Tíminn - 18.03.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 18. marz 1973.
Organetta fyrir börn
tbúar Vestur-Þýzkalands hafa
nú fundið nýtt stöðutákn, og nú
keppastallir við að eignast það,
eöa útvega börnum sinum þetta
tákn. Hér er um að ræða
heimilisorgel, sem er
elektróniskt og á barna-
leikfangasýningu, sem nýlega
var haldin i Nurnberg var sýnd
smækkuð mynd af þessu orgeli
„organetta” sem er sérstaklega
ætluð börnunum. Það er fyrir-
tækið Hohner i Trossingen, sem
hefur gert þetta tæki. Hefur
fyrirtækið hugsað sér, að þegar
blásturshljóðfærin, sem mörg
börn byrja að læra á, missa að-
dráttarafl sitt, þá geti organ-
ettan tekið við, enda sú hún góð
til undirbúnings pianóspils
framtiöarinnar. En það má nota
organettuna til annars en spila á
hana. Það er hægt að setja yfir
hana lok, og nota sem teikni-
borð, eins og sjá má af með-
fylgjandi mynd.
Hasselblad á tunglinu
Hasselblad-myndavélar hafa
verið hluti af útbúnaöi geimfara
i 22 tunglferðum Bandarfkja-
manna, allt frá 1962, þegar
Walter Schirra tók með sér
fyrstu Hasselblad-myndavélina
til tunglsins. Á þessar mynda-
vélar hafa verið teknar nærri 20
þúsund litmyndir og svarthvitar
myndir i tunglferðunum. Hinn
20. júli, 1969, var tekin fyrsta
mannsmyndin á tunglinu, á
Hasselblad, myndin var af þeim
Neil Armstrong og Buss Aldrin.
Þá var tekin mynd á sams
konar vél, þegar Edward White
gekk i fyrsta skipti i geimnum.
Niu Hasselblad-myndavélar
hafa verið skildar eftir á
tunglinu, og i staðinn hafa geim-
fararnir tekið meö sér tungl-
grjót og önnur sýni. 1 tunglferö-
unum hafa verið notaðar allar
tegundir Hasselbladvéla, allt
frá geröinni 500C og SWC til 50
EL/70iSem hefur veriö i notkun
frá þvi 1968.
„Dásamlegt veður. Hlýtur að
minnsta kosti að vera minus 15
gráður”.
DENNI
DÆMALAUSI
Teygjan er ónýt i buxunum,
sjáðu hvernig fer, þegar ég
dreg inn niagann.