Fréttablaðið - 08.10.2004, Side 42
FÖSTUDAGUR 8. október 2004
• Kennari og pönkari
• Bubbi á breiðtjaldinu
• Kynþokki kemur að innan
• Bíómyndir vikunar
• Sjónvarpsdagskráin
ÚTBREIDDASTA TÍMARIT LANDSINS
Ný þemasýning á verkum Errós,
undir yfirskriftinni Víðáttur, eða
Scapes, var opnuð síðastliðinn
laugardag í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Verkin á sýningunni eru úr
eigu safnsins og einka-
söfnum. Erró hefur um
langt skeið málað stórar
myndir sem fylla út í
strigann, sem hann nefnir
víðáttuverk. Víðáttuverk-
in sem nú eru til sýnis
eru flest máluð á tí-
unda áratugnum og
eru sprottin úr hugar-
heimi teiknimynda, með
hetjum og þorpurum vís-
indaskáldsagna þar sem góðu
hetjurnar berjast gegn hinum
illu öflum sem öllu vilja tortíma.
Næstkomandi sunnudag, 10.
október kl. 15.00, mun Þorbjörg
Br. Gunnarsdóttir sýningarstjóri
annast leiðsögn um sýninguna. ■
Erró og víðátturnar
Söngkonurnar þrjár sem
taka þátt í uppfærslu ís-
lensku óperunnar á Sween-
ey Todd eru sérstaklega
þjálfaðar til þess að syngja
alltaf fallega, en í þessari
sýningu þurfa þær að gera
ýmislegt fleira.
Stephen Sondheim, höfundur
óperunnar Sweeney Todd, sagði
markmiðið með því að semja
söngleik um hinn djöfullega rak-
ara hafa verið skýrt og einfalt.
Hann langaði til þess að búa til
tónlist sem myndi hræða áhorf-
endur. Ef marka má vinsældir
þessa söngleiks/óperu frá því að
hún var frumsýnd árið 1979, hef-
ur honum tekist það – því hvað
finnst okkur skemmtilegra en að
láta hræða okkur, hvort sem er í
bíó, leikhúsi eða óperunni?
Það liggur í hlutarins eðli að
tónlist sem hræðir okkur er ekki
nein venjuleg óperutónlist sem
hefur það markmið að snerta
áheyrandann svo um munar með
fegurð sinni. Það er því forvitni-
legt að vita hvað klassískt mennt-
uðum söngvurum Íslensku óper-
unnar finnst um að takast á við
tónlist sem er svo gerólík því sem
menntun þeirra miðaði að. Söng-
konurnar þrjár sem taka þátt í
sýningunni, Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir (frú Lóett), Hulda Björk
Garðarsdóttir (Jóanna) og Sess-
elja Kristjánsdóttir (Betlikerling)
eru skólaðar fyrir hinar ægifögru
tóna Verdis, Puccinis og Mozarts
og segja tónlistina í Sweeney Todd
óneitanlega „spes.“
„Það sem er ekki síst óvenju-
legt,“ segja þær, „er að þetta er
hvorki söngleikur né ópera en
samt bæði söngleikur og ópera –
en svo eru þetta leikrit að auki.“
„Ég hef áður tekið þátt í upp-
færslu þar sem ég þurfti að leika
og syngja,“ segir Ingveldur Ýr,
„en það er mjög langt síðan.
„Þetta form er alveg nýtt fyrir
okkur hin,“ segir Sesselja.
Söngkonurnar segja að sýning-
in sé mjög krefjandi fyrir alla
söngvarana, vegna þess að öll
hlutverkin séu karakterhlutverk.
„Ólíkt því sem er í óperum, eru öll
hlutverkin í sýningunni mjög af-
gerandi karakterar, bæði leiklega
og sönglega séð. Við þurfum öll
smá kjark til þess að syngja þau,
vegna þess að röddin í okkur á
ekki alltaf að vera falleg. Við
erum vissulega öll með fallegar
laglínur og stef, sérstaklega
Sweeney og Jóanna, en svo allt í
einu „snappar“ karakterinn og
öskrar.“
„Við erum alin upp í því að
syngja alltaf fallega og þurfum
kjark til þess að láta svona illa.
Það er óhætt að segja að tónlistin
sé mjög krefjandi,“ segir Sess-
elja, „og háð því sjónræna. Mér
fannst hún, til dæmis, ekkert sér-
stök þegar ég heyrði hana fyrst á
geisladiski, en svo sá ég hana á
dvd-diski og varð heilluð.“
Hvernig skýrið þið vinsældir
hennar?
„Sagan er frábær, karakterarn-
ir hver öðrum skemmtilegri og
tónlistin er flott. Þetta er ekki há-
klassísk óperutónlist eða garg-
andi popptónlist, heldur söngleik-
ur sem höfðar til allra kynslóða.
Það hefur sýnt sig að þetta er
söngleikur sem höfðar jafnt til
ungs fólks í menntaskóla og til
þrælsjóaðra óperuunnenda.“ ■
Þurfum kjark til
að láta svona illa
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar heldur ferna tónleika á starfsárinu. Tónleik-
arnir verða haldnir í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar og flytjendur eru kennarar
skólans. Fyrstu tónleikarnir verða sunnudaginn 10. október kl. 17.00, þegar þau
Marta Halldórsdóttir sópran og Örn Magnússon píanóleikari flytja ljóðadagskrá eft-
ir Mozart, Haydn, Mendelssohn, Gunnar Reyni Sveinsson og Gunnstein Ólafsson.
INGVELDUR ÝR JÓNSDÓTTIR Þetta er ekki háklassísk óperutónlist eða gargandi
popptónlist, heldur söngleikur sem höfðar til allra kynslóða.
Kennaratónleikar