Tíminn - 06.01.1974, Síða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 6. janúar 1974
Hjálmar örn Jónsson framkvæmdastjóri Skrifvélarinnar Suburlandsbraut 12.
Hjálmar örn hefur meö fádæma dugnaöi komizt i röö fremstu manna, sem fást viö sölu og viögeröir á
rafreiknivélum og öörum skrifvélum. Hjálmar örn lauk prófi f skriftvélavirkjun frá Iönskólanum áriö
1954, og var þá, ásamt öörum ncmanda, sá fyrsti, sem útskrifaöist I þessu fagi frá Iönskólanum. Hefur
siðan áriö 1957 rekiö Skrifvélina.
*
Rætt við
Hjálmar Örn Jónsson,
framkvæmdastjóra
Skrifvélarinnar,
sem seldi bíl
og steypti í
moldargólf
til að stofna
eigið fyrirtæki:
SKRIFVÉLINA
SKRIFVÉLIN
— Suðurlandsbraut 12
EITT þeirra fyrirtækja á tslandi,
er teljast mega I fararbroddi inn-
an sinnar greinar, cr Skrifvélin
sf, en þaö fyrirtæki annast sölu og
viðgeröir á skrifvélum, reiknum
og allskonar lijálparvélum i nú-
tima reikningshaldi. Samt er
Skrifvélin tiltölulega ungt fyrir-
tæki, jafnvel á islenzkan mæli-
kvarða, og hefur verið byggt upp
af elju og þolinmæði fyrst og
fremst, fremur en fjárhagslegu
bolmagni, aöstööu eða forréttind-
um.
Rætt við Hjálmar örn
Jónsson framkvæmda-
stjóra
Eigandinn, Hjálmar örn Jóns-
son, skriftvélameistari, veitir
Skrifvélinni forstöðu, og hittum
við hann að máli i skrifstofu hans,
að Suðurlandsbraut 12, en Timinn
kynnir fyrirtæki hans að þessu
sinni. Sagðist Erni frá á þessa
leið:
— Ég fæddist á Dalvik árið 1932,
en þar bjuggu foreldrar minir,
Agústa Guðmundsdóttir og Jón
Björnsson.
Faðir minn var þarna smiður.
Ég gekk i unglingaskóla á Dalvik,
en fór siðan til sjós, þangað til ég
var 18 ára gamall. Var á sild-
veiðum og öllu mögulegu, og
meira að segja á hákarlaveiðum
með Jóhanni Guðmundssyni á
Hólmavik, frænda minum. Hann
gerði þá út á hákarl, en núna
stundar hann mest rækjuveiðar.
Ég var á sildveiðum þegar verst
gekk hjá þeim atvinnuvegi. Það
fékkst engin sild, og við fengum
ekki einu sinni greidda kaup-
trygginguna. Ég held við höfum
aðeins einu sinni kastað þetta
sumar, en það var á ufsatorfu á
Skagagrunninu. Þá voru ekki til
þessi fiskleitartæki, og aðeins var
hægt að veiða vaðandi sild.
Suður til að læra skrift-
vélavirkjun
— Ég fór hingað suður til
Reykjavikur, og fór þá beint til að
læra þessa iðn, skriftvélavirkjun.
Ég lærði hana hjá þeim einstaka
manni Ottó Michelsen, sem allir
Skrifvélin er nú eitt umsvifamesta fyrirtæki landsins
í e?#ktréniskum reiknivélum og borðtölvum