Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 24
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 124 stk.
Keypt & selt 21 stk.
Þjónusta 19 stk.
Heilsa 11 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 19 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 28 stk.
Atvinna 31 stk.
Tilkynningar 8 stk.
299*
399
*Algengt verð í matvöruverslunum
*
ar
gu
s
–
0
4-
05
60
Sætar kartöflur
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 8. október,
282. dagur ársins 2004.
Reykjavík 7.58 13.15 18.31
Akureyri 7.45 13.00 18.13
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Það er ekkert mál fyrir mig að segja
hver uppáhaldsmaturinn minn er,“ segir
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman,
leikkona og leikskáld, aðspurð um besta
mat í heimi. „Ég er ástfangin upp fyrir
haus af sushi. Ég gæti borðað það í hvert
mál.“
Þórdís Elva og kærastinn hennar, Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson leikari, gera
stundum sushi sjálf heima hjá sér og þá
er sashimi í sérstöku uppáhaldi. „Við
erum svo ástfangin af sashimi að við
skýrðum meira að segja söngdúettinn
okkar Sashimi.“
Þórdís Elva var svo heppin einu sinni
að hún fékk að fylgjast með alvöru sushi-
kokki að störfum og óx ástríða hennar á
þessum mat enn meira. „Þetta var mjög
merkileg lífsreynsla. Wasabi, sem er
mjög sterkt og notað í sushi, er í raun og
veru í púðurformi. Það var mjög fyndið
að þegar wasabi-ið var opnað þurftu allir
að vera með grímur því það getur gert
meiri skaða en versta sinnepsfræ ef þú
andar því niður í lungun.“
„Sashimi á að borða með fingrunum
eins og sushi-kokkur sem ég þekki komst
að af biturri reynslu. Hann var staddur á
frægasta sushi-veitingastað í New York
og var næstum því hent út því hann tók
upp prjóna og fór að borða. Japanir trúa
að maður þurfi að tengjast matnum áður
en maður borðar hann. Það er líka algjör
list að gera sashimi; bæði að skera hráa
fiskinn og að gera hrísgrjónin klístruð.
Alvöru sushi-kokkar nota sérstaka sash-
imi-hnífa sem skera fiskinn í næstum því
glærar sneiðar. Til að halda hrísgrjónun-
um klístruðum þarf að halda sífelldum
blæstri á þeim. Í hefðbundnum eldhúsum
stendur fólk með blævængi og blæs á
hrísgrjónin en á veitingastöðum fær
maður yfirleitt viftu,“ segir Þórdís Elva,
sem hefur þó ekki fjárfest í sérstökum
sashimi-tólum. „Hnífurinn sem fiskurinn
er skorinn með þarf að vera mjög beittur.
Ég á reyndar ekki sashimi-hníf en ég
nota ekki hvað sem er. Ætli það sé bara
ekki næst á dagskrá að fjárfesta í þannig
hníf.“
lilja@frettabladid.is
tilbod@frettabladid.is
Útivistarfatnaður eins og flís-
peysur, úlpur, sokkar og gönguskór
er meðal þess sem er nú á lækk-
uðu verði í Intersport. Einnig eru
þar léttir íþróttaskór, tennisáhöld
og fleira sem hentar í innanhúss-
sport svo ekkert ætti að vera að
vanbúnaði að hefja æfingar. Sem
verðdæmi má nefna vind- og regn-
helda kvenúlpu með flíspeysu sem
fæst í ýmsum litum á 9.990 en var
áður á 16.390 og hefur því lækkað
um 40%.
Boltamaðurinn býður góð til-
boð þessa dagana á skóm
sem henta vel fyrir boltaleiki
á gervigrasi, bæði fyrir
fullorðna og börn.
Fullorðinsskórnir
eru úr leðri og
lækka úr 9.990 í
4.990. Barnaskórnir
lækka úr 5.990 í 2.990.
Auk fótboltaskóa eru líka
strigaskór, rúskinnsskór, svo og
göngu- og hlaupaskór á lækkuðu
verði í Boltamanninum og sem
dæmi um verð má nefna að
gönguskór úr gervileðri eru á 2.990
krónur.
Gufuofnar eru seldir nú á
næstum helmingsafslætti hjá Einari
Farestveit í Borgartúni. Tilefni til-
boðsins er 40 ára afmæli verslunar-
innar. Ofnarnir henta vel til mat-
reiðslu grænmetis- og fiskrétta.
Þótt raðað sé í form tegundum
sem þurfa ólíkan eldurnatíma verð-
ur ekkert ofsoðið og hráefnið held-
ur vel lit sínum og þéttleika því að-
eins gufa leikur um matvælin en
ekki vatn. Einnig varðveitast vítamín
og bragð vel og því er verður mat-
reiðslan einkar heilsusamleg. Ofn-
arnir hjá Einari Farestveit fást hvítir
og úr stáli, einnig stáli með spegli.
Þeir kostuðu áður 75 þúsund en
hafa lækkað í 39.900 krónur.
Húðvörur eru á tilboði hjá
Lyfi og heilsu. Lína frá
Australian Bodycare Tea
Tree eru á 30% afslætti
og sömuleiðis Loréal Per-
fect Slim sem gerir húðina
stinnari en áður og vinnur á
appelsínuhúð. Þá er sérstök
taska með tvennskonar góðu
kremi á fætur, fótaþjöl úr málmi
og þvottastykki seld á 999 í Lyfi og
heilsu. Tilboðið gildir til 12. októ-
ber.
Málning á hausttilboði er hjá
Bykó í Breiddinni í Kópavogi út
þennan mánuð. Má geta Kópal
Birtu málningar sem seld er í 4 lítra
fötu á 3.990 en var áður á 5.494 ,
sama magn Kópal Glitru sem nú er
á 2.990 en áður á 4.798 og Bykó
innimálningar með gljástig 10 á
1.990 og hefur lækkað úr 3.463.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Mamma, verður þú
nokkuð grafin eða
brennd þegar þú
deyrð?
Sashimi-uppskrift Þórdísar Elvu:
Hrár lax (eða það sem til er í fiskborði)
Wasabi
Engifer
Sojasósa
Hrísgrjón
Laxinn er skorinn í þunna strimla og borinn fram í
skál. Hrísgrjónin eru soðin og gerð klístruð með
því að hafa blástur á þeim. Þau eru borin fram í
sér skál. Wasabi er notað eftir smekk og því dýft í
sojasósu og borðað með laxinum. Engiferið er al-
veg sér og notað eftir smekk.
„Þetta er einstaklega einföld uppskrift. Sashimi
þýðir í raun og veru Hrár fiskur í strimlum. Engifer-
ið er notað eftir smekk hér en Japanir nota engi-
ferið til að hreinsa munninn á milli bita,“ segir
Þórdís Elva.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Þórdís Elva og kærasti
hennar, Guðmundur Ingi,
elda stundum sushi og er
sashimi í miklu uppáhaldi.
Þórdís Elva er ástfangin upp fyrir haus:
Sushi í hvert mál