Tíminn - 06.01.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur (i. janúar 1974
írski verndar-
dýrlingurinn
var ekki írskur!
Þeir halda þvi vist ekki á lofti
æstustu kaþólsku Irarnir, að
aðalverndardýrlingur þeirra,
sem þeir ákalla, þegar mest
liggur við, — er alls ekki irskur
að uppruna. Hann var franskur
og fæddist i Tours og hét réttu
nafni Succat. Faðir hans hét
Calpurnius, en móðir hans var
systir Marteins erkibiskups i
Tours.
★
Sovézkt tímarit
Um tungumdl
Gyðinga
Arið 1961 hófst i Moskvu út-
gáfa mánaðarrits i n s
„Soviethish Heimland”, sem
kemur út á málinu jiddisch og
fjallar aðallega um bókmenntir
og listir. Timaritið er 12 prent-
aðar arkir að stærð, skreytt
myndum og eftirprentunum.
Upplagið er 25 þúsund eintök.
Ekkert annað timarit á jiddisch
kemur út i svo stóru upplagi.
Hluti upplagsins er sendur til
dreifingar i öðrum löndum svoj
sem Bandarikjunum, Kanada,
Uruguay, Frakklandi og tsrael.
*
Pizzu-saga í
þrem þdttum
Robert McLean veit engan mat
betri en italska pizzu, sem nú er
mikill tizkuréttur víða um heim
(hefur jafnvel borizt hingað til
lands). Hann lét sér þvi ekkert
bregða, þegar lögreglumaður
kom skyndilega inn á veitinga-
stað, þar sem hann sat að pizzu-
áti, og tilkynnti honum, að bill-
inn hans hefði runnið niður
brekku og lent á steinvegg.
McLean fór i hægðum sinum
út, náði i bilinn og kom honum
fyrir á öruggari stað. Siðan hélt
hann inn og hélt áfram að borða
pizzuna sina.
Nokkrum minútum siðar kom
sami lögregluþjónninn aftur inn
á veitingastaðinn, og enn átti
hann erindi við McLean. Nú
hafði hann þær fréttir að færa,
að fyrrnefndur bill stæði i björtu
báli. Og McLean átti ekki ann-
ars úrkosta en yfirgefa pizzuna i
annað sinn. Slökkvilið var kall-
að á vettvang og tókst að
slökkva eldinn. Ekki var þvi
fyrr lokið, en McLean flýtti sér
inn til að ljúka við pizzuna.
m
DENNI
DÆMALAUSI
Elskan, við getum ekki haldið
áfram að hittast svona. Að
minnsta kosti ekki hérna hjá okk-
ur, það er áreiðanlegt.