Tíminn - 06.01.1974, Síða 5
Sunnudagur 6. janúar 1974
TÍMINN
5
Nýtt þjóðháttasafn
í útborg Lvov i Vestur-XJkrainu
risu upp einkennilegar bygging-
ar fyrir nokkrum árum: Viðar-
kirkja, kofi með stráþaki,
vatnsmylla og fl. Þetta var úti-
safn, sem sett var upp i
Shevchenkovski Gai-garðinum.
★
Schevchenkovski Gai er tólfta
safnið i Lvov. Borgarstjórnin
hefur kostað uppsetninguna og
viðhald safnsins.
★
Þar munu verða sýnd dæmi
um hina gömlu viðarbyggingar-
list, gömul verkfæri og út-
búnaður.
★
Gestir safnsins munu geta
ferðazt aftur i timann og kynnt
sór lif og menningu forfeðra
sinna.
★
Ný tegund af
„Zaporozhet"
Daglega renna 350 litlar bifreið-
ar af gerðinni Zaporozhets eftir
færibandinu i Kommunar-bif-
reiðaverksmiðjunum i Zaporo-
znye i Úkrainu. Það er nýja
tegundin ZAZ-968, sem byrjað
var að framleiða i marz 1972.
Hafin var framleiðsla á nýju
tefundinni, án þess að tækni-
starf stöðvaðist.
Nýja gerðin er þægilegri og
traustari i notkun, heldur en sú
eldri. Vélin er kraftmeiri, 40 og
45 hestöfl, og hægt er að ná 125
km hraða á klst.
Framleiösla nýju bifreiðanna
hefur verið endurskipulögð, til
þess að hægt sé að standast
fimm ára áætlunina, en i lok
hennar er áætlað, að ársfram-
leiðslan verði 150.000 bilar.