru jafnvel enn þreknari. Þjóö- verjarnir voru i öllum gjafa- búöum og á hverju veitingahúsi, þar sem þeir innbyrtu griðar- stórar súkkulaðikökur með þeyttum rjóma, ávaxtabúðinga eða is. Þeir voru kverkmæltir og töluðu svo mikið, að það var eins og loftiö fylltist af suði. Fanneyju langaði heim, en hún flýtti sér á eftir Hugh. — Hughi. Hann leit á hana með reiðisvip. Hann var enn i vondu skapi. — Ég býst við, að hann borgi reikningana á sveitasetrinu. — Auövitað. Hann leigir sveitasetrið. Hún bætti við: — Ég býst við að þið verðið að vera gestir Robs. Hún vissi, að börn urðu oft aö brjóta odd af of- læti sinu, svo að hún sagði i mildum rómi „Gestir hans”. Gestum er boðið. — Jæja, þá eruð þið ekki gestir. Rob hugsar ekki um peninga. Við viljum bæði hafa þig hjá okkur, hvenær sem er, sagði hún — Þú ert sonur minn, og nú ertu einn af okkur. Hugh fnæsti. — En jafnvel þótt þessu sé þannig fariö, get ég ekki haft þig oft hjá mér næstu ár, sagði Fanney. — Hugh getum viö ekki reynt að njóta...En hún gat ekki haldið áfram.. reynt að spilla ekki þessum stutta tima. En Húgh yppti bara öxlum og gekk i áttina að bilnum Allar tilraunir Fanneyjar virtust fara út um þúfur. — Við megum ekki láta timann hérna á Itali'u fara til ónýtis, var hún vön aö segja — Ef til vill kemurðu hingað aldrei aftur — Ekki, ef ég má ekki til, svaraði Hugh. — En það getur ekki veriö, að þú kunnir ekki við Italiu. Þögn. —Það getur verið þannig i pottinn búið, aö við getum ekki kunnað við okkur þar , var eins og fælist I þögn Hughs, en Fanney gafst ekki upp. Við verðum að fara til Verónu. Einmitt þar bjuggu Romeó og Júlia. — Ég hélt aö Romeó og Júlia hefðu ekki veri til, sagði Caddie áhugalaus — Italia er sannarlega land Shakespeares, sagði Fanney og reyndi að láta röddina lýsa hrifningu.—Hvers vegna eru mæður alltaf svona áfjáðar að auka þekkingu barna sinna? hugsaði Rob. — Mantúa, Padúa og Veróna. Þessar borgir eru i öllum leikritum hans. Við vitum það, sagði Hugh — Það væri kjánaskapur af þér að sjá ekki Verónu, sagði Rob. Honum gramdist, hvað Hugh var önugur við Fanneyju, sem var bliö i máli. Gömlu göturnar eru fallegar. Gömlu gulu húsin, þar sem gluggarnir eru með ótal smárúöum... Hugh geispaöi. Þrátt fyrir allt tók Rob einnig að reyna að vekja áhuga hjá Hugh vegna Fanneyjar-Þar er útileiksvið svipað og Colesseum. Ef þú er byrjaður að læra latinu... — Ég er meira fyrir nú- timabókmenntir, sagði Hugh. Fanney reyndi að lokka PIu. — Þaö er sagt, að búðirnar i Verónu séu óviðjafnanlegar — Þær eru sveitalegar, sagði Pia, og þá voru þær ekki i tölu þeirra, sem litandi var inn i. — A torginu er fræg mynda- stytta af Mariu mey. Þætti þér ekki gaman að sjá hana? —Við höfum fræga Mariumynd I Róm, sagöi Pia. Jafnvel Caddie virtist ósigrandi. Fanney sýndi henni bók um Mantúa. Það var ein af bókum maddömu Menghinis. — Líttu á Caddie. 1 hertogahöllinni, höll Conzagas, er herbergi sem er alveg fullt af hestum. Þeir eru málaðir i fullri stærð á veggina. Þætti þér ekki gaman aö sjá þá? — Nei, þakka sér fyrir, sagði Caddie. — Mér finnst ekki gaman að horfa á hesta. Þaö vareins og orðið ,,Nú”, sem Caddie hafði ekki sagt, ómaði i loftinu — Það er sagt, að um þetta leyti árs keyri maður milli blómstr strandi ferskjutrjáa marga kiló- metra, sagði Fanney, sem var enn að reyna að lokka þau. — svo er það Cremona, þar sem fiðlur eru smiðaðar. Þið munið lika sjá plægt, með uxum beitt fyrir plóginn. — Við sáum það úr lestinni. — — Fyrst þau vilja ekki fara, þá er bezt að lofa þeim að vera heima, sagði Rob. — Þakka þér fyrir, en þetta er ekki okkar heimili , sagði Hugh — Hverjum hefði getað komið til hugar, aö Hugh gæti verið svona kvikindislegur, sagði Fanney við Rob. — Hann, sem var alltaf svo góður við mig. — Það er auðvitað þess vegna. — Mér hefði ekki dottið i hug, að barn gæti orðið svona beikzt — Þú ferð alltaf með hann eins og barn, og nú er honum farið að falla það illa. — Ég er að reyna að bæta honum þetta upp með þvi að vera ástúðleg og veita honum athygli. — Allt of mikla athygli, sagði Rob þreytulega. — Ég held, að þér skjátlast einmitt i þvi. Bó'rn eru börn, og þau veröa að reyna aö haga sér vel gagnvart full- orðnu fólki. 1362 Lárétt 1) Lesmerki,- 6) Góðvild.- 10) Kusk. 11) 12 mánuöir,- 12j Avöxturinn.- 15) Málms.- Lóðrétt 2) Margsinnis.- 3) Mánuður,- 4) Andað,- 5) Meta,- 7) Hnöttur.- 8) Ruggi,- 9) Bók- stafi.- 13) Hlutir.- 14) Verk- færi.- Ráðning á gátu No. 1361. Lárétt 1) Samba,- 6) Fagmann,- 10) TU. 11) An,- 12) Ukulele,- 15) Blokk.- Lóðrétt 2) Arg,- 3) Bóa,- 4) Aftur,- 5) Annes.- 7) Auk.- 8) Mél.- 9) Nál,- 13) Uml.- 14) Eik,- wfffi U R E K I Paddy. Okkur \ /En þú veizt, að W Við létum""™^^^yiö''dtúm það”^^|B þykir miður að Lj maður getur orð I undan til að stytta piltar. Þið fáið sjúkral hafa svikið bie Víð viHans har Á ' okkur stundirnar. meðferð, — ekki': MO 8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10. Fréttir og veðurfregnir 8.15 Létt morgunlög. Lúðra- sveitir frá Nýja Sjálandi leika, og hljómsveitin Philharmonia leikur balletttónlistn úr „Faust” eftir Gounod. 9.00 Fréttir. Úrdráttur úr forustugreinum dag- blaðanna. 9.15 Morguntónleikar (10.10 Veðurfregnir). a. Prelúdia og fúga i e-moll eftir Dietrich Buxtehude, og b. Trió um „Schmucke dich, o liebe Seele” eftir Johann Sebastian Bach. Roland Munch leikur á orgelið i dómkirkjunni i Branden- burg. (Hljóðritun frá út- varpinu i Berlin). c. Sinfónia nr. 2 i B-dúr fyrir tvær klarinettur, tvö horn og fagot eftir Johann Christian Bach. d. Sónata i D-dúr fyrir pianó, flautu og selló eftir Johann Christoph Fredrich Bach. e. Kvartett i a-moll fyrir pianó, flautu, viólu og selló eftir Carl Philipp Emanuel Bach Félagar úr kammersveit Vinarborgar leika þrjú siða- asttöldu verkin. f. Sinfónia nr. 3 „Rinarsinfónian” eftir Bruno Walter. Filhamóniu- sveitin i New York leikur; höf. stjórnar. 11.00 Messa. 12.15 Dagskráin. Tónleikar 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar 13.15 Erindaflokkur Rann- sóknarstofnunar fiskiðn- aðarins. Guðlaugur Hannesson gerlafræðingur talar um gérlarannsóknir á freðfiski. 14.00 Hratt flýgur stund á Sauðarkróki Jónas Jónas- son stjórnar þætti með blönduðu efni. 15.15 Miðdegistónleikar frá erlendum útvarpsstöðvum. a. Frá tónlistarhátið i St. Denis i Frakklandi s.l. sumar. Herrat Eiker, Nobuko Yamamoto, Eva Randova, Wilfreid Jochims, kórar frá Frankfurt og Figuralkórinn I Stuttgart flytja „David Penittente”, kantötu (K 469) eftir Mozart b. Frá tónlistarhátiö i Prag ifyrra. Evgeni Mogilevský og Rússneska rikishljóm- sveitin leika Pianókonsert nr. 2 i g-moll op. 16 eftir Prokofjeff: Évgeni Svjetlanoff stj. c. „Poeme de l’Extase” eftir Skrjabin. Filharmoniusveit hollenzka útvarpsins leikur: Willem van Otterloo stj. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Skrif séra Jóns Stein- grimssonar um Siðueld Bergsteinn Jónss. lektor les (3) 17.30 Sunnudagslögin. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill 19.35 Pistill frá Frakklandi i umsjá Böðvars Guðmunds- sonar. j;j;i;j;í 20.00 Skozkt listafólk leikur i ®jg útvarpssal tónlist eftir Hándel, Quants og Rawsthorne. (Aður útv. i |;;jg des. sl. ) jgg; 20.35 Fyrir vestan haf Þor- ;j;;;j;j;j steinn Matthiasson ræðir ;:;!;:;!;! við Jón Pálsson frá j;j;j;j;j; Reykjum á Reykjaströnd, i|| talar um vestur-islenzka j;j;j;!;j; ljóðagerð og flytur kvæði ;!;j;j;j;j 21.00 Kórsöngur Kór og !;j;j;j;!; hljómsveit óperunnar i Ber- p! lin flytja kórverk úr !;!;!;;;;; þekktum óperum. Í;j| 21.30 Lestur fornrita: Njáls j;j;!;!;!; saga Dr. Einar öl. Sveins- Mí son prófessor les (20). III 20.00 Fréttir j;j;j;j;j; 22.15 Veðurfregnir Frá ;!;;;!;!;: islandsmótinu i handknatt-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.